Morgunblaðið - 12.01.2009, Side 15

Morgunblaðið - 12.01.2009, Side 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 HNÖKRAR hafa verið á nýja almenningsvagnakerfinu og tengingu gamla kerfisins við höfuðborgina. Þannig hefur það valdið farþegum í Borgarnes og Akranes vandræðum að vagninn hefur ekki náð að halda áætlun. Einnig hafa farþegar sérleyfishafans á Snæfellsnesi og Dölum orðið að bíða í Borgarnesi og í einstaka tilviki átt á hættu að verða strandaglópar þar. Vilji er hjá Vegagerðinni og sérleyf- ishafanum til að leysa þessi mál. Strætó og sveitarfélögin settu upp mikla áætlun fyrir ferðir til Akraness og Borgarness og var ætlunin að nota tvo bíla. Áætlunin reyndist of stíf og ekki hefur tekist að vinna upp seinkanir sem verða vegna veðurs eða umferð- ar. Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, segir að til athugunar sé að bæta þriðja bílnum við til að koma í veg fyrir þessi vandræði. Vandræði hafa komið upp vegna tengingar gamla sér- leyfiskerfisins inn í höfuðborgina. Í útboði Vegagerð- arinnar á sérleyfunum var reynt að draga úr akstri margra sérleyfisbíla úr Borgarnesi til Reykjavíkur, eins og lengi hefur tíðkast. Þetta var gert með hliðsjón af strætisvagnaferðunum sem nú er boðið upp á þarna í milli. Þannig var gert ráð fyrir að farþegar sérleyfisins af Vestur- og Norðurlandi myndu sameinast í eina rútu í Borgarnesi eða nýta sér strætisvagnana. Þetta hefur ekki virkað í öllum tilvikum. Farþegar af Snæfellsnesi geta þurft að bíða í hálfan annan tíma eftir strætó og rútu í Borgarnesi. Þá hafa farþegar úr Búð- ardal átt á hættu að verða strandaglópar í Borgarnesi á sunnudagskvöldum, á leiðinni suður. Vegagerðin hefur verið í samskiptum við sérleyfishafann og unnið er að lausn. Til greina kemur að breyta uppsetningu áætlunar eða keyra alla leið í bæinn vissa daga. Þá hefur orðið vart við óánægju með það á Snæfellsnesi að ekki sé hægt að fara suður að morgni og heim aftur að kvöldi, eins og var áður. Þá tekur strætó vitanlega ekki pakka og sérleyfishaf- arnir hafa dregið mjög úr þjónustunni á því sviði. Hefur sumum brugðið við það sem vanir eru að nota þjónustu sérleyfisbifreiðanna í þeim tilgangi. Er fólki nú vísað á Póstinn eða hraðsendingarfyrirtækin með pakkana. Vegna einkaleyfis sveitarfélagsins er sérleyfishafanum óheimilt að taka gjald fyrir að flytja farþega milli Reykja- víkur og Borgarness og milli Reykjavíkur og Selfoss, þótt bílar hans aki þessar leiðir. Óskar Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Bíla og fólks sem hefur sérleyfi á fjarleið- unum frá höfuðborginni, er ósáttur við að geta ekki flutt ferðafólk á þessum hluta hringvegarins, einkum á sumrin, því það hafi verið mikilvægur þáttur í að halda sérleyfinu uppi. Aðspurður segist Óskar ekki með nokkru móti geta neitað fólki sem komi í bílinn um þessa þjónustu, þrátt fyrir ákvæði í samningnum við Vegagerðina um að það sé óheimilt. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni, segir að reynt hafi verið að minnka ferðir lítið nýttra fólksflutningabíla milli Borgarness og Reykja- víkur. Hún minnir á að opinberir rekstrarstyrkir séu ætl- aðir til að halda úti þjónustu fyrir fólk. Fjármagnið sé takmarkað og betra sé að vera með færri ferðir sem séu þá nýttar en að láta fleiri rútur aka sömu leiðina. Þá sé upplagt að nýta almenningssamgangnakerfið sem nú nái til Borgarness. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir að leiðakerfið austur fyrir fjall og upp í Borgarfjörð miðist við að þjóna því fólki sem fari til vinnu eða skóla á morgn- ana og heim aftur á kvöldin. Ekki sé hægt að stilla það af miðað við aðra þætti, eins og rútur úr öðrum landshlutum. Hræddir við að verða strandaglópar í Borgarnesi FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is YFIRTAKA sveitarfélaganna á Suð- vesturlandi á sérleyfum í fólksflutn- ingum hefur stórbætt almennings- samgöngur á svæðinu frá Borgarnesi til Selfoss. Ferðum hefur fjölgað og gjaldskrá lækkað. Möguleikar fólks aukast á að velja sér búsetu í fjarlæg- ari byggðakjörnunum en sækja dag- lega vinnu eða skóla í Reykjavík – og öfugt. Fólksflutningar á landi hafa í ára- tugi grundvallast á akstri sérleyf- isbifreiða til og frá Reykjavík og milli staða á landsbyggðinni. Með aukinni bílaeign og ýmsum breytingum í þjóðfélaginu hefur smám saman dregið úr notkun áætlanabif- reiðanna. Kerfinu hefur verið haldið gangandi síðustu árin með rík- isstyrkjum. Eftir að Hvalfjarðargöngin komu brutu Akurnesingar upp þetta fyr- irkomulag. Þeir nýttu sér ákvæði í lögum um einkaleyfi sveitarfélaga til almenningssamgangna og féllst ríkið á að taka leiðina milli Akraness og Reykjavíkur út úr sérleyfiskerfinu fyrir þremur árum. Akraneskaup- staður tók upp samstarf við Strætó höfuðborgarsvæðisins. Reynslan varð góð og með betri þjónustu fjölg- aði mjög farþegum á leiðinni. Í upp- hafi voru greidd venjuleg strætó- fargjöld til Akraness á sama tíma og það kostaði 1.900 krónur með rút- unni til Borgarness, svo dæmi sé tek- ið. Sveitarfélögin taka við Önnur sveitarfélög á Suðvest- urlandi tóku mið af reynslu Akurnes- inga þegar þau nýttu sömu heimild í lögum og virkjuðu einkaréttinn. Um áramót bættust Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit á Vesturlandi í hóp- inn hjá Stætó og Hveragerði og Sel- foss á Suðurlandi. Samband sveitar- félaga á Suðurnesjum tók við einkaleyfinu fyrir Suðurnesin en fór aðra leið en hin sveitarfélögin. SSS samdi við Kynnisferðir og SBK um að sinna akstrinum áfram en með samþættingu kerfisins á Suð- urnesjum, meðal annars við almenn- ingssamgöngur í Reykjanesbæ og ýmsan annan akstur á vegum sveit- arfélaganna. Skapar það möguleika á aukinni þjónustu. Samgönguyfirvöld greiða sveit- arfélögunum þá styrki sem viðkom- andi sérleyfi höfðu áður en það dugar skammt. Aukinni þjónustu og lægra fargjaldi fylgir kostnaður sem fellur á sveitarfélögin. Þau telja þetta nauðsynlegt til að styrkja sitt svæði í samkeppninni um íbúana. Tilgangurinn er að sögn Páls S. Brynjarssonar, bæjarstjóra Borg- arbyggðar, að gera íbúunum kleift að nota almenningssamgöngur til að komast daglega til vinnu og skóla í Reykjavík, sömuleiðis þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu að sækja skóla og vinnu í Borgarfirði. Þá sé þetta hugsað sem kjarabót fyrir íbúana. Of snemmt er að átta sig á því hvernig íbúar í Borgarnesi, Hvera- gerði og Selfossi taka þessari þjón- ustu. Hún er aðeins nokkurra daga gömul og skólarnir nýlega teknir til starfa eftir jólafrí. Jóhann Guðmundsson, skrif- stofustjóri í samgönguráðuneytinu, segir að þær breytingar sem orðið hafi með aðkomu sveitarfélaganna í kringum höfuðborgina að almenn- ingsvagnakerfinu séu mikið fram- faraspor. Nú sé þessi þjónusta loks- ins komin í almennilegt lag. Skipt í fargjaldasvæði Til þess að koma þessu breyt- ingum í kring hefur Strætó komið upp nýju fargjaldakerfi þar sem þjónustusvæðinu er skipt upp í gjald- skrársvæði, sóna. Stakt fargjald til Selfoss og Borgarness er 1.120 krón- ur en lægra til Akraness og Hvera- gerðis. Þeir sem nota strætó reglu- lega geta keypt sér farmiðaspjöld og afsláttarkort og þá lækkar gjaldið verulega, reiknað á hverja ferð. Þannig samsvarar þriggja mánaða kort til Borgarness og Selfoss um 400 krónum á ferð, ef það er notað tvisvar alla virka daga. Vagnarnir af Vesturlandi og Suð- urlandi tengjast inn í leiðakerfi Strætó í Mosfellsbæ og Mjódd. Suðurnesjakerfið er sjálfstætt en þar eru einnig boðin afsláttarkort. Endastöð þess er á BSÍ. Sveitarfélögin í Eyjafirði og Þing- eyjarsýslu höfðu einnig hug á að taka sérleyfin til sín um áramót en af því varð ekki að sinni. Gamla kerfið áfram við lýði Er því gamla sérleyfiskerfið við lýði úr Borgarfirði hringinn í kring- um landið og til Árnessýslu. Þar er boðið upp á lágmarksferðatíðni eins og verið hefur og fargjöldin hærri en í almenningssamgöngum á höf- uðborgarsvæðinu. Sérleyfin voru boðin út að nýju á síðasta ári. Helstu svæðin eru Suður- land austan Selfoss sem Bílar og fólk ehf. annast og Norður- og Vest- urland, sem sama fyrirtæki hefur. Bílar og fólk annast því tengingar meginhluta landsbyggðarinnar við Reykjavík. Minni sérleyfi eru í kring- um flugvellina á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum og milli héraða. Tiltölulega fáir farþegar nýta ferð- ir sérleyfishafanna meginhluta árs- ins. Ferðafólk notar þjónustuna á sumrin og hjálpar það til við að halda þessu kerfi gangandi. Kristinn Jón- asson segir að þjónustan sé mikilvæg fyrir vissa hópa, eins og unglinga og eldri borgara, og ekki megi láta hana drabbast niður. Til þess að þjónustan verði valkostur en ekki neyðarbrauð þurfi hún að vera góð. Sveitarfélögin taka yfir þjónustuna í kraganum  Aukin aðkoma sveitarfélaganna að fólksflutningum eykur þjónustuna og lækkar gjaldið  Suðurnesin eru með eigið kerfi  Gamla sérleyfiskerfið með lágmarksþjónustu áfram við lýði á landsbyggðinni Í HNOTSKURN »Vegagerðin greiðir 265milljónir í rekstrarstyrki til sérleyfishafa í ár, sam- kvæmt útboði. »Sveitarfélögin í kringumhöfuðborgina fá 44 millj- ónir, sömu fjármuni og áður fóru í sérleyfi á þeirra leiðum. »Ríkið styrkir rekstur BSÍum 18 milljónir.                       ! "# $  %  &' %  (   ' )*  '  %%  +  ! &'  # $      '  '*#   %#  $$      %   '  ! +# "   "    '   '  !' ' ,  - .   '  /&-   '%  '  . 0* &' .  !'  ' 0 &'  ! " ' /   !"#  1    2 %  '   --*  !  !"  #  '  &  $ " ' &  ' 1   *  3   ' $ 4!'   *4' $4  & 4 4 !  # 2 % '4567 *4 4&4 *4" '8    '          Morgunblaðið/Golli Í strætó Góður tími gefst til íhugunar í strætó á morgnana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.