Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 17

Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 BARACK Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, kvaðst ætla að beita öðrum aðferðum í deilunum við Íran en gert hefur verið í forsetatíð George W. Bush. „Ég tel að Íran verði eitt af erf- iðustu úrlausnarefnum okkar,“ sagði Obama í ítarlegu viðtali sem banda- ríska sjónvarpið ABC sýndi í gær. Hann varaði við því að ef Íranar eignuðust kjarnavopn gæti það leitt til „kjarnavopnakapphlaups í Mið- Austurlöndum“. Obama sagði í viðtali við George Stephanopoulos í þættinum „This Week“ að hann myndi nálgast deil- urnar við Íran með öðrum hætti en stjórn Bush. Hann hét því að leggja „áherslu á virðingu og vilja til við- ræðna“, en gera einnig klerkastjórn- inni ljóst hvar Bandaríkjastjórn setti mörkin. Embættismenn saksóttir? Stjórnvöld í Íran hafa neitað að verða við kröfu öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna um að hætta að auðga úran, sem hægt væri að nota í kjarnavopn, og sagt að markmið þeirra sé aðeins að nýta kjarnorkuna í friðsamlegum tilgangi, þ.e. til orku- framleiðslu. Obama kvaðst einnig hafa áhyggjur af því að stjórnin í Ír- an beitti sér fyrir hryðjuverkastarf- semi með því að styðja íslömsku samtökin Hamas og Hizbollah. Obama kvaðst ætla að setja upp sérstakan starfshóp sem ætti að beita sér fyrir friði í Mið-Austurlönd- um. Hann útilokaði ekki að embætt- ismenn Bush-stjórnarinnar yrðu sóttir til saka fyrir lögbrot og árétt- aði að Guantanamo-fangelsinu yrði lokað. Hann gaf þó til kynna að það myndi ekki gerast fyrstu hundrað dagana eftir að hann tekur við for- setaembættinu 20. þessa mánaðar. bogi@mbl.is Boðar nýjar aðferðir gegn Íran Barack Obama kveðst ætla að leggja „áherslu á virðingu og vilja til viðræðna“ til að afstýra því að Íran eignist kjarnavopn  Segist einnig hafa áhyggjur af stuðningi Írana við Hamas-samtökin og Hizbollah AP Stefnan rædd Barack Obama ræðir við sjónvarpsmanninn George Steph- anopoulos sem var einn af aðalráðgjöfum Bills Clintons í forsetatíð hans. FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is MANNSKÆÐUR hernaður Ísraela á Gaza-svæðinu hefur aukið vinsæld- ir Hamas og annarra samtaka ísl- amista í arabalöndum og mörgum íbúanna ofbýður aðgerðaleysi ráða- manna þeirra, að sögn arabískra fréttaskýrenda. Ísraelsher hefur orðið að minnsta kosti 875 Palestínumönnum að bana, þar af minnst 275 börnum, frá því að hernaðurinn hófst 27. desember. Að minnsta kosti helmingur þeirra, sem hafa beðið bana, er úr röðum óbreyttra borgara. Á sama tíma hafa aðeins þrettán Ísraelar fallið, þar af tíu hermenn. Þótt liðsmenn Hamas séu engin lömb að leika sér við og hafi stund- um beitt aðferðum, sem auka lík- urnar á miklu mannfalli meðal Pal- estínumanna – meðal annars falið vopn í moskum, skólum og íbúðar- húsum – eru þeir í hlutverki lít- ilmagnans og samúð langflestra, sem fylgjast með blóðsúthelling- unum, er með Palestínumönnum. Hafa tapað áróðursstríðinu „Ísraelar hafa ekki náð fram öll- um hernaðarlegum og pólitískum markmiðum sínum og tapað áróð- ursstríðinu í fjölmiðlum,“ hefur fréttastofan AFP eftir Dhia Ras- hwan, egypskum sérfræðingi í starf- semi íslamskra hreyfinga. Hann segir að blóðsúthellingarnar á Gaza hafi haft svipuð áhrif á al- menningsálitið og stríðið í Líbanon í júlí 2006 – þegar Ísraelum mistókst að ganga milli bols og höfuðs á vopn- uðum sveitum Hizbollah-hreyfing- arinnar – og innrásin í Írak sem varð til þess að íslömskum ofstæk- ismönnum óx ásmegin. Rashwan segir að íslamskar hreyfingar séu nú í fararbroddi í stjórnarandstöðunni í arabalönd- unum og auki fylgi sitt meðal al- mennings á kostnað arabískra þjóð- ernissinna og frjálslyndra stjórnarandstæðinga. „Gapið milli arabískra stjórnvalda og almennings stækkar stöðugt.“ Ali Fakhrou, aðgerðasinni í Bar- ein, tekur í sama streng. „Með því að heyja þetta stríð eru Ísraelar ekki aðeins að reyna að sigra Hamas, heldur íslömsku andspyrnuna, sem bandarísk stjórnvöld og bandamenn þeirra í ríkisstjórnum arabalanda óttast, því þeir telja að sigur ísl- ömsku andspyrnunnar myndi leiða til grundvallarbreytinga í þessum heimshluta. Hreyfingar íslamista, sem spruttu upp í tómarúminu eftir hugmyndafræðilegt skipbrot arab- ískra þjóðernissinna og vinstri- manna, eru þær einu sem geta varið þennan heimshluta gegn brjál- æðislegri stefnu stjórnvalda í Bandaríkjunum og Ísrael,“ hefur AFP eftir Fakhrou. Vilja berjast í návígi Þar sem hernaður Ísraela hefur verið vatn á myllu Hamas er ólíklegt að samtökin fallist á vopnahlé í bráð til að binda enda á blóðsúthelling- arnar. Talið er að Hamas-menn reyni að ginna hermenn Ísraela til að berjast í návígi á götum Gaza- borgar og auka þannig líkurnar á verulegu mannfalli í herliði Ísraela. Óljóst er hvort Ísraelum hefur tekist að veikja Hamas hern- aðarlega. Dragist hernaðurinn á langinn og liggi hundruð Hamas- manna í valnum er líklegt að til- tölulega auðvelt verði fyrir samtökin að fá nýja menn í vopnaða hópa sína, í ljósi aukinna vinsælda Hamas með- al Palestínumanna. Vatn á myllu íslamista Blóðsúthellingarnar á Gaza-svæðinu hafa orðið til þess að vinsældir íslamskra hreyfinga hafa aukist á kostnað þjóðernissinna og vinstrimanna í löndum araba Reuters Ráðast á börn Jórdanskur piltur horfir í gegnum gat á spjaldi á mótmælafundi í Amman í gær. Á spjaldinu stendur: „Þeir ráðast á börn“. STJÓRNVÖLD í Ísrael gáfu til kynna í gær í fyrsta skipti að hern- aðinum á Gaza kynni senn að ljúka. „Ályktun öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna veitir okkur ekki mikið svigrúm,“ sagði aðstoð- arvarnarmálaráðherra Ísraels, Matan Vilnai. „Svo virðist því sem við séum nálægt því að ljúka land- hernaðinum og öllum aðgerð- unum.“ Ehud Olmert forsætisráðherra sagði að Ísraelar væru nær því að ná markmiðum sínum en halda þyrfti hernaðinum áfram um sinn. Dagblöð í Ísrael segja að ágrein- ingur sé milli Ehuds Baraks varn- armálaráðherra og Tzipi Livni ut- anríkisráðherra í málinu. Livni vilji ganga lengra en Barak í hern- aðinum til að reyna að fella stjórn Hamas á Gaza. Livni og Barak sögð deila um hernaðinn HARRY Breta- prins baðst í gær afsökunar á að hafa notað orð, sem þykir niðrandi og hlaðið kynþátta- fordómum, um pakistanskan vin sinn í breska hernum fyrir þremur árum þegar hann gegndi herþjónustu. Æsifréttablað hafði birt myndbandsupptöku þar sem prinsinn notaði orðið „Paki“, sem þykir niðrandi og hefur verið not- að um Pakistana og aðra Suður- Asíubúa. Talsmaður prinsins sagði hann gera sér grein fyrir því að orðið væri niðrandi, en hann hefði ekki haft neitt illt í huga og ekki ætlað að móðga vin sinn. Stjórnmálamenn á borð við David Cameron, leiðtoga íhalds- manna, höfðu gagnrýnt prinsinn fyrir ummælin. Leiðtogi samtaka ungra múslíma í Bretlandi for- dæmdi ummælin, sagði þau óverj- andi, og lýsti prinsinum sem „þorpara“. Prinsinn sætti einnig harðri gagnrýni fyrir fjórum árum fyrir að klæðast nasistabúningi í afmæl- isveislu vinar síns. bogi@mbl.is Harry biðst afsökunar Harry prins HÓPAR eftirlitsmanna á vegum Evrópusambandsins voru í gær til- búnir til að hefja eftirlit í Úkraínu með gasflæðinu í leiðslum sem not- aðar eru til að flytja jarðgas frá Rússlandi til ESB-landa. Gasflutn- ingarnir hófust þó ekki að nýju vegna deilu um samning Úkra- ínumanna og Rússa um eftirlit með gasleiðslunum. Rússar neituðu að hefja gasflutn- ingana, sem stöðvuðst á miðviku- dag, og sögðu ástæðuna þá að Úkraínumenn hefðu ógilt samning- inn. Úkraínumenn höfðu undirritað samninginn en síðan gefið út yf- irlýsingu sem þeir sögðu fylgja honum. Framkvæmdastjórn ESB sagði að yfirlýsingin breytti ekki samn- ingnum. Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, sagði hins vegar að samningurinn væri ógildur nema Úkraínumenn drægju yfirlýs- inguna til baka. Ráðgjafi forseta Úkraínu í orkumálum sagði að yf- irlýsingin væri aðeins útskýring á afstöðu Úkraínumanna. Rússar hættu að selja Úkra- ínumönnum gas um áramótin vegna verðdeilu og skrúfuðu seinna fyrir gasið til ESB-landanna. Þeir sökuðu Úkraínumenn um að hafa stolið gasi sem ætlað var ESB- löndum. bogi@mbl.is Rússar segja gassamning ógildan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.