Morgunblaðið - 12.01.2009, Side 19

Morgunblaðið - 12.01.2009, Side 19
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthorg@gmail.com STUNDUM er sagt að tíminn gangi í hringi, að sagan endurtaki sig. Þetta á við um Kent Lárus Björnsson, sem öðlaðist íslenskt ríkisfang í desember sl., en langafar og -ömmur hans fluttu til Kanada frá Íslandi á árunum 1876 til 1905. Til Íslands fyrir um 30 árum Kent ólst upp í Fraserwood í Mani- toba, fámennu þorpi skammt vestan við Gimli, þar sem fjölskyldan rak mjólkurbú. Sumarið 1979 fór fjöl- skyldan í heimsókn til Íslands en ein- hver varð að vera eftir á búinu og féll það í hlut Kents. Í staðinn ákvað hann að fara á sömu slóðir um haustið og vera lengur. Hann vann á prjónastofu á Blönduósi um veturinn og hélt síðan til Grindavíkur þar sem hann starfaði í frystihúsi áður en hann hélt aftur til Kanada sumarið 1980. Eftir nám við Manitoba-háskóla um veturinn fór hann til Íslands og að þessu sinni lá leiðin í frystihús á Djúpavogi. Þar starfaði hann í hópi fjögurra ung- menna frá Manitoba um veturinn en skellti sér síðan á sjóinn frá Höfn áð- ur en hann hélt enn á ný vestur til að ljúka BA-prófi í stjórnmálafræði og íslensku. Um árabil starfaði hann sem flutningabílstjóri og ók um Mani- toba, Saskatchewan og Alberta, keyrði um 25 þúsund kílómetra á mánuði að meðaltali og lét sig dreyma um Ísland. „Ég kem úr miklu fámenni og það var mikil breyting að fara fyrst frá Gimli til Íslands og svo þaðan til Winnipeg haustið 1980,“ rifjar Kent upp. „Ég fann mig engan veginn í Winnipeg um veturinn og var þeirri stund fegnastur þegar ég fór aftur til Íslands. Að sama skapi var ég tilbú- inn að flytja aftur til Kanada að ári, en hugurinn var samt alltaf á Ís- landi.“ Skemmtilegt líf Tæplega 20 árum síðar varð draumurinn að veruleika og síðan síð- sumars 2001 hefur Kent starfað sem tækjavörður og annast tölvuumsjón við Menntaskólann við Hamrahlíð. „Svavar Gestsson var aðalræð- ismaður Íslands í Winnipeg og hann aðstoðaði mig við að sækja um störf á Íslandi,“ segir Kent um skiptin. Kent segir líf sitt skemmtilegra eftir að hann flutti til Íslands. „Í Kan- ada var ég alltaf í vinnunni, var nán- ast aldrei heima og átti aldrei frí. Undanfarin sjö ár hef ég ferðast mun meira en öll árin þar á undan og lokið námi í leiðsögn auk þess sem ég lýk kennsluréttindanámi frá Háskóla Ís- lands í vor. Ég starfa sem leið- sögumaður á Íslandi og í Norður- Ameríku í frítímanum, keyri rútur og hitti móður mína mun oftar en þegar við áttum sama lögheimili.“ Stjórnmálin heilla En hvers vegna sóttist Kent eftir íslensku ríkisfangi? „Til að ég megi kjósa til Alþingis,“ svarar hann að bragði. „Hingað til er það það eina sem ég hef ekki mátt gera á Íslandi. Ég kaus í síðustu sveitarstjórn- arkosningum og næst eru það alþing- iskosningar. Til þessa hef ég verið mikill sjálfstæðismaður en í kjölfar bankahrunsins hafa runnið á mig tvær grímur. Ég hef áhuga á að taka Hringnum loks lokað Morgunblaðið/Steinþór Íslendingur Kent Lárus Björnsson með ríkisfangsbréfið sem staðfestir að hann hafi öðlast íslenskt ríkisfang 17. desember 2008. Hann kom fyrst til Íslands fyrir um 30 árum og hefur búið og starfað hérlendis síðan 2001. Tækjavörðurinn Kent Lárus Björnsson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi flutningabílstjóri á sléttum Kanada, öðlaðist íslenskt rík- isfang rúmri öld eftir að forfeður hans fluttu frá landinu til Kanada Í HNOTSKURN » Langafar og langömmurKents Lárusar Björns- sonar bjuggu víða á Íslandi, meðal annars í Skagafirði, á Hvammstanga, í Ölfusi og Rangárvallasýslu, en fluttu vestur á árunum 1876-1905. Einn langafi hans fæddist þó í Manitoba. »Valdine Deanne Thor-bjorg Geirholm, móðir Kents, býr á Gimli, en faðir hans, Richard Lorne Tomas Bjornsson, féll frá 2005. meiri þátt í í íslensku stjórnmálstarfi en hingað til og kannski sný ég mér að flokki Sturlu Jónssonar. Mér renn- ur blóðið til skyldunnar sem gamall flutningabílstjóri.“ Kent nefnir einnig að íslenskt rík- isfang opni sér dyr til Evrópu. „Hér bý ég og hef ekki hugsað mér annað í framtíðinni, en íslenskt ríkisfang eyk- ur líka möguleika mína á að fá vinnu annars staðar í Evrópu, detti mér í hug að kanna heiminn frekar á því sviði. Það er ekki á dagskrá en enginn veit sína ævina fyrr en öll er.“ ÁRLEG Íslendingadagshátíð á Gimli fyrstu helgina í ágúst er fjöl- sóttasta hátíðin í Manitoba en mörg undanfarin ár hafa um 40 til 60 þúsund manns sótt skemmt- unina. Víkingar hafa oft sett svip á hátíðina og Kent Lárus Björnsson hefur gjarnan verið í þeim hópi. Þegar Einherjar, félag í Reykjavík um bardagalist og menningu vík- inga (einherjar.is), var stofnað í mars í fyrra var Kent á meðal stofnfélaga og hann hefur tekið virkan þátt í starfseminni síðan, meðal annars staðið heiðursvörð á Kanadadegi og menningarnótt og tekið þátt í víkingahátíðinni í Ced- inya í Póllandi. Víkingur frá Kanada af víkingaættum Morgunblaðið/Steinþór Víkingur Stefnan á Gimi. Daglegt líf 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 Áramótin gengu vel fyrir sig. Norð- firðingar kvöddu gamla árið með nokkuð hefðbundnum hætti. Þó varð sú breyting á að brennan og flug- eldasýningin var færð rétt upp fyrir við bæinn. Undanfarna áratugi hef- ur brennan verið inni á Sandinum svokallaða sem hefur þýtt að íbúar hafa þurft að keyra til brennu. Nú gátu flestir hins vegar gengið og mæltist það einstaklega vel fyrir, enda blíðskaparveður þetta síðasta kvöld ársins. Þá varð brennan einnig vistvænni þar sem engin olía var notuð. Venjan er að ungir og oft fá- klæddir karlmenn skvetti olíu á eld- inn. Með nýju fyrirkomulagi var ekki laust við að menn kæmust nær ylnum fyrir vikið. Einhverjir sökn- uðu þó hinna fáklæddu og olíubornu manna.    Óvissa um Norðfjarðargöng hefur aukist óþægilega mikið undanfarna daga og er um lítið annað rætt í bæj- arfélaginu. Sú óstaðfesta frétt kvis- aðist út að göngin væru hluti af nið- urskurðarpakkanum í Vegamálum. Í Fjarðabyggð gætti nokkurrar bjart- sýni, enda færði bæjarstýra þær upplýsingar á bæjarstjórnarfundi fyrir jól frá samgönguráðherra að Norðfjarðargöng væru ekki líkleg til að lenda undir hnífinn. Metaðsókn var á kynningarfund vegna mats á umhverfisáhrifum Norðfjarð- arganga sem Vegagerðin stóð fyrir í vikunni og er það til marks um áhuga íbúa á framkvæmdinni, en þeir telja sig í tvígang hafa sam- þykkt sameiningu í Fjarðabyggð, þar sem megingulrótin var ný göng milli þéttbýliskjarnanna.    Óvissa um loðnuna er líka mikil. Beðið er niðurstöðu úr loðnuleitinni. Góðar lóðningar hafa fundist og vek- ur það mönnum bjartsýni um sæmi- legan kvóta. Fyrir áramótin stóð Síldarvinnslan fyrir fræðslufundi um uppsjávarrannsóknir og var það fróðlegur og vel sóttur fundur. Þor- steinn Sigurðsson hjá Hafrannsóknastofnun ræddi hin ýmsu mál, m.a. hina skelfilegu sýk- ingu í síldinni og loðnuleit. Í máli hans kom fram að vertíðin 2010-2011 gæti orðið góð loðnuvertíð, en mikið af loðnuseiðum hefur fundist á kunn- uglegum slóðum eftir undarleg loðnuár á þessari öld. Ekki er þó beint samhengi á milli seiðafjölda og hrygningarstofns.    Óvissa um snjóflóðamannvirkin í Tröllagili verður vonandi til lykta leidd þann 22. janúar n.k. þegar til- boð í framkvæmdina verða opnuð. Vegna ástandsins í haust var því í tvígang frestað. Mönnum er mikið í mun að þær framkvæmdir hefjist, en þeim hefur verið frestað áður vegna uppgangs í samfélaginu. Nú velta menn fyrir sér hvort þeim verður frestað vegna niðursveiflu.    Þrátt fyrir alla óvissuna gætir nokk- urrar jákvæðni í samfélaginu, hús hafa verið að seljast, ungt fjöl- skyldufólk flytur í bæinn og ekki hafa margir misst vinnu. Enn sem komið er að minnsta kosti. Fram- undan eru hátíðir að heiðnum sið þar sem þorra verður blótað. Sveitablót- ið, sem nú er haldið í þorpinu, er allt- af fyrsta laugardag í þorra. Annan laugardag í þorra stíga svo þeir fóst- bræður og eilífðarkommar Guð- mundur Bjarnason og Smári Geirs- son fram ásamt fríðu föruneyti og skemmta á Kommablóti.    Þá líður senn að því að sú gula láti sjá sig á ný. Hún skríður upp fyrir fjallatinda og lýsir upp híbýli og sál- artetur mannanna. Fyrst yst í bæn- um og svo fikrar hún sig innar. Kom- unni verður fagnað um allan bæ með gómsætum sólarpönnukökum. Í leikskólanum stíga börnin sólardans. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Vetrarríki Snjór hylur jörð við Norðfjörð og brátt fer að sjást til sólar. NESKAUPSTAÐUR Kristín Ágústsdóttir fréttaritari ÚR VESTURHEIMI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.