Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 32

Morgunblaðið - 12.01.2009, Page 32
32 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HRAFNHILDUR Hagalín Guð- mundsdóttir leikskáld hefur samið sex einþáttunga fyrir Útvarpsleik- húsið. Í aðalhlutverkum verða nokkrir ástsælustu leikarar þjóð- arinnar af elstu kynslóð, sumir komnir á níræðisaldur. „Þetta eru sex einþáttungar um 20 mínútur að lengd hver. Upphafið var það að Viðar Eggertsson [út- varpsleikhússtjóri] spurði mig hvort ég hefði áhuga á að skrifa útvarps- verk. Á þeim tíma var ég að skrifa smásögur og sá í kjölfarið leið til að breyta nokkrum þeirra í útvarps- verk. Mig hafði dreymt um það lengi að skrifa verk fyrir eldri leik- ara og sumar af smásögunum voru um eldra fólk. Ég bar hugmyndina undir Viðar og honum leist vel á. Upphaflega voru þetta eintöl en smám saman bættust aðrar persón- ur við.“ Hrafnhildur segir að sér hafi ekki fundist þessum leikurum nægilega hampað í seinni tíð. „Þetta er fólk með gífurlega reynslu og ástsælir leikarar sem allir vilja sjá og heyra í. Á undanförnum árum hefur yngra fólki frekar verið haldið á loft, og það er ágætt út af fyrir sig. Það má þó ekki gleyma reynsluboltunum.“ Þekkir þessa kynslóð mjög vel Þar sem verkin fengu sitt fyrsta líf í smásagnaforminu var Hrafn- hildur ekki að hugsa um leikara til að byrja með, en þegar hún hóf að breyta prósanum í leiktexta breytt- ist það. „Ég þekki þessa elstu kyn- slóð leikara mjög vel, og ég fór mjög fljótlega að sjá hver ætti að gera hvað, og gat þá haft það í huga. Leikararnir hafa tekið þessu vel og ég held að þeim þyki gaman.“ Einsemdin er rauður þráður Rauði þráðurinn í einþáttungunum eru einfarar, og það er um leið titill heildarverksins. „Þetta er fólk sem er á einn eða annan hátt eitt eða býr í einangruðum heimi, hvort sem það hefur valið sér það sjálft eða að það hafi atvikast þannig. Þetta þema tengir verkin saman.“ Hrafnhildur kveðst hafa viljað hafa verkin að minnsta kosti tíu, en það var ekki hægt í ljósi aðstæðna hjá Útvarpinu. „Ég bæti kannski fleiri einþáttungum við síðar. Það hefði líka verið gaman að hafa fleiri leikara með – ég hefði viljað hafa þá fleiri. Það eru ekki margir leikarar sem eru komnir yfir áttrætt og ég hefði viljað hafa þá alla með.“ Unun að hlusta á þau Upptökur á verkunum hófust á þriðjudaginn. „Þetta fer mjög vel af stað. Þau eru svo flink að það þarf nánast ekkert að segja þeim til. Þetta fólk er búið að vinna í útvarpi alla sína tíð, og það er unun að vinna með þeim og hlusta á þau.“ Hrafnhildur segir það talsvert öðruvísi að skrifa fyrir útvarp en fyrir leiksvið, jafnvel þótt horft sé framhjá sjónræna þættinum. „Það er allt öðruvísi. Maður þarf að hafa það í huga að fólk sér ekki – það heyrir bara. Þess vegna er ýmislegt í atburðarásinni sem þarf að gefa til kynna með hljóðum í stað þess sjónræna. Það var fróðlegt fyrir mig að sjá hvernig þetta virkar og við það að vinna með þetta form spruttu fram ýmsar hugmyndir. Eitt verkið er til dæmis um eldri konu sem býr ein í húsi fyrir vest- an. Til að gera það lifandi fyrir út- varp lét ég konuna vera í viðtali og dagskrárgerðarkonan spólar á milli þeirra mismunandi upptaka sem hún hefur gert með konunni. Það eru ýmis svoleiðis fiff sem geta gert svona verk meira lifandi.“ Áætlað var að frumflytja einþátt- ungana í vor, en líklegt er að frum- flutningi verði frestað til hausts. Ástsælir reynsluboltar Morgunblaðið/RAX Einfarar Leikarahópurinn á góðri stundu. Erlingur Gíslason, Árni Tryggva- son, Róbert Arnfinnsson, Bryndís Pétursdóttir og Herdís Þorvaldsdóttir. Í efri röð eru Viðar Eggertsson Útvarpsleikhússtjóri, skáldið, Hrafnhildur Hagalín, Eva María Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Steindór Hjörleifsson, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og Jóhann Sigurðarson. Útvarpsleikhúsið hljóðritar sex ein- þáttunga eftir Hrafnhildi Hagalín HIN árlega og æsispennandi spurningakeppni framhalds- skólanna, eða Gettu betur, hefst á Rás 2 í kvöld. Í þessari fyrstu umferð eru þrjár stuttar viðureignir á hverju virku kvöldi fram að mánudaginn næsta. Keppnin hefst kl. 19:30 í kvöld en eftir hana hafa þrír skólar komið sér áfram í aðra umferð er fer einnig fram í út- varpinu. Davíð Þór Jónsson er dómari en hann sér einn- ig um að semja allar spurningarnar. Eva María Jónsdóttir er spyrill að þessu sinni, bæði í útvarp- inu sem og sjónvarpinu þegar þar að kemur. Útvarp Spurningakeppni framhaldsskólanna Davíð Þór Jónsson Í GÆR opnaði Hanna Hlíf Bjarnadóttir sýninguna Heima er best í Kunstraum Wo- hnraum á Akureyri. Hanna Hlíf hefur gert verk sérstaklega fyrir þessa sýn- ingu er tekur á missamræmi þess er birtist í fjölmiðlum og gerist í raunveruleikanum. Hanna Hlíf lærði snyrtifræði í London, húsgagnasmíði í Iðn- skólanum og svo stundaði svo myndlistarnám við Myndlistarskólann á Ak- ureyri. Sýningin stendur til 1. mars í Ásabyggð 2. Þar sem sýningin er í heimahúsi er opnunartími eftir samkomulagi. Myndlist Hanna Hlíf sýnir Heima er best Eitt af verkum Hönnu ERLA Ásmundsóttir opnar á morgun málverkasýningu í menningarsal á Hrafnistu í Hafnafirði. Erla er fædd í Reykjavík árið 1931 og færir út kvíarnar með þessari sýningu sinni því fram til þessa hefur hún lengi fengist við postulíns- málun. Hún lærði í 10 ár hjá Sigurey Finnbogadóttur en hefur síð- astliðin 2 ár sótt myndlist- arnámskeið í Gerðubergi undir góðri handleiðslu Nönnu Baldursdóttur. Sýningin opnar kl. 14 á morgun og stendur yfir til 2. mars. Aðgangur er ókeypis. Myndlist Myndlist á Hrafn- istu Hafnafirði Hrafnista í Hafnafirði NÚ hefur komið í ljós að teikningar eftir Leonardo da Vinci sem eru nú til sýningar á þjóðarbókasafni Wales voru geymdar í manngerðum helli yfir seinni heimstyrjöldina. Talið hafði verið að 10 teikningar á sýningunni hefðu aldrei komið á bókasafnið í Abe- rystwyth áður en nú hefur verið uppljóstrað að þær voru geymd- ar í helli undir bókasafninu til margra ára til að verja þær fyrir sprengjuárásum í seinni heimstyrj- öldinni. Þau eru nú hluti af sýningu er var sett upp til að fagna 60 ára af- mæli Karls Bretaprins. Í hellinum voru varðveitt ým- iskonar verk er þóttu of verðmæt til að glatast í stríðinu. Þar á meðal má nefna Saxon annálanna, fræg verk Wycliffe og Chaucer og stórt safn af þekktum kolarteikningum, þar á meðal Magna Carta. Þar voru einnig geymd bréf skrifuð af Sir Francis Drake, Francis Bacon og Oliver Cromwell. Þjóðarbókhlaðan í Wales Verkin eru nú til sýningar í safninu. Verk da Vinci falin í helli Vernduð undir bókasafni í Wales Leonardo da Vinci Sjálfsmynd EIN ástsælasta persóna barnabóka síðustu aldar, Bangsímon (eða Win- nie the Pooh eins og hann heitir á ensku), hefur verið endurlífguð, áttatíu árum eftir að sögurnar um hann birtust fyrst á prenti. Bangsímon er hugarfóstur A. A. Milne og teiknarans E. H. Shepard og hafa eftirlifandi ættingjar þeirra samþykkt nýja bók er kemur út von bráðar. Nýja bókin heitir The Hundred Acre Wood og er skrifuð af David Benedictus og teiknuð af Mark Burgess. Bangsímon snýr aftur Þeir elstu: Árni Tryggvason, Karl Guð- mundsson, Róbert Arnfinnsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Steindór Hjörleifsson og Bryndís Péturs- dóttir. Yngri: Þóra Friðriksdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Erlingur Gíslason. Enn yngri: Guðrún S. Gísladóttir, Jóhann Sigurðarson, Arnbjörg Hlíf Vals- dóttir, Stefán Jónsson, Björn Thors, Ragnheiður Steindórs- dóttir, Davíð Guðbrandsson og Arndís Hrönn Egilsdóttir. Og einnig: Eva María Jónsdóttir dag- skrárgerðarkona og tvær ungar stúlkur, Unnur Birna Jónsdóttir og Sigríður Hagalín Péturs- dóttir. Unun að hlusta á þau Friðrik heldur sig jafn- an í réttri nálægð/ fjarlægð við viðfangsefnið [...] í eftirminnilegri bar- áttusögu Kela og kraftaverk- inu sem hann upplifir.34 » Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is VILHELM Anton Jónsson, eða Villi Naglbít- ur, eins og hann er oft kallaður leggur nú drög að heljarinnar tónleikarferð um Skandinavíu með hljómsveit sína 200.000 naglbíta og Lúðrasveit verkalýðsins en sam- an gáfu sveitirnar út vel heppnaða plötu fyrir jól. Lúðrasveitin ein og sér telur um sextíu manns og því er ljóst af þeirri einu staðreynd að um mikið verkefni er að ræða. „Þetta er nú bara á hugmyndastiginu eins og er,“ segir Villi sem þó er byrjaður að leita eftir tónleikastöðum í Skandinavíu. Mest langar hann að finna gömul leikhús eða óperuhús í helstu borgum norður- landanna til þess að leika í. „Ég ætla að gera þetta vel og almennilega eða gera þetta ekki. Það eru allir reiðubúnir til þess að gera þetta og tilbúnir að leggja á sig sína vinnu fyrir þetta. Núna er ég bara í því að byrja að skoða við hverja sé best að tala og sjá hverjir geta hjálpað manni. Okkur langar alla að fara og við ætlum að reyna það.“ Sveitirnar héldu tvenna vel heppnaða tón- leika fyrir jól. Fyrst í Íþróttahöllinni á Ak- ureyri og svo í Íslensku óperunni í Reykja- vík. Plata þeirra, þar sem er að finna gömul lög Naglbítanna útsett með lúðrasveitinni, seldist vel fyrir jól. 200.063 naglbítar til Skandinavíu? Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Naglbítarnir með lúðrasveitinni Myndin var tekin á vel heppnuðum tónleikum sveitanna í Íþróttahöllinni á Akureyri en það var nægilega flókin framkvæmd að koma öllum þangað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.