Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 37
Jolie berst fyrir barninu Sex barna móðirin Angelina Jolie hefur eflaust ekki átt í vandræðum með að finna móð- ureðlið hjá sér fyrir hlutverkið. Sæbjörn spáir henni Óskarstilnefningu en finnst hún þó ekki rétt í hlutverkið. MEÐ aldrinum hefur gamli harð- jaxlinn hann Clint Eastwood, tekið ótrúlegum framförum sem leikstjóri og verið í framvarðarsveitinni um árabil. Kúrekar og lögguhrottar hafa vikið fyrir gagnrýnum og grimmum ádeilum sem risu hæst í Mystic River og Letters From Iwo Jima, frekar en Óskarsverðlaunamyndinni Million Dollar Baby. Eastwood, sem á ár í áttrætt, sýnir engin ellimörk og hef- ur rutt frá sér myndum. Changeling er byggð á sönnum at- burðum, viðbjóðslegum fjöldamorð- um sem voru framin á ungum drengjum í Kaliforníu á 3. áratugn- um. Aðalpersónan í hrottalegum harmleik er Christine Collins (Jolie), einstæð móðir og símamær sem hugsar vel um drenginn sinn, hinn tíu ára gamla Walter (Griffith). Henni bregður því brún þegar hún kemur dag einn úr vinnunni og hann er gjörsamlega týndur og tröllum gefinn. Christine leitar til lögregl- unnar sem sýnir málinu lítinn áhuga. Það mjakast ekki úr sporunum í höndum lögreglunnar sem hefur ver- ið gagnrýnd fyrir spillingu og hefur presturinn Gustav Briegleb (Malko- vich), verið ómyrkastur í máli í pre- dikunum sínum í útvarpi. Í marga mánuði finnst engin vísbending um hvað hefur orðið af Walter litla og lögreglan liggur undir ámæli. Eink- um lögreglustjórinn (Feore), og gjör- spillt handbendi hans, kapteinn Jon- es (Donovan). Yfirvöldin grípa því fegins hendi pilt sem gefur sig fram í Miðríkjunum og segist vera Walter. Það er skammvinn gleði fyrir Christine, sem sér það samstundis að brögð eru í tafli, drengurinn líkist ekki syni hennar á nokkurn hátt, en lögreglan neitar að hlusta, er meira í mun að hreykja sér af fundinum og flytur hana loks á geðdeild til að þagga niður í henni. Einkum fyrir at- beina baráttumannsins séra Briegleb og harðfylgi lögreglumannsins Yb- arra (Kelly), tekst að leysa Christine úr haldi og hafa uppi á fjöldamorð- ingjanum Gordon Northcott (Jason Butler Harner), sem reynist hafa um 20 mannslíf á samviskunni. Öll eru fórnarlömbin ung að árum. Er Wal- ter þeirra á meðal eða á hann eftir að koma fram? Changeling gengur út á þessar spurningar sem gefa Christine engin grið. Hlutverkið er blæbrigðaríkt og sjálfsagt fær Jolie Óskarsverðlauna- tilnefningu fyrir vikið. Vandinn er hinsvegar sá að Christine er einsleit og yfirmáta döpur og Jolie nær að auki litlum tökum á sorg hennar, er ósannfærandi og ekki bætir úr skák að glamúrímynd leikkonunnar grúfir ónotalega yfir persónunni. East- wood, sem er alla jafna hittinn á rétta leikara í hlutverkin og laginn við að ná því besta fram hjá þeim, hefur að þessu sinni valið kolranga leikkonu. Hugsið ykkur Million Dollar Baby með Jolie í stað Hillary Swank, þá er hætt við að Eastwood og aðal- leikkonan hefðu misst af verðlauna- súpunni. Á hinn bóginn er útlit mynd- arinnar óaðfinnanlegt, lög- reglumennirnir eru trúverðugir en Malkovich sjálfum sér líkur. Harper ber af öðrum í hlutverki geðsjúks morðingjans. Eastwood hefur oftast gert betur í seinni tíð, Changeling er engu að síður athyglisverð, myrk og grimm og segir átakanlega sögu af ægilegu máli, snaróðum glæpa- manni, gjörspilltum lögreglumönn- um og syrgjandi móður sem gefur aldrei vonina upp á bátinn. Það er skylda aðdáenda gamla, mikilhæfa Eastwoods að sjá hana, en ég hef á tilfinningunni að þeir verði mun sælli með næstu mynd leikstjórans, Gran Torino, þar sem garpurinn gengur á milli bols og höfuðs á skítseiðum stórborgarinnar, að hætti Dirty Harry. Skuggsýnt í myrkviðnum KVIKMYND Sambíóin, Laugarásbíó Leikstjóri: Clint Eastwood . Aðalleik- arar:. Angelina Jolie, John Malkovich, Jeffrey Donovan, Michael Kelly, Colm Feore. 140 mín. Bandaríkin. 2008. Changeling bbbnn MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI „..BESTA DISNEY -TEIKNIMYNDIN Í ÁRARAÐIR“ L.I.B. – FBL. SÝND MEÐ Í SLENSKU OG ENSKU TALI KRINGLUNNI OG AKUREYRI SVALASTA MYND ÁRSINS FILMCRITIC.COM FRANK MILLER KEMUR HÉR MEÐ OFUR-SVALA SPENNUMYND BYGGÐA Á „HASARBLAÐA”SÖGU WILL EISNER. DÚNDUR MYND Í ANDA „SIN CITY”. SÝND Í ÁLFABAKKA, THE CHANGELING kl. 6 - 9 B.i. 7 ára BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ YES MAN kl. 8 B.i. 7 ára THE SPIRIT kl. 10 B.i. 12 ára ROCKNROLLA kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára CITY OF EMBER kl. 8 B.i. 7 ára APPALOOSA kl. 10:20 B.i. 16 ára SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI EIN STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÞESSU ÁRI Í USA MYNDIN SEM GERÐI ALLT BRJÁLAÐ Í USA EMPIRE SÝND Í ÁLFABAKKA FRÁ FRAMLEIÐANDANUM TOM HANKS KEMUR STÓRKOSTLEG ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Í ANDA THE GOONIES. TIL AÐ VERÐA FRJÁLS ÞURFA ÞAU AÐ KOMAST AÐ 200 ÁRA GÖMLU LEYNDARMÁLI. OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA Helga Þórsdóttir og Hildur Bjarnadóttir. Thor Vilhjálmsson og listamaðurinn sjálfur Halldór Ásgeirsson. Pétur Magnússon og Jóakim. Magnús Skúlason og Einar Guðjónsson. » Á föstudag opn-aði myndlist- armaðurinn Hall- dór Ásgeirsson sýningu í Gall- ery Turpent- ine á Skóla- vörðustíg við mikinn fögnuð. Torfi Þórhallsson og Sigríður Helga Hauksdóttir. FRÁ því að leikkonan Angelina Jol- ie vann Óskarsverðlaunin fyrir kvikmyndina Girl, Interrupted árið 2000 hefur verið fátt um fína drætti hjá henni. Í stað þess að sökkva sér alfarið í alvarlegri hlut- verk í kjölfar verðlaunanna hellti hún sér í hasarmyndirnar. Helst ber þar að nefna Tomb Raider, Mr. and Mrs. Smith og nú síðast Wan- ted þar sem hún lék þjálfaðan morðingja. Auk þess hefur hún tal- að inn á fjölda teiknimynda, nú síðast Kung Fu Panda. Hún virðist þó vera að færa sig aftur í dramatísku hlutverkin en í fyrra var hún tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna í fyrra fyrir leik sinn í myndinni A Mighty He- art. Hún er einnig tilnefnd í ár til verðlaunanna fyrir leik sinn í Changeling. Endurkoma Jolie? Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.