Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
Meinfyndin
metsölubók …
... um ástir og örlög Rebeccu sem er kaup-
óður fjármálablaðamaður, haldin óbilandi
sjálfsbjargarviðleitni ...
Nú er um að
gera að lesa
bókina áður en
myndin kemur í
kvikmyndahús!
Góð konudagsgjöf!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
UM 250 störf á Íslandi eru í hættu
þar sem bresk stórmarkaðskeðja
hefur ákveðið að segja upp viðskipt-
um við íslenska fiskútflytjendur.
Ástæðan er sú ákvörðun stjórnvalda
að leyfa hvalveiðar hér við land að
nýju. Heildarviðskipti breska fyrir-
tækisins við íslensk fiskvinnslufyrir-
tæki nema um þremur til þremur og
hálfum milljarði króna árlega, að
sögn framkvæmdastjóra eins þeirra.
Frostfiskur ehf. á, ásamt fleiri ís-
lenskum fiskvinnslufyrirtækjum, í
viðskiptum við bresku stórmarkaðs-
keðjuna Waitrose sem býður há-
gæðamatvörur
undir hatti um-
hverfisverndar.
M.a. leggur Wait-
rose áherslu á að
skipta ekki við
þjóðir sem stunda
hvalveiðar og
sniðgengur því
t.d. vörur frá
Noregi og Fær-
eyjum.
Steingrímur Leifsson fram-
kvæmdastjóri segir að viðskipti
Frostfisks við Waitrose skapi um
einn milljarð í gjaldeyristekjur á
hverju ári en heildarviðskipti Wait-
rose við íslensk fiskvinnslufyrirtæki
nemi um þremur og hálfum milljarði
árlega. „Það eru 250 manns í beinum
og óbeinum störfum á Íslandi vegna
viðskiptanna við þessa einu keðju.“
Waitrose hefur sent Frostfiski
bréf þar sem segir að verði af hval-
veiðum við Íslandsstrendur muni
fyrirtækið slíta viðskiptum við ís-
lensk fyrirtæki. Hjá Frostfiski í Þor-
lákshöfn starfa um 100 manns og ótt-
ast Steingrímur að hann þurfi að
fækka þeim um helming tapist við-
skiptin við Waitrose.
„Við höfum á síðustu 10 til 15 ár-
um verið að byggja upp viðskipta-
tengsl við þennan „gourmet“-mark-
að í löndum eins og Belgíu, Hollandi,
Sviss, Frakklandi, Bretlandi og Am-
eríku,“ segir hann. „Þetta er mjög
viðkvæmur markaður en borgar
mikið og er ört vaxandi.“
Og hann heldur áfram. „Ég geri
þá kröfu til hvalveiða á Íslandi og
fyrirtækja þeim tengdra að þau skili
að lágmarki því sem við fórnum á Ís-
landi fyrir þetta.“ Hann segir því
meira þurfa að koma til en „150 sum-
arstörf“ í stað þeirra 250 ársstarfa
og fjögurra milljarða innflutnings-
tekna sem útlit sé fyrir að tapist nú.
Hann óttast að fleiri fylgi í kjölfar-
ið. „Ég veit að í Frakklandi, Belgíu
og Hollandi eru stórmarkaðirnir líka
mjög meðvitaðir og margir á þessum
markaði munu gera athugasemdir
við þetta.“
Segir fjölda starfa tapast
Stór verslunarkeðja á Bretlandi hefur tilkynnt að hún muni hætta viðskiptum sín-
um við íslenska fiskútflytjendur hefjist hvalveiðar við Íslandsstrendur að nýju
Steingrímur
Leifsson
ÞEIR léku á als oddi, erlendu skólakrakkarnir
sem tóku sér stöðu í Sólfarinu við Sæbraut í góð-
viðrinu í gær. Ef marka má látbragðið gefa þeir
fleyinu hæstu einkunn og brosa sínu blíðasta til
ljósmyndara Morgunblaðsins. Allar líkur eru þó
á því að hópurinn hyggist nota önnur farartæki
til að komast til síns heima því enda þótt Sólfarið
sé í hæsta máta glæsilegt vantar það nauðsyn-
legan þéttleika til að komast yfir hafið.
Í Sólfari með sigurbros á vör
Morgunblaðið/RAX
„VIÐ erum gríð-
arlega ánægð
með þetta upp-
gjör. Við skilum
góðum hagnaði á
meðan rekstrar-
umhverfi bank-
ans var mjög erf-
itt. Engar
athugasemdir
voru gerðar við
uppgjörið af end-
urskoðendum sem er einstakt á þess-
um tímum,“ segir Styrmir Þór
Bragason, forstjóri MP banka.
Hagnaður MP banka var 860 millj-
ónir króna eftir skatta í fyrra. Árið
2007 var hagnaðurinn 1.780 milljónir
króna. Minni hagnaður skýrist af af-
skriftum vegna falls íslensku bank-
anna og Lehman Brothers.
Samtals voru tæpir 2,3 milljarðar
færðir á afskriftarreikning og telja
stjórnendur MP banka sig með því
hafa mætt allri afskriftarþörf vegna
bankahrunsins.
Í uppgjörinu er einnig veruleg nið-
urfærsla á fyrirtækjaskuldabréfa-
eign bankans. Gengishagnaður af
fjármálastarfsemi jókst samt veru-
lega á milli ára og nam 1,8 millj-
örðum. Mestu skipti hagnaður af
stöðutöku í ríkistryggðum skulda-
bréfum.
bjorgvin@mbl.is
Hagnaður
við erfiðar
aðstæður
Styrmir Þór
Bragason
MP banki mætir af-
skriftarþörf að fullu
FYRIRTÆKIÐ í Grindavík þar sem
eiturefni láku út úr gámi hafði ekki
starfsleyfi til þeirrar starfsemi sem
efnin tengdust. Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja kannar málið.
Mikill viðbúnaður var í Grindavík
sl. miðvikudag þegar eiturefni láku
út úr gámi við fyrirtækið. Þetta voru
leifar af efnum sem notuð höfðu ver-
ið til að gera íblöndunarefni fyrir
rækju. Ríkharður F. Friðriksson,
umhverfisfulltrúi Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja, segir að stofnunin hafi
ekki vitað af efnunum enda ekki ver-
ið sótt um leyfi til slíkrar starfsemi.
Fyrirtækið virðist hafa verið skráð
sem heildsala. Telur hann að ekki
hafi verið mikil hætta. helgi@mbl.is
Höfðu ekki
starfsleyfi
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
ILLUGI Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, nýtur mests
stuðnings til þess að leiða Sjálfstæð-
isflokkinn í Reykjavík í komandi al-
þingiskosningum, samkvæmt niður-
stöðum skoðanakönnunar Capacent
Gallup, sem Morgunblaðið hefur und-
ir höndum. Morgunblaðið hefur upp-
lýsingar um að Illugi hafi þegar tekið
ákvörðun um að sækjast eftir fyrsta
sætinu í Reykjavík. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins var skoð-
anakönnunin framkvæmd að beiðni
stuðningsmanna Illuga og var um
blandaða net- og símakönnun að ræða
sem Capacent Gallup gerði og náði
samtals til 1.130 Reykvíkinga á kosn-
ingaaldri. Könnunin var framkvæmd
dagana 11.-20. febrúar. Svarhlutfall
var 58,9% þannig að liðlega 40% tóku
ekki afstöðu.
Spurt um sex frambjóðendur
Talað var við 300 í síma og 830 voru
spurðir í gegnum netið.
Þegar stuðningsmenn allra flokka
og óflokksbundnir gáfu upp afstöðu
sína eru helstu niðurstöður þessar:
Illugi Gunnarsson hlaut 25,9% stuðn-
ing og Guðlaugur Þór Þórðarson
7,7%.
Vikmörk eru 4,1% fyrir Illuga og
2,5% fyrir Guðlaug, að því er segir í
könnuninni.
Illugi Gunnarsson nýtur því stuðn-
ings 20,8% til 30% Reykvíkinga til að
leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík
og Guðlaugur Þór á bilinu 5,2% til
10,2% stuðnings.
Séu svör þeirra sem gáfu sig upp
sem stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins greind eru niðurstöður
könnunarinnar þessar: Illugi Gunn-
arsson hlaut 32,8% stuðning og Guð-
laugur Þór Þórðarson 16,9% stuðn-
ing.
Illugi nýtur mests stuðn-
ings í 1. sæti í Reykjavík
Könnun Capacent Gallup náði til um 1.130 Reykvíkinga
Í HNOTSKURN
» Spurt var: Hver eftirtal-inna telur þú að eigi að
leiða Sjálfstæðisflokkinn í
Reykjavík?
» Gefnir voru sex valkostir:1. Ásta Möller
2. Illugi Gunnarsson
3. Guðlaugur Þór Þórðarson
4. Sigurður Kári Kristjánsson
5. Annar, hver?
6. Enginn af ofangreindum