Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ALLT stefnir í að frumvarp rík- isstjórnarinnar um breytingar á yfirstjórn Seðlabankans verði að lögum á mánudaginn, veru- lega breytt frá upphaflegri mynd við fyrstu umræðu. Ann- arri umræðu lauk í gær og var frumvarpið sent aftur til við- skiptanefndar fyrir lokaumræð- una. Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, flutti breytingartillögur meirihluta nefndarinnar og voru þær allar samþykktar, ýmist með samþykki eða hlutleysi sjálfstæðismanna. Umræðurnar stóðu lungann úr gærdeginum við áheyrn fárra þing- manna. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, flutti tillögur minnihlutans. Hann sagði til- lögur meirihlutans til bóta, en að þær gengju samt allt of skammt. Vildi minnihlutinn til að mynda víkka skilyrði um menntun seðlabankastjóra enn meira og gagnrýndi hann að skipunarvald forsætisráðherra yfir bankanum yrði of mikið, ekki síst fyrst um sinn. Kallaði Árni M. Mathiesen bankann eft- ir gildistöku laganna af því til- efni Seðlabanka Jóhönnu Sig- urðardóttur. Langflestir ræðumenn í umræðunum voru þing- menn Sjálfstæðisflokksins og gagnrýndu þeir frum- varpið og vinnubrögð meirihlutans á margvíslegan hátt. Það hefði verið unnið í miklum flýti og skamm- ir frestir gefnir til allra umsagna. Ekki hefði komið fram hver hefði samið frumvarpið. Umsögnum mik- ilvægra aðila, á borð við Seðlabanka Evrópu, hefði verið hafnað í viðskiptanefnd. Í raun væri ekki verið að fækka í yfirstjórn bankans, heldur fjölga og að jafnvel væri ekki verið að leggja niður nema eina bankastjórastöðu. Annars væri um breytingar á starfsheitum að ræða. Raunar var málflutningur sjálfstæðismanna í mörgum atriðum keimlíkur um- sögn seðlabankastjóranna Eiríks Guðnasonar og Davíðs Oddssonar um frumvarpið. Þá sögðu þing- menn frumvarpið alls ekkert taka á stefnu stjórn- valda í peningamálum. Lykilhlutverk í endurreisn trúverðugleika Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði fyrir atkvæðagreiðsluna að viðskiptanefnd hefði unnið gott starf. Breytingartillögur meirihluta nefndarinnar styrktu meginmarkmið frumvarpsins um faglega endurskipulagningu yfirstjórnar Seðla- bankans. Sagði Jóhanna að breytingarnar sem frumvarpið fæli í sér myndu gegna lykilhlutverki í endurreisn trúverðugleika íslensks efnahagslífs. Stutt í stjórnarskipti við Arnarhól  Frumvarp ríkisstjórnar um breytingar á yfirstjórn Seðlabanka verður líklega að lögum á mánudag  Sjálfstæðismenn sögðu breytingar viðskiptanefndar góðar en skammdrægar og gagnrýndu flest annað Álfheiður Ingadóttir Birgir Ármannsson MJÖG margir sóttu um tvær stöður skrifstofustjóra í samgöngu- ráðuneytinu. Samtals sóttu 65 um stöðu skrifstofustjóra á sam- skiptaskrifstofu ráðuneytisins. Þá sóttu 59 um aðra stöðu skrif- stofustjóra í ráðuneytinu. Nöfn um- sækjenda er að finna á vef sam- gönguráðuneytisins, www.samgonguraduneyti.is. Mjög margar umsóknir Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SNÆFELLSJÖKULL hefur þynnst og hopað meira á síðustu árum en áður hefur gerst. Ef allt fer á versta veg gæti jökullinn verið horfinn eftir um 20 ár. Snæfellsjökull er um 12,5 km2 að flatarmáli. Með sam- anburði mælinga sem fram fóru í september 2008 við hæðarlíkan Loftmynda ehf. frá 1999 má reikna með- allækkun jökulyfirborðsins á þessu tímabili og reyndist hún rúmlega 13 metrar, eða um 1,5 metrar á ári að með- altali. Rýrnunin er hátt í tvöfalt hraðari en mælingar á Hofsjökli og Vatnajökli gefa til kynna á sama tímabili en svipuð og á Langjökli. Að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings eru þetta ótrúlega háar tölur. Hæðarmunur er líklegasta skýr- ingin að sögn Odds. Snæfellsjökull er 1440 metrar þar sem hæst er, Langjökull 1450 metrar, Hofsjökull um 1800 metrar og Vatnajökull yfir 2000 metrar á köflum. Snæfellsjökull ekki nema 30 metra þykkur að með- altali og ef hann þynnist um 1,5 metra á ári verður hann horfinn eftir 20 ár ef rýrnunin heldur áfram með sama hraða. Oddur er ekki viss um að það gerist. Hann reikn- ar með því að alltaf verði fönn á jöklinum og hann hvítur lengst af sumri. Jökullinn hefur þynnst mest við jað- arinn, um meira en 40 metra þar sem mest er, en minnst á hábungunni, þar sem yfirborðið hefur lækkað um u.þ.b. 5 metra að meðaltali ofan 1200 metra yfir sjávarmáli. Á árinu 2008 hófust, í tilefni heimskautaáranna 2007- 2009, viðmiðunarmælingar á jöklum landsins til þess að meta breytingar þeirra þegar fram líða stundir. Snæfellsjökull, Eiríksjökull og meirihluti Hofsjökuls voru mældir í september 2008 af þýska mælingafyr- irtækinu TopScan og fóru mælingarnar fram með leysi- tækjum úr flugvél sem mæla hæð jökulyfirborðsins yfir sjó með mikilli nákvæmni og upplausn. Sumarið 2007 var mestur hluti Langjökuls mældur með sömu tækni. Að sögn Odds er þetta ný tækni, sem gefur áður óþekkta möguleika til að mæla breytingar á jöklum landsins. Með þessari tækni verður hægt að gera mjög nákvæmar samanburðarmælingar og hægt að gera margfalt nákvæmari kort af jöklum landsins en gert hef- ur verið áður. Niðurstöður mælinganna munu liggja fyr- ir til samanburðar við þær mælingar sem gerðar verða síðar meir. Oddur segir að Ísland breytist meira og örar en nokkurt annað land í heiminum og ekkert breytist eins ört og jöklar landsins. Morgunblaðið/RAX Fögur sjón Snæfellsjökull er tilkomumikill þegar horft er frá loðnumiðunum á Faxaflóa. Verður Snæfellsjökull horfinn eftir 20 ár?  Jökulyfirborðið hefur lækkað um 1,5 metra á ári  Leysitækni hefur gjörbreytt mælingum á jöklum ÞAÐ yrði mikill sjónarsviptir að Snæfellsjökli, segir Oddur Sigurðsson, enda einna frægastur jökla á Ís- landi. Hann þykir afar tilkomumikill og er í sjónlínu frá stærstu byggð landsins á höfuðborgarsvæðinu. Oddur segir að Snæfellsjökull hafi verið skraut alla Íslandssöguna. Hann var nefndur fyrstu jökla í Íslend- ingasögunum. Jökullinn kemur við sögu í Bárðar sögu Snæfellsáss, Atla sögu Ótryggssonar, Ármannssögu og Landnámu, en þar er hann kallaður Snjófjallsjökull. Þá er ónefnt að jökulinn hefur verið sögusvið í frægum útlendum bókum og kvikmyndum, sem eftir þeim hafa verið gerðar. Einna frægastur jökla FJÖGUR veit- ingahús í Reykja- vík hafa verið tekin til gjald- þrotaskipta með úrskurði Héraðs- dóms Reykjavík- ur, sem kveðinn var upp 6. febr- úar sl. Veitingahúsin eru Iðusalir ehf. við Lækjargötu, Café Oliver ehf. við Laugaveg, Barinn ehf. við Lauga- veg og Q bar Ingólfsstræti ehf., sem stóð við samnefnda götu. Barinn var á Laugavegi 22, þar sem áður var veitingastaður, kennd- ur við húsnúmerið. Þrír síðastnefndu staðirnir eru barir, sem reknir voru af sömu að- ilum, sem höfðu heimilisfang að Lynghálsi 10. Iðusalir eru í Iðuhús- inu og voru leigðir út til veisluhalda. Samkvæmt kennitölum veitinga- staðanna, voru þeir allir stofnaðir á árinu 2007. Skiptastjóri þrotabúanna var skipaður Þorvaldur Emil Jóhann- esson hdl. Kröfur í þrotabúin þurfa að berast skiptaráðanda innan tveggja mánaða. Skiptafundir verða haldnir 29. apríl nk. sisi@mbl.is Fjögur veit- ingahús í þrot PÁLL Jakobsson, stjarneðlisfræð- ingur við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur um gammablossa í Öskju, náttúrufræðihúsið HÍ, í dag, klukkan 14. Gammablossar verða til þegar stór stjarna springur og myndar svarthol. Fyrirlestur Páls er upphaf fyr- irlestraraðar sem Stjarnvísinda- félag Íslands og Raunvísindastofn- un Háskóla Íslands efna til undir heitinu „Undur veraldar: Undir al- heimsins.“ Haldnir verða fimm fyr- irlestrar og verða þeir annan hvern laugardag. Allir fyrirlestrarnir eru í stofu 132 í Öskju. Morgunblaðið/ÞÖK Gammablossar Páll Jakobsson stjarneðlisfræðingur rannsakar himingeiminn. Fyrirlestur um gammablossa STEFNT er að því að hefja fram- kvæmdir við fjölbýlishús á vegum Samtaka aldraðra við Sléttuveg í Fossvogi í næsta mánuði. Að sögn byggingarverktakans er engan bil- bug að finna á verkkaupanum enda meirihluti íbúðanna þegar seldur. Um er að ræða 58 íbúða blokk, þá þriðju sem Samtök aldraðra láta reisa við Sléttuveg, en íbúðirnar eru ætlaðar fólki 60 ára og eldra. Að sögn Kára Arngrímssonar, forstjóra verktakafyrirtækisins Atafls sem byggir húsið, hefur und- irbúningur verkefnisins staðið í um hálft ár og verður því haldið áfram, þrátt fyrir kreppuna nú. „Tveir þriðju hlutar íbúðanna eru þegar farnir og það er bara verið að klára að koma síðustu íbúðunum út,“ segir Kári en stefnt er að því að hefja framkvæmdir í seinni hluta marsmánaðar. „Þetta er um tveggja ára verkefni og það skiptir vissulega máli í dag.“ ben@mbl.is Reisa blokk í Fossvogi Samtök aldraðra byggja við Sléttuveg Orðrétt á Alþingi ’...sérstakt að við séum hér aðfjalla um mál sem er búið að ræðaansi mikið í þinginu og á opinberumvettvangi og það hefur ekki enn komiðfram hver samdi frumvarpið. GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON ’Allt þetta karp sem er núna búiðað vera í gangi. Hver samdi laga-frumvarpið? Mér er skítt sama, fyrir-gefið þið orðbragðið, hver gerði það.Aðalatriðið er að það er verið að taka á málum hérna. RAGNHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR SAMKVÆMT tilkynningu sem Árna Johnsen hefur borist bréf- leiðis frá rík- issaksóknara hef- ur mál vegna kæru Gunnars Gunnarssonar að- stoðarvega- málastjóri á hendur Árna fyrir ærumeiðing- arbrot, verið fellt niður. Kæran barst vegna greinar sem Árni skrif- aði í Morgunblaðið í apríl í fyrra. Með hliðsjón af rannsóknargögnum verður það sem fram er komið ekki talið nægilegt eða líklegt til sakfellis, og því er málið látið niður falla, að því er sagði í bréfi ríkissaksóknara. Málið var fellt niður Árni Johnsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.