Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,formaður Framsóknarflokks- ins, hefur ákveðið að bjóða sig fram í Reykjavíkurkjördæmi norður í þingkosningunum í apríl.     Forveri hans á formannsstóli, JónSigurðsson, var í svipuðum sporum og Sigmundur Davíð fyrir þingkosningarnar vorið 2007. Hann sat reyndar í rík- isstjórn sem iðn- aðar- og við- skiptaráðherra í krafti flokks- formennsku sinn- ar, en átti ekki sæti á þingi. Jón ákvað strax í október 2006 að leiða lista flokks- ins í Reykjavík- urkjördæmi norður, sama kjördæmi og Sig- mundur Davíð lítur nú til.     Jón Sigurðsson gaf þá ástæðu fyrirákvörðun sinni, að mikilvægt væri að formaður flokksins byði sig fram þar sem mest lægi við og það væri í höfuðstaðnum að þessu sinni. Hann lagði sjálfan sig að veði til að reyna að auka fylgi flokksins á möl- inni.     Sigmundur Davíð skýrir ákvörð-un sína á allt annan hátt. „Ég mat það svo að það væri æskilegast fyrir flokkinn að ég byði mig fram í Reykjavík, því að hér er mikið end- urnýjunar- og uppbyggingarferli í gangi,“ sagði formaðurinn ungi. Hann tók fram, að þrýstingur hefði komið „úr grasrótinni“ um að hann byði sig fram á landsbyggðinni, en hann talið þennan kost betri að þessu sinni.     Varla gleðjast framsóknarmenn álandsbyggðinni yfir þessum orðum formannsins. Í þeim felst, að endurnýjunar og uppbyggingar sé helst að vænta á mölinni, en hefð- bundin grasrót Framsóknar liggi óbætt hjá garði. Þetta veganesti ætlar formaðurinn með í kosningar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Endurnýjun Framsóknar                      ! " #$    %&'  (  )                     *(!  + ,- .  & / 0    + -                                 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  ( !                           :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? "#!   #! # #  "# # #  #! "#! !# # #! #" # #  "!# "                          *$BC                !" " "    " "  ## $  %&' "  ( "  )   *   !  $  *! $$ B *! $% & '  '% '     ( <2 <! <2 <! <2 $& )'* + ,'-) .  C8- D                    +  )$   &'     B   " 2  ,  ) $  &'     -      *    "      *  .  " $ %    !  !  $    %   *      / " 0             #  /0)) '' 11  ) ''2   '* + Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR HINN árlegi útdráttur á hreindýraveiðileyfum fer fram á morgun, sunnudag. Mikil spenna ríkir meðal hreindýraveiðimanna, því alls bárust 3227 gildar umsóknir um þau 1333 dýr sem má fella í sumar og haust. Drátturinn fer fram hjá Þekkingarneti Austur- lands, Tjarnarbraut 39a Egilsstöðum, og hefst hann klukkan 17. Í fyrra var útdrátturinn sendur út um fjarfundarbúnað til fjögurra staða á land- inu. Að þessu sinni er bætt um betur og geta allir sem vilja fylgst með athöfninni. Útsendingin verð- ur á heimasíðunum www.umhverfisstofnun.is eða www.hreindyr.is. Opnað verður fyrir útsend- inguna 15 mínútum áður en drátturinn hefst. Öllum umsækjendum verður sendur tölvupóst- ur eða bréf á mánudeginum um hvort þeir fá að veiða dýr eða ekki. Í haust á að veiða heldur færri tarfa en í fyrra en fleiri kýr. Þeir sem fá úthlutuð leyfi í fyrstu um- ferð þurfa að greiða fjórðung af verði leyfisins fyr- ir 1. apríl. Tarfaleyfi á svæði 1 og 2 kosta 120.000 krónur en 80.000 kr. á öðrum veiðisvæðum. Leyfi til veiða á hreinkúm kosta 65.000 kr. á svæði 1 og 2 en 45.000 kr. á öðrum svæðum. Fella skal kálfa sem fylgja felldum kúm, sé þess kostur. Kálfaleyfi kosta 20.000 kr. Veiðitímabil hreindýra stendur frá 1. ágúst til 15. september 2009. sisi@mbl.is Veiðileyfin verða dregin út í beinni Morgunblaðið/Ómar Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is Icelandair Group tapaði samtals 7,5 milljörðum króna eftir skatta á árinu 2008 og þar af tapaði félagið 10,6 milljörðum króna á fjórða ársfjórð- ungi. Icelandair Group skilaði 300 milljóna króna hagnaði á árinu 2007. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri fé- lagsins, segir það hafa náð viðunandi varnarsigri í ljósi aðstæðna. „Það er ljóst að markaðsaðstæður fyrir stærsta félagið innan grúppunnar, Icelandair, breyttust verulega þegar hrunið átti sér stað á Íslandi í byrjun október. Um 50 prósent af tekjum félagsins á vetrarmánuðum koma vanalega frá Íslendingum sem eru að ferðast út. Við sáum því 50 til 60 pró- sent hrun á þeim markaði en náðum að vinna það til baka með því að ná til útlendinga sem komu til Íslands eða ferðuðust hér í gegn á leið sinni yfir Atlantshafið.“ Virði eigna Icelandair Group jókst úr 66,8 milljörðum króna í 98,8 millj- arða króna á árinu 2008, eða um 32 milljarða króna. Björgólfur segir þetta útskýrast að mestu vegna gengislækkunar íslensku krónunn- ar. „Travel Service kom inn í Ice- landair Group á árinu en svo er þetta vegna þess að efnahagsreikningur félagsins er mikið til í erlendum gjaldmiðli og tekur þar af leiðandi hækkunum.“ Tap á rekstri Icelandair Morgunblaðið/Árni Sæberg Icelandair Að sögn forstjóra félags- ins vann það varnarsigur árið 2008. Í HNOTSKURN »Tap Icelandair Group eftirskatta nam 7,5 milljörðum króna á árinu 2008. »Alls á Icelandair Groupfimmtán dótturfélög. Með- al þeirra er flugfélagið Ice- landair, Flugfélag Íslands, Bluebird Cargo og Smart Lynx frá Lettlandi. »Tap móðurfélagsins nam10,6 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2008.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.