Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Aðgangur kr. 1.000 Námsmenn og eldri borgarar kr. 500 Stjórnandi er Sigurður Flosason Tónleikaröð með tónlist Thad Jones Stórsveitin endurtekur vegna fjölda áskorana magnaða klúbb- stemmningu frá tónleikum í nóvember sl. Á fernum tónleikum verður flutt breytileg dagskrá út nótnabók Thad Jones (1923-1986), eins helsta meistara big band tónlistar síðustu áratuga. Kraftmikil stórsveitatónlist eins og hún gerist best. KLÚBBKVÖLD STÓRSVEITAR REYKJAVÍKUR CAFE ROSENBERG Sunnudag 22. feb. kl. 21:00 Mánudag 23. feb. kl. 21:00 Upptaka fyrir RÚV 23. feb. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SIGURJÓN Kjartansson lét sér ekki nægja að taka þátt í umbylt- ingu íslensks gríns og gamanmála heldur hefur og látið til sín taka í framleiðslu á dramaefni. Og það heldur betur. Ásamt fleirum ryður hann nú íslenskri framleiðslu af þeim toga nýjar brautir og var tími til kominn, segja margir. Lengi mændu íslenskir sjónvarpsáhorf- endur út fyrir landsteina, einkum til Danmerkur, og dáðust að list- fenginu sem þar þrífst í sjónvarps- þáttagerð. Undanfarin misseri hafa þættir eins og Pressa, Svartir Englar og nú Réttur, allir úr ranni Sigurjóns, vísað veginn til nýrra og framþróaðri tíma í þessum efnum. Þetta er loksins komið upp á næsta stig. Þrjár hljómsveitir Réttur snýst um tvo lögfræð- inga, gíruga stjörnulögfræðinginn Loga Traustason (Magnús Jóns- son) og hina rúðustrikuðu Bryn- hildi (Jóhanna Vigdís Arnardóttir). Margt og misjafnt kemur til kasta þeirra en þættirnir eru bundnir saman með einu sakamáli sem snýst um hinn dularfulla föstu- dagsnauðgara. „Ég lít á mig sem nokkurs konar lím hvað vinnsluna á þessum þátt- um varðar,“ segir Sigurjón. „Þetta er eiginlega eins og að stofna þrjár hljómsveitir. Fyrst stofna ég sveit með skrifarahópnum. Við skiptum þáttum á milli okkar en svo þegar þetta er komið á ákveðið stig tek ég allt klabbið og endurskrifa eins og þarf. Þá stofna ég smá hljómsveit með leikstjóranum, smá dúett til að byrja með en svo fjölgar meðlimum þar. Upptökumaður, leikmynda- hönnuður og fleiri bætast við. Þriðja hljómsveitin samanstendur svo af okkur framleiðendunum, klippara og leikstjóra. Ég er titl- aður meðframleiðandi, er eiginlega framleiðandi sem skrifar. “ Sigurjón segir svona teym- isvinnu afar mikilvæga í sjónvarps- þáttagerð. „Það verður að vera samræða manna á milli út allt ferlið. Annars ganga svona hlutir ekki upp að mínu viti, verða ekki eins skilvirk- ir. Hér gilda allt önnur lögmál en í kvikmyndum t.a.m.“ Vitlaus aðferðafræði áður fyrr En af hverju erum við fyrst núna komin á boðlegt stig í svona fram- leiðslu? „Þekkingin var bara ekki fyrir hendi,“ svarar Sigurjón. „Hugs- unin hefur of lengi verið sú að leik- skáld, kvikmyndaleikstjórar eða rithöfundar eigi að skrifa svona þætti. Slíkt hefur í flestum til- fellum misheppnast þar sem við- komandi listamenn hafa ekki borið nægilega virðingu fyrir sjónvarps- miðlinum. Það hefur vantað þá auð- mýkt sem þarf til að koma þessu á koppinn sem tekur m.a. til sam- vinnu og að skilja að „betur sjá augu en auga.“ Að prósa þetta eins og bók virkar ekki, því að það er ekki miðillinn. Fólk hefur ekki vilj- að beygja sig undir miðilinn sjón- varp, svo einfalt er það.“ Sigurjón talar þannig um mask- ínu sem byggðist upp í kringum Fóstbræður og fleiri þætti á sínum tíma. Um sé að ræða afkastamikinn hóp skrifara sem sé sumpart búinn að færa sig úr því að skrifa stutta „sketsa“ yfir í lengri handrit. Lyk- illinn sé svo sá að þessi hópur hafi vanist teymisvinnu frá fyrstu tíð. Lengra, dýpra Íslenskt sjónvarpsefni hefur verið gagnrýnt fyrir skort á raunsæi eða „realisma“ og að leikararnir kunni ekki að leika í sjónvarpi, hagi sér eins og þeir standi uppi á sviði í Þjóðleikhúsinu. „Við höfum fengið þá gagnrýni að leikararnir séu stífir og þættirnir „hljómi“ eins og um útvarpsleikrit sé að ræða. Ég held samt að þetta sé meira það að fólk er óvant því að heyra svona efni á íslensku.“ Sigurjón segir í framhaldinu að þættirnir þrír, Pressa, Svartir engl- ar og Réttur séu allir fremur hefð- bundnir þættir. Þannig séð. Blaða- mannadrama, lögguþáttur og svo réttardrama. Menn hafa þó verið að færa sig upp á skaftið eftir því sem þeir gera sig heimakomnari í þessu nýja umhverfi. „Ég vildi t.d. fara aðeins lengra með Rétt. Gera meira úr persónu- legum málum og dýpka á þessu formi með litlum hliðarskotum hér og hvar.“ Hann segir að sig hafi alltaf lang- að til að búa til lengri þætti eftir að vera búinn að skrifa þúsundir sketsa á ferlinum. Sú maskína malar örugg- lega nú, en síðar á árinu verða þætt- irnir Ástríður sýndir, gamanþættir sem hann stendur að. Allt er bjart Eftirfarandi var haft eftir Sig- urjóni í júní, 2007, þegar tökur á Pressu stóðu yfir: „Ætli það sé ekki í uppsiglingu hið íslenska sjónvarpsvor. Við skulum segja að Pressa sé fyrsti vorboðinn.“ Og framtíðin er skýr – og björt – að mati Sigurjóns þegar þetta er borið undir hann í dag. „Ja … nú siglum við inn í sumarið vænti ég. Það hafa orðin ákveðin skil, þessi hópur sem ég ræddi um fyrr í viðtalinu hefur tileinkað sér fagleg vinnubrögð sem byggjast m.a. á þekktum erlendum vinnuað- ferðum og nú er að safnast upp gríð- arleg þekking og reynsla hérlendis í þessum efnum. Þetta er í raun og veru sprotastarfsemi sem er í gangi.“ Nú gilda önnur lögmál  Sjötti og síðasti þátturinn í lögfræðidramanu Réttur, verður sýndur annað kvöld  Landslagið í íslenskri sjón- varpsþáttagerð er gjörbreytt, segir Sigurjón Kjartansson Togast á Ekki er óalgengt að það slái í brýnu á milli tveggja stjörnulögfræðinga. Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Magnús Jónsson í hlutverkum sínum í Rétti, en síðasti þátturinn er á dagskrá Stöðvar tvö annað kvöld. ÞAÐ er hugur í Sigurjóni og hans fólki og vonast hann til að koma framleiðslunni á framfæri erlendis. „Pressa verður sýnd í Noregi í ríkissjónvarpinu þar og Svartir englar eru á leið til Svíþjóðar. Við förum með Svarta engla og Rétt til Cannes í vor. Þarna fylgjum við svipuðum ferlum og Danir en markmiðið er að komast inn á evr- ópska „dub“ eða talsetningarmark- aðinn. Eins og t.d. Þýskaland. Þýsk- ir hafa verið að sýna áhuga þó að ekkert sé fast í hendi. Ef við kom- umst þangað er hægt að fara að framleiða meira og þá lengri seríur en sex þátta, t.d. tólf þátta seríur.“ Í útréttingar KATE Winslet segir að hún sé hætt að koma nakin fram í kvik- myndum. Síðasta nektaratriði leik- konunnar er að finna í verðlauna- myndinni The Reader sem nú er sýnd á Íslandi en þar fyrir utan hefur hún komið nakin fram í 10 kvikmyndum, þ. á m. Titanic, Ham- let og Little Children. „Ég hugsa að ég eigi ekki eftir að leika í nekt- arsenu aftur. Ég kemst ekki upp með það til eilífðarnóns og þar fyrir utan vil ég ekki vera þekkt fyrir að vera leikkonan sem klæðir sig úr hverri spjör í öllum myndum sem hún leikur í.“ Þrátt fyrir þessi um- mæli er ekki langt síðan Winslet svaraði því til í viðtali að hún hefði ekkert á móti því að koma fram nakin í kvikmyndum, eins lengi og það hefði skýran tilgang. Kollegar Winslet af sama kyni hafa margir hverjir fylgst grannt með nektar- leik Winslet og lét Halle Berry hafa það eftir sér að hún óskaði þess að vera jafn óhrædd við nektarsenur og Winslet. „Kate er alltaf nakin, á klósettsetu, á hlaupum og þar fram eftir götunum. Ég vildi að ég væri jafn örugg í eigin skinni og hún.“ Síðasta nektarsena Kate Winslet Reuters Ófeimin Kate Winslet brosir sínu breiðasta eftir að hafa hlotið bresku BAFTA verðlaunin í Lundúnum hinn 8. febrúar síðastliðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.