Morgunblaðið - 21.02.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, fjár-
mála-, sjávarútvegs-, og landbún-
aðarráðherra, segir íslensk stjórn-
völd hafa fullan hug á því að
rannsaka til hlítar hvernig íslensk
fjármálafyrirtæki, með starfsstöðvar
hér á landi sem og erlendis, hafa
staðið að stofnun félaga í skatta-
skjólum erlendis fyrir viðskiptavini
sína. Sérstaklega sé mikilvægt í gera
þetta núna í ljósi erfiðrar stöðu hér á
landi og erlendis. „Ríkisstjórnin og
íslensk stofnanir hafa fullan hug á því
að reyna til hlítar að komast til botns
í þessum málum og fá við því skýr
svör hvort fyrirtæki og einstaklingar
hafa fært fé úr landi gagngert til
þess að komast hjá skattgreiðslum
hér á landi. Það er margt sem bendir
til þess að svo hafi verið. Stjórnvöld í
öðrum löndum, í Bandaríkjunum og
Bretlandi þar á meðal, hafa verið að
taka þessi mál föstum tökum og það
er full ástæða til þess að gera það hér
líka.“
Í Morgunblaðinu undanfarnar
tvær vikur hefur ítarlega verið fjallað
um hundruð félaga í eigu Íslendinga,
einkum á eyjunni Tortola sem er
hluti af Bresku Jómfrúaeyjum. Ís-
lensk fjármálafyrirtæki, einkum
bankarnir sem nú eru fallnir, Glitnir,
Kaupþing og Landsbankinn, voru
þar langsamlega umfangsmest í
stofnun þeirra fyrir viðskiptavini. Í
Morgunblaðinu í gær kom meðal
annars fram að fé Íslendinga í
skattaskjólum hafi fimmtíufaldast á
árunum 2002 til 2007. Beinar pen-
ingalegar eignir Íslendinga í skatta-
skjólum voru 43,7 milljarðar árið
2007.
Lögin verða styrkt
Steingrímur segir unnið að því á
vettvangi ríkisstjórnarinnar að
styrkja lagaheimildir og úrræði til
þess að endurheimta eignir sem
„sannarlega“ ættu að vera inni í ís-
lensku hagkerfi. „Við í Vinstri græn-
um höfum talað fyrir því að styrkja
heimildir til þess að frysta eignir og
vilji ríkisstjórnarinnar stendur til
þess. Það voru nú margir sem höfðu
miklar efasemdir um þær hugmyndir
í upphafi, en víðast hvar erlendis
hafa stjórnvöld einmitt verið að grípa
til þessara ráðstafana.“
Steingrímur segist reikna með því
að frumvarp verði afgreitt út úr rík-
isstjórn í næstu viku þar sem laga-
heimildir skattayfirvalda eru styrkt-
ar til þess að auðveldara sé að
nálgast upplýsingar um íslenskar
eignir í skattaskjólum. „Fyrri rík-
isstjórnir hafa ekki hlustað nægilega
vel á forystumenn skattayfirvalda í
landinu undanfarin ár sem hafa talað
fyrir meira aðgengi að upplýsingum
um eignir Íslendinga erlendis. Það er
aðkallandi þörf á því að fá fram skýr-
ar upplýsingar um þessi mál.“
Fái ekki að skjóta undan
Ríkisstjórn hyggst styrkja lagaheimildir til að ná í upplýsingar um eignir Íslend-
inga í skattaskjólum Stjórnvöld erlendis krefjast upplýsinga um eignir
ÖLLUM starfs-
mönnum Frétta-
blaðsins verður
gert að minnka
starfshlutfall sitt
niður í 90% um
næstu mán-
aðamót. Sú
ákvörðun gildir
til 1. september.
Þá var fjórum
blaðamönnum sagt upp í gær í hag-
ræðingarskyni. „Það eru nokkrir
tugir milljóna sem við spörum á
árinu 2009 með þessum aðgerðum á
Fréttablaðinu. Við erum ekki að
leggja niður neina starfsemi hjá
okkur. Við hlúum að flaggskipunum
okkar en við erum stöðugt að velta
öllum steinum til þess að leita leiða
til að spara og hagræða,“ segir Ari
Edwald, forstjóri 365 miðla. Hann
segir að síðasta rúma árið hafi stöðu-
gildum hjá miðlum 365 fækkað úr
370 í tæplega 300. Sunnudagsútgáfu
Fréttablaðsins var hætt á dögunum
og starfsmenn með 300 þúsund í
mánaðarlaun og þar yfir tóku á sig
launalækkun í október.
the@mbl.is
Frétta-
blaðið
hagræðir
Fjórum sagt upp og
starfshlutfall í 90%
Ari Edwald
Bandarísk og bresk stjórnvöld hafa krafist þess að fá í
sínar hendur upplýsingar um viðskiptavini alþjóðlegra
banka, einkum svissneskra, sem talið er að bankarnir
hafi aðstoðað við að borga lægri skatta með því að
færa fé þeirra inn í félög í þekktum skattaskjólum.
Helstu röksemdir stjórnvalda fyrir aðgerðum sínum
séu öðru fremur þær að almannahagsmunir krefjist
þeirra í ljósi erfiðs árferðis á alþjóðamörkuðum. Auk
þess sé uppi grunur um að ekki hafi verið farið að lög-
um. Svissneski bankinn UBS hefur raunar fallist á að
greiða bandarískum stjórnvöldum 780 milljóna dollara
sekt, jafnvirði um 88,9 milljarða króna, vegna ásakana um að bankinn
hafi hjálpað viðskiptavinum sínum að borga lægri skatta og nýta til þess
félög í þekktum skattaskjólum, þar á meðal á Bresku Jómfrúaeyjunum,
Lúxemborg og Sviss.
Upplýsingar um skattaskjól komi fram
Barack Obama
Í gærkvöldi voru margir á ferð í Víðidalnum,
enda veðrið ekki amalegt fyrir þá sem eru svo
lánsamir að eiga reiðskjóta og geta skellt sér í
hnakk og látið gamminn geisa. Draumurinn um
vorið góða og hlýja og grænt gras í haganum
hefur eflaust látið á sér kræla hjá hrossunum og
ekki síður mannfólkinu sem finnur fyrir því á
hverjum degi hvernig birtan sigrar myrkrið,
smátt og smátt. Útivist gleður klárlega andann.
Morgunblaðið/Kristinn
Hófaljón og knapar nutu góða veðursins í gærkvöldi
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins og
við flest þekkjum hana, fararstjóri
Bændaferða, verður á skrifstofu
Bændaferða mánudaginn 23. febrúar til
föstudagsins 27. febrúar frá kl. 9.00 -
16.00. Hún mun kynna sínar ferðir og
svara spurningum, svo það er alveg
upplagt að kíkja í Síðumúlann í kaffi, hitta
Hófý og fá upplýsingar um ferðirnar.
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 23. - 27. febrúar
Bændaferðir • Síðumúla 2
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
TVÆR konur slösuðust alvarlega þegar lok af mæjonest-
unnu þeyttist í andlit þeirra í Kartöfluverksmiðjunni í
Þykkvabæ í gær. Þær voru fluttar með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi og þurftu báðar
að undirgangast aðgerð vegna slyssins.
Tilkynnt var um slysið um tvöleytið í gær að sögn Auð-
uns Arnar Gunnarssonar verksmiðjustjóra. „Það var ver-
ið að dæla mæjónesi úr tunnu þegar lokið springur af
henni og lendir í tveimur starfsstúlkum hérna.“ Hann
segir tunnurnar sérútbúnar til verksins. „Við höfuð notað
þessar tunnur í fjölda ára en þetta er í fyrsta sinn sem
eitthvað slíkt gerist.“ Aðspurður segir hann ekkert tjón
hafa orðið í verksmiðjunni sjálfri vegna atviksins.
Lögreglan á Hvolsvelli segir ekki vitað hvað olli
sprengingunni en bæði lögregla frá rannsóknardeildinni
á Selfossi og Vinnueftirlitið hafi komið á staðinn og kann-
að aðstæður.
Að sögn læknis á slysadeildinni í Fossvogi voru kon-
urnar alvarlega slasaðar í andliti og þurftu báðar að und-
irgangast aðgerð. Var önnur þeirra komin á gjörgæslu-
deild um kvöldmatarleytið í gær en hin var á leiðinni í
aðgerð. Heilmikill viðbúnaður var vegna slyssins og voru
tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-EIR og TF-GNA,
kallaðar á vettvang. Var ákveðið að flytja konurnar með
TF-GNA til borgarinnar.
Alvarlega slasaðar eftir
sprengingu í verksmiðju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útkall Konurnar voru fluttar með TF-GNA á Landspít-
alann í Fossvogi þar sem gert er að sárum þeirra.
FASTEIGNASALA hefur fengið til
sölu um það bil þrjátíu fasteignir
frá banka. Sölumaðurinn segir í
tölvupósti til samstarfsfólks að
eignirnar fáist á góðu verði.
Ingi Már Grétarsson, sölufulltrúi
hjá fasteignasölunni RE/MAX Bær,
segir aðspurður að margar eign-
irnar hafi verið til sölu annars stað-
ar í marga mánuði og auglýstar á
fasteignavefjum. Viðkomandi banki
vilji reyna nýja sölu og hafi komið
til sín.
Ingi Már gefur ekki upp hvaða
banki á í hlut og heldur ekki um
hvaða eignir er að ræða. Í tölvu-
bréfi hans kemur fram að þarna
eru ýmsar gerðir af íbúðarhúsnæði,
sumarhús og iðnðarhúsnæði, allt
frá fokheldu og upp í tilbúið, á
Reykjavíkursvæðinu og úti á landi.
Þótt talað sé um gott verð þvertek-
ur Ingi Már fyrir að um svokallaða
brunaútsölu sé að ræða. Segist
reikna með meirihluti eignanna
seljist á því verði sem gerist og
gengur á markaðnum. helgi@mbl.is
Eignir „á
góðu verði“
Ónefndur banki vill
selja um 30 fasteignir