Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
Sigurvegarar Þessar vösku konur sigruðu í keppni milli deilda um hver væri fljótastur að búa um rúm, í 60 ára afmæli Kvennadeildar Landspítalans í gær.
RAX
Ransu | 20. febrúar 2009
Fyrst þarf að sigta Krist-
ján og Kjarval frá áhuga-
mönnum
Auðvitað var það furðu-
legt á sínum tíma þegar
listaverkin fylgdu með
bönkunum í kaupbæti. En
nú eru bankarnir aftur
komnir í ríkiseigu og lista-
verkin með.
Samkvæmt plani verða bankarnir
seldir einhvern tímann seinna. Allavega
þegar XD kemst aftur til valda. Og þá
þarf að passa að endurtaka ekki sömu
vitleysuna og gleyma menning-
arverðmætum sem bönkunum hafa
áskotnast gegnum tíðina. …
Listasafn Íslands er auðvitað ekki
geymsla og því þyrfti fyrst að fara í
gegnum safneign bankanna, verk fyrir
verk, sigta Kristján og Kjarval frá áhuga-
mönnum og meta hvað eigi heima í safn-
eign höfuðlistasafnsins og hvað ekki.
Meira: ransu.blog.is
Felix Gunnar Sigurðsson | 20. febrúar
Hvar er aðstoðin
frá yfirvöldunum?
Nú fjölgar þeim tilfellum á
hverjum degi þar sem við
heyrum af fólki sem er að
missa eða er búið að
missa húsnæðið sitt
vegna kreppunnar. Því
verður manni oft hugsað til ríkisstjórn-
arinnar sem er nýtekin við völdum og vill
að sjálfsögðu allt fyrir alla gera. En það er
eins og ekkert sé gert, bankarnir vaða yfir
allan almenning og um leið og fólk er
komið í vanskil þá er húsið hirt af fjöl-
skyldunni. Þetta er svolítið hjákátlegt í
ljósi þeirrar staðreyndar að nú á ríkið þrjá
stærstu bankana og því ættu að vera hæg
heimatökin hjá henni að stjórna þessu.
Meira: felli.blog.is
Gestur Guðjónsson | 20. febrúar 2009
Vandasöm
forgangsröðun
Það er rétt og göfugt
markmið að ætla sér að
reyna að fækka banaslys-
um í umferðinni og með
til þess að gera litlum til-
kostnaði mætti ná mikl-
um árangri … En ef út-
rýma á banaslysum algerlega er ég
sannfærður um að þeim fjármunum sem
þyrfti að nota í að bjarga síðustu manns-
lífunum í umferðarslysum væri betur
varið í að bjarga mannslífum annars
staðar í samfélaginu.
Meira: gesturgudjonsson.blog.is
STJÓRN Samfylkingar og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs var mynduð við svo
óvenjulegar aðstæður að þær
eiga sér engan líka á seinni tím-
um. Efnahagslegt hrun, gjald-
eyriskreppa, stjórnarkreppa,
aukið atvinnuleysi, fjárhagsleg
gjaldþrot heimila, upplausn,
óánægja, reiði – allt eru þetta
orð sem eiga einkar vel við það
ástand sem ríkt hefur und-
anfarna mánuði.
Ný ríkisstjórn hefur sagt þessu ástandi
stríð á hendur undir merkjum verkgleði og
samstöðu. Á þeim fáu dögum sem hún hefur
setið við völd hefur henni tekist að hrinda í
framkvæmd fjölmörgum málum sem miklu
skipta. Hún hefur unnið hratt og fumlaust að
brýnum verkefnum sem þola enga bið, að
lausnum sem skipt geta sköpum fyrir fjöl-
skyldur og fyrirtæki.
Leggjumst öll á árarnar
Mikilvægasta verkefni nýrrar ríkisstjórnar
er að endurreisa traust í samfélaginu, end-
urvekja traust á stofnunum samfélagsins,
traust á hinu opinbera, traust á atvinnu- og
efnahagslífinu en umfram allt er verkefni
hennar að sameina krafta alls almennings með
það eitt að markmiði að koma
þjóðinni út úr þeim vanda sem við
blasir.
Á þeim rétt rúma hálfa mánuði
sem liðinn er frá stjórnarskiptum
hefur ríkisstjórnin lagt áherslu á
að koma fram mikilvægum um-
bótamálum fyrir heimilin í land-
inu, úrræði til að efla atvinnulífið,
undirbúning áframhaldandi sam-
starfs við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn, að hraða endurreisn fjár-
málakerfisins auk margvíslegra
lýðræðis- og réttlætismála. Á
fyrstu 19 dögunum hefur rík-
isstjórnin samþykkt að leggja til við Alþingi
breytingar á 17 lögum, afgreitt 10 stefnu-
markandi ákvarðanir auk fjölda annarra mála.
Þau mikilvægustu eru þessi:
Lagt fram frumvarp um frestun nauðung-
arsölu íbúðarhúsnæðis fram til hausts sem
tryggir íbúum búsetu til a.m.k. 12 mánaða eft-
ir uppboð.
Lagt fram frumvarp um breytingu á gjald-
þrotalögum til að styrkja stöðu skuldara,
stytta fyrningarfresti í tvö ár o.fl.
Lagt fram frumvarp um lengingu aðfara-
frests úr 15 dögum í 40.
Lagt fram frumvarp um greiðsluaðlögun,
nýtt úrræði til að auðvelda skuldurum að tak-
ast á við mikla skuldabyrði, meðal annars með
þvingaðri niðurfellingu skulda, lengingu lána
o.fl.
Lagt fram frumvarp um útborgun allt að
einnar milljónar króna af séreignarsparnaði
fólks og tveggja milljóna hjá hjónum.
Settur á fót vinnuhópur til að meta áhrif
efnahagsástandsins á stöðu kynjanna.
Stofnuð velferðarvakt í samvinnu ríkis,
sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins og fleiri
aðila til að fylgjast með félagslegum og fjár-
hagslegum afleiðingum bankahrunsins á ein-
staklinga og fjölskyldur og gera tillögur um
viðbrögð.
Tilmælum beint til fjármálastofnana um að
frysta gengisbundin lán meðan unnið er að
framtíðarlausn slíkra lána.
Hafið vinnu við langtímaáætlun til að
bregðast við skuldavanda heimilanna sem
verður kynnt fyrir lok mars.
Lagt fram frumvarp um persónukjör.
Lagt fram frumvarp um stjórnlagaþing og
ýmsar mikilvægar breytingar á stjórnarskrá,
meðal annars vegna auðlinda í eigu þjóð-
arinnar, þjóðaratkvæðagreiðslu vegna stjórn-
arskrárbreytinga.
Lagt fram frumvarp um Seðlabanka Ís-
lands.
Lagt fram frumvarp um afnám sérkjara
ráðamanna til eftirlauna.
Samþykkt og lagt fram opinbera stefnu-
mörkun um endurreisn fjármálakerfis og
efnahagslífs byggða á tillögum sérfræðinga-
nefndar undir forystu Mats Josepssonar.
Tekið ákvörðun um stofnun opinbers
eignasýslufélags til að taka yfir skuldsett en
mikilvæg fyrirtæki sem eiga í vandræðum
þannig að þau geti starfað áfram.
Tekið ákvörðun um að leita til erlendra
sérfræðinga til að gæta hagsmuna skattgreið-
enda í samningaviðræðum við lánardrottna
gömlu bankanna, skilanefndir og nýju bank-
anna.
Skipað nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins og
auglýst stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins.
Aukið upplýsingagjöf ríkisstjórnar frá því
sem áður var, meðal annars með vikulegum
blaðamannafundum ríkisstjórnar og heima-
síðu þar sem stöðugt er hægt að fylgjast með
framgangi þeirra verkefna sem kveðið er á um
í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar.
Útlánareglur og fjölgun lánaflokka hjá
Íbúðalánasjóði til að auðvelda viðhaldsverk-
efni og styrkja byggingariðnað.
Lagt fram frumvarp til að hækka endur-
greiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við við-
haldsverkefni úr 60% í 100%.
Innritunargjöld á sjúkrahús og heilbrigð-
isstofnanir felld niður.
Skipað sérstaka framkvæmdanefnd efna-
hagsstefnunnar með aðild ráðuneyta, þing-
manna og lykilaðila í framkvæmd hennar.
Íslendingar eru í erfiðri stöðu. Efnahags-
kreppan er dýpri en gert hefur verið ráð fyrir,
áhrif hennar djúpstæðari og viðfangsefnin erf-
iðari. Engin ástæða er til að fela þessar stað-
reyndir. Ríkisstjórnin horfist í auga við verk-
efnið og blæs til sóknar til að snúa stöðunni
við.
Eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
»Ný ríkisstjórn hefur sagt
þessu ástandi stríð á hend-
ur undir merkjum verkgleði og
samstöðu.
Jóhanna Sigurðardóttir
Úr vörn í sókn
Höfundur er forsætisráðherra.
ÞEGAR fjármálahrunið varð í
haust var töluvert rætt um þá ein-
staklinga sem báru ábyrgð á hvern-
ig fór og ráðamennina sem áttu lög-
um samkvæmt að tryggja að
öryggisnet okkar virkaði. Reyndar
virðist enn ekki alveg ljóst hverjir
þeir voru. Það fer hins vegar ekki á
milli mála að sárafáar konur voru í
þeim hópi og nokkuð ljóst að öðru-
vísi hefði farið ef fleiri konur hefðu
verið í forsvari í fjármálafyr-
irtækjum og opinberum stofnunum
en raun bar vitni. Í kjölfarið vaknaði töluverð um-
ræða um ólík viðhorf kynjanna og mikilvægi þess
að sjónarmið og reynsla beggja kynja fengi notið
sín land og þjóð til hagsbóta. Menn lögðu á það
áherslu að konur væru ekki eins áhættusæknar og
karlarnir, þær væru vandvirkari og færu var-
legar. Til þess að þetta væru ekki bara orðin tóm
var ákveðið að konur skyldu stýra tveimur af
þremur nýju bankanna. Og það sem meira var:
Þær voru ekki kornungar og með meistarapróf í
vasanum. Þær áttu það hins vegar sameiginlegt
að búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem hafði
reyndar ekki dugað til þess að þær yrðu banka-
stjórar í „gamla“ kerfinu þar sem „strákarnir“
réðu öllu. Ég sá því fyrir mér að loks-
ins færi jafnréttisbarátta undanfar-
inna ára að skila sér og meira jafn-
vægi yrði milli kynjanna í áhrifa- og
ábyrgðarstöðum. Við höfum líka átt
margar og frábærar konur sem hafa
staðið sig með miklum glæsibrag í
störfum sínum og sýnt að konur eru
fyllilega færar um að gegna æðstu
embættum þjóðfélagsins. Nægir í því
sambandi að nefna Vigdísi Finn-
bogadóttur sem án efa er fremst
meðal jafningja í þeirra hópi. Hvern-
ig sem á því stendur hefur þessi um-
ræða lognast út af og því miður ótt-
ast ég að ef ekkert verður að gert
muni ekki verða sú breyting á þjóðfélaginu sem
nauðsynleg er.
Nú fer að styttast í kosningar og stjórn-
málaflokkarnir eru farnir að viðra hugmyndir sín-
ar um prófkjör og niðurröðun á lista. Þó að ekki
hafi endanlega verið gengið frá neinum listum er
ljóst að margir einstaklingar með mikla reynslu
og þekkingu á stjórnmálum hafa ákveðið að bjóða
sig ekki fram og þeir sem þegar hafa lýst yfir
áhuga sínum á að setjast í efstu sæti listanna eru
fyrst og fremst karlmenn á „besta“ aldri. Ég verð
að viðurkenna að mér hugnast ekki sú framtíð-
arsýn. Ef einhver siðbót og breyting á að verða á
samfélaginu verður alþingi að endurspegla þjóðfé-
lagið. Við þurfum á alþingi fólk af báðum kynjum,
fólk með reynslu og þekkingu af þingstörfum og
einstaklinga með nýjar og ferskar hugmyndir. Til
að svo megi verða þarf að verða ákveðin viðhorfs-
breyting. Ekki aðeins innan stjórnmálaflokkanna
heldur í þjóðfélaginu öllu. Stjórnmálaflokkarnir
verða að sjá til þess að á listunum verði eðlilegt
jafnvægi milli kynjanna og að tillit verði tekið til
kröfu um endurnýjun en jafnframt verði séð til
þess að reynsla og þekking skili sér áfram. En það
dugir ekki til að jafnmargar konur og karlar bjóði
sig fram í prófkjöri ef þeir sem taka þátt í próf-
kjörinu velja fyrst og fremst karlmenn í efstu sæt-
in. Og það dugir heldur ekki til að jafnmargar
konur og karlar séu á listunum ef körlum er raðað
í efstu sætin.
Ef hér verður ekki viðhorfsbreyting er ég
hrædd um að við munum áfram sitja uppi með
svipaða ráðamenn og verið hefur. Er það sú fram-
tíð sem við viljum sjá fyrir okkur?
Eftir Gullveigu
Sæmundsdóttur »Ef hér verður ekki viðhorfs-
breyting er ég hrædd um að
við munum áfram sitja uppi með
svipaða ráðamenn og verið hefur.
Gullveig
Sæmundsdóttir
Höfundur er fyrrverandi ritstjóri.
Konur og karlar
BLOG.IS