Morgunblaðið - 21.02.2009, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 21.02.2009, Qupperneq 40
40 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Sudoku Frumstig 7 6 2 7 2 1 3 4 8 7 4 6 1 9 2 1 3 5 8 6 4 3 9 1 2 5 6 9 8 1 5 2 3 5 8 6 2 6 3 8 4 3 2 9 1 7 8 5 1 6 5 8 7 5 2 1 5 8 4 6 9 2 5 5 1 8 4 4 9 2 6 1 4 7 2 5 6 2 1 1 5 9 2 8 2 4 6 1 3 5 2 8 9 1 5 8 4 6 7 9 3 2 2 7 3 8 1 9 5 6 4 4 9 6 3 2 5 8 7 1 9 2 7 6 8 1 4 5 3 8 4 1 9 5 3 6 2 7 3 6 5 7 4 2 1 8 9 7 1 9 5 3 6 2 4 8 6 8 2 1 7 4 3 9 5 5 3 4 2 9 8 7 1 6 1 2 7 4 3 6 8 9 5 8 3 4 5 9 7 1 2 6 6 5 9 2 8 1 4 7 3 2 1 8 7 6 3 9 5 4 9 6 3 1 5 4 7 8 2 4 7 5 8 2 9 3 6 1 7 8 2 3 4 5 6 1 9 3 9 1 6 7 2 5 4 8 5 4 6 9 1 8 2 3 7 4 9 7 8 6 1 5 3 2 3 8 2 4 5 7 9 1 6 1 6 5 9 2 3 8 4 7 5 3 9 7 4 6 2 8 1 8 1 6 2 3 5 4 7 9 2 7 4 1 8 9 3 6 5 7 4 8 5 1 2 6 9 3 6 5 1 3 9 8 7 2 4 9 2 3 6 7 4 1 5 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 21. febrúar, 52. dagur ársins 2009 Orð dagsins: En halt þú stöðuglega við það, sem þú hefur numið og hefur fest trú á, þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það. (2. Tím. 3, 14.) Víkverji dagsins notaði stræt-isvagna töluvert í síðustu viku, en hefur ekki gert það um nokkurra ára skeið. Ekki frá því hann var sjálfur á ungdómsárum. Út á stræt- isvagnana sjálfa er ekki margt hægt að setja. Þeir fara í hringi og bíl- stjórarnir hafa tilhneigingu til að gefa alltaf í botn, þó svo aðeins nokkrir metrar séu í gatnamót, hraðahindrun, beygju eða stoppi- stöð. x x x Í þessum strætisvagnaferðum upp-lifði Víkverji unglingamenningu sem hann hefur ekki vitnað um langt skeið. Holdvotur, á leið sinni á milli biðskýla, rakst hann á ungan mann í hettupeysu, sem óð eld og brenni- stein (drullupoll og grindverk) til þess að komast í kallfæri. „Hey, áttu sígó, eða?“ var svo erindið sem kall- aði á alla þessa fyrirhöfn. Víkverji sagðist ekki reykja og hugsaði með sér að fíknin hlyti að hafa náð sterk- um tökum á honum þessum. Hann væri orðinn nokkurs konar sígópati. x x x Í hinu langþráða biðskýli sat tán-ingsstúlka og horfði á tærnar á sér. Hún leit upp, með vonarglampa í augunum og spurði: „Hey, áttu inn- eign eða?“ Víkverji vissi ekki hvað hún átti við. Ætti hann inneign hjá einhverjum? Væri hann mögulega innistæðulaus í lífi og starfi? Fals- persóna án innistæðu fyrir hinu ytra byrði? En nei, hún var að tala um farsíma og efaðist semsagt ekki um að Víkverji væri með síma, bara um að hann ætti inneign fyrir símtali. Líklega var síminn bara of blautur til notkunar. x x x Vagninn renndi upp að og Vík-verji fékk sér sæti. Skömmu síðar steig unglingaskari inn, við skóla einn. Stúlkurnar flissuðu og stærri drengirnir spurðu þá minni hvort þeir væru mögulega „tregir, eða?“ um leið og þeir ýttu þeim til og frá. Jú, það er fjör í strætó, en áfell- ist nokkur einkabílista á Íslandi? vík- verji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 öskugrár, 8 klökkni, 9 er í vafa, 10 alls ekki, 11 byggja, 13 hafna, 15 fatla, 18 möl- brjótar, 21 vætla, 22 hörgul, 23 höggva smátt, 24 hertur fiskur. Lóðrétt | 2 hnappur, 3 líkamshlutann, 4 álma, 5 hagnaður, 6 vatnspyttur, 7 hræðslu, 12 eyði, 14 samtenging, 15 sjáv- ardýr, 16 traðki, 17 smá, 18 álkan, 19 vagns, 20 sefar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 vökna, 4 bítur, 7 rells, 8 rögum, 9 arm, 11 skrá, 13 hala, 14 mamma, 15 fata, 17 ljót, 20 rak, 22 dimma, 23 ræpan, 24 innan, 25 staur. Lóðrétt: 1 verks, 2 kælir, 3 ausa, 4 barm, 5 tugga, 6 rimma, 10 remma, 12 áma, 13 hal, 15 fæddi, 16 tamin, 18 japla, 19 tínir, 20 raun, 21 krás. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. g3 d5 4. cxd5 exd5 5. Bg2 Be7 6. d3 0-0 7. Bg5 c6 8. Rf3 Db6 9. Ra4 Da6 10. 0-0 Rbd7 11. a3 h6 12. Be3 c5 13. Hc1 b6 14. d4 c4 15. Re5 Bb7 16. Rc3 Hfd8 17. Dd2 b5 18. Bf4 Db6 19. Hfe1 a5 20. a4 b4 21. Rb5 Hac8 22. De3 Bf8 23. Bh3 g5 24. Rxd7 Rxd7 25. Bxd7 Hxd7 26. Df3 Bg7 27. Dg4 Staðan kom upp á Skákþingi Reykjavíkur – Skeljungsmótinu sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Tafl- félags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Kristján Eðvarðsson (2.253) hafði svart gegn Sigríði Björgu Helgadótt- ur (1.646). 27. … f5! 28. Dxf5 Hf7 og hvítur gafst upp enda liðstap óumflýj- anlegt. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Kaldar konur. Norður ♠ÁK108 ♥G76 ♦D73 ♣987 Vestur Austur ♠97632 ♠5 ♥4 ♥K983 ♦K10654 ♦G8 ♣52 ♣ÁKDG63 Suður ♠DG4 ♥ÁD1052 ♦Á92 ♣104 Suður spilar 4♥. Þær eru kaldar kínversku landsliðs- konurnar – alla vega Liu Yiquan, sem hélt á spilum austurs í lokalotu úrslita- leiksins um NEC-bikarinn. Japaninn Imakura vakti í suður á 1♥, pass í vest- ur og norður stökk í 3♣ til að lýsa yfir jafnskiptri áskorun í 4♥. Flestir hefðu látið nægja að dobla í sporum austurs, en Liu sagði óhikað 3G. Sjálfsagt hugð- ist hún renna af hólmi í 4♣ eftir dobl, en sá samningur fer þrjá niður með bestu vörn. Sem er ekki gott á jöfnum hættum. En í reynd sagði Imakura 4♥ á suðurspilin. Út kom tígull frá kóngn- um og nú vinnast 4♥ auðveldlega með því að stinga upp ♦D. En Imakura trúði því ekki að vestur gæti átt eitt einasta mannspil og lét smátt úr borði. Það voru dýr mistök, því hann þoldi ekki 4-1 leguna í trompi og fór einn nið- ur. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þetta er góður tími til að gera áætlanir varðandi starfsframa þinn. Markmið þitt næstu vikurnar verður að víkka sjóndeildarhringinn með ráðum og dáð. (20. apríl - 20. maí)  Naut Í dag er sérlega góður dagur fyrir þitt merki. Ef hópurinn er ekki nægi- lega góður er rétti tíminn til þess að gera breytingar núna. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú þarft að gefa þig allan í það sem þú ert að gera því það dugar ekk- ert hálfkák. Fólk sem þú hittir hikar ekki við að opna sig. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Alls kyns vandræðagangur, sem hefur hrjáð þig, tekur nú enda og þú átt að geta aftur um frjálst höfuð strok- ið. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Finndu gömlu dagbókina, grafðu upp gítarinn og klæddu þig í gömul föt. Það er auðvelt að ganga of langt í skemmtigleðinni í dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er allt á ferð og flugi í kring- um þig svo þér veitist erfitt að fóta þig í öllum hamaganginum. Farðu í göngu- túr eða út að skokka og fáðu ferskt loft. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er að mörgu að hyggja, þegar litið er til afkomuöryggis. Vandamálið sem þú hélst að myndi aldrei hverfa gerir það á augabragði. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér hentar best að vinna einn í dag enda eru litlar líkur á að þú hljótir þá viðurkenningu sem þú átt skilið fyrir vinnusemi þína. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það getur reynst þér skeinu- hætt að hlaupa í blindni eftir at- hugasemdum annarra. Vertu óhrædd/ur við nýjar hugmyndir. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er ekki sama hvernig þú segir fólki fyrir verkum og hreint engin spurning um hversu valdsmannslegur þú getur orðið. Mundu að margar stað- reyndir má túlka á fleiri en einn veg. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú hefur þörf fyrir að ræða áhyggjur þínar við einhvern en skalt varast að gera það við hvern sem er. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það getur oft reynst erfitt að halda í horfinu svo ekki sé nú talað um að pota hlutunum áfram. Nýttu þér krafta annarra til þess að leggja loka- hönd á það sem óklárað er. Stjörnuspá 21. febrúar 1599 Leikmannabiblía var gefin út á Hólum í Hjaltadal. Aðeins tvö heil eintök eru nú til af henni, annað í Héraðs- bókasafni Borgarfjarðar, hitt í Íþöku í Bandaríkjunum. 21. febrúar 1630 Jarðskjálftar hófust á Suður- landi. Tjón varð á bæjum í Ár- nessýslu og Rangárvallasýslu og breytingar urðu á hvera- virkni í Biskupstungum. 21. febrúar 1895 Kvennablaðið kom út í fyrsta sinn. Ritstjóri þess var Bríet Bjarnhéðinsdóttir og gaf hún blaðið út til 1919. 21. febrúar 1945 Dettifoss sökk norður af Ír- landi. Fimmtán manns fórust en þrjátíu var bjargað. Þýskur kafbátur skaut skipið í kaf en aðeins þremur mánuðum síðar játuðu Þjóðverjar sig sigraða í styrjaldarátökunum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Hjónin Ingibjörg Sigríður Finn- bogadóttir og Ingólfur Kristjánsson klæðskerameistari eiga í dag, 21. febrúar fimmtíu ára brúðkaups- afmæli. Þau halda upp á daginn í faðmi fjölskyldunnar. Gullbrúðkaup „HUGMYNDIN er að hafa bollukaffi á sunnudag- inn fyrir systkini og fjölskyldu,“ segir Thomas Möller, forstjóri Rekstrarvara, aðspurður hvernig hann ætli að fagna 55 ára afmæli sínu. „Það vill svo til að við konan mín erum fædd í sömu vikunni svo við sláum afmælunum bara saman,“ bætir hann við en eiginkonan Bryndís Tómasdóttir á af- mæli næsta föstudag. Spurður um eftirminnilegustu afmælisdagana segir Thomas stóru tölurnar koma upp í hugann; þrítugs-, fertugs- og fimmtugsafmælið, en þó hvert með sínu lagi. Fertugsafmælið standi þó upp úr en þá héldu þau hjónin stóra veislu á heimili sínu til að fagna þess- um áfanga þeirra beggja. „Það var eftirminnilegast, með söng og gleði meðal góðra vina.“ Fimmtugsafmælið var með öðru sniði. „Það var haldið í litlum hópi úti í Þýskalandi. Við vorum að ferðast og hitt- um þar fyrir góða vini frá skólaárunum í Berlín þar sem við bjuggum fyrir 30 árum.“ Spurður um áhugamál stendur ekki á svörum hjá Thomasi. „Lang- stærstu áhugamálin eru barnabörnin tvö sem komu í heiminn í fyrra, tvíburar. Það er ótrúleg upplifun að verða afi.“ Thomas Möller forstjóri 55 ára Hjónin slá saman í fögnuð Nýirborgarar Reykjanesbær Logi Þór fæddist 23. nóvember kl. 12.12. Hann vó 3.715 g og var 53 cm langur. For- eldrar hans eru Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir og Ívar Þór Steinarsson. Reykjavík Rökkvi Freyr fæddist 13. nóvember kl. 12.26. Hann vó 3.740 g og var 53 cm langur. For- eldrar hans eru Sunna Björk Haraldsdóttir og Eiríkur Örn Jónsson. Reykjavík Tumi fæddist 5. desember kl. 14.18. Hann vó 3.630 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Guðrún Elísabet Ómarsdóttir og Jón Að- alsteinn Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.