Morgunblaðið - 21.02.2009, Síða 45

Morgunblaðið - 21.02.2009, Síða 45
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is MIKIÐ hefur verið fjallað um sam- skiptavefinn Facebook, enda gerð- ist það fyrir skemmstu að skil- málum vefsins var breytt á þann hátt að margra mati að verið væri að taka af þeim höfundarréttinn á því sem þeir setja þar inn, þ.e. myndir, texti og annað væri eign aðstandenda Facebook sem mættu svo sýsla með það eins og þeim sýndist. Eftir nokkurt þref dró fyr- irtækið fyrirhugaðar breytingar til baka, í bili að minnsta kosti. Í þessu máli var aðallega deilt um höfundarrétt, en ýmsir hafa bent á að það hangi meira á spýt- unni því skilmálabreytingarnar hefðu líka haft áhrif á það hvað yrði um umrædd gögn sem væru í mörgum tilfellum persónulegar og jafnvel viðkvæmar upplýsingar. Sumir hafa þó bent á að þessi deila sé eiginlega stormur í vatnsglasi því allajafna virðist sem fólki sé al- mennt sama um persónuupplýs- ingar sínar. Facebook er nefnilega ekki bara dauðar vefsíður með upplýsingum heldur hefur skapast í kringum vef- inn fjölskrúðugt umhverfi viðbót- arforrita t.a.m. Visual Bookshelf, Pirates, (Lil) Green Patch og Grow- ing Gifts, svo dæmi séu tekin um vinsælar viðbætur. Alls munu 17.000 viðbætur vera til og fjölgar óðfluga. Enginn les skilmála Í ljósi þess að enginn les skilmála þegar hann setur upp hugbúnað eða skráir sig í netþjónustu þykir mér líklegt að fáir geri sér grein fyrir því að með því að samþykkja viðbót er maður um leið að gefa höfundum viðbótarinnar aðgang að ýmsum persónugreinanlegum upp- lýsingum sem skráðar eru á síðuna. Allajafna fá viðkomandi fyrirtæki, sem fæst eru í eigu aðstandenda Facebook, aðgang að öllum upplýs- ingum sem til eru um viðkomandi hjá Facebook; það eina sem þeir ekki fá er innihald skilaboða og lyk- ilorð. Hvað þeir síðan mega gera með upplýsingarnar er vissulega takmarkað, en enginn fylgist með því. Það er ekkert nýtt að vefir sanki að sér upplýsingum um fólk og ekki heldur að þær upplýsingar séu nýttar í viðskiptalegum tilgangi. Þannig hefur Google til að mynda haldið utan um leitarsögu ein- staklinga og síðan birt auglýsingar eftir áhugamálum viðkomandi – sá sem hefur til að mynda áhuga á hestaíþróttum skoðar gjarna slíkar síður og leitar að þess háttar upp- lýsingum. Það kemur honum vænt- anlega ekki á óvart að fá upp aug- lýsingar varðandi áhugamál sitt um leið og hann fær upp leitarnið- urstöður og líkast til finnst honum það hið besta mál og hefur ekki áhyggjur af því þó upplýsingar um þetta áhugamál sitt fari víðar. Annað gæti verið upp á ten- ingnum ef hann væri áhugamaður um kannabisræktun og sífellt að leita sér upplýsinga um slíkt eða álíka, eða myndi ekki koma sér illa fyrir mann eða konu á framabraut að birtar yrðu gamlar myndir af viðkomandi fáklæddum, ælandi á fylliríi eða að fletta upp um sig á balli? Gömul kynni gleymast ei Facebook nýtur gríðarlegra vin- sælda nú um stundir og ekki er langt síðan vefurinn skákaði MyS- pace sem vinsælasti samfélagsvefur heims. Þeir sem skrá sig þar inn eiga líka auðveldara fyrir vikið með að fylgjast með því sem ættingjar og vinir eru að gera (svo fram- arlega sem þeir eru líka á Facebo- ok), hægt er að rifja upp gömul kynni og eignast nýja vinnu, finna sér maka eða ástmann / -konu. Það er ekkert að því í sjálfu sér að fólk samþykki að upplýsingar um það séu öllum aðgengilegar og þeir sem búa í litlu landi hafa minni áhyggjur af því en tíðkast meðal milljónaþjóða. Hver kynslóð skapar aftur á móti sín viðmið og þótt þeir séu margir sem býsnast yfir því að fólk fari svo glannalega með per- sónuupplýsingar hefur tæknin skapað nýja tíma og gert okkur öll að litla bróður. Litli bróðir tekur völdin Er ástæða til að hræðast skilmála Snjáldurskjóð- unnar? Morgunblaðið/Kristinn Kristján IX „Þið ættuð kannski að lesa skilmálana áður en þið skrifið undir, kæru þegnar.“ Þeir eru margvíslegir skilmálarnir sem við skrifum undir á lífsleiðinni. Sumir þeirra hafa lítið að segja en aðrir geta reynst afdrifaríkir. Hart í bak (Stóra sviðið) Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan) Heiður (Kassinn) Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Fim 26/2 kl. 20:00 Ö Fös 27/2 kl. 20:00 Ö Lau 28/2 kl. 13:00 U Lau 7/3 kl. 13:00 U Lau 28/2 kl. 20:00 Ö Fim 5/3 kl. 20:00 aukasýn. Fös 6/3 kl. 20:00 Ö Lau 14/3 kl. 13:00 Ö Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Ö Mið 18/3 kl. 20:00 aukasýn. Lau 28/3 kl. 13:00 U Sýningum lýkur 18. mars Örfáar aukasýningar með bestu vinkonum barnanna Síðasta sýning Sýningar í maí komnar í sölu, sjá www.leikhusid.is Lau 14/3 kl. 14:00 U Sun 15/3 kl. 14:00 U Sun 15/3 kl. 17:00 U Lau 21/3 kl. 14:00 U Lau 21/3 kl. 17:00 U Sun 22/3 kl. 14:00 U Sun 22/3 kl. 17:00 U Lau 28/3 kl. 14:00 U Lau 28/3 kl. 17:00 U Sun 29/3 kl. 14:00 U Sun 29/3 kl. 17:00 U Lau 4/4 kl. 14:00 U Lau 21/2 kl. 14:00 frums. U Lau 21/2 kl. 17:00 U Sun 22/2 kl. 14:00 U Sun 22/2 kl. 17:00 U Lau 28/2 kl. 14:00 U Lau 28/2 kl. 17:00 U Sun 1/3 kl. 14:00 U Sun 1/3 kl. 17:00 U Lau 7/3 kl. 14:00 U Lau 7/3 kl. 17:00 U Sun 8/3 kl. 14:00 U Sun 8/3 kl. 17:00 U Lau 4/4 kl. 14:00 U Sun 5/4 kl. 17:00 U Sun 5/4 kl. 17:00 U Lau 18/4 kl. 14:00 U Lau 18/4 kl. 17:00 U Sun 19/4 kl. 14:00 U Sun 19/4 kl. 17:00 U Lau 25/4 kl. 14:00 U Lau 25/4 kl. 17:00 U Sun 26/4 kl. 14:00 U Sun 26/4 kl. 17:00 U ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Yfir 130 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008. Fló á skinni (Stóra sviðið) 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Fim 26/2 kl. 20.00 Fös 27/2 kl. 20.00 Lau 28/2 kl. 20.00 Fim 5/3 kl. 20.00 Fös 6/3 kl. 20.00 Lau 7/3 kl. 20.00 Sun 8/3 kl. 20.00 Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Síðasta sýning 15. mars. . Lau 21.2 kl. 19:00 8. kort Lau 21/2 kl. 22:00aukas. Sun 22/2 kl. 20:00 9. kort Mið 25/2 kl. 20:0010. kort Fim 26/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 19:00 Fös 27/2 kl. 19.00 Lau 28/2 kl. 19.00 Lau 28/2 kl. 22.00 Sun 1/3 kl. 20.00 Fös 6/3 kl. 19.00 Fös 6/3 kl. 22.00 Leiklestrar á verkum Söru Kane. Þrá - 24. febrúar. 4:48 geðtruflun - 3. mars – 1.500 kr. Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið) Fim 12/3 kl. 20.00 Fös 13/3 kl. 20.00 Lau 14/3 kl. 20.00 Sun 15/3 kl. 20.00 (síð.sýn.) Fös 13/3 kl. 19.00 Fös 13/3 kl. 22.00 Lau 14/3 kl. 19.00 Lau 14/3 kl. 22.00 Fim 26/2 kl. 20.00 fors Fös 27/2 kl. 20.00 frums Lau 28/2 kl. 20.00 2kort Mið 4/3 kl. 20.00 aukas Fim5/3 kl. 20.00 3kort Fös 6/3 kl. 20.00 4kort Mið 11/3 kl. 20.00 5kort Fim 12/3 kl. 20.00 6kort Sun 15/3 kl. 20.00 7kort Fim 19/3 kl. 20.00 8kort Fös 20/3 kl. 20.00 9kort Fim 26/3 kl. 20.00 10kort Milljarðamærin snýr aftur (Stóra sviðið) Æðisgengið leikrit um græðgi, hatur og ást. Sun 1/3 kl. 20.00 Fló á skinni – „mígandi drepfyndið" GEJ RÚV Síðustu sýningar. Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið) Lau 21/2 kl. 19:00 Lau 21/2 kl. 22:00 síð. sýn. Fös 20/2 kl. 19.00 Lau 7/3 kl. 19:00 Fös 13/3 kl. 19.00 Lau 14/3 kl. 19.00 Sun 22/3 kl. 19.00 Lau 28/3 kl. 19.00 Lau 21/3 kl. 19.00 Fös 20/2 kl. 22.00 aukas MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Velkomin heim - Febrúarsýning2009 (Stóra sviðið) Sun 22/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Sun 8/3 kl. 20:00 Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið - Sala á sýningar í maí hafin) Sun 22/2 aukas. kl. 16:00 U Lau 28/2 kl. 17:00 U síðasta sýn. í vetur - ath sýningatíma Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið - sýningum lýkur í vor) Lau 21/2 kl. 17:00 U Fös 27/2 kl. 20:00 U Lau 7/3 kl. 16:00 U Fös 13/3 kl. 20:00 U Lau 14/3 kl. 16:00 U Fim 19/3 kl. 20:00 U Lau 21/3 kl. 16:00 U Fim 26/3 kl. 20:00 U Lau 28/3 kl. 16:00 U Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið Sturlunga Einars Kárasonar (Söguloftið) Fös 6/3 frums. kl. 20:00 Ö Forsýning Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Óperuperlur - Diddú, Bjarni Thor, Sigríður, Ágúst og Antonía Lau 21/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 U Sun 8/3 aukas. kl. 20:00 Fjórar stjörnur í Morgunblaðinu! Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Dubbeldusch (Hafnarfjarðarleikhúsið) Lau 21/2 kl. 20:00 Ö Fös 27/2 kl. 20:00 Ö Fös 6/3 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Salka Valka (Hafnarfjarðarleikhúsið) Lau 28/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Iðnó 562 9700 | idno@xnet.is Systur Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Dómur Morgunblaðsins ,,Líf í tuskunum ”Snúður og snælda . Leikfélag eldri borgara Sun 22/2 kl. 14:00 Fim 26/2 kl. 14:00 Sun 1/3 kl. 14:00 Samkvæmt skilmálum Facebook fá höfundar forrita sem einstaklingur bætir við á síðu sína: Allar upplýs- ingar sem viðkomandi hefur skráð um sig og sýnilegar eru á síðu hans eða heimilisfang, símanúmer eða netfang. Nafn viðkomandi, höfund- armynd, kyn, afmælisdag, heima- borg (borg, ríki, land), núverandi staðsetningu (borg, ríki, land), stjórnmálaskoðanir, iðju, áhugamál, tónlistarsmekk, sjónvarpsþætti, kvikmyndir og bækur sem viðkom- andi hefur áhuga á, uppáhalds- tilvitnanir, textann í „About Me“, hjúskaparstöðu, áhuga fyrir stefnu- mótum, upplýsingar um hvernig sambandi viðkomandi sækist eftir, fyrirhugað sumarfrí, Facebook- vinalista, menntunarsögu, atvinnu- sögu, afrit af myndum í albúmum og upplýsingar um þær myndir (hvenær settar inn, heiti albúma, myndatextar og athugasemdir ann- arra), fjöldi skilaboða sem maður hefur sent, tekið við, fjöldi ólesinna skilaboða, fjöldi „pota“ / „pokes“ sem maður hefur sent eða fengið, fjöldi Wall-skilaboða, listi yfir not- endur sem tengst hafa þér, hvað þú ert með á döfinni og hvaða atburði þú hefur skráð á síðuna. Semsagt: allt. Höfundar forrita verða síðan að lúta þessum reglum: Þeir mega ekki framselja þessar upplýsingar til þriðja aðila (en Facebook má það reyndar) og ekki birta meira af þeim opinberlega en viðkomandi vill samkvæmt stillingum á síðunni. Facebook tekur þó enga ábyrgð á því hvað menn gera við gögnin og fylgist ekki með því. Þess má geta að fjölmörg dæmi eru um að menn hafi skrifað hugbúnað sem les Fa- cebook-síður og safnar megninu af þessum upplýsingum sjálfkrafa í leyfisleysi. Allt, takk fyrir Hann líka Barack Obama er einn fjölmargra á Facebook.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.