Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær Þorsteinn Kragh, 47
ára athafnamann, í níu ára fangelsi
fyrir innflutning fíkniefna. Sam-
verkamaður hans, hinn 71 árs Hol-
lendingur Jackob van Hinte, hlaut
7½ árs fangelsi. Saman eru þeir
dæmdir til að greiða 1,4 milljónir
króna í sakarkostnað og hver um sig
2,4 milljónir króna í málsvarnarlaun.
Mennirnir voru sakfelldir fyrir
stórfellt fíkniefnalagabrot en þeir
stóðu saman að innflutningi á tæp-
um 192 kílóum af kannabisefnum og
1,3 kg af kókaíni í júní á síðasta ári.
Efnin voru falin í sérútbúnum
geymsluhólfum í húsbifreið sem
Hollendingurinn kom á til landsins
með Norrænu. Ástæða þess að van
Hinte var stöðvaður við komuna til
landsins var fyrst og fremst sú að
hann var eftirlýstur af spænskum
yfirvöldum til fullnustu refsidóms
sem hann hlaut fyrir fíkniefnabrot.
Van Hinte játaði við yfirheyrslur
að hafa tekið að sér flutning 200 kg
af hassi. Hann sagðist ekki hafa vit-
að af kókaíninu og var bálreiður þeg-
ar hann frétti af því. Af þeim sökum
ákvað hann að gera hreint fyrir sín-
um dyrum. Sagði hann Þorstein hafa
skipulagt smyglið og þetta væri önn-
ur ferð hans hingað á vegum Þor-
steins. Eftir að þeir Þorsteinn hitt-
ust á Litla-Hrauni breytti van Hinte
framburði sínum og sagði Þorstein
ekki hafa komið að málinu.
Framburður Þorsteins breyttist
eftir því sem rannsókninni vatt
fram. Framburður hans þótti ótrú-
verðugur í heild sinni og í ósamræmi
við flest annað sem fram kom í mál-
inu. Ekki var byggt á honum á neinn
hátt.
Sitja 9 og 7½ ár í fangelsi
Athafnamaður og Hollendingur dæmdir fyrir að flytja inn
til landsins 192 kíló af kannabisefnum og 1,3 kg af kókaíni
Í HNOTSKURN
»Auk fíkniefnanna voru sexflöskur af léttvíni í
geymsluhólfinu.
»Tvær La Tulipe, ein Bea-monte, Honoré Lavigne
Bourgogne Chardonnay, Pi-
not Blanc Cave de Beblenheim
og Chateau Ventenac Cab-
ardès.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
ÓLGU gætir meðal flugmanna og
tannlækna vegna rannsóknar sér-
staks saksóknara á fjárfestingum líf-
eyrissjóða sem þeir borga í og eigna-
stýring Landsbankans hafði umsjón
með. Flugmenn funduðu í gærkvöldi
á Grand hóteli þar sem farið var yfir
stöðu málsins og ástæður þess að
sérstakur saksóknari er nú með það
til rannsóknar vegna gruns um að
fjárfestingar í einstökum félögum
hafi farið út yfir eðlileg mörk. Var
það gert ekki síst vegna óánægju
flugmanna með að lífeyrir þeirra
kynni að hafa verið notaður með
óábyrgum hætti.
Lífeyrissjóðirnir sem eiga í hlut
eru Íslenski lífeyrissjóðurinn, Líf-
eyrissjóður Eimskipafélagsins, Líf-
eyrissjóður Tannlæknafélagsins,
Eftirlaunasjóður Félags íslenskra
atvinnuflugmanna (FÍA) og Kjölur
lífeyrissjóður. Samtals voru þeir um
52 milljarðar króna, þar af var Ís-
lenski lífeyrissjóðurinn stærstur
með um 25 milljarða.
Erling Ingvason, tannlæknir á
Akureyri, segir nauðsynlegt að
rannsaka allar fjárfestingar sem
Landsbankinn stýrði fyrir hönd
sjóðanna. „Ég hef litið svo á að það
hafi verið fjárfest og farið gáleys-
islega með lífeyrisfé tannlækna og
annarra sem þarna eiga í hlut. Þetta
er grafalvarlegt mál og í sjálfu sér er
það ekki aðalatriðið hvort menn
brutu lög eða ekki. Aðalatriðið er að
því verði svarað af hverju var keypt í
félögum, sérstaklega á fyrri hluta
síðasta árs og fram eftir því, sem
tengd voru Landsbankanum og eig-
endum hans. Þessu þarf að svara
skýrt, allt verður að koma upp á
borðið er þetta varðar. Ég fagna því
að sérstakur saksóknari hafi fengið
málið inn á sitt borð,“ sagði Erling í
samtali við Morgunblaðið.
Í fréttatilkynningu sem stjórn Ís-
lenska lífeyrissjóðsins sendi frá sér
kemur fram að mannleg mistök hafi
orðið til þess að fjárfestingar sjóðs-
ins hafi farið fram yfir heimildir í
mars í fyrra. Átti þetta meðal annars
við um Samson eignarhaldsfélag,
stærsta eiganda Landsbankans, en
aðallega Kaupþing banka að því er
segir í tilkynningu. Stjórn sjóðsins
segir þá ákvörðun Fjármálaeftirlits-
ins að vísa málinu til rannsóknar hjá
sérstökum saksóknara hafa komið á
óvart.
Sjóður FÍA var um 15 milljarðar,
sjóður Lífeyrissjóðs Tannlækna-
félags Íslands um 2,5 milljarðar,
sjóður Kjalars um 10 milljarðar og
sjóður Eimskipafélags Íslands um
150 milljarðar en hann rann að
stærstum hluta inn í Kjöl í nóv-
ember 2007.
Rannsóknin á sjóðunum er stutt á
veg komin hjá sérstökum saksókn-
ara en FME mat það svo að mögu-
lega hefðu lögbrot verið framin fyrst
málin voru send til saksóknara til
frekari rannsóknar.
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbankinn Eignastýring Landsbankans á fimm lífeyrissjóðum er til rannsóknar hjá saksóknara.
Vilja allt á borðið
Ólgu gætir vegna rannsóknar á lífeyrissjóðum
Fagna rannsókn segir Erling Ingvason tannlæknir
Fjárfestingar lífeyrissjóða eins og þeirra sem Landsbankinn hafði um-
sjón með í eignastýringu máttu ekki fara yfir 25 prósent af stærð sjóðs-
ins í einu og sama félaginu. Um 10 prósent hámark er á hlutabréfum og
skuldabréfum í bönkum en að hámarki má fjárfestingin nema um 25
prósentum af stærð sjóðsins, að teknu tilliti til innlána. Eins og greint
hefur verið frá í Morgunblaðinu beinist rannsókn málsins meðal annars
að því að rangar skýrslur yfir fjárfestingar sjóðsins hafi verið sendar til
Fjármálaeftirlitsins. Stjórnum og stjórnendum sjóðanna hefur verið vikið
frá störfum og fulltrúar fjármálaráðuneytisins, Lára V. Júlíusdóttir hrl.
og Viðar Lúðvíksson hrl., stýra nú sjóðunum þangað til rannsókn máls-
ins lýkur.
Má ekki fara yfir 25 prósent
NIÐURSTÖÐUR rannsóknar á 182
þúsundum karla á aldrinum 50 til
70 ára í sjö Evrópulöndum sýna að
skipuleg leit að krabbameini í
blöðruhálskirtli gæti dregið úr dán-
artíðni um 20 prósent. Greint er frá
niðurstöðum rannsóknarinnar í vís-
indaritinu New England Journal of
Medicine.
Þar er jafnframt greint frá nið-
urstöðum bandarískrar rannsóknar
á 76 þúsundum karla sem sýna að
hópleit hafði engin áhrif á dán-
artíðni þegar þátttakendur voru
bornir saman við viðmiðunarhóp.
Samkvæmt fréttavef BBC hyggst
heilbrigðisráðherra Bretlands, Ann
Keen, láta opinbera nefnd um
skipulegar hópleitir taka afstöðu til
hópleitar vegna blöðruháls-
krabbameins í ljósi niðurstaðna
evrópsku rannsóknarinnar.
Skipuleg hópleit að krabbameini
í blöðruhálskirtli hefur verið um-
fjöllunarefni og ágreiningsmál í
langan tíma, að sögn Guðrúnar
Agnarsdóttur, forstjóra Krabba-
meinsfélags Íslands.
„Þótt til sé mæling á sérstöku
efni í blóðinu, PSA, sem myndast í
blöðruhálskirtlinum og getur verið
hækkað í blöðruhálskirtils-
krabbameini getur það einnig verið
hækkað ef um aðra sjúkdóma í
kirtlinum er að ræða. Mæling á því
greinir heldur ekki milli þeirrar
tegundar krabbameins í kirtlinum
sem er skæður sjúkdómur og getur
skert lífsgæði og lífslíkur og þeirr-
ar tegundar sem er mjög hæggeng
og getur búið með mönnum lengi
án þess að gefa einkenni eða skerða
lífslengd. Menn geta náð níræð-
isaldri og verið með blöðruhálskirt-
ilskrabbamein sem þeir hafa aldrei
fundið fyrir,“ bendir Guðrún á. Hún
getur þess jafnframt að stundum
fylgi meðferðarúrræðum auka-
verkanir sem geta skert lífsgæði.
Guðrún bendir á að í forystu-
grein New England Journal of Me-
dicine segi að niðurstöður þessara
umfangsmiklu rannsókna gefi því
miður ekki haldbær leiðarljós um
hvert skuli stefna varðandi for-
varnir gegn blöðruhálskrabba-
meini sem er algengasta krabba-
mein karla.
,,Það sem er brýnast í dag er að
finna aðferð til þess að greina milli
þeirrar tegundar krabbameins sem
er skæður sjúkdómur og þeirrar
tegundar sem er hæggeng. Vís-
indamenn víða um heim vinna að
því, þar á meðal vísindamenn á veg-
um Krabbameinsfélagsins.“
ingibjorg@mbl.is
Endurskoða
eftirlit fyrir karla
Rannsóknir á blöðruhálskirtilskrabba
Morgunblaðið/Golli
Vísindi Guðrún Agnarsdóttir, for-
stjóri Krabbameinsfélagsins.
KATRÍN Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra verður efst á lista Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs í
Reykjavíkurkjördæmi norður og
Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi
efst í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Þær urðu í tveimur efstu sætunum í
prófkjöri flokksins. Einar Már Guð-
mundsson rithöfundur kemur inn í
sjötta sætið í Reykjavík suður en
hann tók ekki þátt í prófkjöri.
Framboðslistar VG voru sam-
þykktir einróma á kjördæmisfundi í
gærkvöldi. Fimm efstu sætin í báðum
kjördæmum eru í samræmi við nið-
urstöður prófkjörsins. Þannig eru
þingmennirnir Árni Þór Sigurðsson í
öðru sæti og Álfheiður Ingadóttir í
þriðja sæti í Reykjavík norður, Auður
Lilja Erlingsdóttir stjórnmálafræð-
ingur í fjórða sæti og Davíð Stefáns-
son í því fimmta.
Á listanum í Reykjavík suður með
Svandísi eru Lilja Mósesdóttir hag-
fræðingur í öðru sæti en hún náði
þriðja sæti í prófkjöri, Kolbrún Hall-
dórsdóttir umhverfisráðherra í
þriðja, Ari Matthíasson leikari í fjórða
sæti og Steinunn Þóra Árnadóttir ör-
yrki í fimmta sæti. helgi@mbl.is
Einar Már í sjötta
sætinu hjá VG
ILVA Korputorgi. s: 522 4500
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19
> ILVA.is
einfaldlega betri kostur
Þegar veislu
skal halda ...
Romana. Matardiskur 27 x 27 cm. 1.290,- NÚ 690,-
Fylgidiskur 21 x 21 cm. 990,- NÚ 590,- Bolli og undirskál. 1.490,- NÚ 890,-
Siena. Hvítvínsglas. 545,- Roma. Hnífur/gaffall/skeið. 785,-/stk. Teskeið. 445,-