Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 UMHVERFISSTOFNUN vill, að verði Hringvegurinn um Mýrdal færður, þá liggi hann utan við það svæði við Dyrhólaós sem er á nátt- úruminjaskrá og forðast verði að raska votlendi. Meirihluti sveit- arstjórnar hefur samþykkt að veg- urinn liggi með Dyrhólaósi og fer veglínan víða inn á verndaða svæðið. Mýrdælingar hafa lengi deilt um færslu vegarins um sveitarfélagið. Nú hefur meirihluti sveitarstjórnar, tveir framsóknarmenn og einn sjálf- stæðismaður, samþykkt færslu hans að Dyrhólaósi, um göng sunnarlega í Reynisfjalli og áfram sunnan við Víkurþorp. Sveinn Pálsson sveit- arstjóri og annar fulltrúi sjálfstæð- ismanna lýstu sig andvíga niðurstöð- unni en sátu hjá við afgreiðslu málsins. Kemur fram í bókun þeirra að ákvörðunin gangi eins langt og hægt er gegn sjónarmiðum nátt- úruverndarsamtaka og landeigenda. Hægt hefði verið að bæta umferð- aröryggi og taka jafnframt tillit til þessara sjónarmiða með öðrum leið- um. Þegar fyrir lá að meirihluti sjálf- stæðismanna hefði klofnað í afstöðu til þessa máls, í annað sinn á kjör- tímabilinu, lýstu fulltrúar framsókn- armanna vantrausti á meirihlutann. Af því tilefni létu allir fulltrúar sjálf- stæðismanna bóka að þeir hygðust halda áfram farsælu samstarfi út kjörtímabilið. Nýtt aðalskipulag verður nú væntanlega lagt fram með þessari veglínu og gefinn kostur á at- hugasemdum. Umhverfisstofnun gaf neikvætt álit við röskun votlendis og náttúruverndarsvæðisins við Dyr- hólaós á fyrri stigum málsins. helgi- @mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Dyrhólaey Fyrirhuguð veglína er töluvert norðan við friðlýsta svæðið. Gegn vegi við ósinn HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað Sig- urjón M. Egilsson og Trausta Haf- steinsson af kröfum Franklíns Kristins Stiners (áður Steiner) vegna ummæla um að hann hefði verið umsvifamikill í fíkniefnasölu, sem birtust í dagblaðinu Blaðinu. Franklín fór fram á að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og hon- um dæmdar skaðabætur. Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að ekki sé hægt að fallast á að ummælin væru hreinn uppspuni og tilhæfulaus þar sem Franklín hefði ítrekað verið dæmdur fyrir brot á fíkniefnalög- gjöfinni. Þá yrðu ummælin ekki tal- in óviðurkvæmileg og til þess fallin að sverta ímynd hans, þegar lægi fyrir hvaða ímynd Franklín hefði sjálfur skapað sér með háttsemi sinni. Sýknaðir af kröfum ÞÆR SKEMMTU sér vel, þessar stúlkur, þar sem þær stungu saman nefjum á barnaþingi í Rima- skóla í gær. Miðgarður þjónustumiðstöð hélt þingið fyrir nemendur 6. bekkjar í grunnskólum Grafarvogs og á Kjalarnesi, en um 200 krakkar frá sex skólum, þar af 70 frá Rimaskóla, sóttu þingið. Að þessu sinni var rætt um samskipti á þinginu og má nefna að Rimaskóli fjallaði í kynn- ingu sinni um nýlega heimsókn á hjúkrunar- heimilið Eir þar sem nemendur kynntu skáldið Davíð Stefánsson fyrir áhugasömum hlust- endum. Sungu börnin hugljúf lög með. Þingkonur framtíðarinnar? Morgunblaðið/Heiddi Þétt setinn bekkur á barnaþingi STJÓRN kjördæmisráðs Samfylk- ingarinnar í Suðvesturkjördæmi mun koma saman til fundar um helgina til að ákveða endanlega röð- un á lista. Að sögn Kristjáns Guð- mundssonar, formanns kjördæmis- ráðs, verður listinn lagður fyrir kjördæmisþing, sem væntanlega fer fram um miðja næstu viku. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur tilkynnt að hann vilji frekar taka 5. sætið á listanum en það þriðja, sem hann endaði í í prófkjöri um síðustu helgi. Hafði Lúðvík stefnt á 1. sætið en fékk 57 atkvæð- um færra í það sæti en Árni Páll Árnason. Eftir prófkjörið kom í ljós að 147 at- kvæði höfðu verið dæmd ógild þar sem viðkomandi fundust ekki á fé- lagaskrám. Lúð- vík sagðist í samtali við mbl.is hafa verið ósáttur við niðurstöðuna. Því hefði hann hugsað sinn gang og rætt við sitt fólk. bjb@mbl.is Lúðvík Geirsson óskar eftir baráttusætinu Raða þarf lista Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi upp á nýtt Í HNOTSKURN »Samfylkingin er nú meðfjóra þingmenn úr Suð- vesturkjördæmi en gerir sér vonir um að ná fimm í vor. » Í fjórða og fimmta sæti íprófkjörinu lentu Þórunn Sveinbjarnardóttir og Magnús Orri Schram. Í sjötta sæti hafnaði Magnús M. Norðdahl. Fimm efstu voru bindandi. Lúðvík Geirsson Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is UM 50-60% veikindafjarvista á evr- ópskum vinnumarkaði má rekja til of mikillar streitu og hafa rannsóknir sýnt að um fjórðungur launþega í Evrópu á við vandamál að etja vegna andlegrar og félagslegrar heilsu. Þetta háa hlutfall skiptir ekki síst máli í ljósi þess að vinnustreita dreg- ur úr þjóðarframleiðslu. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindinu „Kreppan, heilbrigðiskerfið og vinnutengd líðan Jóns og Gunnu“ sem Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði, flutti á morg- unverðarfundi heilbrigðisráðuneytis- ins í gær. Ögmundur Jónasson heil- brigðisráðherra hefur boðað til fundaraða þar sem fjallað verður um þau tímamót sem nú blasa við í heil- brigðisþjónustunni. „Við þurfum að skera niður um tæpa 7 milljarða króna í heilbrigðis- kerfinu á þessu ári og viðfangs- efnið er tröllauk- ið,“ sagði Ög- mundur í ávarpi sínu. „Það er svo- lítið mótsagna- kennt að sitja við ríkisstjórnarborð og skýra frá því að fólk sé að missa vinnuna í heil- brigðisþjónustunni vegna niður- skurðar og samdráttar, á sama tíma og við leitum lausna í atvinnumálum, til atvinnusköpunar.“ Í erindi Guðbjargar kom fram að á liðnum árum hafi orðið breytingar á vinnnumarkaði, fólk glími við aukið andlegt og félagslegt álag í starfi og þar sé heilbrigðisstarfsfólk sérstak- lega áberandi. Samhliða því sem kraf- an um sparnað eykst mæti starfsfólk jafnframt auknum kröfum frá sjúk- lingum. Óhjákvæmilega muni því nið- urskurður í heilbrigðiskerfinu koma niður á starfsfólki þess. Guðbjörg vitnaði m.a. í rannsóknir sem gerðar voru í Finnlandi og Sví- þjóð í kjölfar kreppunnar þar á 10. áratugnum. Þær sýndu að starfs- menn sem héldu áfram störfum þegar öðrum var sagt upp fundu fyrir aukn- um kröfum um afköst. Afleiðingarnar urðu aukin hætta á geðrænni vanlíðan, notkun lyfja og aukin einkenni á hreyfi- og stoðkerfi, enda hafa rannsóknir Sigurðar Thorlacius læknis, sem hann kynnti á fundinum, leitt í ljós að glögg tengsl eru á Íslandi milli atvinnuleysis og ný- gengis örorku. Mikilvægast af öllu sagði Guðbjörg að væri að loka ekki augunum fyrir vandamálunum sem fylgja uppsögn- um og niðurskurði, heldur þurfi að viðurkenna áhættuþættina og vinna með þá. „Slæmt vinnufyrirkomulag hefur slæm áhrif á heilsufar, en verst af öllu er að missa vinnuna.“ Mikilvægt að vera vak- andi fyrir áhættuþáttum Álag og uppsagnir á vinnumarkaði hafa langtímaafleiðingar Ögmundur Jónasson SÉRA Gunnar Björnsson hefur ver- ið sýknaður í Hæstarétti af ákæru um að hafa sýnt tveimur ungum stúlkum kynferðislega áreitni. Í héraðsdómi var talið sannað að Gunnar sem var sóknarprestur á Selfossi hefði á árunum 2007 og 2008 faðmað tvær stúlkur og jafn- framt strokið annarri þeirra á baki, utan klæða, talandi um að honum liði illa en einnig kysst hina á hvora kinn. Stúlkurnar voru þá fimmtán og sextán ára gamlar. Hins vegar var ekki fallist á að háttsemi þessi teldist kynferðisleg áreitni í skiln- ingi almennra hegningarlaga og heldur ekki brot gegn barnavernd- arlögum. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms í gær. Allur málskostn- aður greiðist úr ríkissjóði. Sóknarprestur sýknaður Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 nÚ RÝMUM VIÐ FYRIR NÝJUM VÖRUM 50%afslátturaf völdum vörum Hornsófar, tungusófar sófasett, rúm, borðstofusett ofl. aðeins í eina viku takmarkað magn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.