Morgunblaðið - 20.03.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
FORELDRAVERÐLAUN Heimilis
og skóla – landssamtaka foreldra
verða veitt hinn 4. júní nk. Leitað
er eftir tilnefningum um ein-
staklinga, félög, fyrirtæki eða
stofnanir sem hafa stuðlað að
bættu skólaumhverfi og bættu
samstarfi milli foreldra, nemenda
og kennara.
Tilnefningar skal senda með raf-
rænum hætti með því að fylla út
eyðublað á www.heimiliogskoli.is.
Foreldraverðlaun
OPIÐ hús verður í Háskólanum í
Reykjavík á laugardaginn nk. kl.
12-16. Í aðalbyggingu skólans, Of-
anleiti 2, verður hægt að kynna sér
nám við allar deildir skólans og
verða nemendur og kennarar við
upplýsingar og ráðgjöf.
Nánari upplýsingar á www.hr.is/
hrdagurinn.
Opið hús í háskóla
Á FUNDI stjórnar Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sem haldinn
var nýverið var fjallað um fjár-
vöntun vegna hlutar ríkisins í húsa-
leigubótum, segir í tilkynningu. Á
fundinum var upplýst að fjárvönt-
unin vegna ársins 2008 væri 147
m.kr. og miðað við fjárheimildir í
fjárlögum ársins 2009 mun vanta
229 m.kr. upp á að ríkissjóður
standi við samkomulag við sam-
bandið frá 7. apríl 2008 um
greiðsluhlutfall ríkis og sveitarfé-
laga í húsaleigubótum.
Segir í tilkynningu að sveit-
arfélögin geti ekki reitt fram það
sem upp á vantar í núverandi
ástandi. Stjórnin átelur því að ríkið
hafi brotið samkomulagið, segir í
tilkynningu.
Húsaleigubætur
BORGARSTJÓRN hefur samþykkt
aðgerðaáætlun í málefnum innflytj-
enda fyrir árin 2009-2012. Borg-
arstjóri segir að Reykjavíkurborg
sé fyrsta sveitarfélagið til að hafa
svo viðamikla og heildstæða stefnu
í innflytjendamálum.
Meginmarkmið stefnunnar eru
m.a. að Reykjavíkurborg leggi
metnað sinn í að sinna öllum íbúum
af kostgæfni, fagni komu fólks frá
öðrum löndum, leitist við að auka
miðlun upplýsinga um réttindi og
þjónustu, auki fjölmenningarlega
færni starfsfólks og leiti leiða til að
koma í veg fyrir fordóma.
Morgunblaðið/Sverrir
Ný stefna í mál-
efnum innflytjenda
UPPLÝSINGARVEFUR dóms-
málaráðuneytisins vegna alþing-
iskosninganna 25. apríl næstkom-
andi hefur verið opnaður. Á
vefnum sem hefur slóðina
www.kosning.is er að finna fróð-
leik og hagnýtar upplýsingar sem
lúta að næstu kosningum.
Nýr kosningavefur
Nú eru liðin rúmlega tuttugu ár frá
því að Krabbameinsfélag Íslands
stofnaði Rannsóknarstofu í sam-
einda- og frumulíffræði, heilum ára-
tug áður en erfðarannsóknir og líf-
tækni komust í almenna umræðu á
Íslandi. Þar hefur fjöldi nemenda Há-
skóla Íslands fengið þjálfun í krabba-
meinsrannsóknum. Í árslok 2006
hætti Krabbameinsfélagið rekstri
rannsóknarstofunnar og er starfsemi
hennar nú flutt í Læknagarð og er
hluti af Lífvísindasetri læknadeildar.
Var flutningnum fagnað í gær og
komu velunnarar stofunnar og starfs-
fólk saman.
Frá upphafi hafa Helga M. Ög-
mundsdóttir og Jórunn Erla Eyfjörð
veitt rannsóknarstofunni forstöðu, en
Vigdís Finnbogadóttir er sérstakur
verndari hennar. Rannsóknarstofan
heitir nú Rannsóknarstofa í krabba-
meinsfræðum og er fyrsti áfangi að
fyrirhuguðu sameiginlegu rannsókn-
arsetri Háskóla Íslands og fleiri aðila
í krabbameinsrannsóknum.
Rannsóknir í
Læknagarð
Morgunblaðið/Kristinn
Flutningi fagnað Rannsóknarstofa í sameinda- og frumulíffræði komin í Læknagarð. Vigdís Finnbogadóttir og
Helga Ögmundsdóttir skoða gamlar myndir sem varpað var á tjald.
skattur.is
Skilafrestur
Almennur skilafrestur fyrir
launamenn og einstaklinga
með eigin atvinnurekstur er
til 23. mars.
Hægt er að sækja um
viðbótarfrest á skattur.is,
lengst til 1. apríl.
Símaþjónusta 511-2250
Í mars verður veitt aðstoð frá kl. 9 til 16 alla virka
daga í síma 511-2250.
Dagana 23., 30. og 31. mars og 1. apríl
verður þjónustan í boði til kl. 19.
Ertu nokkuð
að verða
of seinn?
Fljótlegt, öruggt og einfalt
að telja fram