Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„VIÐ erum alveg í skýjunum yfir
þessu, þetta er frábær og kærkomin
búbót fyrir félagið. Við erum af-
skaplega þakklátir öllum sem hafa
lagt hönd á plóg. Þetta er síld sem
hefði bara drepist þarna og ekki
valdið neinu öðru en skaða í um-
hverfinu. Þetta er frábært framtak
og þjóðþrifaverk í leiðinni,“ segir
Friðbjörn Ó. Valtýsson, fram-
kvæmdastjóri ÍBV, en íþróttafélagið
nýtur góðs af þeim síldarafla sem
næst upp úr Vestmannaeyjahöfn
þessa dagana. Vinnslustöðin leggur
til skipið Kap VE ásamt áhöfn og er
öll vinna þeirra og fleiri aðila kring-
um veiðarnar sjálfboðavinna.
Um eiginlega hreinsun er að
ræða, frekar en veiðar, en síld-
artorfa var farin að vera til trafala í
höfninni. Hafði hún fært sig æ innar
í höfnina á síðustu vikum og haldið
þar kyrru fyrir.
Hætta á mikilli mengun
Að sögn Ólafs M. Kristinssonar
hafnarstjóra var ákveðið að ráðast í
þessa aðgerð til að koma í veg fyrir
frekari fitu- og lyktarmengun í
höfninni. Þegar sýni voru tekin af
síldinni á þriðjudag reyndust um
70% hennar vera sýkt. Er sýkingin
talin vera sömu tegundar og hefur
verið að hrjá síldarstofninn við land-
ið.
„Fitumengunin er okkur mjög
erfið, við erum allt árið að berjast
við hana á bryggjuköntunum og
þetta gríðarlega síldarmagn hefði
valdið miklum vandræðum í sumar,“
segir Ólafur hafnarstjóri.
Kap VE, síldveiðiskip Vinnslu-
stöðvarinnar, náði um 550 tonnum
af síld í tveimur köstum á miðviku-
dag og er mun meira eftir í höfninni.
Þar sem síldin er sýkt og óhæf til
manneldis fer hún beint í bræðslu.
Að sögn Friðbjörns eru vonir
bundnar við að ná um þúsund tonn-
um í bræðslu. Miðað við 15 krónur
fyrir kílóið gæti sá fengur skilað
ÍBV um 15 milljónum króna. Verður
þeirri fjárhæð varið í rekstur meist-
araflokks karla í knattspyrnu, sem
vann sér sæti í úrvalsdeild í sumar,
en félagið missti einn sinn helsta
styrktaraðila á dögunum. Til sam-
anburðar má nefna að velta ÍBV á
síðasta ári nam um 250 milljónum
króna. „Þessir peningar koma sér
mjög vel fyrir fótboltann,“ segir
Friðbjörn framkvæmdastjóri.
„Aldrei lent í þessu“
„Þetta eru sannarlega óvenju-
legar veiðar. Maður hefur aldrei
lent í þessu áður,“ segir Gísli Garð-
arsson, skipstjóri á Kap, en að-
allóðið er það innarlega í höfninni að
skipið hefur átt í vandræðum með
að komast í alla síldina.
Reiknar hann með að veiðunum
verði haldið áfram um helgina. Dýp-
ið við höfnina er um átta metrar og
aðeins hafa verið um þrír metrar
niður á torfuna.
„Erum í skýjunum yfir þessu“
Allur ágóði af síldinni sem veiðist í Vestmannaeyjahöfn rennur til meistaraflokks ÍBV í knatt-
spyrnu Vonast til að ná um þúsund tonnum til bræðslu sem gæti skilað félaginu 15 milljónum kr.
Í HNOTSKURN
»Heimild fékkst fyrir veið-unum frá þar til bærum
yfirvöldum; Hafró, sjáv-
arútvegsráðuneytinu og Um-
hverfisstofnun.
»Elstu menn telja að síldhafi síðast veiðst við
bryggjuna í Eyjum fyrir um
50 árum.
»Hugmyndina að þessaritekjuöflun ÍBV áttu
nokkrir öflugir bakhjarlar fé-
lagsins, m.a. skipstjórarnir
Bergvin Oddsson og Guð-
mundur Huginn Guðmunds-
son, með dyggri aðstoð
Vinnslustöðvarinnar í Eyjum.
»Um 70% af síldinni reynd-ust sýkt og óhæf til átu.
»Björgunarbáturinn Þórog lóðsbátarnir hafa að-
stoðað við aðgerðina í höfn-
inni.
»Fjöldi Eyjamanna fylgistspenntur með veiðunum á
bryggjunni.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Síldveiðar Kap VE, fyrir miðju á myndinni, hefur sett síldarnótina út í Vestmannaeyjahöfn. Veiðarnar halda líklega áfram um helgina ef aðstæður leyfa.
Friðbjörn Ó.
Valtýsson
Gísli
Garðarsson
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Í LOK febrúar sl. voru rétt rúmlega
3.500 manns á biðlista eftir aðgerð-
um hjá Landspítalanum og öðrum
helstu sjúkrahúsum landsins. Sam-
bærileg tala í október sl. var ríflega
3.900 manns, eða 10% hærri.
Nýverið birti landlæknisembættið
tölur um biðlista, og greint var frá í
Morgunblaðinu, þar sem sjúklingar
voru töluvert færri, eða um 2.100
manns í lok febrúar. Hafði í þeim
hópi sjúklinga fækkað um 18% síðan
í október.
Skýringin á þessum mun á fjölda
sjúklinga er sú að embættið skil-
greinir ekki sjúklinga á formlegum
biðlista nema þeir hafi beðið á listan-
um lengur en í þrjá mánuði. Heild-
arbiðlistinn er nefndur vinnulisti.
Að beiðni Morgunblaðsins sendi
embætti landlæknis tölur um heild-
arfjölda sjúklinga á biðlistum. Sam-
kvæmt þeim er Landspítalinn með
langstærstu listana, eða 1.743 sjúk-
linga í lok febrúar. Næstur kemur St.
Jósefsspítali í Hafnarfirði með 940
manns en nánari röðun sést á með-
fylgjandi grafi.
Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti landlæknis hefur það á und-
anförnum árum safnað upplýsingum
þrisvar á ári um biðlista fyrir valdar
aðgerðir á sjúkrastofnunum. Þær
upplýsingar eru síðan birtar á heima-
síðu embættisins en auk þess er send
greinargerð um stöðu á biðlistum til
heilbrigðisráðuneytisins eftir hverja
innköllun.
„Við innköllun á biðlistum er óskað
eftir fjölda einstaklinga sem eru
skráðir á bið eftir tilteknum aðgerð-
um og einnig hversu margir sjúkling-
ar hafi beðið lengur en þrjá mánuði
eftir aðgerð frá því að beiðni barst
sjúkrastofnun. Hafi biðtími varað
lengur en þrjá mánuði er talað um
biðlista í þessum skilningi, en talið að
styttri biðtími endurspegli í raun
fremur vinnulista sjúkrastofnana,
þar sem gera verður ráð fyrir því að
bæði sjúklingar og sjúkrastofnanir
þurfi undirbúningstíma vegna að-
gerðar. Fólk er sett á biðlista sam-
kvæmt málvenju þegar aðgerð er
ekki gerð umsvifalaust, en við teljum
að um sé að ræða vinnulista þegar
biðin er styttri en þrír mánuðir,“ seg-
ir Matthías Halldórsson landlæknir.
Biðlistar misjafnlega alvarlegir
Hann segir ennfremur að þetta sé í
samræmi við venjur sem tíðkist í öðr-
um löndum og sé því hægt að nota til
samanburðar við þau til að fylgjast
með þróun yfir tímabil.
Matthías bendir á að biðlistar séu
að sjálfsögðu misjafnlega alvarlegir.
Þannig þoli flestir ágætlega að bíða í
þrjá mánuði eftir hálskirtlatöku eða
að fjarlægja ský á auga. Hins vegar
þoli fólk síður slíka bið eftir hjarta-
þræðingu, svo dæmi sé tekið.
„Hér áður fyrr mældum við ein-
ungis breytingar á fjölda ein-
staklinga sem biðu eftir aðgerð, en
það segir sjúklingi auðvitað meira
hversu lengi viðkomandi þarf að
bíða.“
Um 3.500 bíða eftir aðgerðum
Þar af hafa um 2.100 sjúklingar beðið lengur en í þrjá mánuði Talað um vinnu-
lista sjúkrastofnana ef biðin er styttri en það Í samræmi við hefðir annars staðar
!" #
$ %& !
$'( ) *+,
-#. *
$'&#
- /,' .0
-#. $#1
$'&
$ #
12
.23
. #
+
Í HNOTSKURN
»Landlæknir kallar þrisvará ári eftir upplýsingum um
fjölda sjúklinga á biðlistum
sjúkrastofnana.
»Af um 3.500 manns á bið ílok febrúar voru um 1.800
að bíða eftir aðgerð á auga-
steini. Þar af höfðu um 1.200
beðið lengur en þrjá mánuði.
» Í lok febrúar biðu 150manns eftir hjartaþræð-
ingu, þar af höfðu 43 beðið
lengur en þrjá mánuði.
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ er að
skoða verðlagningu símtala farsíma
innan símkerfis Símans, í sam-
anburði við verðlagningu fyrirtæk-
isins á símtölum við síma í kerfum
annarra símafyrirtækja. Athugunin
er langt komin, samkvæmt upplýs-
ingum Páls Gunnars Pálssonar, for-
stjóra Samkeppniseftirlitsins, en
ekki er hægt að fullyrða hvenær
henni lýkur.
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins
hófst í byrjun síðasta árs eftir að
símafyrirtækið Nova hélt fram að
Síminn reyndi að hindra innkomu
Nova á íslenskan farsímamarkað.
Tilefni kærunnar var hækkun Sím-
ans á verði símtala frá við-
skiptavinum Símans í farsímakerfi
Nova. Tók hækkunin gildi 15. des-
ember 2007.
Fram kom í Morgunblaðinu að
forstjóri Símans hafnaði þessum
ásökunum og sagði að Nova hefði
það algerlega á sínu valdi að láta af
ofurverðlagningu sinni á símtölum
inn í símkerfi sitt.
Við rannsókn Samkeppniseftir-
litsins á málinu var ákveðið að skoða
einnig verðlagningu innankerf-
issímtala hjá Símanum, samanborið
við verðlagningu símtala milli kerfa.
Athugunin er langt komin en ekki
lokið, samkvæmt upplýsingum Sam-
keppniseftirlitsins. helgi@mbl.is
Athuga verð
innan kerfis
Eftir því sem best er vitað veiddist síld síðast við Vestmannaeyjahöfn í nóv-
ember árið 1959 eða fyrir tæpum 50 árum. Þá voru aðstæður allt aðrar en
nú. Síldin sem veiddist var hæf til manneldis, höfnin með öðrum hætti svo
ekki sé minnst á síldveiðiskipin og veiðarfærin. Hér er Guðbjörg VE með
nótina úti en þess má geta að þetta var með fyrstu myndum sem Sigurgeir
Jónasson, ljósmyndari og fréttaritari Morgunblaðsins í Eyjum, sendi
blaðinu. Hann fagnar því 50 ára starfsafmæli fyrir blaðið á þessu ári.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Síðast síld í höfninni 1959