Morgunblaðið - 20.03.2009, Page 17

Morgunblaðið - 20.03.2009, Page 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is CARL Baudenbacher, hinn svissneski forseti EFTA-dómstólsins í Lúxemborg, telur að fleiri málum ætti að vísa til dómstólsins en nú er gert. Á sama tíma og fremur lítið sé að gera hjá dóm- stólnum berist fregnir af dómsmálum í Noregi, Liechtenstein og Íslandi sem ekki voru borin undir dómstólinn þrátt fyrir að ástæða hefði verið til þess. Þetta var meðal þess sem kom fram í hádegisfyr- irlestri Baudenbachers sem hann hélt á vegum lagadeildar Háskóla Íslands á miðvikudag. Baudenbacher varð tíðrætt um að aðgengi ein- staklinga og lögaðila að EFTA-dómstólnum væri mun takmarkaðra en aðgangur einstaklinga og lög- aðila að Evrópudómstólnum, dómstól Evrópusam- bandsins. Raunar hefðu einstaklingar og lögaðilar í EES-ríkjunum þremur betri aðgang að Evr- ópudómstólnum en að EFTA-dómstólnum. Al- mennt séð þá væru EES-ríkin þrjú of upptekin af eigin lagaumhverfi en litu of lítið til þeirra laga sem gilda í ESB og á EES. Geri allt til að markmið samningsins náist Samkvæmt lögum um EFTA-dómstólinn er dómstólum í EES-ríkjunum þremur í sjálfsvald sett hvort þeir beini þangað spurningum um túlkun á EES-löggjöf. Baudenbacher benti á að Skúli Magnússon, ritari EFTA-dómstólsins, hefði fært sannfærandi rök fyrir því að túlka ætti reglur um EFTA-dómstólinn þannig að dómstólum í EFTA ríkjunum gæti borið skylda til að vísa spurningum til EFTA-dómstóls- ins. Í reglunum væri aðeins mælt fyrir um að dóm- stólar mættu vísa málum til EFTA-dómstólsins, en hins vegar væri einnig mælt fyrir um það í EES- samningnum að ríkjunum bæri að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að markmið samningsins næð- ust. Af þessu leiddi skyldur ríkjanna, þ.á m. dóm- stóla þeirra, til að gera mönnum kleift að fá skorið úr um réttindi sín og skyldur í gegnum tilvísun inn- lendra dómstóla til EFTA dómstólsins. Baudenbacher ræddi einnig um ESA, Eftirlits- stofnun EFTA, og benti á að reynslan sýndi að þeg- ar ESA hefði skotið máli til EFTA-dómstólsins og í ljós kæmi að Evrópudómstóllinn væri einnig að fjalla um málið, þá frestaði ESA sínum málarekstri og biði eftir niðurstöðu Evrópudómstólsins. „Döm- ur mínar og herrar. Fullveldi er svo oft rætt í sam- bandi við EES-samninginn að ég hlýt að spyrja hvort það passi við hugmynd ykkar um fullveldi að mál sem varðar Ísland, Noreg eða Liechtenstein sé ákveðið af Evrópudómstólnum þar sem enginn dómari frá þessum löndum situr,“ sagði Carl Bau- denbacher. Fleiri mál til Lúxemborgar Eru dómstólar skuld- bundnir til að vísa spurn- ingum til EFTA-dómsins? Morgunblaðið/Heiddi Upptekin Baudenbacher sagði að almennt væru EES-ríkin þrjú of upptekin af eigin lagaumhverfi. Carl Baudenbacher hefur mikla reynslu af störf- um á sviði Evrópuréttar. Þótt hann sé Svisslend- ingur var hann hæstaréttardómari í Liecht- enstein og ráðgjafi þarlendra stjórnvalda þegar samið var um aðild landsins að EES. Sviss gekk ekki í EES, heldur gerði tvíhliða samning við ESB árið 1999. „Tvíhliða samning- urinn hefur virkað vel en hann er dýr,“ sagði Baudenbacher. Svisslendingar hefðu í upphafi talið að í hvert sinn sem breytingar yrðu hjá ESB, þá gæti Sviss samið um hvernig aðlögun yrði háttað. Þetta væri tímafrekt og ráðherraráð ESB hefði þegar lýst því yfir að tvíhliða samn- ingar yrðu í ríkari mæli að taka breytingum jafn- hliða breytingum á löggjöf ESB. Sviss ætti því á hættu að fá galla EES-samningsins án þess að fá kostina, þá helsta að fá aðgang að sérfræði- nefndum framkvæmdastjórnar ESB. Baudenbacher taldi merki um að stærri aðild- arríki ESB beittu í auknum mæli aflsmunum. Þetta hefði t.a.m. komið í ljós þegar Þýskaland og Frakkland, með stuðningi Breta, hefðu neytt Austurríki, Belgíu, Liechtenstein, Lúxemborg og Sviss til að breyta reglum um bankaleynd með því að hóta að setja þau á svartan lista hjá G20- ríkja hópnum. Þetta væri hörmuleg aðferð til að ná vilja sínum fram, burtséð frá því hvaða til- gangi breytingarnar þjónuðu. Tvíhliða samningur Sviss er dýr og óvissa um framtíð hans DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ er nú með til meðferðar kæru Hafskips- manna vegna þeirrar ákvörðunar ríkissaksóknara að ekki væri þörf á frekari rannsókn á Hafskipsmálinu. Þess er aðallega krafist að dóms- málaráðherra breyti ákvörðun rík- issaksóknara og kveði á um að hin opinbera rannsókn fari fram og jafn- framt setji ráðherra sérstakan sak- sóknara til að fara með rannsóknina. Til vara er þess krafist að ráðherra setji annan mann í stað Valtýs Sig- urðssonar, ríkissaksóknara, í þessu máli og hann taki ákvörðun um og mæli fyrir rannsókn á málinu. Eins og kunnugt er hafa Haf- skipsmenn, þ.e. Björgólfur Guð- mundsson, Páll Bragi Kristjónsson, Helga Thomsen, ekkja Ragnars Kjartanssonar, Þórður H. Hilm- arsson og Helgi Magnússon krafist þess að Hafskipsmálið verði rann- sakað. Lögmenn þeirra hafa bent á að gróflega hafi verið brotið gegn þeim við rannsókn og meðferð máls- ins á sínum tíma og þeir látnir þola rangláta málsmeðferð. Hafa þeir bent á að ýmis ný gögn hafi komið fram í dagsljósið sem styðji málstað þeirra. Síðastliðið haust féllst rík- issaksóknari á að taka málið til rann- sóknar og tók fram að hann myndi fela lögreglustjóra að annast rann- sóknina eftir nánari fyrirmælum. Við nánari könnun og skoðun á rann- sóknarbeiðninni og þeim gögnum sem henni fylgdu var það niðurstaða hans að frekari rannsóknar málsins væri ekki þörf, því ekkert benti til refsiverðrar háttsemi þeirra sem rannsóknin átti að beinast að. Því væri henni lokið. Þessa ákvörðun hafa Hafskipsmenn nú kært til dómsmálaráðherra. runarp@mbl.is Ráðherra breyti ákvörðun Sérstakan saksókn- ara í Hafskipsmálið Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ÁTVR og fjármálaráðuneytið hafa ákveðið breytingar á vöruvalsreglum ÁTVR sem munu hafa í för með sér lægri dreifingarkostnað fyrir bjór- framframleiðendur á landsbyggðinni. Jafnframt mun þessi ráðstöfun hafa þau áhrif að minni mengun verður af flutningabílum sem flytja bjórinn frá framleiðendum. Breytingarnar fela í sér að ÁTVR getur samið beint við birgja um af- hendingu vöru, sem ætluð er til dreif- ingar á nærsvæði framleiðenda, á öðrum dreifingarstað en í vöruhús ÁTVR á Stuðlahálsi í Reykjavík. Með því verður til dæmis kleift að taka við vörum frá Vífilfelli á Akureyri, Ölv- isholt á möguleika á að afhenda vöru á Selfossi, Mjöður getur afhent vöru í Stykkishólmi og Bruggsmiðjan á Ár- skógssandi getur afhent vörur ann- aðhvort á Dalvík eða Akureyri. Óþarfa flutningar Annað slagið hafa birst fréttir af bjórflutningum landshorna á milli sem hafa vakið furðu fólks. Frægt var dæmið um bjórinn Kalda. Hann er framleiddur á Árskógssandi, sem er í innan við 10 kílómetra fjarlægð frá Dalvík. Kaldinn sem þar er seldur hefur hingað til verið sendur til Reykjavíkur og þaðan til baka til Dal- víkur, rúmlega 800 kílómetra leið. Annað dæmi, sem hefur verið í frétt- um, eru flutningar á Viking bjór sem framleiddur er á Akureyri en seldur á Egilsstöðum. Bjórinn hefur til þess verið sendur frá Akureyri til Reykja- víkur og þaðan til Egilsstaða, alls rúmlega 1.020 kílómetra leið. Vega- lengdin milli Akureyrar og Egils- staða er hins vegar 265 kílómetrar. ÁTVR mun á næstunni endur- skoða verklag og fara yfir möguleika miðað við nýjar forsendur. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að þessari vinnu verði hraðað eins og kostur sé. Margt komi til greina, m.a. að semja við dreifing- arfyrirtæki sem fyrir eru á hverju svæði, t.d. flutningafyrirtæki. Fram- leiðendur hafa til þessa ekki keyrt vöruna beint í verslanir ÁTVR og engin breyting verður á því. Sigrún bendir á að eftirlitsþátturinn sé mjög mikilvægur þegar um sé að ræða vöru eins og áfengi og hann verði að tryggja áfram. Bjórframleiðendur hafa greitt flutningskostnað frá verk- smiðju til dreifingarmiðstöðvar ÁTVR og engin breyting verður á því þegar þeim verður fjölgað. Breytingarnar á vöruvalsregl- unum fela í sér að skilgreind verða nærsvæði fyrir hvern aðila. Við skil- greiningu þeirra verður litið til sam- gangna og flutningatíðni ásamt að- stöðu á hverjum stað, segir á vef ÁTVR. Nærsvæði fyrir Vífilfell Ak- ureyri og Bruggsmiðjuna á Ár- skógssandi verður mögulega Blöndu- ós, Siglufjörður, Sauðárkrókur, Dalvík, Húsavík, Egilsstaðir, Vopna- fjörður, Þórshöfn, Seyðisfjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður og Djúpivogur. Nærsvæði fyrir Mjöð verður mögulega, Stykkishólmur, Búðardalur, Grundarfjörður og Ólafsvík. Nærsvæði fyrir Ölvisholt verður mögulega Selfoss, Flúðir, Hella, og Hvolsvöllur. Dregið úr langferðum bjórsins  Nýjar reglur sem ÁTVR hefur sett eiga að koma í veg fyrir óþarfa bjórflutninga landshorna á milli  Dæmi eru um að tegundirnar Viking og Kaldi hafa þurft að taka á sig allt að 800 kílómetra krók Morgunblaðið/Valdís Bjórinn Framvegis þurfa flutningabílarnir að ferðast skemmri leið með þann bjór, sem seldur er í verslunum ÁTVR á landsbyggðinni.      !" #$ " %&'(         4 #   #++ . " 5".( 678/  *+,   !  " 9 # #+:  + 4 #  # 4 #  " 5".( 678/  ; #5"  ,  # /,' 5"+ Sala á bjór var leyfð að nýju hér á landi 1. mars 1989 en almenn sala á bjór hafði ekki verið leyfð síðan 1915. Á þessum tuttugu ár- um sem liðin eru hefur sala á bjór meira tvöfaldast á ári hverju. Á síðasta ári seldi ÁTVR 15,8 milljónir lítra af bjór, af ríf- lega 20 milljóna lítra sölu af áfengi í heild sinni. Á sama tíma hefur sala á léttvíni einnig aukist en sala sterkra drykkja dregist saman. Salan á síðasta ári jafngildir því að hvert mannsbarn eldra en 20 ára hafi neytt 69 bjórlítra á ári, sem gerir meira en lítra á viku. Fyrst þegar bjórinn var leyfður var hlutfall innflutnings hærra en innlendrar framleiðslu. Vöru- tegundum hefur einnig fjölgað verulega. Framleiðsla á bjór hef- ur aukist talsvert hér á landi. Fyrir utan þá stóru; Ölgerðina og Vífilfell, eru starfandi þrjú brugg- hús þar sem m.a. er bruggað úr íslensku byggi. Nú er svo komið að hlutur innlendrar framleiðslu í bjórsölu er hátt í 70% og inn- fluttur bjór því á undanhaldi. Víf- ilfell er stærsti framleiðandi bjórs hér á landi. Hlutur íslenska bjórsins er um 70%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.