Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirVIÐSKIPTI/ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 Í HNOTSKURN »113 starfsmenn unnu í höf-uðstöðvum Straums á Ís- landi og um 600 manns í sam- stæðunni allri undir 5 vörumerkjum. »Dótturfélag Straums íLundúnum, Stamford Partners, er í fullum rekstri. Straumur hefur þegar selt 50% hlut sinn í tékkneska bankanum Wood & Company. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is STRAUMUR mun að öllum líkind- um virða samningsbundnar bónus- greiðslur við starfsmenn, en bank- anum var veitt greiðslustöðvun í gærmorgun til 11. júní. Um er að ræða starfsmenn sem áttu ein- greiðslur upp á milljónir króna sam- kvæmt samningi og starfsmenn sem áttu inni bónusgreiðslur, samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Ekki liggur fyrir um hversu marga starfs- menn er að ræða en verið er að taka saman upplýsingar um fjöldann. Til þess að halda í lykilmenn „Bankinn áleit að það yrði að vera eitthvað til þess að halda í þessa starfsmenn því þeir voru einfaldlega að búa til tekjur. Ef laun þeirra væru ekki í einhverju samræmi við þær tekjur [sem þeir öfluðu bank- anum] þá færu þeir bara,“ segir Georg Andersen, upplýsingafulltrúi Straums. Georg segir að það sé samt fyrst og fremst markmið fram- kvæmdastjórnar bankans í augna- blikinu að tryggja laun almennra starfsmanna. 79 sagt upp í gær Straumur-Burðarás sagði í gær upp 79 starfsmönnum, þar af 38 á Ís- landi og 41 í Bretlandi og í Dan- mörku. Er þeim sagt upp frá og með 31. mars næstkomandi. Skilanefnd Straums leggur ríka áherslu á að ráðningarsamningar við starfsmenn verði efndir og að laun fyrir marsmánuð verði greidd út með hefðbundnum hætti, að því er segir í bréfi sem skilanefndin sendi starfsmönnum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er útibú Straums í Lund- únum, Teathers, í mjög lítilli starf- semi í augnablikinu og er aðeins að sinna lögbundinni ráðgjöf til við- skiptavina. Útibúið og vörumerkið, sem Straumur keypti af Landsbank- anum á síðasta ári, er í söluferli. Í greiðslustöðvun en greiðir bónusa  Hópuppsögn hjá Straumi í gær  79 manns missa vinnuna Morgunblaðið/Kristinn Farnir William Fall sagði starfi sínu lausu sama dag og Straumur var tekinn yfir. Björgólfur Thor Björgólfsson vinnur að því að selja Actavis. <=> ) <=> * <=>  + ?> ;1@ %1 A B $% $&' () (%) C C 97$D ;*> ' $%$' *%)' *) C C <=> , <=> - % * FRAMTÍÐ fast- eigna í eigu Nýsis fasteigna hf., sem tekið var til gjaldþrotaskipta á miðvikudaginn, ræðst mjög mikið af afstöðu þeirra kröfuhafa, sem eru aðallega ís- lenskir bankar, sem eiga veð í fasteignunum. Nýsir fasteignir hf. rak húseignir ýmissa menntastofnana og félaga. Til dæmis íþróttamiðstöð Bjarkar í Hafnarfirði, leikskólann Álfastein og Lækjarskóla í Hafnarfirði. „Þess- ar fasteignir eru allar til staðar og verða að sjálfsögðu nýttar áfram,“ segir Þorsteinn Einarsson hæsta- réttarlögmaður en hann og Ástráð- ur Haraldsson hæstaréttarlögmað- ur eru skiptastjórar þrotabúsins. Hafnarfjarðarbær hefur áður lýst yfir áhuga á að taka yfir fasteignir sem Nýsir hefur rekið í sveitarfé- laginu. Fyrir gjaldþrotið var settur slíkur verðmiði á eignirnar að bæn- um þótti ekki fýsilegt að ganga að slíku. Þorsteinn segist ekki eiga von á því að það verði breytingar á rekstri þeirra fasteigna sem um ræðir en það ráðist að nokkru af af- stöðu veðhafanna. Þrotabúið hefur tekið við öllum réttindum og skyld- um Nýsis fasteigna. Þorsteinn segir að þrotabúið muni eiga viðræður á næstunni við sveitarfélög og veð- hafa til þess að finn lausn á málinu. thorbjorn@mbl.is Þorsteinn Einarsson Framtíð eigna hjá veðhöfum Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is EYRIR Invest hefur hafnað tilboðum í hlutafjáreign sína í Össuri eftir við- ræður við erlenda einkaframtaks- sjóði. Viðræður þessar voru ekki að frumkvæði Eyris Invest. Um er að ræða fjárfestingarsjóði frá Bretlandi og Norðurlöndum. Breski einkaframtakssjóðurinn Mon- tagu LLP er þeirra á meðal en sjóð- urinn hefur að undanförnu unnið að því að gera formlegt tilboð í 36% hlutafjár í Össuri. Í tilkynningu frá Eyri Invest eru fjárhæðir tilboðanna ekki tilgreindar en þar segir að tilboðin hafi ekki end- urspeglað þá virðisaukningu sem framundan sé í rekstri Össurar. Eyrir mun ekki eiga frumkvæði að frekari viðræðum, að því er segir í til- kynningu frá félaginu. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa eigendur Eyris ekki áhuga á frek- ari viðræðum og er hluturinn í Öss- uri ekki til sölu, en Eyrir er annar stærsti hluthafinn í Össuri með 20% hlut. Það lögmál gildi samt sem áð- ur að allt sé falt fyrir rétt verð. Eigendur félagsins hafa þó ekki fengið vísbendingar um frekari tilboð frá sjóðunum eftir að tilboðum var hafnað í gær. Í tilkynn- ingu frá Össuri segir að stærstu hlut- hafar félagins hafi átt viðræður við mögulega kaupendur að undanförnu en að engar ásættanlegar tillögur hafi borist. Kauphöllin stöðvaði í gær við- skipti með hlutabréf Össurar í kjölfar frétta um væntanlegt yfirtökutilboð. Áður en viðskiptin voru stöðvuð höfðu bréf Össurar hækkað um rúm 8%. Erlendir sjóðir vilja Össur  Eyrir Invest hafnaði tilboðum í 20% hlut í Össur í gær  Tilboðin endurspegluðu ekki þá virðisaukningu sem er framundan, að mati Eyris  Allt falt fyrir rétt verð Jón Sigurðsson Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is „RÍKISSTJÓRNIN er með þetta til skoðunar. Við höfum upplýst hana um þetta,“ segir Aðalsteinn Þor- steinsson, forstjóri Byggðastofnun- ar. Eiginfjárhlutfall Byggðastofnun- ar er undir því lágmarki sem lög um fjármálafyrirtæki kveða á um. Í árs- reikningi stofnunarinnar fyrir árið 2008 kemur fram að eiginfjárhlut- fallið sé 2,8%. Samkvæmt lögum má það ekki fara niður fyrir 8%. Aðalsteinn segir búið að tilkynna þetta til Fjármálaeftirlitsins. Þar fari í gang ferli sem gefur mönnum einhvern frest til að vinna úr þessu. Borðleggjandi sé að ríkið þurfi að leggja stofnuninni til fé eigi hún að starfa áfram á svipuðum forsendum. Samkvæmt ársreikningi skýrist lækkun eiginfjárhlutfallsins af tvö- földun efnahagsreiknings Byggða- stofnunar. Meginástæðan er fall ís- lensku krónunnar því 75% af útlánasafni stofnunarinnar er í er- lendri mynt. Vegna falls íslensku krónunnar var framlag í varasjóð vegna útlána 1,2 milljarðar króna og endurmat á hlutafjáreign 422 millj- ónir króna. „Við erum eina fjármálastofnunin sem leggur í afskriftasjóð þegar lán eru veitt,“ útskýrir Aðalsteinn. Vegna falls krónunnar hækka er- lendu lánin í krónum. Þá þarf að leggja hærri upphæð í varasjóð, sem nú stendur í 1,7 milljörðum króna. Hann segir stofnunina hafa hætt að lána í erlendri mynt um mitt síð- asta ár. Það hafi verið mikil ásókn í erlend lán. Vextir af erlendum lánum hafi verið lægri. „Ég reikna ekki með að við veitum erlend lán á þessu ári enda getum við ekki fjármagnað það hvort eð er,“ segir Aðalsteinn. „Við búumst við erfiðu ári 2009. það verður örugglega erfiðara en 2008.“ Tap Byggðastofnunar í fyrra nam 528 milljónum króna en hafði verið 179 milljónir króna árið 2007. Ríkisstjórnin er að skoða björgun Byggðastofnunar Byggðastofnun er komin undir lögbundnar kröfur um eigið fé ● GENGI krónunnar veiktist í við- skiptum gærdagsins um 0,5% og var lokagildi gengisvísitölunnar 199,40 stig en var 198,40 stig við lokun markaða í fyrradag. Þrátt fyrir veikingu þá veiktist Bandaríkjadalur gagnvart krónu og endaði í 112,40 krónum en var 115,90 krónur í lok dags í fyrradag. Hins vegar er þessu öfugt farið með evruna sem endaði í 154,19 krónum í gær en var 151,95 krónur daginn áður. Skýrast þessar breytingar af þeirri ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna að hann muni verja allt að 300 milljörðum dala til að kaupa skuldir. Pundið er 163,90 krónur og danska krónan 20,692 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Ís- landsbanka. guna@mbl.is Krónan veiktist og doll- arinn sömuleiðis ● EKKI kemur almennt til álita, að mati ríkisskattstjóra, að ívilna neytendum vegna taps í peningamarkaðssjóðum við slit þeirra sl. haust. Talsmaður neyt- enda, Gísli Tryggvason, telur þó ekki útilokað að einstaka neytendur eigi rétt á lækkun tekjuskattsstofns ef út- greiðsla er lægri en upphafleg fjárfest- ing í sjóði. Á vefsíðu Talsmanns neytenda segir að rétt sé að neytendur, sem svo er statt um, láti á það reyna hvort hægt sé að fá tekjuskattstofn lækkaðan. bjarni@mbl.is Almennt engin ívilnun vegna taps í sjóðum ● ÖLLU meiri velta var á hlutabréfa- markaði í gær en daginn áður. Nam veltan um 200 milljónum króna, en velta á skuldabréfamarkaði nam hins vegar 12,1 milljarði króna. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar, OMXI6, hækkaði um 5,12% í gær og er 605,49 stig. Alfesca hækkaði mest eða um 17,86%, Atlantic Petroleum um 12,77% og Össur um 9,55%. Viðskipti voru stöðvuð með Össur fyrr um daginn vegna fregna um að til stæði að selja stóran hlut í fyrirtækinu. Engin slík viðskipti áttu sér stað sam- kvæmt upplýsingum frá Össuri. guna@mbl.is Töluverð hækkun ÞETTA HELST… KORPUTORGI Laugardaginn kl 10:00 ALLIR FÁ Fullt af fjöri, ekki láta þig vanta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.