Morgunblaðið - 20.03.2009, Side 22

Morgunblaðið - 20.03.2009, Side 22
22 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is É g er komin í endurhæf- ingu,“ segir Valentína Björnsdóttir og hlær. „Þetta er alveg ofboðs- lega skemmtilegt og ég er mjög heppin að fá að leysa hér af í smátíma.“ Pókemon-linsubauna- súpan sem hún bauð börnunum upp á á sínum tíma lifir enn góðu lífi á leikskólanum þó að hún taki vissu- lega breytingum með matráðinum hverju sinni. Krakkarnir á Laufás- borg eru líka dugleg að borða græn- meti, enda mikil hefð fyrir grænmeti og grænmetisfæði á leikskólanum. Líkt og aðrir landsmenn hefur Valentína fundið fyrir því að mat- arreikningurinn hefur hækkað und- anfarna mánuði. „Ég er orðin ívið hagsýnni en áður, fylgist betur með verðlagi og hugsa mig stundum tvisvar um áður en ég set eitthvað í körfuna,“ segir hún. „Þá fer ég líka betur með þann mat sem ég kaupi og nýti hann betur.“ Valentína segir grænmetisrétti þó ekki endilega þurfa að vera dýra og deilir hér með lesendum upp- skriftum að ódýrum hversdagsmat. „Þetta eru annars vegar buff sem gott er að bera fram í pítubrauði með grænmeti og hins vegar mexí- kósk súpa sem er algjör sælkera- réttur og má vel bæta út í kjúklingi, fiski eða lambakjöti eftir smekk.“ Mexikósk grænmetissúpa með maísflögum og sýrð- um rjóma ½ dl olía 2 meðalstórir laukar, fínt skornir 3 msk. tómatpúré 1 tsk. malað kummín 2 tsk. óreganó 1 tsk. paprika kanel á hnífsoddi chilipipar á hnífsoddi, má sleppa 2 hvítlauksrif, fínt söxuð 1 dós tómatar maukaðir 900 ml vatn 2 msk. grænmetiskraftur 1 bolli soð af nýrnabaunum (dós) 2 bollar gulrætur, skornar í litla bita 1 bolli sætar kartöflur, skornar í litla bita 1 bolli nýrnabaunir úr dós svartur pipar sítrónusafi Hitið olíu í potti, steikið laukinn í ca. 5 mínútur en passið að hann brenni ekki. Bætið út í tómatpúré, öllu kryddinu og hvítlauk, hrærið í pottinum í ca. 1 mínútu þannig að blandan steikist aðeins. Bætið tóm- ötum, vatni, grænmetiskrafti og soði af nýrnabaunum út í (ef notaðar eru frosnar nýrnabaunir borgar sig að bæta meira vatni í súpuna og e.t.v. örlitlu hunangi). Látið súpuna sjóða í 30 mín., setjið síðan grænmetið út í og sjóðið í ca. 10 mín. Smakkið til með sítrónusafa og svörtum pipar. Berið fram með maísflögum, t.d. frá Urtekram, og sýrðum rjóma. Einnig er mjög gott að strá fersk- um kóríander yfir. Baunabuff 400 g soðið íslenskt bankabygg 200 g soðnar kjúklingabaunir 100 g soðnar kartöflur (kældar) ½ rauð paprika fínt skorin 3 msk. blaðlaukur fínt skorinn 1 msk. salt 2 msk. Mexíkókryddblanda frá Pottagöldrum haframjöl Allt hnoðað saman í mat- vinnsluvél. Mótið buff í höndunum og veltið þeim upp úr haframjöli. Passið að deigið sé þétt og gott. Steikið upp úr olíu á vel heitri pönnu þar til buffin fá á sig gullinn lit. Hægt er að gera stóran skammt af buffunum, frysta og taka út eftir hentugleika. Pítusósa Látið leka af ½ l AB-mjólk í 1 klst. 3 msk. ólífuolía ½ msk. majoram lagt í bleyti í 2 msk. af sjóðandi vatni í ca. 5 mínútur Allt hrært saman og saltað eftir smekk. Góðir grænmetisréttir fyrir hversdaginn Hún er komin aftur til starfa á Laufásborg eftir u.þ.b. fimm ára hlé. Og börnin og starfsfólkið kunna vel að meta rétt- ina sem Valentína Björnsdóttir, sem rekur fyrirtækið Móður náttúru ásamt manni sínum, Karli Eiríkssyni, býður þeim upp á. Einfalt og hollt Krakkar kunna vel að meta pítur. Valentína ásamt dóttur sinni Kristínu Shurui Karlsdóttur. Morgunblaðið/Heiddi Litrík Mexíkóska súpan er einkar bragðgóð. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Sauðárkrókshrossin hafa haft gríðarlegamikil áhrif á íslenska hrossastofninnog blóð þeirra rennur víða í íslenskumhestum. Það má segja að hryssan Ragnars-Brúnka standi á bak við þorra ís- lenskra hrossa í dag, en hún er máttarstólpinn í ræktun Sveins Guðmundssonar og sonar hans Guðmundar. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1954,“ segir Arna Björg Bjarnadóttir, for- stöðumaður Söguseturs íslenska hestsins á Hól- um í Hjaltadal, en á morgun, laugardag, verður haldin ráðstefna á Sauðárkróki um fyrrnefnd Sauðárkrókshross. Hún segir ráðstefnuna haldna til að fólk geti fræðst betur um þessi hross og áhrif þeirra á íslenska hrossastofninn. „Til dæmis ætlar Guðlaugur Antonsson að rekja sögu Sauðárkrókshrossanna í sjötíu ár, Bjarni Þorkelsson ætlar að tala um kosti og galla Sauð- árkrókshrossanna sem og átök ræktanda og ráðunautar, og Ingimar Ingimarsson ætlar að tala um Svein sjálfan, þessa stórbrotnu per- sónu, ræktanda og hestamann. Guðmundur sonur Sveins ætlar líka að ræða um umsvif þeirra feðga nú á dögum og Ágúst Sigurðsson rektor verður með tölfræðilega greiningu á áhrifum Sauðárkrókshrossanna á íslenska hrossastofninn.“ Arna segir Svein hafa látið mikið til sín taka við uppbyggingu mótahalds og hafi ævinlega verið ósérhlífinn. „Aftur á móti hefur hann aldr- ei haft tilhneigingu til að láta ljós sitt skína, en hann hefur ekki komist hjá sviðsljósinu, vegna þess mikla starfs sem hann hefur unnið.“ Hefur stuggað við mönnum Feðgarnir Sveinn og Guðmundur eru enn að í hrossarækt og þótt Sveinn sé kominn hátt á ní- ræðisaldur þá er hugurinn sterkur og hann hef- ur enn skoðanir á bæði eigin hrossarækt og annarra, að sögn Örnu, sem er norðankona og segir Skagfirðinga stolta af þessum aldna höfð- ingja sínum. „Þótt hann hafi stundum stuggað við mönnum, þá eru Skagfirðingar að sjálfsögðu stoltir af ræktun þeirra feðga og hafa notið góðs af henni.“ Á Sögusetri íslenska hestsins er m.a. rann- sakað upphaf og þróun hrossaræktar á Íslandi. „Efniviðurinn sem verður til á ráðstefnunni gef- ur okkur tilefni til frekara fræðslustarfs, út- gáfustarfs og sýningahalds. Við erum að vinna að viðamikilli sýningu um íslenska hestinn, hestaleikhúsi og fleiru, sem verður opnað árið 2010. Það er gaman að segja frá því að við- skiptahugmynd Sögusetursins að hestaleikhús- inu er komin í úrslit í frumkvöðlakeppni Innovit og verða endanleg úrslit kunngerð á morgun.“ Ljósmynd/Friðþjófur Þorkelsson Tveir ættliðir Sveinn heldur í gæðingamóðurina Síðu frá Sauðárkróki, sem var undan Ragnars- Brúnku, og Guðmundur, sonur hans, heldur í dóttur Síðu, Hervöru frá Sauðárkróki. Sauðárkrókshrossin og rækt- andi þeirra, Sveinn Guðmunds- son, eru viðfangsefni ráðstefnu sem haldin verður á Sauðár- króki á morgun á vegum Söguseturs íslenska hestsins. Víða gætir áhrifa Sauðárkrókshrossanna Skráning á ráðstefnuna fer fram á netfanginu: sogusetur@sogusetur.is eða í s: 455-6345/896-2339

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.