Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 23
Daglegt líf 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur,
meistaranema í blaða- og fréttamennsku
STÓR hluti tóms verslunarrýmis
við Laugaveg lifnar við á næstu
dögum og verður fyllt af íslenskri
hönnun og lífi. Líflegur Laugaveg-
ur er liður í verkefninu Hönn-
unarMars sem Hönnunarmiðstöð
Íslands stendur fyrir dagana 26.-
29. mars. Viðburðir eru yfir 150 og
haldnir víðsvegar um borgina.
Hönnunin nær út yfir gröf og
dauða. Gestir og gangandi geta val-
ið sér umbúnað undir líkamsleif-
arnar því m.a. verða íslensk duft-
ker til sýnis. Meðan við lifum og
leikum skipta skipulag og lýðheilsa
máli en það er yfirskrift málþings á
vegum Arkitektafélagsins. Á völd-
um kaffishúsum er kaffi og bakk-
elsi á borð borið í íslenskum sér-
hönnuðum borðbúnaði. Greipur
Gíslason, verkefnastjóri hátíð-
arinnar, leggur áherslu á að ís-
lenskri hönnun sé hægt að koma
alls staðar fyrir. „Íslensk hönnun er
frumleg, einstök, ódýr og sjaldgæf.
Af hverju að kaupa frekar erlenda
hönnun?“ spyr Greipur.
Hesthúsin eru þar engin und-
antekning og hestafólk ætti að
kynna sér ryðfríar innréttingar í
hesthúsin.
Framlag Listasafns Íslands er
ferð til nútímalegrar fortíðar en
þar verður húsgagna- og listmuna-
verslunin Kúlan endursköpuð. Kúl-
an var stofnuð að undirlagi Dieter
Roth ásamt þekktum íslenskum
listamönnum. Að sögn Þóreyjar
Vilhjálmsdóttur, framkvæmda-
stjóra Hönnunarmiðstöðvar, verður
hátíðin árlegur viðburður. Mars er
alveg tilvalin tímasetning. Fólk er
að skríða út úr skammdeginu, vor í
nánd og tilvalið að fylla líf og limi
með fallegri hönnun.
Hönnun fyrir lifendur og dauða
Hönnun Dalvíkursleðinn verður sýndur á hönnunardögum í mars.
Sigrún Haraldsdóttir ortigullfallega vísu á leiðinni í
vinnuna:
Geisla yfir byggðir ber,
bárur glitra lætur,
morgunsól er mjakar sér
milli dags og nætur.
Hjálmar Freysteinsson fann upp
á nýjum hætti í yrkingum,
nefnilega sakamálalimrunni:
Hjarta sitt Gunnfríði gaf’ann
en Gunnfríður vildi ekki haf’ann
uppí hjá sér
eins og siðurinn er.
Svo fékk hún menn til að graf’ann.
Hallmundur Kristinsson var
fljótur til:
Hún Gróa kom til þess að taka mál
af Tryggva og það varð nú svaka mál;
hún óttaðist hann,
sem ódæðið vann;
það endaði að lokum sem sakamál.
Loks mannlýsing
limrubloggarans Jónu
Guðmundsdóttur:
Að eigin sögn er hann iðinn
og elskar trúi ég friðinn.
Kjarkmikill berst
gegn vonsku, en verst
hve víða hann illa er liðinn.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Limrur
og sakamál
ÍSLANDSMÓT skákfélaga verður
haldið í Brekkuskóla á Akureyri í
dag og á morgun. Mótið er haldið
nyrðra í tilefni 90 ára afmælis
Skákfélags Akureyrar.
Um er að ræða sveitakeppni og
er teflt í fjórum deildum. Í fyrstu
deild tefla 8 sveitir og fer hver við-
ureign fram á 8 borðum.
Keppendur á mótinu eru tæplega
400 og er það hið fjölmennasta sem
háð hefur verið á Akureyri. Meðal
keppenda verða allir sterkustu
skákmenn landsins, s.s. Jóhann
Hjartarson, núverandi Íslands-
meistari, Hannes Hlífar Stefánsson
og Héðinn Steingrímsson. Sigrún
Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á
Akureyri, setur mótið með því að
leika fyrsta leiknum í viðureign
heimamanna og Taflfélags Bolung-
arvíkur kl. 20.00.
400 á Ís-
landsmóti
Morgunblaðið/Ómar
Skák Jóhann Hjartarson verður í
eldlínunni á mótinu á Akureyri.
ALLAR VÖRUR Í BÚÐINNI
TAKTU3
BORGAÐU 2
TILBOÐ
ÓDÝRASTA VARAN Í KAUPBÆTI.
BESTA VERÐIÐ Í 40 ÁR
Laugavegi 5629730 - Kringlunni 5680800 - Smáralind 5659730 - Akureyri 4627800