Morgunblaðið - 20.03.2009, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.03.2009, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 Norðurlöndin eru virk á al- þjóðavettvangi. Árið 2008 sam- þykktu jafnréttisráðherrar Norður- landanna að gera gangskör að því að koma jafnrétti á dagskrá alþjóð- legrar loftslagsumræðu. Þessi sam- þykkt var byggð á grunni hnatt- væðingarstarfs Norðurlandanna og pallborðsumræðum í kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna. Í febrúar á þessu ári funduðu sérfræðingar frá norrænum sam- tökum og fyrirtækjum um þessi málefni í Kaupmannahöfn. Nið- urstaðan er yfirlýsing með 15 til- lögum um hvernig bæta má lofts- lagsaðgerðir með því að taka tillit til jafnréttismálefna í loftslagsstarf- inu. Tillögurnar fjalla um ólík málefni eins og loftslagsaðlögun, nýsköpun, fjármögnun og takmörkun á losun koltvísýrings. Fjallað var um þær á norrænum viðburði í tengslum við fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna nú í mars. Við sama tæki- færi var þátttakendum einnig kynnt ný skýrsla og stuttmynd um konur, karla og loftslagsbreytingar. Loftslagsbreytingar hafa mismunandi áhrif á konur og karla En af hverju eiga jafnrétti og loftslag saman? Loftslagsbreyt- ingar hafa mismunandi áhrif á kon- ur og karla. Ofsaveður og flóð vegna loftslagsbreytinga koma verst við fátæk lönd og konur. Dán- artíðni kvenna vegna nátt- úruhamfara er mun hærri en karla, meðal annars vegna þess að þær kunna oft ekki að synda. Þar að auki eru það oftast kvennagreinar í fátækum ríkjum, eins og til dæmis landbúnaður, sem verða fyrir mest- um áhrifum ef loftslagið breytist. Þetta hefur í för með sér að konur í fátækum löndum tapa mestu. Karlar verða einnig fyrir áhrifum loftslagsbreytinga og geta til dæm- is misst störf sín ef þau verða fyrir áhrifum loftslagstengdra nátt- úruhamfara. Konur og karlar hafa mismunandi áhrif á loftslagið Konur og karlar verða ekki ein- göngu fyrir mismunandi áhrifum heldur hafa þau einnig mismunandi áhrif á umhverfið. Ólík neyslu- og hegðunarmynstur hafa í för með sér að konur og karlar skilja eftir sig ólík kolefnisspor (það er að segja heildarlosun hvers ein- staklings á gróðurhúsaloftteg- undum). Sem dæmi má nefna samgöngu- málin, sem valda stórum hluta koltvísýringslosunar. Karlar nota til dæmis meira bíla en konur, og konur nota oftar almennings- samgöngur en karlar. Til dæmis er talið að karlar beri ábyrgð á 75 prósentum allrar bílnotkunar í Sví- þjóð. Annað dæmi er mismunur á kjötneyslu. Í Danmörku neyta karl- ar að meðaltali 139 gramma af kjöti á dag, en konur aðeins 81 gramms. Að auki er kynjaskiptingin í sam- göngumálunum afar ójöfn. Til dæmis er hlutfall kvenna í sam- göngunefndum innan aðildarlanda ESB frá 0-30 prósent. Til að hegð- unarmynstur karla og kvenna geti breyst verða bæði kynin að taka þátt í breytingunum. Ójöfn kynjaskipting í ákvarðanaferlinu Þrátt fyrir að mismunur sé á kynjunum eiga konur fáa fulltrúa bæði staðbundið og á heimsvísu þegar kemur að því að taka ákvarð- anir um loftslagsaðgerðir. Til dæm- is er hlutfall þeirra kvenna sem eru formenn sendinefnda og taka þátt í alþjóðlegum loftslagsumræðum hjá Sameinuðu þjóðunum milli 15 og 20 prósent. Konur og karlar bera jafna ábyrgð á framtíð jarðar. Það er jafn mikilvægt að ákvarðanir taki mið af reynslu og þekkingu kvenna líkt og karla. Þess vegna verða bæði kyn að eiga fulltrúa þegar mikilvægar ákvarðanir eru teknar. Við, jafnréttisráðherrar Norður- landanna, teljum að tekið skuli tillit til jafnréttissjónarmiða við ákvarð- anatöku sem tengist loftslags- aðlögun. Gera verður kröfu til rík- isstjórna, samtaka og fyrirtækja að bæði konur og karlar taki virkan þátt í þróun stefnu til að leysa loftslagsvandann. Þegar bæði karlar og konur taka ákvarðanir sem byggðar eru á eigin veruleika, þörfum og reynslu, eru meiri líkur á að lausnirnar taki tillit til hagsmuna breiðari hóps íbúanna. Ekki síst þýðir það umhverfisvænni hegðun og hún kemur okkur öllum til góða, þar á meðal heilsu jarðar. Jafnrétti er mikilvægur hluti loftslagslausna Norrænu jafnréttis- ráðherrarnir » Til þess að heim- urinn geti orðið sjálfbær er þörf á áhuga og þátttöku kvenna og karla á jafnréttisgrund- velli. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Ís- landi, Karen Jespersen Danmörku, Stefan Wallin Finnlandi, Anniken Huitfeldt Noregi, Nyamko Sabuni Svíþjóð. Karen Jespersen Anniken Huitfeld Stefan Wallin Nyamko Sabuni ÞAÐ ER gríðarlega gaman að renna sér á snjóbretti en það getur samt valdið töluverð- um sársauka að detta. Undirrituð hefur reynslu af hvoru tveggja. Eftir að hafa á fertugs aldri ákveðið að nú væri lag að yngja sig upp og gerast brettagella, fjárfest í bretti og smellt sér í fjöllin, þá endaði sú langþráða ferð í norðlensku Alpana á Sjúkra- húsinu á Akureyri. Sjúkdómsgrein- ingin hljóðaði upp á tognað bak og marin nýru. Eftir þessar hrakfarir og tölu- verða rúmlegu þá fór ég á stúfana til að spyrja mann og annan hvað gott væri að gera til að koma í veg fyrir meiðsl af þessu tagi, því erfiðara er að koma í veg fyrir bylturnar. Þær eru víst oft fylgifiskur sportsins. Það sem kom út úr þessum könnunum mínum var að það er náttúrulega lífsnauðsynlegt að vera með hjálm, það er töluverður hraði sem hægt er að ná á snjóbretti og því er höggið sem getur orðið við byltu töluvert. Bretta- hjálmur var því settur á innkaupalistann því hann verndar eitt mik- ilvægasta líffærið, heil- ann. Fleira var setta á listann því hálsmeiðsli, bakmeiðsli, handarbrot og fótbrot eru einnig algeng skíðaslys sem hjálmurinn getur ekki komið í veg fyrir. Þannig að útivist- arverslanirnar voru kortlagðar og heim- sóttar og fjárfest í einu bakbretti. Það sem bakbrettið gerir fyrir mig er að það ver á mér hrygginn. Eftir að hafa lesið mér til komst ég að því að það eru fleiri sem að lamast en deyja í skíða- og brettas- lysum. Eins og stendur á vef Mænu- skaðastofnunar Íslands þá eru hryggáverkar alvarlegir og geta breytt lífi einstaklingsins það sem eftir er. Að hljóta hryggbrot og skaða á mænu í kjölfarið snýst ekki einvörðungu um að bindast hjóla- stól. Sá hluti líkamans sem er fyrir neðan skaðann lamast eða starfsemi hans skerðist verulega, s.s. útlimir, innyfli, þvagblaðra, innri og ytri kynfæri. Lungnastarfsemi minnkar eða hverfur hjá hátt lömuðu fólki auk þess sem skynið, sem er viðvör- unarkerfi líkamans, hverfur. Þess vegna er mænuskaði einn alvarleg- asti skaði sem einstaklingur geta hlotið og hann skilur eftir sig mikla ólæknanlega eyðileggingu. Það eina sem vantar í brettapakk- ann minn núna eru úlnliðshlífar og hnjáhlífar. Það eru víst ósjálfráð við- brögð líkamans að bera fyrir sig hendurnar þegar maður dettur og það er ekki gott að setja hendurnar fyrir sig þegar maður er á einhverri ferð nema að hafa eitthvað sem að styður við úlnliðinn. Hnjáhlífarnar eru til í mörgum úrfærslum en þær styðja vel við hnéð og verja þau þeg- ar maður dettur. Reynsla mín hefur kennt mér að það er gott að geta gengið að loknum góðum degi. Hitt- umst í fjallinu. Bretti og búnaður Sæunn Ósk Kjart- ansdóttir hvetur fólk til að fara var- lega á snjóbrettum » Brettahjálmur var því settur á inn- kaupalistann því hann verndar eitt mikilvæg- asta líffærið, heilann. Sæunn Ósk Kjartansdóttir Höfundur er starfsmaður slysavarnasviðs Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Fáðu þér áskrift að Morgunblaðinu ámbl.is/askrift – fylgist með Morgunblaðið gefur út sérblað í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands tileinkað vordögum íslenskrar hönnunar miðvikudaginn 25. mars 2009. Tilgangurinn er að vekja athygli á íslenskri hönnun hvers konar, stórri sem smárri. Opin hús verða víðs vegar um borgina, kynningar, fyrirles- trar, málþing, innsetningar, sýningar; yfir 130 viðburðir verða á tímabilinu. Meðal efnis: - Hvað er HönnunarMars - Íslensk hönnun - Viðtal við arkitekta - Skemmtileg hönnunarverkefni - Hönnunarnám - Viðskiptastefnumót hönnuða - Íslensk hönnun í áranna rás Auglýsendur Tekið er við auglýsingapöntunum til kl 16:00 föstudaginn 20. mars Allar nánari upplýsingar veita Katrín L. Rúnars- dóttir í síma 510 37 27 eða katalaufey@mbl.is, og Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir í síma 510 37 22 eða kolla@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.