Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 28

Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 MIKLAR umræður hafa verið um hvaða sjónarmið skuli höfð að leiðarljósi við end- urreisn íslensks við- skiptalífs. Sitt sýnist hverjum en flestir eru þó sammála um að var- hugavert sé að snúa aft- ur til fyrra horfs. Eitt af því sem mikið er rætt eru samkeppnissjónarmið og hvernig stuðla megi að kröftugri samkeppni á mikilvægum mörkuðum. Það er öllum ljóst að öflug og virk samkeppni er þjóðhagslega hagkvæm og neytendum í hag. Út frá því má svo gagnálykta sem svo að fákeppni og hringamyndun sé þjóðhagslega óhag- kvæm og neytendum í óhag. Það er því gríðarlega mikilvægt að sporna við þeirri fákeppni og blokkamyndum sem orðið hefur á ákveðnum sviðum í ís- lensku samfélagi. Þetta sjónarmið er grunn- forsenda þess að reisa megi hér heilbrigt við- skiptalíf landsmönnum öllum til hagsbóta. FÍS fagnar því yf- irlýsingum Gylfa Magn- ússonar viðskiptaráð- herra í utandagskrárumræðu, sem fór fram að frum- kvæði Ástu Möller, á Al- þingi hinn 24. febrúar síðastliðinn og sjónarmiðum hans í grein í Morgunblaðinu hinn 13. mars síðastliðinn. Þar staðfestir ráðherrann að samkeppnissjónarmið verði sett á oddinn við endurreisn íslensks at- vinnulífs auk þess sem hann bendir á að það sé ekki ráðlegt að endurreisa í óbreyttri mynd þau viðskiptaveldi sem nú eru fallin. Með slík sjónarmið að leiðarljósi munu hér rísa virkir og öflugir markaðir þar sem aðilar takast á með lögmætum hætti á jafnræð- isgrundvelli. Þar með næst aukin þjóðhagsleg hagkvæmni og bættur hagur neytenda. Því ber vissulega að fagna. Það er aðeins með samkeppni, jafn- ræði og gagnsæi að leiðarljósi sem hér mun takast að reisa öflugt og skilvirkt viðskiptalíf. Að endurskapa fyrri mis- tök og óskilvirka markaði er valkostur sem ekki kemur til greina. Nýir tímar verða að færa þjóðinni aukna sam- keppni og bættan hag. Páll Rúnar Mikael Kristjánsson skrifar um íslenskt við- skiptalíf » FÍS fagnar því að samkeppnissjón- armið verði sett á odd- inn og að gömul við- skiptaveldi verðir ekki endurreist í óbreyttri mynd. Páll Rúnar Mikael Kristjánsson Höfundur er lögmaður Félags ís- lenskra stórkaupmanna. Nýir tímar – aukin samkeppni FERMINGIN er ekki sýning, ekki færi- bandaafgreiðsla eða hópyfirlýsing heldur persónuleg vitn- isburðar- og bæna- stund. Hún er ekki manndómsvígsla eða vottorð um að þú sért kominn í fullorðinna manna tölu. Og því síð- ur er hún útskrift úr kirkjunni. Heldur miklu fremur upphaf af meðvitaðri göngu á þroskabraut með frelsaranum Jesú Kristi. Fermingin er vitn- isburður þess að þú viljir áframhaldandi þiggja að vera barn. Barn Guðs, leitt af Jesú Kristi. Barn sem vill fá að þroskast og dafna í skjóli hans og leitast við að leyfa hon- um að hafa áhrif á sig. Þiggja leiðsögn hans og nærveru með öllum þeim fyrirheitum og erfðarétti sem því fylgir. Fermingin er vitn- isburður þess að vilja leitast við að lifa lífinu í kærleika og sátt við Guð og alla menn. Hún er að segja já við lífinu, vilja læra að meta það, njóta þess og þakka fyrir það. Hún er að þiggja kórónu lífsins, dýrðarsveig sem aldrei fölnar. Það er því sannarlega ástæða til að koma saman til þess að biðja og þakka, gleðjast og fagna. Haltu fast í kórónuna þína, svo enginn taki sigursveginn frá þér. Spurning fermingardagsins er nefnilega spurning dagsins, alla ævi. Sigurbjörn Þorkels- son skrifar um gildi fermingarinnar Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri Laugarneskirkju. » Fermingin er vitn- isburður þess að þú viljir áframhaldandi þiggja að vera barn. Spurning dagsins, alla ævi KRISTJÁN Jónsson, blaðamaður á Morg- unblaðinu, víkur nokkr- um orðum að mér og Þorgerði Katrínu, vara- formanni Sjálfstæð- isflokksins, í blaðinu í gær. Margt var þar vin- samlega sagt og vil ég þakka fyrir það. En jafnframt var ýmsu beint til okkar beggja sem mér finnst kalla á við- brögð af minni hálfu. Kristján Jónsson fullyrðir að Þor- gerður og eiginmaður hennar, Krist- ján Arason, „hafi tekið fullan þátt í bólubraskinu“ og nefnir sérstaklega há laun Kristjáns í því samhengi. Því þurfi hún að leggja spilin á borðið og segja nákvæmlega frá því hvað þau hjónin eiga og skulda. Mér þykir sú ásökun sem felst í orðum Kristjáns heldur almenn og því nokkuð erfitt að fjalla um hana. En staðreyndin er sú að það var Kristján Arason sem starf- aði í banka en ekki Þorgerður Katrín. Þrátt fyrir að þau séu hjón þá ber Þorgerður ekki ábyrgð á launum Kristjáns í bankanum, ekki frekar en að Kristján hafi borið ábyrgð á laun- um Þorgerðar í menntamálaráðu- neytinu. Um þetta verður vart deilt. Hvað varðar skuldir og eignir þeirra hjóna þá vil ég benda á að nú nýverið voru samþykktar reglur um upplýs- ingagjöf þingmanna og ráðherra vegna fjárhagslegra tengsla þeirra. Ég er þeirrar skoðunar að sömu regl- ur eigi að gilda um Þorgerði eins og aðra þingmenn, óháð því hver starfi manns hennar var. Hvað varðar stjórnarsetu mína í sjóðum Glitnis þá er rétt að taka fram að við upphaf próf- kjörsbaráttu minnar sem lauk um síðustu helgi birti ég á heima- síðu minni ýtarleg svör við ýmsu sem fram hef- ur komið í opinberri umræðu um þennan sjóð. Vorið 2007 var ég beðinn um að taka sæti í stjórninni sem annar tveggja óháðra stjórn- armanna. Löng hefð var fyrir því hjá bankanum að biðja aðila ótengda honum að taka sæti í þessari stjórn og var þá horft til þess að menntun manna og reynsla gæti komið að gagni. Ég vona að það hafi vakað fyrir þeim sem höfðu samband við mig vegna þessarar stjórnarsetu að ég er hagfræðingur að mennt og lauk MBA-námi frá London Business School árið 2000. Útborguð laun vegna stjórnarsetu voru ákveðin rúm- lega 70 þúsund á mánuði, sem er sam- bærilegt við þá þóknun sem ég fékk þegar ég sat í stjórn Landsvirkjunar og í stjórn fisksölufyrirtækisins Ice- landic Group. Engin önnur hlunnindi fylgdu þessari stjórnarsetu. Í grein sinni segir Kristján eftirfar- andi: „En Illugi segir að stjórnin skipti sér ekki af daglegum ákvörð- unum, hún fylgist bara með því að sjóðurinn fjárfesti í samræmi við yf- irlýsta, varfærna stefnu bankans. Sem sjóðurinn gerði ekki.“ Hér lætur Kristján nokkuð þung orð falla og í ljósi þess að umræðan í samfélaginu er orðin þannig að nóg er að setja fram sakir til þess að sekt þyki sönn- uð, þá er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram: Fjármálaeftirlitið fylgdist mjög náið með allri starfsemi sjóðsins og vegna umræðunnar sem spratt upp um sjóðinn í fjölmiðlum (meðal annars í Morgunblaðinu) gaf Fjár- málaeftirlitið eftirfarandi yfirlýsingu þann 2.10.2008: „Að gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið koma því á fram- færi að fjárfestingar Sjóðs 9 hjá Glitni sjóðum hf. hafa verið í samræmi við reglur sjóðsins og ákvæði laga nr. 30/ 2003 um verðbréfasjóði og fjárfest- ingarsjóði. Fjármálaeftirlitið fylgist reglulega með því að fjárfestingar verðbréfa- og fjárfestingarsjóða séu í samræmi við reglur sjóðanna og ákvæði fyrrnefndra laga. Í lok árs 2007 var gerð sérstök úttekt á Sjóði 9 hjá Glitni og var niðurstaða hennar að fjárfestingar og starfsemi hans var í samræmi við lög og reglur.“ Enn og aftur þakka ég Kristjáni greinina hans. Hún á fullan rétt á sér, þó ég sé ekki sáttur við allt sem hann skrifar. Það er rétt hjá honum að samfélagið okkar nær ekki aftur fót- festu fyrr en við treystum hvert öðru betur en nú er. Sérstaklega á það við um okkur stjórnmálamennina, við þurfum að ávinna okkur traust á nýj- an leik. Við þurfum öll að vanda okk- ur, reyna að greina rétt frá röngu, „al- mannaróm“ frá staðreyndum og þeir sem gefa sig að opinberri umræðu, fjölmiðlamenn jafnt sem stjórn- málamenn, eiga að leggja allt sitt af mörkum til þess að þjóðin megi vinna sig út úr núverandi vanda. Til þess er ég reiðubúinn og ég veit að fjölmiðla- menn láta ekki sitt eftir liggja heldur. Illugi Gunnarsson svarar grein Krist- jáns Jónssonar blaðamanns » Það er rétt hjá hon- um að samfélagið okkar nær ekki aftur fótfestu fyrr en við treystum hvert öðru betur en nú er. Illugi Gunnarsson Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Vegna greinar Kristjáns Jónssonar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.