Morgunblaðið - 20.03.2009, Page 34

Morgunblaðið - 20.03.2009, Page 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 ✝ Karen Jónsdóttirfæddist á Norð- firði 1. október 1934. Hún lést á Landspít- ala, Landakoti, 12. mars 2009. Foreldrar hennar voru Jón Bessason, f. 16. apríl 1874, d. 2. október 1959, og Þóranna Andersen, f. 10. júlí 1907, d. 16. sept- ember 1972. Systkini Karenar eru: Sig- urður Jónsson, f. 7. október 1925; Ágústa Jónsdóttir, f. 3. ágúst. 1927, d. 2. janúar 1996; Árni Jónsson, f. 22. apríl 1929; Helgi Jónsson, f. 29. ágúst 1930; Þorgeir Jónsson, f. 6. febrúar 1932; Bjarnlaugur Jóns- son, f. 27. september 1933, d. 11. júní 1936, Bjarnlaugur Jónsson, f. 12. september 1936, d. 4. nóv- ember 1936; Anton Jónsson, f. 28. október 1937, d. 15. október 1992; Jón Jónsson, f. 14. nóvember 1939, d. 3. júlí 2000, og Hákon Björns- son, f. 8. júlí 1941, d. 6. maí 2005. Karen giftist Ingimundi Ósk- arssyni, f. 4. desember 1934, þau skildu. Foreldrar hans voru Óskar Ingimundarson, f. 5. nóvember 1909, d. 10. mars 1941, og Unnur Sigurðardóttir, f. 18. júlí 1916, d. 5. júlí. 1958. Börn Karenar og Ingimundar eru: 1) Margrét, f. 31. janúar 1955, börn hennar eru: a) Oddgeir Már, f. 1978, börn hans eru Karen Anja og Rafael Fannar, b) Árni Hlöðver, f. 1979, börn hans eru Kristvin Máni og Eyþór Atli, c) Jóna Ingibjörg, f. 1981, dóttir hennar er Ísa- bella Sif. d) Ingi- mundur Brynjar, f. 1984, og e) Ólafur Óskar, f. 1987. 2) Óskar Sigþór, f. 13. febrúar 1959, kvænt- ur Hrafnhildi Hall- dórsdóttur, börn þeirra eru: a) Karen Ósk, f. 1978, sam- býlismaður Einar Garðarsson, börn þeirra eru: Óskar Már og Ágúst Ingi. b) Birna Rós, f. 1983, dóttir hennar er Hrafnhildur Ósk. c) Ingimundur Níels, f. 1986. 3) Jón Þór, f. 26. febrúar 1960, börn hans eru: a) Karen, f. 1981, sam- býlismaður Baldur Kárason, börn þeirra eru Jóel og Kári, b) Hall- dóra Dögg, f. 1990, og c) Hákon Ingi, f. 1995. 4) Ingi Pétur, f. 2. febrúar 1965, sambýliskona Sig- rún Pálsdóttir, börn þeirra eru: a) Ottó Marinó, f. 1988, b) Sólon Kol- beinn, f. 1995, c) Jasmin Erla, f. 1998, og d) Kristall Máni, f. 2002. 5) Unnar Smári, f. 3. maí 1966, sambýliskona Berglind Viktors- dóttir, börn þeirra eru a) Viktor Smári, f. 2005, og b) Ingimundur Smári, f. 2008, fyrir átti Unnar soninn Adolf Smára, f. 1993. 6) Steinar Örn, f. 27. janúar 1969, sambýliskona Jóna Margrét Sig- urðardóttir, börn þeirra eru: a) Þór, f. 1989, b) Hrund, f. 1997, og c) Björk, f. 2002. Karen verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, 20. mars, kl. 11. Elskulega mamma, okkar dýpstu þakkir. Svo gjöful og góð trú mér og stór vinur minn ávallt hún mér gefur skjól hún er móðirin ein og sönn og ást sem stenst tímans tönn indæl og létt skapstór og nett lífsglöð trú sjálfri sér dugleg vel sett hún er móðirin ein og sönn og ást sem stenst tímans tönn alltaf skilur alltaf styður mig alltaf hvetur mig lífinu í ávallt kennir mér ávallt segir mér tryggir mér nýja sýn traust mitt og skjól gefur mér hól styður mig ávallt svo falleg og góð hún er móðir mín ein og sönn og ást sem stenst tímans tönn (Birgitta Haukdal.) Þinn einlægur sonur og tengda- dóttir Ingi Pétur og Sigrún Páls. Að missa móður er eins og að missa stóran hluta af lífinu. En það brennur á mér að láta vita hvernig mamma gerði allt til að stuðla að hamingju okkar systkinanna og leiðbeindi mér. Hún vann hörðum höndum kvölds og morgna og tók þátt í gleði okkar og sorgum. Oft beið ég í glugganum og hugsaði að án hennar gæti ég ekki verið. Mamma var besti vinur minn, mér þótti gott að vera í návist hennar. Hún var einn af demöntunum mín- um. Besta mamma í heimi. Frá henni stafaði öryggi og hlýja, hún kenndi mér að koma vel fram við alla og ekki síst þá sem minna mega sín. Hún sagði að ef ég tæki eitthvað að mér ætti ég að ljúka því með framúrskarandi hætti eða sleppa því. Mamma var heilsuveil alla tíð og þurfti oft að dvelja á spítala. Það var gott að heimsækja hana á spít- alann en heimurinn fullkominn þegar hún var komin heim. Veik- indin gerðu stundirnar með mömmu enn dýrmætari. Mamma lifði sig inn í íþróttaiðkun mína, þvoði heilu vélarnar af íþróttaföt- um, var á nálum um að ég meidd- ist, hvernig gengi á keppnisferða- lögum, fylgdist með úrslitum en þoldi illa spennuna sem fylgdi því að mæta á leiki. Mamma fylgdist með knattspyrnu í sjónvarpi. Hún var listræn, málaði landslagsmynd- ir og báta. Þetta var hennar útrás, hennar tími. Listsköpun sem hún vildi skilja eftir handa börnunum. Barnabörnin voru fastagestir á heimilinu og fordekruð, matarborð- ið margréttað, einn vildi kannski fiskibollur og annar kjöt. Þótt hún hefði ekki bílpróf kom það ekki í veg fyrir sumarbústaðaferðir með þeim, hún lét þá bara keyra sig. Þar dvöldu þau dögum saman, hún eldaði og lék við þau, spilaði, teikn- aði og sagði sögur. Veraldleg gæði skiptu hana engu máli, bara að hún gæti verið í sambandi við barna- börnin. Þegar Þór, fyrsta barnið mitt, fæddist fann hún sig knúna til að segja mér hverjar skyldur mínar væru, barninu skyldi ég sinna núm- er eitt, vera stoltur og gæta þess, börn væru það fallegasta í heimi. Mamma og Þór tóku ástfóstri hvort við annað frá fyrsta degi og sama átti við um dætur mínar Hrund og Björk. Þegar ég lenti í erfiðleikum fyrir nokkrum árum reyndist mamma stoð mín og stytta. Hún gaf mér hlýju og ást, með fallegum orðum benti hún mér á hvað lífið væri fallegt og kom mér aftur af stað. Allar stundir með mömmu voru dýrmætar. Við gátum spjallað um allt milli himins og jarðar. Hún var góður hlustandi og hafði í sér sterkan leiðbeinanda og fannst að þótt fólk upplifði þján- ingar og erfiðleika þyrfti fyrst og fremst að hugsa um börnin. Síðasta skiptið sem ég heimsótti hana þakkaði ég henni fyrir allt og sagð- ist elska hana. Ég vissi ekki að það yrði í síðasta sinn sem ég sæi hana vakandi. Mér bárust svo þau tíðindi til útlanda að hún væri að kveðja. Hún hafði sagt að hún myndi ekki deyja fyrr en ég kæmi til hennar. Þannig náði ég að kveðja hana og gat verið hjá henni síðustu stund- irnar. Þegar minningabrotin raðast saman verður heimurinn til á ný þótt það verði ekki sami heimur- inn. Drottinn blessi þig, mamma mín, og englarnir gæti þín. Þinn sonur Steinar. Í dag kveð ég Karen tengda- móður mína sem ég kynntist fyrir átta árum þegar við Unnar Smári fórum að rugla saman reytum. Þá voru þeir reyndar tveir feðgarnir, Unnar og sonur hans Adolf Smári, en þeir voru mikið hjá Karen og hugsaði hún vel um þá. Svo bættist ég í hópinn og má segja að hún hafi gefið mér aðra sýn á lífið og til- veruna. Hún Karen var ein af þess- um konum sem láta ekki mikið fyr- ir sér fara, forðaðist fjölmenni og var einstaklega nægjusöm. Hún átti lengi við veikindi að stríða en ljósið í lífi hennar var fjölskyldan og það var hennar ríkidæmi. Hún lifði fyrir börnin sín og afkomendur þeirra. Hún var mikil barnagæla og hafði einstaklega gaman af því að gefa fjölskyldumeðlimunum að borða. Þá þótti henni gaman að horfa á fótbolta í sjónvarpinu en það var einmitt fjölskylduíþróttin og alla tíð fylgdist hún áhugasöm með drengjunum sínum í boltanum. Á meðan heilsan leyfði leigði Karen stundum bústað á sumrin og fékk þangað til sín barnabörnin. En það má segja að gamall draumur henn- ar hafi ræst þegar þrír synir henn- ar tóku upp á því að setja niður sumarbústað í Grímsnesinu síðast- liðið vor og gáfu honum nafnið Karenarkot. Þá voru reyndar veik- indin farin að hrjá hana mikið en við áttum þar nokkrar dýrmætar stundir saman síðasta sumar. Þar naut hún þess að vera úti í góða veðrinu samvistum við tvö yngstu barnabörnin, þá Viktor Smára þriggja ára og Ingimund Smára eins árs. Ég gleymi því ekki heldur hve það veitti henni mikla ánægju að fá að sitja með þá sem ungbörn í kjöltunni, með sængina undir og snudduna við höndina – tímunum saman. Og mikið var hún ánægð þegar hún loks gat farið að gefa þeim pelann og síðar að borða. Það var einmitt á stundum sem þessum að maður sá hve börnin voru henni mikilvæg í lífinu. Það er sárt að missa móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, en minning hennar mun lifa í hjörtum okkar. Með þakklæti í huga og góðar minningar kveð ég Karen. Blessuð sé minning hennar. Berglind. Elsku amma, það tekur mig rosalega sárt að vita að þú sért far- in, að við eigum ekki eftir að hitt- ast aftur og ná að spjalla saman, ég er ennþá í Dk og er engan veginn að meðtaka að ég sé að koma heim til að kveðja þig. Það var bara í febrúar sem ég kom í stutta heim- sókn heim og kíkti á þig, þú spurð- ir mig alltaf þegar ég kom hvenær ég kæmi svo aftur eða þegar við töluðum í símann, þú sagðir nánast alltaf orðrétt „já er svona langt þangað til“, nema núna þegar ég kom, þá töluðum við um að það væri núna loksins stutt þangað til að við hittumst aftur, um páskana, en það var því miður ekki nógu stutt því þú kvaddir áður. Fyrstu minningarnar mínar um þig eru úr Unufellinu, mér fannst alltaf æðislegt að koma til þín, ég man helst eftir endalausum búð- arleikjum á eldhúsborðinu, þú áttir smápeninga sem ég fékk að nota og svo komst þú og borgaðir og ég fékk að gefa tilbaka, aftur og aftur, en það sem stóð alltaf upp úr var að fá að gista hjá þér, ég var nú ekki mikið fyrir að gista annars staðar en vildi alltaf fá að lúlla hjá þér, þá var keypt nammi og maður fékk að vaka frameftir að maður hélt, það var toppurinn. Á síðustu árum hef ég reynt að vera dugleg að kíkja á þig, en tíminn hefur oft verið lítill þessi skipti sem ég hef komið heim. Hann hlýjar mér um hjartarætur tíminn sem við áttum saman fyrir rétt hálfu ári þegar ég kom heim, ég ákvað að kíkja á þig einu sinni enn áður en ég færi heim og kíkti um kvöld. Við áttum ynd- islega stund saman, þú sagðir mér hluti um sjálfa þig sem við höfðum aldrei talað um, eins og sorgina sem þú gekkst í gegnum þegar þú misstir frumburðinn þinn og hvern- ig lífið var þá, þú klökknaðir og ég fann að það var viðkvæm sál inni við beinið, því þú sýndir oft ekki miklar tilfinningar á yfirborðinu. Þér fannst alltaf gaman að segja mér frá pabba og Óskari þegar þeir voru litlir, það er eitt ár á milli þeirra eins og hjá drengjunum mínum og það er margt ótrúlega líkt, þú sagðir líka oft svo skemmti- lega frá. Þú varst yndisleg manneskja elsku amma mín, þú áttir í gegnum ævina oft mjög erfitt líf, varst búin að vera veik lengi en það var eitt- hvað sem þú vildir helst ekki tala um og lést oft eins og það væri ekkert að, sagðir alltaf að það væri miklu skemmtilegra að tala um eitthvað annað. Þú hafðir endalaus- an áhuga á barnabörnunum þínum og voru þau aðalumræðuefnið þeg- ar við hittumst, þú vildir fylgjast vel með og gerðir það svo sann- arlega fram á síðasta dag. Þú varst mjög listræn í þér og fyrir nokkr- um árum gafstu mér mynd sem þú málaðir, þessa mynd hef ég alltaf haft á góðum stað, ég labba framhjá henni oft á dag, ég hugsa alltaf til þín þegar ég sé hana og þykir mjög vænt um hana. Elsku amma, ég hugga mig við það að ég veit að þú varst tilbúin til að fara, ég vona svo sannarlega að það taki eitthvað við eftir þetta líf og taki vel og innilega á móti þér hinum megin, því það áttirðu svo sannarlega skilið, þú veist að mér þykir endalaust vænt um þig, lífið er svo sannarlega tómlegra án þín. Þín Karen Jóns og fjölskylda. Elsku hjartans amma Karen, með ást og söknuði, kveðjum við þig. Himnadís þú svífur sátt í himnaríki yfir regnbogann hátt heillandi dansar við stjörnurnar dátt syngur með englum töfrandi kátt óskirnar rætast þú hefur mátt. (JEI.) Yndislega amma, trausti vinur og skemmtilega stelpa sem alltaf varst til í: að spila pokémon, felu- leik, berjamó, teikna, grínast, dúkkó, sögur, strætó, nettó, leyni- lögguleik rúnta í doddsinum með afa og skoða bátana og að ógleymdum fótboltanum með snilldar tilþrifum í markvörslu, þegar heilsa þín leyfði. Viðkvæm og þakklát þökkum við þér fyrir allt. Soðnu ýsuna, a la amma Karen, sem klikkaði aldrei framreidd með smjöri og tómatsósu. Kærleikann, hvatninguna og dá- semdina sem yljar hjarta okkar um ókomna tíð og biðjum englana að vaka með þér um alla eilífð. Þeir segja mig látinn, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá hjarta mínu berst falleg rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem ykkur er ætlað að gleðja. (Höf. ók.) Við elskum þig alltaf, amma Kar- en. Ottó, Sólon, Jasmín Erla og Kristall Máni Ingabörn. Elsku amma. Ég trúi ekki að ég sé að kveðja þig. Þú ert búin að vera veik svo lengi og aldrei kvart- aðirðu, sama hversu veik þú varst, og alltaf varstu jafnsterk. Það er svo tómlegt að koma til vinnu á deildina á morgnana og sjá þig ekki þar og geta ekki spjallað við þig. En ég vona svo innilega að þú sért á betri stað núna og laus und- an veikindum þínum, þú átt það svo sannarlega skilið, elsku amma Karen mín. Ég mun aldrei gleyma hvað þú varst alltaf góð við mig. Man hvað mér fannst gaman að koma til þín í Frostafoldina og vera hjá þér, hvað mér fannst gaman þegar þú labbaðir með mér á róló- inn sem var rétt hjá húsinu þínu og sýndir mér allt á leiðinni. Það er erfitt að kveðja þig en ég mun allt- af hugsa hlýtt til þín og geymi minninguna um þig í hjarta mínu. Ég elska þig og sakna þín enda- laust elsku amma mín. Þín Halldóra Dögg. Amma Karen er án vafa ein sú yndislegasta amma sem nokkur getur átt. Hún var þannig amma sem alltaf, án undantekninga, gerði allt fyrir mann sem maður vildi og miklu meira en það. Hún var þann- ig amma að hún passaði alltaf að manni liði sem best og hefði allt sem maður þurfti, hún var líka þannig amma að ef hún sá að eitt- hvað bjátaði á og manni leið ekki vel þá var hún alltaf til staðar fyrir mann, hvort sem maður þurfti á þvi að halda að ræða málin eða ein- faldlega bara fá smá ást og kær- leika, þá vissi hún nákvæmlega hvað til þurfti og nærvera hennar ein og sér gat lagað öll helstu vandamál. Amma Karen átti stóran þátt í mínu uppeldi enda eru þeir ófáir klukkutímarnir sem ég hef eytt hjá henni. Það var alltaf nóg að gera þegar maður var hjá ömmu, ef hún var ekki að elda fyrir mann þá gátum við spilað og spjall- að saman heillengi, og alltaf var það jafn gaman, enda var yfirleitt létt yfir henni og hún hafði líka skemmtilegan húmor. Ég gleymi því ekki þegar ég var yngri og ég var hjá ömmu minni í eitt skiptið. Hún var nýbúin að kenna mér að spila Olsen, og okkur fannst ekki leiðinlegt að spila þeg- ar ekkert skemmtilegt var í sjón- varpinu. Við vorum búin að spila lengi og eitthvað var ég dapur yfir því að tapa og ákvað ég þá að senda ömmu inní eldhús að ná eitt- hvað í gogginn fyrir okkur og ég skyldi bara gefa spil á meðan. Hún tók vel í það, en á meðan hún sá ekki til þá ákvað ég að hagræða spilum þannig að ég átti sigur vís- an. Það kom líka á daginn þegar við byrjuðum að spila að ég fór létt með spilið og hrósaði sigri. Ég var sáttur með gang mála og ákvað að senda hana aftur fram í eldhús að ná í drykk. Ég gaf mér öll bestu spilin og vann auðveldan sigur aft- ur. Svona gekk þetta nokkur skipti og alltaf vann ég. Elskan sem hún amma mín var þóttist ekkert vita hvað væri í gangi og þóttist alltaf koma jafn mikið af fjöllum þegar ég vann. Ég hinsvegar hélt að hún vissi ekki betur og væri svona rosalega auðtrúa og það endaði þannig að við grétum bæði úr hlátri í langan tíma. Ég hló yfir því hvað hún amma væri hrikalega vit- laus að láta plata sig svona en hún amma vissi betur og hló yfir hversu ungur og vitlaus ég var. En aldrei sakaði hún mig um svindl. Þetta er lýsandi dæmi um hversu skemmtileg og góð hún amma okkar var og það var hún heldur ekki bara við fjölskylduna sína heldur allt og alla. Það segir allt sem segja þarf að þegar henni leið illa á elliheimilinu og spítalan- um undir endann vildi hún ekkert vera að ýta á takkann til að fá að- stoð hjá starfsfólkinu, hún vildi nefnilega ekki vera að trufla það. Hún amma Karen átti mörg góð ár og skilur eftir sig alveg ótrúlega mikið af frábæru fólki hvort sem talað er um börn hennar, barna- börn eða barnabarnabörn. Það fer ekki milli mála að hennar verður gríðarlega sárt saknað í langan tíma og minning hennar á eftir að lifa lengi og vel þó svo að hún sé farin frá okkur. Elsku amma okkar, þú varst besta amma í heimi, við munum elska þig alltaf og aldrei gleyma þér. Þín ömmubörn, Þór, Hrund og Björk. Karen Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.