Morgunblaðið - 20.03.2009, Qupperneq 40
40 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
Lilli er yndislegur og
getur ekki verið neitt
annað því að skapari hans er
snillingur …42
»
SÖNGSVEITIN Fílharmónía heldur aðal-
tónleika starfsársins á sunnudag og miðviku-
dag, 22. og 25. mars, í Langholtskirkju. Flutt
verða kunn verk eftir mikla meistara: Sálu-
messa Mozarts og Messa í g-moll eftir Bach.
Einsöngvarar verða Hallveig Rúnarsdóttir,
Jóhanna Ósk Valsdóttir, Gissur Páll Giss-
urarson og Ágúst Ólafsson. Sif Tulinius kons-
ertmeistari leiðir fjölmenna hljómsveit.
Stjórnandi er Magnús Ragnarsson.
Að þessu sinni verður ekki flutt sú útgáfa
Sálumessu W.A. Mozarts sem fólk þekkir best,
sú sem samtímamaður og vinur Mozarts,
Franz Xavier Süssmayr, lauk við eftir að tón-
skáldið lést frá ókláruðu verki. Fáir tónlistar-
unnendur gera sér grein fyrir því hversu stór
hluti verksins var þá ófrágenginn. Sú útgáfa
sem Söngsveitin flytur nú var unnin af breska
tónskáldinu Duncan Druce og hefur vakið at-
hygli en hún var fyrst flutt árið1984.
„Mozart fullkláraði bara fyrsta kaflann, út-
setti hann fyrir hljómsveitina,“ segir Magnús.
„Hann samdi fyrir söngraddirnar í níu köflum
af þrettán og byrjaði á þeim tíunda, og skrifaði
tölusettan bassa, en átti alveg eftir að semja
fyrir hljómsveitina í hinum köflunum. Útgáfa
Süssmayrs hefur verið gagnrýnd fyrir að vera
varkár og ekki alveg í stíl Mozarts. Mér finnst
útsetning Druce fyrir hljómsveitina nálgast
skrif Mozarts betur. Hljóðfærasetningin er sú
sama en mér finnst þessi betur útfærð.
Í köflunum sem Mozart samdi ekki hefur
verið gert ráð fyrir að hann hafi gefið fyr-
irmæli um hvernig þeir ættu að hljóma, og not-
að síðan efni úr fyrsta kaflanum í þann síðasta.
Druce setti sig í spor samtímamanna Mozarts,
það er sami heildarblærinn á þessu.
Á síðustu öld fannst svo skissa með fúgustefi
sem Mozart hefur greinilega viljað koma inn í
Sálumessuna; að hún kæmi í kjölfarið á Lacri-
mosa-kaflanum, þeim tíunda. Þetta hefur nú
verið sett inn í verkið, mjög tignarleg fúga.
Það er aðalmunurinn sem fólk heyrir, miðað
við gömlu útgáfuna.“
Önnur Mozartútgáfa
Söngsveitin Fílharmónía flytur Sálumessuna
Ljósmynd/Guðmundur Hafsteinsson
Kórinn Hluti Söngsveitarinnar Fílharmóníu á
tónleikastaðnum, Langholtskirkju.
ÍRSKA ljóð-
skáldið Seamus
Heaney hlaut í
fyrrakvöld David
Cohen-verðlaun
fyrir afrek sín á
sviði bókmennta.
Verðlaunaféð
nemur 40.000
pundum, tæplega
sex og hálfri millj-
ón króna.
Formaður dómnefndar, lárviðar-
skáldið Andrew Motion, sagði að Hea-
ney væri heiðraður fyrir ljóðin sem
hann hefur skapað á fjórum áratug-
um, ljóðlist sem hefur „endurspeglað
sögu vorra tíma, í tungutaki sem hann
hefur á hugrakkan og eftirminnilegan
hátt sífellt teygt lengra“. Ennfremur
talaði Motion um gagnrýnin skrif
Heaneys, þýðingar hans og fyr-
irlestra sem hafa haft víðtæk áhrif í
heimi ljóðsins.
David Cohen-verðlaunin þykja ein-
hver þau virtustu sem bresk skáld og
rithöfundar geta hlotið. Meðal fyrri
verðlaunahafa eru VS Naipaul og Ha-
rold Pinter, sem báðir hlutu Nóbels-
verðlaunin, rétt eins og Heaney.
Verðlaunin eru veitt annað hvert ár
fyrir framúrskarandi æviframlag í
þágu bókmenntanna.
Verðlaunahafinn hlýtur 12.500
pund til viðbótar, sem hann deilir milli
ungra höfunda að eigin vali.
Heaney
heiðraður
Seamus Heaney
Hlaut David
Cohen-verðlaunin
AFRAKSTUR níu
mánaða vinnu sem
Sarkozy Frakk-
landsforseti fól
sérfræðingum að
vinna og snerist
um að búa til nýtt
aðalskipulag fyrir
Parísarborg var
kynntur á dög-
unum. Forsetinn
kveðst vilja breyta miðborg Parísar
og úthverfum hennar í fyrstu „borg-
ina eftir Kyoto“, og vísar þar til lofts-
lagssamnings Sameinuðu þjóðanna.
Tíu hugmyndir að nýju skipulagi
voru kynntar og kemur þar meðal
annars fram að fyrirhugað er að
leggja nýtt lestarkerfi innan borg-
arinnar og fjölga opnum, grænum
svæðum. Enn hefur þó ekki verið
kynnt hvernig ætti að afla fjár fyrir
þessar miklu breytingar, sem kynnt-
ar eru í hugmyndunum.
Samkvæmt The New York Times
birtist í stefnu yfirvalda „djörfung
sem ekki hefur sést í vestrænum
borgum í marga áratugi“.
Nýtt skipu-
lag í París
Frá Parísarborg.
Á ÞESSU skólaári fagnar Tón-
skólinn Do Re Mi 15 ára
starfsafmæli sínu. Af því tilefni
verða haldnir afmælistónleikar
í Neskirkju í dag kl. 18. Þema
tónleikana er heimstónlist.
Á tónleikunum verða ein-
göngu leikin samleiksverk og
fram koma yfir eitt hundrað
börn sem leika á ýmis hljóð-
færi. Þá munu forskólabörn
syngja við undirleik marimba-
sveitar sem samanstendur af átta píanónem-
endum. Eftir tónleikana verður gestum boðið upp
á afmæliskaffi í hinu nýja safnaðarheimili Nes-
kirkju. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á
meðan húsrúm leyfir.
Tónlist
Börn leika
heimstónlist
Nemendur
Do Re Mi.
ÓKEYPIS er inn á hádegistón-
leika Tríós Reykjavíkur á
Kjarvalsstöðum í dag kl. 12.15.
Efnisskráin er samsett af
kunnum, klassískum perlum og
verða stef úr Töfraflautu Moz-
arts leikin auk verka eftir Jules
Massenet, Vittorio Monti og L.
van Beethoven. Tónleikarnir
eru um 40 mínútur að lengd og
munu tónlistarmennirnir sjálf-
ir kynna verkin sem leikin
verða. Það spillir ekki fyrir ánægjunni að flutning-
urinn fer fram í Kjarvalssalnum, sem er þéttskip-
aður verkum eftir Kjarval frá gólfi til lofts.
Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmunds-
dóttir, Gunnar Kvaran og Peter Máté.
Tónlist
Klassísk verk á
Kjarvalsstöðum
Guðný
Guðmundsdóttir
DEILD ítölsku við Háskóla Ís-
lands og Aðalræðisskrifstofa
Ítalíu standa fyrir sýningum á
ítölskum kvikmyndum í Regn-
boganum um helgina, 20. til 22.
mars.
Þar verða sýndar þrjár kvik-
myndir eftir Paolo Sorrentino
sem er einn umtalaðasti og
besti kvikmyndagerðarmaður
Ítalíu af yngri kynslóðinni í
dag.
Myndirnar þrjár eru: Fjölskylduvinur, Afleið-
ingar ástarinnar og Honum er ofaukið sem er
fyrsta höfundarverk hans og önnur kvikmyndin í
fullri lengd sem hann leikstýrir. Myndirnar eru
sýndar með ítölsku tali en enskum texta.
Kvikmyndir
Þrjár ítalskar
kvikmyndir
Paolo
Sorrentino
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„ÞETTA verður að vera gert af mikilli nákvæmni. Þess
vegna höfum við fengið til liðs við okkur menn sem þekkja
vín og leggja þann þunga í verkið sem þarf,“ segir Hafþór
Yngvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur um
„Flúxusgjörning sælkeranna“ eftir Takato Saito. Hann
verður framkvæmdur á Kjarvalsstöðum á morgun laug-
ardag, klukkan 17, í tengslum við sýninguna Skáklist.
Nafntogaðir kunnáttumenn um vín og sælkerar taka
þátt í gjörningnum, sem er gjöf Saito til Listasafns Reykja-
víkur, en annarsvegar er teflt með léttvínum og hinsvegar
brauðsnittum. Á tveimur borðum eigast við vínsérfræðing-
arnir Þorri Hringsson myndlistarmaður, Einar Thorodd-
sen læknir, Steingrímur Sigurgeirsson víngagnrýnandi og
Lárus Jóhannesson, eigandi verslunarinnar 12 tóna. Í ein-
víginu verða þátttakendur að treysta á lyktar- og bragð-
skyn til að þekkja skákmennina. Samhliða fer fram einvígi
með listilega skreyttum brauðsnittum sem þjónar raða á
autt skákborð samkvæmt óskum keppendanna, sem eru
listamennirnir Ragnar Kjartansson og Ingibjörg Magna-
dóttir, Lísa Pálsdóttir útvarpsmaður og Hugleikur Dags-
son rithöfundur.
Fyrirmælagjörningur í anda Flúxus
„Þetta er fyrirmælagjörningur í anda Flúxushreyfing-
arinnar,“ segir Hafþór. „Saito hefur gert mikið af upplags-
og fyrirmælaverkum og fór snemma að gera verk um skák.
Hún tók skákina fyrir sem einskonar mynd af heiminum og
hefur gert yfir 100 ævintýraleg skákborð. Stundum eru
þau leikur, stundum hreinir skúlptúrar, en iðulega hvort
tveggja.“
Í verkunum Weight Chess eftir Saito verða þátttak-
endur að þekkja skákmennina af þyngdinni, en þeir líta
annars eins út. Í Sound Chess þekkjast þeir aðeins af hljóð-
um og í Spice Chess eru skákmennirnir eins krukkur en
með mismunandi kryddblöndum. „Þannig leikur Saito með
öll skynfærin; skákin er hjá henni ekki bara hugarleikur
heldur skynfæraleikur,“ segir Hafþór.
„Flúxusgjörningur sælkeranna“ verður tekinn upp á
myndband og skrásettur í ljósmyndum og lifir verkið þann-
ig bæði í fyrirmælunum sjálfum og skráningunni. Hafþór
segir að Jon Hendricks, sem er einn helsti fræðimaður
samtímans um Flúxus-hreyfinguna, hafi verið safninu inn-
an handar og gefið ráð um uppsetninguna. „Þetta verður
alvöru Flúxus-viðburður með réttum áherslum.“
Tveir skákmannanna, Steingrímur og Þorri, tóku síðan
létta æfingaskák á Kjarvalsstöðum í gær. Þorri var með
hvítt (vín) og Steingrímur rautt. Þeir sögðu að þátttakan í
gjörningnum væri ekki eins og hefðbundin vínsmökkun, en
þeir yrðu að bera kennsl á hinar einstöku víntegundir í
glösunum til að geta teflt skákina til enda.
Tefla með víni og snittum
Kunnur Flúxuslistamaður hefur gefið Listasafni Reykjavíkur sælkeragjörninga
Vínáhugamenn taka skákir með vínum og aðrir með fagursmurðum snittum
Morgunblaðið/Einar Falur
Tefla með víni „Við byrjum á vínsmökkun til að átta okkur á því hvaða taflmenn eru hvaða
vín - síðan er bara að treysta á nefið meðan við teflum.“ Steingrímur og Þorri tóku skák í gær.
Takako Saito, sem er fædd í
Japan árið 1929 en flutti til
New York árið 1963, er ein
af mörgum kunnum þátt-
takendum í Flúxus-hópnum
svonefnda sem hafði víð-
tæk áhrif á þróun myndlist-
arinnar, m.a. hér á landi.
Um tíma starfaði hún í Par-
ís með Robert Filliou.
Saito hefur einkum stað-
ið fyrir gjörningum og þykir
svipa til áhrifamestu lista-
manna liðinna áratuga á því
sviði. Margir gjörninga
hennar hafa tengst skáklist
á einn eða annan hátt.
Þá hefur Saito jafnframt
gert upplags-verk eins og
þetta, Grinder Chess, frá
1965, þar sem ýmis verk-
færi koma í stað skák-
manna.
Saito færir Listasafni
Reykjavíkur Flúxusgjörn-
inga sælkeranna að gjöf.
Hefur gert margskonar verk út frá skák