Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 44
Lesendur þessara síðna hafaefalaust orðið varir viðhversu gróskuríkt allra handa öfgarokk er um þessar mundir. Hljómsveitir af þeim tog- anum spretta upp eins og gorkúlur en sagan hefur sýnt okkur að líftími svona sena sé 3-4 ár og líklega er þessi að toppa nú.    Eða hvað? Kannski er enn meiraeftir, kannski munu þjóð- félagsaðstæðurnar, þessar einstöku aðstæður sem við búum við nú, stinga enn styrkari stoðum undir hana. Enda auðvelt að leiða líkur að því að þörfin til að tappa reiðinni af hafi aldrei verið meiri. Þörfin til að gera eitthvað annað en að mæna upp í loftið í sívaxandi atvinnuleysi verður meira knýjandi með hverri viku. Þetta er að verða eins og í Bretlandi undir lok áttunda áratug- arins. Þá gekk í garð eitt magnað- asta sköpunarskeið rokksins fyrr og síðar og margir reyna enda að hugga sig við það í yfirstandandi hörmungum að við fáum þó a.m.k. almennilega tónlist í staðinn.    Eins unaðslegt og það er nú aðbaða eyrun upp úr ástríðu- fullri, níðþungri tónlist þá er ekki síður indælt að dýfa þeim í haglega samið, ofurgrípandi popp. Slíkt gerði maður í gríð og erg í kringum árþúsundamót, alíslenskt popp þá á miklu og góðu flugi. Undanfarin fimm ár eða svo hefur hins vegar verið tómarúm á þessu sviði. Hvað veldur? Margir freistast til að bein- tengja fágað, plasthúðað, strauml- ínulagað popp við góðæri og hag- sæld en ég er farinn að halda að ládeyða sú sem hefur verið yfir poppinu sé frekar vegna þessara þátta. Fólk hafði það einfaldlega of gott.    Nú er því lag. Það er hægt að fáútrás yfir ástandinu með því að vera ofsareiður, sem er gott og gilt, en það er líka hægt að snúa á ömurðina með því að fara í öfuga átt, syngja sæll og glaður um afrek sem maður ætlar að vinna og tæki- færi sem bíða. „Stundum lífið er/ grámygla og glórulaust/en þá er gott að gleyma sér.“ Ingó Veðurguð! Tak staf þinn og popphatt og leiddu nú íslensku poppbyltinguna! arnart@mbl.is Hvar er poppið? AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen »Margir freistast tilað beintengja fágað, plasthúðað, straumlínu- lagað popp við góðæri og hagsæld … Poppguð? Íbygginn Ingó plottar næstu skref. Mun þessi maður bjarga ís- lensku poppi? MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI - S.V., MBL - DÓRI DNA, DV5 - S.V., MBL - E.E., DV - Ó.H.T.,RÁS 2 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 750kr. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA 750k r. Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b Arn - Tempelriddaren kl. 6 - 9 B.i.14 ára Blái Fílinn ísl. tal kl. 6 600 kr. f. börn, 750 kr. f. fullorðna LEYFÐ Last Chance Harvey kl. 8 - 10:10 LEYFÐ Marley & Me kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Vicky Cristina Barcelona kl. 5:50 LEYFÐ The Reader kl. 8 - 10:20 B.i.14 ára Marley & Me kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Blái Fílinn ísl. tal kl. 5:50 LEYFÐ Milk kl. 8 B.i.12 ára The Wrestler kl. 10:20 B.i.14 ára MAGNAÐUR SPENNUTRYLLLIR MEÐ CLIVE OWEN OG NAOMI WATTS Í FANTAFORMI! - S.V., MBL - E.E., DV „HELVÍTIS FOKKING BANKAHYSKI” 750k r. 750k r. SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI FYRSTA ÁSTIN, SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ OG ALLT ÞAR Á MILLI. HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, Stórskemmtileg teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali um vináttu, ást og hugrekki. 600 kr. fyrir b örn 750 kr. fyrir f ullorðna MYND UM HJÓN SEM ERU HUN- DELT AF LEIGU- MORÐINGJA OG FÉLAGA HANS! MÖGNUÐ SPENNU- MYND GERÐ EFTIR SÖGU MEISTARA ELMORE LEONARD MEÐ DIANE LANE OG MICKEY ROURKE Í AÐALHLUTVERKUM. Í GÆR VAR HÚN VITNI Í DAG ER HÚN SKOTMARK SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Í GÆR VAR HÚN VITNI Í DAG ER HÚN SKOTMARK 750k r. 750k r. Killshot kl. 8 - 10 B.i. 16 ára The International kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára He´s just not that into you kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Fanboys kl. 5:50 LEYFÐ The Pink Panther 2 kl. 6 LEYFÐ The Family Friend kl. 5:50 LEYFÐ The Consequences of Love kl. 8 LEYFÐ One Man Up kl. 10:10 LEYFÐ Ítalskir dagar The Family Friend The Consequences of Love One Man Up BRESKA leikkonan Natasha Rich- ardson, lést á miðvikudaginn, 45 ára að aldri. Hún slasaðist á mánudag á skíðanámskeiði fyrir byrjendur á Mont Tremblant-skíðasvæðinu í Kanada. Hún var ekki með hjálm og virtist upphaflega ekki hafa meitt sig, hún hafnaði læknishjálp tvívegis strax eftir slysið en nokkrum klukkustundum síðar var hún flutt meðvitundarlaus á sjúkrahús. Hún komst aldrei aftur til meðvitundar. Richardson var gift írska leik- aranum Liam Neeson og eiga þau tvo syni. Hún var dóttir leikkon- unnar Vanessu Redgrave, sem lifir dóttur sína, og kvikmyndaleikstjór- ans Tony Richardson. Systir hennar Joely Richardson er einnig þekkt leikkona. Richardson er látin Leikarahjón Natasha Richardson og Liam Neeson á góðri stundu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.