Morgunblaðið - 21.03.2009, Síða 24
24 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2009
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ÍSRAELSKIR hermenn hafa sagt
skelfilegar sögur af framferði ísr-
aelska hersins í innrásinni í Gaza en
samkvæmt þeim fengu þeir ekki að-
eins frjálsar hendur um að skjóta
konur og börn og aðra óvopnaða
borgara, heldur hafi þeim beinlínis
verið skipað að gera það. Þá hafi
þeim verið sagt að vinna sem mest-
ar skemmdir á heimilum Palestínu-
manna. Ehud Barak, varnarmála-
ráðherra Ísraels, sem heldur því
fram að enginn herafli jafnist á við
þann ísraelska í siðferðisstyrk, seg-
ir að frásagnir hermannanna verði
kannaðar en ísraelsk mannrétt-
indasamtök benda á að þrjár vikur
séu liðnar síðan ísraelska herráðið
fékk vitnisburð hermannanna í
hendur. Um hann hafi verið þagað
þar til dagblaðið Haaretz komst yfir
hann.
Hermennirnir sögðu frá reynslu
sinni á fundi í Oranim-háskólanum í
Norður-Ísrael og sæta frásagnir
þeirra miklum tíðindum. Er þetta í
fyrsta sinn sem ísraelskir hermenn
tjá sig með þessum hætti og sögur
þeirra ganga þvert gegn opinberum
yfirlýsingum um að Ísraelsher leggi
mikið á sig til að forðast mannfall
meðal óbreyttra borgara.
Skipað að skjóta alla
þegar inn væri komið
„Strax í upphafi var okkur skipað
að brjóta upp hús með brynvörðu
farartæki og þegar inn væri komið
að skjóta alla sem við sæjum. Það
var ekkert annað en morð. Ég spurði
sjálfan mig hvernig þetta mætti vera
en yfirmenn okkar sögðu að þeir sem
ekki hefðu haft vit á að forða sér burt
frá Gazaborg ættu ekki annað skil-
ið.“ Þannig var frásögn eins her-
mannsins og annar lýsti því er pal-
estínskri konu og tveimur börnum,
sem hafði verið haldið föngnum í
einu herbergi húss síns, var skipað
að koma sér burt:
„Liðsforinginn sagði konunni og
börnunum að fara og halda til hægri
þegar þau kæmu út. Þau skildu ekki
leiðbeiningarnar og sneru til vinstri
þegar út var komið. Skyttan uppi á
þakinu skaut þau öll. Hann gerði það
sem honum hafði verið skipað, sá
fólkið nálgast og drap það. Megin-
stefið hjá okkur var það að líf og limir
Palestínumanna væru svo óendan-
lega miklu minna virði en ísraelskra
hermanna.“
Þriðji hermaðurinn lýsti því er
gömul kona, sem hefði gengið yfir
einhverja „línu“, sem hún vissi ekk-
ert um, var skotin og foringinn í hans
herdeild skipaði mönnum sínum að
ráðast inn á heimili, skrifa „Dauði yf-
ir aröbum“ á veggina og brjóta fjöl-
skyldumyndir.
Ísraelsher ekki trúverðugur
Mannréttindasamtök í Ísrael hafa
brugðist hart við þessum lýsingum og
ein þeirra, Yesh Din, hafa krafist
óháðrar rannsóknar. Benda þau á að
þrátt fyrir vitnisburð hundraða
manna um stríðsglæpi í innrásinni á
Gaza hafi engin rannsókn farið fram.
Ísraelsher sé hins vegar ófær um slíka
rannsókn á sama tíma og hann er sak-
aður um alvarlega stríðsglæpi. Síðast-
liðinn mánudag hvöttu heimskunnir
dómara og mannréttindafrömuðir til
alþjóðlegrar rannsóknar á stríðsglæp-
um beggja aðila í Gazastríðinu.
Skipað að drepa
óbreytta borgara
Skelfilegar lýsingar ísraelskra hermanna á innrásinni á Gaza
Í HNOTSKURN
» Ísraelar réðust inn á Gaza3. janúar sl. og stóðu hern-
aðaraðgerðir yfir í 22 daga.
» 13 Ísraelar, þar af þríróbreyttir borgarar, féllu í
innrásinni, meira en 1.300 Pal-
estínumenn, þar af 437 börn
undir 16 ára aldri, 110 konur
og 123 gamalmenni.
» Gazasvæðið er enn íherkví Ísraela og upp-
byggingarstarf þar er ekki
hafið.
Reuters
Eyðilegging Palestínumaður situr við rústir húss síns, sem var eyðilagt í 22
daga löngum hernaðaraðgerðum Ísraela á Gazasvæðinu.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, bauð „nýtt
upphaf“ í samskiptunum við Íran í sögulegu sjónvarps-
ávarpi til írönsku þjóðarinnar í gær. Forsetinn hvatti til
viðræðna, sem byggðust á „gagnkvæmu trausti“, og
sagði að Bandaríkjastjórn vildi að „íslamska lýðveldið Ír-
an fengi þá stöðu sem því ber í samfélagi þjóðanna“.
Tilboðið er fráhvarf frá stefnu George W. Bush, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseta, sem lýsti yfir því árið 2002 að
Íran myndaði „öxul hins illa“ í heiminum ásamt Írak og
Norður-Kóreu. Bandaríkin slitu stjórnmálasambandi við
Íran í apríl 1980 eftir að íslamska lýðveldið var stofnað
og námsmenn tóku starfsmenn bandaríska sendiráðsins í
Teheran í gíslingu. Klerkastjórnin í Íran hefur oft lýst
Bandaríkjunum sem „Stóra Satan“.
Láti verkin tala
Talsmaður Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans,
fagnaði tilboði Obama en sagði að Bandaríkjamenn
þyrftu að „viðurkenna mistök sín í fortíðinni og bæta fyr-
ir þau til að jafna ágreininginn“. „Orðin ein duga ekki og
hann verður að láta verkin tala. Ef Obama sýnir að hann
vilji aðgerðir þá snýr stjórn Írans ekki baki við honum.“
Parviz Fatah, orkumálaráðherra Írans, sagði að stjórn
landsins myndi ekki falla frá áformum sínum um að opna
umdeilt kjarnorkuver í Bushehr fyrir lok ársins og sagði
að markmið Írana væri aðeins að hagnýta kjarnorkuna í
friðsamlegum tilgangi, þ.e. til orkuframleiðslu. Stjórn-
völd í Bandaríkjunum hafa sakað Írana um að ætla að
framleiða kjarnavopn á laun.
Fréttaskýrendur segja að sú stefna Obama að frið-
mælast við Írana sé liður í því að koma á friði og stöð-
ugleika í Írak, Afganistan, Líbanon og svæðum Palest-
ínumanna auk þess sem hann vilji hefta útbreiðslu
kjarnavopna. „Íran er þungamiðjan í lausn erfiðustu
vandamála Obama í utanríkismálum,“ sagði Joe Cir-
incione, sérfræðingur í baráttunni gegn útbreiðslu
kjarnavopna. „Þessi vandamál eru öll samtvinnuð og
Obama veit það.“
„Hann tekur skýrt fram að ekki sé hægt að leysa deil-
ur landanna tveggja með hótunum,“ sagði Trita Parsi,
formaður samtaka íranskra Bandaríkjamanna.
Býður „nýtt upphaf“
í samskiptum við Íran
Reuters
Nýtt vor Barack Obama flutti ávarp sitt í tilefni af ný-
árshátíðinni Nowruz, þegar Íranar fagna komu vorsins.
Sættir við Írana sagðar liður
í lausn erfiðustu vandamála
Obama í utanríkismálum
BÖRN í Dhaka í Bangladesh burðast heim með vatn en í fátækrahverf-
unum er ekkert rennandi vatn í húsum. Á morgun er alþjóðlegi vatnsdag-
urinn og þá verður minnt á mikilvægi þess að hafa aðgang að hreinu vatni.
Ungir vatnsberar
AP
HANN lítur reyndar meira út eins
og flugvél með fjögur hjól en bíll
með vængi en má engu að síður
flokka sem flugbíl.
Fyrirtækið Terrafugia smíðar
flugbílinn sem heitir Transition,
eða „umbreyting“, með vísan til
þeirra umskipta sem hann muni
valda í ferðavenjum manna.
Flugbílnum hefur þegar verið
flogið í tilraunaflugi, samanber
myndina hér að ofan, og ef áætlanir
ganga eftir verður hann afhentur
kaupendum á næsta ári.
Verðmiðinn er áætlaður um
150.000 dalir eða sem svarar rúm-
lega 17 milljónum íslenskra króna á
núverandi gengi. Um 40 pantanir
hafa þegar borist.
Á vefsíðu fyrirtækisins kemur
fram að umbreytingin frá bíl í flug-
vél taki flugmanninn aðeins um 30
sekúndur. Flugdrægnin er allt að
724 km og flughraðinn 185 km á
klukkustund. Ökuhraði er sagður
nægjanlegur til að fylgja hraða al-
mennrar umferðar á hraðbrautum.
Eins og sjá má á myndinni hér
fyrir ofan kemst flugbíllinn vel fyr-
ir í bílskúr þegar búið er að brjóta
vængina saman, en vart þarf að
taka fram að skilyrði er að flug-
menn flugbílsins hafi einkaflug-
mannspróf. baldura@mbl.is
Tilraunaflug Flugbíllinn hélst 37 sekúndur í lofti í fyrstu flugferðinni.
Flugbíllinn kominn
Nettur Lítið fer fyrir flugbílnum.