Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2009 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Það er ekkiódýrt aðreka full- komið heilbrigð- iskerfi á Íslandi. Íslendingar eru fámenn þjóð sem gerir kröfu um bestu mögulega þjónustu. Því er fjárfesting í menntun heilbrigðisstarfsmanna og tækjabúnaði hlutfallslega dýr miðað við fjölmennari lönd sem við berum okkur gjarnan saman við. Í Morgunblaðinu í gær lýsti athafnamaðurinn Róbert Wessman því hvernig hægt væri að byggja upp aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustu á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Tilgang- urinn væri að flytja inn sjúk- linga sem þyrftu að láta fram- kvæma á sér aðgerð, til dæmis vegna liðaskipta eða offitu. Samkvæmt hugmyndum Róberts yrði boðið upp á sjúkraþjálfun, endurhæfingu og atferlismeðferð fyrir of- fitusjúklinga í tengslum við starfsemina. „Aðstaðan á Keflavíkur- flugvelli er góð sem og nýjar skurðstofur í Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja. Þar er öll aðstaða framúrskarandi,“ segir Róbert í samtali við Morgunblaðið og hefur hug á að leigja aðgang að skurðstof- unum. Sömu skurðstofur voru í sviðsljósinu í janúar síðast- liðnum þegar Guð- laugur Þór Þórð- arson, fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra, vildi hagræða innan heilbrigðiskerfisins með því að flytja starfsemi frá St. Jós- efsspítala í Hafnarfirði til Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja. Samkvæmt úttekt heilbrigðisráðuneytisins var sú aðstaða vannýtt. Það er því gleðiefni ef fram- takssamir einstaklingar sjá tækifæri til að nýta betur alla þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan heilbrigð- iskerfisins á Íslandi und- anfarin ár. Andstaða sumra við aukið einkaframtak í heil- brigðiskerfinu ætti ekki að koma í veg fyrir það. Enginn yrði verr settur með betri nýtingu þessara skurðstofa. Þvert á móti er hægt að færa rök fyrir því að aukin notkun skapi tækifæri til að standa undir og réttlæta frekari uppbyggingu. Samhliða fær heilbrigð- isstarfsfólk úr fleiri atvinnu- tækifærum að velja. Mann- auðurinn er það verðmætasta við heilbrigðiskerfið. Það er því vel til þess vinnandi að hlúa vel að honum og finna farveg fyrir nýjar áskoranir. Vegna efnahagshrunsins er hver króna nú dýrmæt. Betri nýting fjármuna gerir okkur kleift að halda áfram uppi fullkomnu heilbrigðiskerfi. Mannauðurinn er það verðmætasta við heilbrigðiskerfið} Heilbrigð innrás Margir hafaorðið fyrir vonbrigðum með það hversu stutt skref hin nýja pen- ingastefnunefnd Seðlabankans steig er hún lækkaði vexti aðeins um eitt prósentustig. Það eru vel skilj- anleg vonbrigði; vaxtastigið er að sliga bæði fyrirtæki og heimili. Peningastefnunefndin dreg- ur hins vegar fram önnur rök; að fara verði varlega í vaxta- lækkun til að viðhalda geng- isstöðugleika, sem er sömu- leiðis mikið hagsmunamál heimila og fyrirtækja. Geng- isfall, sem fylgdi vaxtalækkun, væri ekki eftirsóknarvert. Það er mikilsvert að pen- ingastefnunefndin hefur ákveðið nýjan vaxtaákvörð- unardag eftir þrjár vikur og gefur vonir um að þá verði vaxtalækkunarferlinu haldið áfram. Mest er um vert að það er hafið. Menn verða að horfast í augu við að ýmislegt verður að gerast áður en vextir verða komnir á sambærilegt stig og í samkeppnis- löndum okkar. Ein forsenda þess að ná niður vöxtunum og aflétta gjaldeyrishömlum er að samningar takist við eig- endur krónubréfa, sem koma í veg fyrir að þeir rjúki með peninga sína út úr hagkerfinu allir í einu. Það er ekki raunhæft að ætla að vextir verði svipaðir og í nágrannalöndunum innan fárra mánaða, eins og Vil- hjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segist vonast til í Morgunblaðinu í gær. Ein ástæða þess er gjaldmiðils- kreppan sem Ísland býr við. Nýr gjaldmiðill er forsenda þess að Íslendingar geti von- azt eftir sambærilegu vaxta- stigi og nágrannaþjóðirnar. Það er því rétt, sem Ólafur Darri Andrason, hagfræð- ingur Alþýðusambandsins, segir í blaðinu í gær að lítil vaxtalækkun nú er hluti af kostnaðinum við krónuna. Þetta er staðreynd, sem fólk verður að horfast í augu við. Háir vextir eru hluti af kostnaðinum við krónuna} Hænuskref í rétta átt Í vikunni sáust tvö ljós myrkrinu sem umlykur íslensk stjórnmál um þess- ar mundir. Annað kviknaði þegar ríkisstjórnin kynnti eflingu baráttu gegn mansali, sem er eitt and- styggilegasta form skipulagðar alþjóðlegrar glæpastarfsemi. Hitt sneri að áformum stjórnvalda um kynjaða hagstjórn hér á landi, sem felur í sér að kynjasjónarmið séu höfð að leiðarljósi þegar ákvarðanir í efnahagsmálum eru tekn- ar. Ekki voru þó allir ánægðir með þessi áform. Í pistli sem sjálfstæðismaðurinn Gísli Mar- teinn Baldurson birti á bloggi sínu í vikunni var yfirskriftin „Kynjað ráðaleysi“. Gísli Marteinn telur að ríkisstjórnin aðhafist fátt sem máli skipti en segir: „Að vísu er hún að setja lög um súludans og „kynjaða hagstjórn“. Það mun aldeilis gera gæfumuninn fyrir heimilin í landinu“. Í þessum orðum Gísla Marteins felst það viðhorf að þrátt fyrir að heill efnahagur, sem byggðist á karlmið- uðum kapítalisma, hafi hrunið til grunna, þurfi ekki nýja hugsun. Gísli Marteinn virðist telja að það að taka tillit til kynjasjónarmiða í efnahagsmálum sé tímasóun – einskonar gæluverkefni sem ekki sé mikilvægt. Þegar ég les það sem sjálfstæðismenn skrifa og hlusta á þá tala þessa dagana, finnst mér stundum eins og þeir hafi misst af því þegar kerfið þeirra hrundi. Nú stíga þeir galvaskir fram og bjóða þjóðinni krafta sína. Einn notaði slagorðið „verk að vinna“ í prófkjörsbaráttunni, sem einhverjum kynni að finnast heldur kaldhæðnislegt. Þá heyrist gamalkunnur söngur um eyðslusama vinstrimenn. Vita sjálfstæð- ismenn virkilega ekki að við erum skítblönk? Í þeim þrengingum sem framundan eru hefur þjóðin gott af því að hugsa hlutina upp á nýtt. Sú ákvörðun að taka tillit til kynjanna í hagstjórn landsins er einn liður í því. Ekki þurfa allar slíkar aðgerðir að reyn- ast kostnaðarsamar, en sumar krefjast vissulega verulegra fjármuna. Í þessu sam- bandi má nefna stjórnlagaþing, sem rætt hefur verið um að koma á fót. Talað hefur verið um að slíkt fyrirtæki gæti kostað yfir einn millj- arð króna. Þetta hefur m.a. þingmaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson gagnrýnt og telur of dýrt. Þá hefur varaformaður flokksins gert því skóna að velja þurfi á milli stjórnlagaþings og almennilegrar rannsóknar á bankahruninu. En spyrja má hvort ekki sé fokið í flest skjól fyrir þjóð sem ekki telur sig lengur hafa efni á lýðræðinu. Væri þá ekki líka hægt að sleppa því að rannsaka efna- hagshrunið og segja Ísland til sveitar? Spurningin er kannski helst sú hvort einhver gæti hugsað sér að taka við okkur. elva@mbl.is Elva Björk Sverrisdóttir Pistill Kapítalísk úrkynjun Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is A nders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dan- merkur, er talinn standa best að vígi sem arftaki Jaaps de Hoop Scheffer á stóli framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Hann hef- ur mikla reynslu úr stjórnmálum, sem talið er að nýtist þegar skil- greina þarf stefnu og framtíðarsýn bandalagsins. Þýskir fjölmiðlar hafa sagt að Rasmussen njóti stuðnings atkvæðamestu Evrópuríkjanna í NATO, Breta, Frakka og Þjóðverja. En ekki er ljóst hvar Bandaríkja- menn standa. Vakti athygli þegar Joseph Biden, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði í höfuðstöðvum NATO í liðinni viku að Bandaríkja- menn væru enn að velta fyrir sér hvern þeir ættu að styðja og til greina kæmi að næsti framkvæmda- stjóri kæmi frá landi utan Evrópu. Staða framkvæmdastjóra NATO er ekki auglýst laus til umsóknar og ekki er hægt að tala um framboð Rasmussens. Hann hefur ekki lýst yfir áhuga á starfinu opinberlega og útilokar ekki að hann hafi áhuga. Danskir fjölmiðlar hafa sömuleiðis mikinn áhuga á málinu. Í heimsókn fjölmiðlamanna frá Norðurlönd- unum í lok liðinnar viku spurðu dönsku blaðamennirnir vart um ann- að en möguleika Rasmussens. Þeir uppskáru lítið annað en loðin svör og kurteislegar yfirlýsingar um ágæti danska forsætisráðherrans. James Appathurai, talsmaður Atlantshafs- bandalagsins, greindi blaðamönnum frá því að fyrirspurnum frá dönskum fjölmiðlum rigndi yfir upplýs- ingaskrifstofu bandalagsins. Þeir vildu fá að vita hvernig bíl vænt- anlegur framkvæmdastjóri fengi til umráða, hver farkostur maka hans yrði, hvernig væri umhorfs í híbýl- um framkvæmdastjórans og hvort ekki væri sjálfsagt að fá að mynda stofurnar, svefnherbergin og kló- settin. „Við þessum spurningum hef ég aðeins eitt svar og það er: nei,“ sagði Appathurai. Rasmussen er ekki óumdeildur meðal aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins. Tyrkir hafa ákveðnar efasemdir og kemur þar tvennt til, að Danir skuli leyfa rekstur fjölmið- ils, sem er hliðhollur PKK, sam- tökum Kúrda, í Danmörku og af- staða hans til skopmyndanna af spámanninum Múhameð í Jyllands- Posten á sínum tíma. Í tyrkneskum fjölmiðlum hefur verið sagt að Rasmussen yrði óheppilegur tengi- liður við múslímaheiminn. Í einu blaðanna var slegið fram að enginn leiðtogi í Afganistan eða Pakistan þyrði að sjást í námunda við Rasm- ussen í ljósi þess að fyrir tveimur ár- um voru eftirmyndir hans brenndar á götum úti í þessum löndum. Ekki er talið líklegt að Tyrkir beiti sér leggist ekkert annað aðild- arríki gegn því að ráða Rasmussen, en þeir myndu vilja framkvæmda- stjóra frá ríki utan Evrópu sakir stirðra samskipta við Evrópusam- bandið út af aðildarmálum um þess- ar mundir. Þar kemur til sögunnar Peter MacKay, varnarmálaráðherra Kan- ada. Vangaveltur eru uppi um að Bandaríkjamenn styðji hann og það myndu Tyrkir ugglaust gera líka. Rasmussen er þó ekki út úr mynd- inni og kanadískir fjölmiðlar velta vöngum um það hvort ákvörðun Frakka um að ganga á ný að fullu inn í hernaðarsamstarf NATO myndi skaða sinn mann. Frakkar styddu Rasmussen og kynnu að fyrt- ast við ef ekki yrði orðið við óskum þeirra við svo sögulegt tækifæri. Mun Rasmussen leiða NATO? Reuters Vongóður Anders Fogh Rasmussen gerir sér vonir um að verða næsti fram- kvæmdastjóri NATO, en hefur þó ekki sagt það opinberlega frekar en aðrir. Ekki eru formlegir frambjóð- endur til stöðu fram- kvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins, en menn koma því til skila með ýmsum hætti að þeir gefi kost á sér. Að þessu sinni eru nokkrir nefndir til sögunnar. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráð- herra Danmerkur, þykir hafa forustuna. Hefð hefur verið fyrir því að framkvæmdastjórinn sé frá Evrópuríki, en nú er ekki víst að svo verði og beinast sjónir manna að Peter MacKay, varn- armálaráðherra Kanada. Í fjölmiðlum hafa „aðrir, sem ekki hafa áhuga“ verið nefndir og þeirra á meðal eru Radek Sikorski, fyrrverandi varnarmálaráðherra og núver- andi utanríkisráðherra Pól- lands, Alexandr Vondra, vara- forsætisráðherra Tékklands, og Anne-Grete Strom- Erichsen, varnarmálaráðherra Noregs. Það mun ráðast í kringum leiðtogafund Atlantshafs- bandalagsins í Strasbourg í byrjun apríl hver verður næsti framkvæmdastjóri. Til greina koma …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.