Morgunblaðið - 21.03.2009, Síða 40

Morgunblaðið - 21.03.2009, Síða 40
40 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2009 Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Valdi, Bjarni Daníel, Jana, Eygló, Haukur, Arnar og fjölskylda, Einar og fjölskylda, Ingibjörg mín og fjölskylda og Eva, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur þjóta beint yfir hafið til ykkar. Guðbjörg var ekkert smá heppin að eiga svona yndislega fjölskyldu sem stóð svo þétt við bak- ið á henni, það er alveg dýrmætast af öllu. Ljós Guðbjargar mun ávallt lýsa á meðal okkar allra. Elísa Björk Þorsteinsdóttir. Haustið 2007 hófu 55 einstakling- ar metnaðarfulla vegferð í MBA- námi við Háskólann í Reykjavík. Í þessu námi er mikið treyst á sam- vinnu og samspil hópa. Við undirrit- uð vorum svo heppin að veljast í hóp níu með Guðbjörgu á fyrstu önn. Samstarfið var farsælt og héldum við áfram að bera mál hvert undir annað eftir að önninni lauk, við höfð- um tengst böndum og ákváðum að standa saman í gegnum þykkt og þunnt. Hópurinn samanstóð af fimm ólíkum einstaklingum, sem vógu hver annan upp. Guðbjörg var í raun límið í hópnum með sinni ótrú- legu útgeislun og jákvæðni, en jafn- framt sinni eðlislægu hógværð og óeigingirni. Það voru mörg erfið verkefni sem biðu okkar haustið 2007. Hvort sem það voru reikn- ingsskil, hagfræði eða samninga- tækni þá var Guðbjörg alltaf vel undirbúin og hafði leyst verkefni sín þegar kom að skilum. Nákvæmni og öguð vinnubrögð lögfræðingsins komu þar að góðum notum fyrir hópinn. Reyndar var það svo að hópur níu eyddi miklum tíma í brandara, kjaftasögur og vitleysu, í stað þess að nota hann í þau verkefni sem stóð til að leysa. Guðbjörg stóð sig vel þarna sem á öðrum sviðum, enda hárbeittur húmor undir dagfar- sprúðu yfirborði hennar. Reynsla okkar og raunir haustið 2007 urðu til þess að við ákváðum að halda hópinn. Eftir stendur ógleym- anleg kvöldstund heima hjá Kidda sl. sumar þar sem Guðbjörg var svo hress og öll veikindi virtust fjarri. Þetta kvöld mun lifa í minningu okk- ar. Við þökkum Guðbjörgu fyrir að hafa auðgað líf okkar og sendum Valda, Jönu Björgu og Bjarna Daní- el, fjölskyldu, ættingjum og vinum samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Kristinn Eiríksson, Sigrún Eva Ármannsdóttir, Sigurður Tóm- as Björgvinsson, Snæbjörn Kon- ráðsson. Kveðja frá skólasystkinum í MBA-námi í HR Bekkjarsystir okkar Guðbjörg Bjarnadóttir er fallin frá. Orðin eru fá, hugsanirnar margar, tilfinningin sár. Við upphaf MBA-námsins haustið 2007 vorum við full eftirvæntingar tilbúin að leggja af stað í spennandi ferðalag þar sem ný vitneskja, verk- efni og vinátta biðu okkar. Við bekkj- arsystkin Guðbjargar kynntumst henni sem jákvæðri, yfirvegaðri og duglegri konu með óbilandi vilja- styrk. Hugrekki hennar og kjarkur voru eftirtektarverð. Hún var góður samstarfsfélagi og traustur vinur. Í MBA-nám fara þeir sem stöðugt vilja takast á við nýjar áskoranir og óvænt viðfangsefni. Þetta er tveggja ára ferðalag sem krefst mikils. Guð- björgu var falin erfið leið þar sem hún sýndi aðdáunarvert baráttuþrek og æðruleysi. Náminu fylgir góður félagsskapur, gleði og einlæg sam- vera. Þar sýndi Guðbjörg sínar bestu hliðar enda félagslynd og mikill húmoristi. Hún tók fullan þátt í þeim ótrúlegu uppákomum sem við höfum fengið að njóta í námi okkar. Þær minningar eru vel varðveittar. Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með því hvernig Guðbjörg og Valdi maður hennar tókust á við það stóra og erfiða verkefni sem veikindi Guðbjargar voru. Guðbjörg kenndi okkur að lífið er ekki sjálf- gefið og að njóta þess meðan það varir. Við fyllumst stolti af bekkjar- systur okkar og fjölskyldu hennar, sem var henni allt. Kæri Valdi, Jana Björg, Bjarni Daníel og aðrir ástvinir, hugur okkar er hjá ykkur. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Við erum elsku Guðbjörgu þakklát fyrir sam- veruna. Ljúfar minningar leiða okk- ur áfram. Fyrir hönd MBA-bekkjarsystkina í Háskólanum í Reykjavík, Hildur Björk Hilmarsdóttir. Það var í gamla Versló við Grund- arstíg, sem leiðir okkar og Guðbjarg- ar lágu saman haustið 1990. Við höfðum allar tekið eftir Guðbjörgu úr stórum hópi nemenda sem sest höfðu á fyrsta ár í lögfræði við HÍ. Hún sat frekar framarlega í stóra salnum á fyrstu hæðinni, í yfirhöfn með grænbláu indíánamynstri og fylgdist af athygli með lærifeðrum okkar segja okkur af fons juris, frá- vísun ex officio og fleiri æsandi um- fjöllunarefnum almennrar lögfræði. Við röðuðumst saman í saumaklúbb strax á fyrsta ári námsins; sauma- klúbbinn „Jússurnar“, en nafnið þótti hafa augljósa lögfræðilega skír- skotun. Okkur varð fljótlega ljóst að í Guðbjörgu bjó dugnaðarforkur og gæðablóð, sem var ekki vön því að mikla fyrir sér hlutina. Hún vatt sér einfaldlega í öll verk af sjálfsaga og samviskusemi, og ekkert verkefni hefur nokkurn tímann verið of lítið – né of stórt – til þess að Guðbjörg sinnti því skipulega, með jafnaðar- geði og af æðruleysi. Guðbjörg stóð sig frábærlega í náminu en að því loknu héldum við vel hópinn og auk saumaklúbbanna tóku við hádegisfundir, jólahlaðborð og haustferðir um borgir Evrópu. Þannig stýrði Guðbjörg meðal ann- ars fjörugum magaæfingum okkar í Lúxembúrgargörðunum í París og rödduðum söng fyrir lögreglumenn í Rómarborg. Á hinum ýmsu fundum okkar fengum við fréttir um hvernig lífi Guðbjargar vatt fram: „Við Valdi er- um að fara að gifta okkur“, „við eig- um von á barni“, „ég er aftur komin af stað“, „ég er orðin raðhúseigandi“. Það var alltaf auðvelt að samgleðjast Guðbjörgu í velgengni hennar, enda ekki til öfund eða meinfýsni í hennar eigin beinum. Það var svo á einum af okkar fjölmörgu hádegisfundum í miðbæ Reykjavíkur í upphafi árs 2005 að Guðbjörg flutti okkur skelfi- leg tíðindi. Þessi stund greyptist í huga okkar þótt okkur grunaði ekki að þessi tíðindi myndu kalla fram kveðjustund eftir einungis fjögur ár. Þetta hlaut að vera góðkynja. Hún hlaut að vinna á þessu. Við ætluðum að sjá hana byggja sig upp aftur eftir veikindin, og heyra áfram tíðindi af lífi hennar og Valda, af Bjarna Daní- el og Jönu Björgu sem hún var svo óskaplega stolt af, starfsferlinum, barnabörnum. En sagan endaði ekki þannig. Guðbjörg þurfti að kveðja okkur aðeins 38 ára gömul og það er svo óendanlega sorglegt að við náum varla utan um það. En það vantaði ekki, að veikind- unum var mætt með sömu persónu- einkennum Guðbjargar og öðrum verkefnum. Þessu ógnarstóra verk- efni – sem að lokum varð stærra en lífið sjálft – sinnti Guðbjörg af svo ótrúlegu jafnaðargeði og æðruleysi, að öðru eins höfum við aldrei kynnst. Jafnvel sjálfur dauðinn gat ekki mát- að hana, heldur tókst henni á undra- verðan hátt að sættast við hans verk- efni líka, með dyggum stuðningi Valda og fjölskyldunnar. Við hinar værum þakklátar fyrir að geta til- einkað okkur brotabrot af þessum eiginleikum Guðbjargar eftir nítján ára samfylgd. Elsku Valdi. Við erum hrærðar yf- ir því hvernig þú hefur staðið eins og klettur við hlið vinkonu okkar „í blíðu og stríðu“. Bjarni Daníel og Jana Björg. Þið hafið hlotið í vega- nesti þann dýrmæta fjársjóð sem við vitum að einstakir mannkostir móð- ur ykkar hafa skilað ykkur. Við vott- um ykkur og Eygló, Hauki og systk- inum Guðbjargar okkar dýpstu samúð. Áslaug, Jóna Björk, Sigríður (Níní) og Sigurlaug. Það var í Verzló, haustið 1986, sem við kynntumst og bundumst þeim böndum sem hafa haldið æ síðan. Guðbjörg kom okkur strax fyrir sjónir sem aðlaðandi og hlý. Hún lét ekki mikið yfir sér, var mjög yfirveg- uð en fljótt kom í ljós hin sterka kappsama íþróttastelpa sem kallaði ekki allt ömmu sína. Hún hafði ung misst föður sinn, þá elst fjögurra systkina og kom sá þroski sem sú reynsla færði henni sterkt fram í hennar karakter. Þrátt fyrir að vera yngst okkar, ári á undan í skóla, fannst okkur hún oft vera eldri en við hinar. Hún varð fljótt ein af kjarn- anum sem hélt bekknum saman, ljúf, góð, brosandi og hress – manneskja sem allir vilja hafa í hóp enda er vinahópur hennar fjölmennur. Í bekknum bar hún af hvað samvisku- semi varðar, ótrúlega skipulögð. Þrátt fyrir að hafa nóg að gera í æf- ingum, keppni og vinnu var hún allt- af búin að læra heima og nutu ónefndir bekkjarbræður stundum góðs af því. Hún tók virkan þátt í fé- lagslífinu, hafði gaman af að dansa og syngja og gerði óspart grín að því að hún komst ekki í kórinn hjá Jóni Ólafs. En satt best að segja þá furð- uðum við vinkonurnar okkur á því, þar sem hún söng vel og af innlifun. Í Verzló kom Valdi til sögunnar. Þau voru glæsilegt par, en alla tíð mjög ólík. Guðbjörg, þessi yfirveg- aða dama og hann sprelligosinn, og átti hún það til að roðna þegar Valdi var í essinu sínu. Samband þeirra þroskaðist farsællega, þau voru sjálfstæð sem persónur en samstiga, það var alltaf gott að koma til þeirra í Haukalindina. Guðbjörg sýndi ótrúlegt æðruleysi í veikindum sínum og það lýsir henni vel sem hún sagði fyrir skömmu við eina okkar: „Það er svo margt sem maður hefði getað gert öðruvísi í líf- inu, en það þýðir ekkert að vera að velta sér upp úr því. Maður á bara að þakka fyrir hvern dag og njóta þeirra tækifæra sem maður fær. Það þýðir ekkert að vera að gera einhver ársplön, það á bara að njóta lífsins núna.“ Og þarna voru þau Valdi sam- stiga sem aldrei fyrr. Valdi hefur staðið þétt við hlið Guðbjargar í veik- indum hennar og sýnt mikinn styrk. Við bekkjarsysturnar úr 6.-X höf- um haldið hópinn síðan í Verzló og ýmislegt verið brallað. Hópurinn hefur hist nokkuð reglulega og sér- staklega nú á undanförnum árum. Saumaklúbbar, matarboð og ferð til Kaupmannahafnar haustið 2003 stendur upp úr. Veikindi Guðbjargar urðu svo til þess að hópurinn þjapp- aðist ennþá frekar saman. Við viljum þakka Guðbjörgu fyrir samfylgdina í þessu ferðalagi. Fyrir okkur var hún fyrst og fremst ljúf, góð og traust manneskja. Hún hefur skilið eftir falleg spor í hjarta þeirra sem henni hafa kynnst og verið okkur öllum fyrirmynd. Þýtur í stráum þeyrinn hljótt, þagnar kliður dagsins. Guð er að bjóða góða nótt í geislum sólarlagsins. (Ísl. kvæðalag) Við vottum Valda, Bjarna Daníel, Jönu Björgu, Eygló, Hauki, tengda- foreldrum, systkinum og fjölskyld- um þeirra innilega samúð. Ásta, Birgitta, Eyrún, Guðrún Ágústa, Harpa, Jóhanna, Ragn- heiður og Una Björk. Mig langar með nokkrum orðum að minnast Guðbjargar Bjarnadótt- ur sem lést langt fyrir aldur fram hinn 10. mars síðastliðinn. Við í Landsbankanum urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að starfa með Guðbjörgu um þriggja ára skeið, ár- in 2001-2004. Hún hafði áður starfað sem lögfræðingur hjá Fjármálaeft- irlitinu en síðan um tíma sem innri endurskoðandi Frjálsa fjárfesting- arbankans. Það var því einstaklega kunnáttusamur lögfræðingur sem þarna bættist í hóp lögfræðiráðgjaf- ar Landsbankans. Guðbjörg gekk skipulega til verks, var fljót að greina aðalatriðin í hverju máli og hafði þann mikilvæga eiginleika að klára þau verkefni sem hún tók að sér. Ég minnist þess að bréf eða álit sem hún vann voru ávallt sett upp á skýran hátt og hversu vandað mál- farið var. Greining hennar á lög- fræðilegum álitaefnum var ætíð ígrunduð og sett fram á þann hátt að erfitt var að andmæla. Hennar kostir gerðu hana að ákaflega mikilvægum starfsmanni og mikil eftirsjá var að henni þegar hún ákvað að snúa aftur til Fjármálaeftirlitsins. Starfsemi Fjármálaeftirlitsins var henni hins vegar hugleikin enda taldi hún krafta sína nýtast best þar. Eigin- leikar sem Guðbjörg hafði í mjög rík- um mæli, sem eru réttsýni, heiðar- leiki og staðfesta, eru eiginleikar sem eru mikilvægir starfsmanni Fjármálaeftirlitsins. Guðbjörg gaf frá sér góða strauma hvar sem hún kom með jákvæðu og brosmildu við- móti. Hún var mikill gleðigjafi á mannamótum og ófeimin við að gera gys að sjálfri sér ef henni varð eitt- hvað á. Á sama tíma var hún föst fyr- ir og óhrædd við að láta í sér heyra ef henni þótti á öðrum brotið. Ég færi Valda, Bjarna Daníel og Jönu Björgu innilegustu samúðarkveðjur frá fyrrverandi samstarfsmönnum í Landsbankanum. Ykkar missir er mikill en eftir lifir minning um ein- staka konu sem ég efast ekki um að heldur áfram að vera ykkur fyrir- mynd í góðum verkum um ókomin ár. Gunnar Viðar. Guðbjörg Bjarnadóttir  Fleiri minningargreinar um Guð- björgu Bjarnadóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sími: 525 9930 hotelsaga@hotelsaga.is www.hotelsaga.is Hótel Saga annast erfidr ykkjur af virðingu og alúð. Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta. Erfidrykkjur af alúð ✝ Elskuleg systir okkar og móðursystir, GUÐBORG KRISTJÁNSDÓTTIR frá Dalsmynni, Hringbraut 99, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 14. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 23. mars kl. 13.00. Anna S. Kristjánsdóttir, Ella Kristjánsdóttir, systrabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, INGI SÆVAR ODDSSON, Asparási 1, Garðabæ, lést á Landspítalanum Hringbraut fimmtudaginn 19. mars. Útför hans verður auglýst síðar. Þuríður Antonsdóttir, Hrafnhildur Ingadóttir, Barði Ágústsson, Oddur Ingason, Gunnar Ingason, Svanhildur Kristinsdóttir, Ómar Ingason, Aníta Berglind Einarsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, AUÐUN HLÍÐAR EINARSSON, Neshaga 14, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtu- daginn 19. mars. Útför hans verður frá Neskirkju fimmtudaginn 26. mars kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund. Karen Tómasdóttir, Halla Auðunardóttir, Hannes Auðunarson, Heiða Björk Marinósdóttir, Katrín Auðunardóttir, Björn Oddsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.