Morgunblaðið - 21.03.2009, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 21.03.2009, Qupperneq 54
54 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2009 Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞESSI mynd er fyrst og fremst um tilfinningar og samskipti, og hún fjallar um fólk,“ segir kvikmynda- gerðarmaðurinn Friðrik Guðmunds- son um heimildarmyndina Me & Bobby Fischer sem verður frumsýnd hinn 17. apríl nk. Myndin fjallar um skáksnillinginn Bobby Fischer og vináttu hans og Sæmundar Páls- sonar, Sæma rokk, og hófst vinna við hana þegar Sæmi fór ásamt fríðu föruneyti til Japans til þess að fá Fischer lausan úr fangelsi. „Þessi mynd er búin að taka helj- arinnar tíma, ég held að það séu bara akkúrat fjögur ár frá því ég var í Jap- an,“ segir Friðrik og bætir því við að hugmyndin hafi alltaf verið sú að fylgja Sæma eftir í myndinni, og láta hann segja söguna. „Myndin er eiginlega jafnmikið um þá báða. Hún byrjar reyndar í kalda stríðinu og svo er farið hratt yfir sögu. Við skellum okkur yfir til Jap- ans þar sem Sæmi er að reyna að frelsa vin sinn. Svo heldur sagan bara áfram þangað til Bobby deyr. En þetta var aldrei hugsað sem mynd um Bobby einan, ég hefði aldrei nennt að gera slíka mynd. En þegar þeir koma saman er mjög gaman að fylgjast með, því annar sparkar í allt sem fyr- ir verður á meðan hinn dásamar allt sem hann sér,“ segir Friðrik. Deilt um peninga Fyrir tæpum tveimur árum bárust af því fréttir að Fischer væri ósáttur við að Friðrik væri að gera um sig mynd, en RJF-hópurinn, stuðnings- hópur Fischers, sendi þá frá sér til- kynningu þar sem meðal annars kom fram að viðfangsefnið væri í miklu ósamræmi við það sem rætt hafði verið um. Aðspurður segir Friðrik þetta mál hafa verið á misskilningi byggt, og hann telur raunar að Fisch- er hafi aldrei verið á móti gerð mynd- arinnar. „Ég gerði heið- ursmanna- samkomulag við hann á sínum tíma þar sem hann sagði að ég mætti eiga efnið og gera það sem ég vildi við það. Aftur á móti held ég að RJF-hópurinn hafi alla tíð verið ósáttur við að ég væri að gera þessa mynd,“ segir Friðrik og bætir því við að málið sé nokkuð flókið. „Á ákveðnum tíma- punkti slettist aðeins upp á vinskap- inn hjá Sæma og Bobby af því að Bobby fannst að Sæmi hefði ekki látið sig fá nógu góðan lögfræðing í ákveðnu máli. En það var náttúrlega voðalega erfitt að gera honum til hæf- is yfirleitt. En svo förum við að ræða þessa mynd, og þá fréttir Bobby að ég hafi gefið Sæma 15% hlut í mynd- inni. Ég sagði við Bobby að ef þetta snerist um peninga mætti hann bara eiga 15% líka. Það er eins og margir hafi nefnilega haldið að þessi mynd snerist um einhvern gullgröft. Það er ekki rétt, eini styrkurinn sem ég hef fengið er 500.000 krónur frá Íslenskri erfðagreiningu. Myndin kostar 40 milljónir þannig að ég er bara búinn að éta kartöflur í þrjú ár,“ segir Frið- rik og hlær. „En allavega, þá vildi Bobby ekki að Sæmi fengi neitt fyrir þessa mynd. Þar sem ég var búinn að gera samkomulag við Sæma vildi ég hins vegar ekki svíkja það.“ Friðrik segir að leiðangur Sæma til Japans hafi kostað hann mikla pen- inga, og því hafi hann viljað gefa hon- um hlut í myndinni. „Mér fannst nokkuð eðlilegt að ef myndin myndi einhvern tímann skila hagnaði fengi Sæmi hluta af því. Þannig að ég sagði bara nei við Bobby, en bauð honum 30% í staðinn. Hann tók það ekki heldur í mál því hann vildi ekki að vin- ur sinn græddi á sér.“ Friðrik segir að þótt myndin hafi kostað 40 milljónir hafi sér tekist að gera hana án þess að fjármagna hana. „Ég fékk bara greiða hjá hinum og þessum, fékk lánuð tæki og svona. Svo hef ég verið með tvær mann- eskjur sem hafa ekki þegið laun, Dögg Mósesdóttur klippara og Reyni Frey Reynisson, annan leikstjóra.“ Friðrik vonar því að myndin slái í gegn og hann fái þannig laun eftir á. „Aðalatriðið er hins vegar að ég klár- aði myndina, enda er ég orðinn mjög ánægður með hana.“ Me & Bobby Fischer verður frum- sýnd á Græna ljósinu hinn 17. apríl auk þess sem Sjónvarpið hefur keypt sýningarréttinn að henni. „Ef hún nær ekki 120.000 manns í bíó eins og hún þarf fer ég svo bara að vinna á valtara eða í sjoppu,“ segir Friðrik að lokum og hlær. Ég og Bobby Fischer  Heimildarmyndin Me & Bobby Fischer verður frumsýnd hinn 17. apríl nk.  Fjallar um Fischer og Sæma Rokk  Kostaði blóð, svita og tár – og 40 milljónir Vinir Sæmi og Fischer á kynningarveggspjaldi myndarinnar. Friðrik Guðmundsson Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is DANIEL Chun er fæddur 1980, út- skrifaður frá Harvard og eftir aðeins sex ára vinnu (sem fer fram í fimm- tán manna teymi) er hann orðinn einn af meðframleiðendum þátt- anna. Blaðamaður tók einn lauflétt- an morgunkaffi með Chun á Lauga- veginum en hann er hér í slagtogi með gömlum og góðum félögum sem hafa færri tækifæri til að hittast nú en áður, eins og gengur. „Ég bý núna í L.A. en þar er skrif- stofa höfundanna. Ég sé strákana sjaldan og okkur fannst því upplagt að drífa okkur hingað í smáfrí.“ Chun hóf að vinna fyrir Simpsons þegar komið var fram í fimmtándu þáttaröð og segir hann flest það sem að þættinum snúi sé orðið harla fast- mótað. „Það er sannarlega haldið á spöð- unum þarna og það er ekkert færi á því að umbylta neinu þarna lengur. Þetta eru orðin hálfgerð vísindi mætti segja.“ Hómer í hættu? Chun er eðlilega meðvitaður um þau gríðarlegu menningarlegu áhrif sem þættirnir hafa haft í gegnum ár- in. Í þáttunum veigra menn sér ekki við að skjóta hvað sem er niður, meira að segja sjónvarpsstöðina sem hýsir þá. „James L. Brooks, einn frumhöf- unda Simpsons, setti þá kröfu fram strax í upphafi að Simpsons yrðu fullkomlega frjálsir undan hvers kyns ritskoðun,“ segir Chun. „En þetta hefur aðeins verið að breytast undanfarin ár, eftir því sem hefur kreppt að. Núna eru t.a.m. ákveðin vörumerki sem við getum ekki snúið upp á lengur. Það verður athygl- isvert að sjá hvernig þau mál þróast. En í öllu falli er ekki hægt að hugsa sér betri vinnustað, eins og þú getur líklega ímyndað þér!“ Kæfir kreppan Simpsons? Morgunblaðið/Ómar D’oh! Chun ásamt feðginunum, Hómer og Lísu.  Einn af handritshöfundum The Simpsons er staddur hérlendis í leyfi  Handritavinnan hálfgerð vísindi  Útvarpsmaðurinn og tónleika- haldarinn skeleggi Ómar Eyþórs- son fer með nýjan þátt í loftið á X-977 eftir rétta viku, laugardag- inn 28. mars, kl. 10. Ber þátturinn nafnið Kassettan og verður helg- aður grasrót íslenskrar tónlistar. Tónlist sem er nýkomin í spilun á stöðinni verður leikin en það sem mest er um vert er að hljómsveitir og listamenn geta sent lögin sín til umsjónarmanns sem tekur þau til skoðunar. Stefnt er svo að því að velja eitt lag úr nýja bunkanum í mánuði og henda í spilun á X-977. Víst er að þáttur þessi á eftir að reynast öflugur liðsmaður íslensks tónlistarlífs og metnaðarfullar sveitir fá gott tækifæri til að koma sér á framfæri. Framtak sem aðrar útvarpsstöðvar ættu að taka sér til fyrirmyndar. Áhugasamir geta sent póst á omar@x977.is. Grasrótin í beinni Fólk TVÆR íslenskar sveitir, Bloodgroup og Sprengjuhöllin, eru nú staddar á tónlistarhátíð- inni SXWS eða South By South West í Austin, Texas. Hátíðin er ein virtasta hátíð sinnar teg- undar og sannanlega sú umfangsmesta. Sveitirnar tvær hafa þegar náð að vekja nokkra athygli sem verður að teljast firnagóð- ur árangur, enda spila yfir þúsund hljómsveitir þarna í hverjum kústaskáp. Time Out í Chicago valdi t.a.m. Sprengju- höllina sveit dagsins á fyrsta degi hátíðarinnar. Blaðamaður segist ekki geta borið fram nafnið frekar en aðrir lesendur en segir að forsöngv- arinnar, Bergur Ebbi, hafi þó eytt liðlega þremur mínútum í að útskýra framburðinn. Hann segir svo að þetta sé sveit sem fólk ætti að leggja sig eftir. „Sveitin var skemmtilegri en orð fá lýst. Söngvarinn er einn fyndnasti sviðsmaður sem ég hef lengi séð og vafði fólki um fingur sér. Orkuríkt poppið var síðan flutt af gegnheilli ástríðu.“ Bloodgroup treður upp í kvöld og sjálf bibl- ían Spin setur sveitina í efsta sætið á níu hljómsveita lista sem tekur yfir þau „óþekktu“ bönd sem fólk ætti ekki að missa af. Næsta þriðjudag spila sveitirnar svo saman í New York. Bloodgroup er svo bókuð á tvær aðrar hátíðir, North By Northeast og G! Festival. Ný breiðskífa frá hljómsveitinni kemur svo út í haust en frumburður sveitarinnar, Sticky Sit- uation (2007) var mærð í bak og fyrir af máls- metandi gagnrýnendum. Íslendingar vekja athygli á SXSW Morgunblaðið/Valdís Thor Skemmtilegir Blaðamaður gat ekki á heilum sér tekið eftir að hafa séð Sprengjuhöllina.  Árlegt ball hinna ástsælu Spaða, „gáfuðustu hljómsveitar landsins“, verður haldið á NASA í kvöld. Þar fara m.a. mikinn þeir Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Gunn- ar Helgi Kristinsson, stjórnmála- fræðingur og Sigurður G. Val- geirsson, fjölmiðlamaður. Sveitin er ein helsta költsveit landsins og nú eru tvö ár liðin frá síðasta „árlega“ balli (?). Sveitin hefur annars mest verið að spila í Flatey undanfarin misseri, af ein- hverjum sökum. Fylgismenn sveit- arinnar þykja harðsnúnir og koma úr ýmsum og undarlegum áttum; menntaskólabekkur einn lætur sig t.a.m. aldrei vanta á tónleika og þorpsbúar í Rifi á Snæfellsnesi eru víst forfallnir aðdáendur. Liðsmenn Spaða hafa annars þungar áhyggjur af því að vera orðnir of „mainstream“ eins og það er kallað, en gáskafullar hljóm- sveitir sem styðjast við kjarnyrta og kerskna texta eru æði algengar í dag. Spurning hvernig þeir bregð- ast við því? „Mainstream“ Spaðar!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.