Morgunblaðið - 16.05.2009, Page 18
18 FréttirALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
RÆÐUKÓNGAR Alþingis á þessari öld eru nú sestir í ríkisstjórn að
Pétri H. Blöndal undanskildum sem talaði lengst allra á nýafstöðnu
þingi.
Allt þar til Pétur náði titlinum, höfðu þingmenn Vinstri grænna skipt
honum á milli sín. Steingrímur J. Sigfússon talaði lengst á fjórum þing-
um af níu á öldinni, Jón Bjarnason á þremur þingum og Ögmundur Jón-
asson á einu þingi. Steingrímur á metið frá 127. þinginu, þegar hann
kom 471 sinni í ræðustól og talaði í tæpar 44 klukkustundir. Þess ber að
geta að 129. og 134. þingin voru stutt og teljast ekki með í meðfylgjandi
töflu.
Þegar ríkistjórnarskipti urðu 1. febrúar sl. bar svo við að ferðum þre-
menninganna í VG í ræðustól Alþingis fækkaði stórlega en þingmenn
Sjálfstæðisflokksins færðust allir í aukana. sisi@mbl.is
Ræðukóngarnir eru
sestir í ríkisstjórn
0
! +& 7 !-1
8!&& 7( "
7(9 !& (00
0
! +& 7 !-1
8!&& 7( "
7('% "
8!&& 7( "
0
! +& 7 !-1
7('% "
!"
!"#
"!"
!
"!
!
! $ %
$% $
#0
0 +
0
! +& 7 !-1
8& #9: "
;& %() 0%<"=
"
7('% "
0
! +& 7 !-1
;& %() 0%<"=
7('% "
8!&& 7( "
)"
1
( (00
!
!#
!"#
#!
!"
"!
#! !
#!
#0
0 +
7('% "
0
! +& 7 !-1
8!&& 7( "
0
! +& 7 !-1
7('% "
) 0 ;& >=
?:0& '
@
A
7($ !1"=>A
B
-9
& ! (00
!
!"
!
!
!
!"
!
!
! #0
0 +
ÞVÍ fylgir ætíð talsverð eftirvænt-
ing hjá þingmönnum þegar dregið
er um sæti í þingsalnum.
Sæti númer 13 þykir um margt
vera sérstakt. Sætið er gegnt ut-
anríkisráðherra og er jafnan nefnt
forsætisráðherrasætið, því í því
sátu forsætisráðherrar á árunum
1987-’91.
En fleira kemur til. Það hefur
nefnilega sýnt sig, að þeir sem
hreppa sætið hafa gjarnan átt vís-
an frama í þinginu. Meðal þing-
manna sem þarna hafa setið á öld-
inni eru Ásta R. Jóhannesdóttir,
Guðmundur Árni Stefánsson, Sól-
veig Pétursdóttir, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, Kristján Möller,
Katrín Júlíusdóttir og Jón Bjarna-
son. Þau tvö síðastnefndu eru ein-
mitt nýir ráðherrar í sitjandi rík-
isstjórn. Í gær hreppti Ragnheiður
Elín Árnadóttir sætið.
En seta í sæti 13 boðar ekki
alltaf gott. Síðust til að sitja þar
var Arnbjörg Sveinsdóttir, en hún
datt einmitt af þingi í síðustu
kosningum.
Jón Bjarnason Katrín Júlíusdóttir
Sæti núm-
er þrettán
boðar gott
ÝMSIR hafa velt
því fyrir sé
hvort 98 daga
seta nýkjörins
forseta Alþingis,
Ástu R. Jóhann-
esdóttur, í síð-
ustu ríkisstjórn
hafi verið sú
stysta í sögunni.
Svo reynist ekki
vera, þegar sag-
an er skoðuð.
Sá sem hefur setið styst í einni
ríkisstjórn er Ólafur Thors. Hann
kom inn í ráðuneyti Ásgeirs Ás-
geirssonar 14. nóvember 1932 í
kjölfar þess að Magnús Guðmunds
dómsmálaráðherra hafði í undir-
rétti verið dæmdur í 15 daga
fangelsi vegna aðildar að gjald-
þrotamáli. Magnús var sýknaður í
Hæstarétti og tók að nýju sæti í
ríkisstjórn 23. desember. Ólafur
vék úr stjórninni eftir 40 dag setu
sem dómsmálaráðherra. Ólafur
varð síðar ráðherra í mörgum
ráðuneytum í samtals rúm 16 ár.
Aðrir ráðherrar sem setið hafa
stutt eru Stefán Jóhann Stef-
ánsson utanríkisráðherra (1941),
61 dag og Jón Pálmason landbún-
aðarráðherra (1949), 99 daga.
sisi@mbl.is
Hefur ekki
setið styst
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Fylking Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands voru fremstir þegar gengið var úr Dómkirkjunni í alþingishúsið.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ALÞINGI Íslendinga kom saman í
gær í fyrsta sinn að loknum alþing-
iskosningunum. Búast má við því að
aðildarumsókn að Evrópusamband-
inu verði helsta mál hins nýja
þings.
Þingsetningarathöfnin hófst með
hefðbundum hætti kl. 13.30 með
guðsþjónustu í Dómkirkjunni. For-
seti Íslands, biskupinn yfir Íslandi,
forseti Alþingis, ráðherrar og al-
þingismenn gengu fylktu liði til
kirkju. Séra Helga Soffía Konráðs-
dóttir, prestur í Háteigskirkju, pre-
dikaði. Athygli vakti að nokkrir
þingmenn kusu að sækja ekki guðs-
þjónustuna, heldur stóðu í sólinni á
Austurvelli þegar gengið var til
kirkjunnar.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, setti 137. löggjafarþingið
og flutti stutta ræðu. Forsetinn
sagði m.a. að aldrei fyrr hefði al-
þingiskosningar borið að með slík-
um hætti og mikilvægt væri að geta
nú „fagnað því að þjóðin tók af ör-
yggi og festu valdið sem henni bar í
sínar hendur“.
Ólafur gerði einnig aðild-
arviðræður að Evrópusambandinu
að umtalsefni og sagði:
„Enn eru hér alþingismenn sem
kynntust því á yngri árum hvernig
ágreiningur um tengslin við önnur
ríki klauf þjóðina í herðar niður,
sundraði samstöðu á örlaga-
stundum. Allir vita að umræðan um
aðild Íslands að Evrópusambandinu
getur orðið, ef illa tekst til, efnivið-
ur í slíkan klofning og því þarf öll
meðferð málsins að vera með þeim
hætti að sem flestir verði sáttir.“
Að ræðu Ólafs lokinni hylltu
þingmenn fósturjörðina með fer-
földu húrra samkvæmt venju. Síðan
tók starfsaldursforseti, Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra, við
fundarstjórn, og stjórnaði kjöri
kjörbréfanefndar.
Móttaka var haldin í alþingishús-
inu og að henni lokinni voru kjör-
bréf afgreidd og nýir þingmenn
unnu drengskaparheit að stjórn-
arskránni. 20 þingmenn unnu eið-
inn. Starfsaldursforseti stjórnaði
síðan kjöri forseta, kosnir voru
varaforsetar og kosið í fastanefndir
Alþingis og til Íslandsdeilda þeirra
alþjóðasamtaka sem Alþingi á aðild
að. Að síðustu var hlutað um sæti
þingmanna samkvæmt venju.
Nýkjörinn forseti, Ásta R. Jó-
hannesdóttir, boðaði endurskoðun á
starfsháttum og vinnutíma þingsins.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra flytur stefnuræðu sína
mánudagskvöldið 18. maí og hefst
hún klukkan 19.50. Bein útsending
verður frá umræðunni í útvarpi og
sjónvarpi.
ESB efniviður í klofning
Forseti Íslands sagði að meðferð ESB-málsins yrði að vera með þeim hætti að
sem flestir yrðu sáttir Þjóðin tók valdið sem henni bar í sínar hendur
Morgunblaðið/Kristinn
Eiður Svandís Svavarsdóttir er eini nýi þingmaðurinn sem jafnframt er ráð-
herra. Hún undirritaði í gær eiðstaf að stjórnarskránni og Helgi Bernódus-
son, skrifstofustjóri Alþingis fylgdist með.
Blað var brotið í sögu Alþingis
í gær við kjör forseta og vara-
forseta þingsins. Forsetinn og
allir varaforsetarnir eru konur.
Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, var kjörin forseti Al-
þingis með 59 atkvæðum. Þrír
greiddu ekki atkvæði og einn
þingmaður var fjarstaddur.
Sex varaforsetar voru kjörn-
ir: Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, Þuríður Backman,
Álfheiður Ingadóttir, Ragnheið-
ur Ríkharðsdóttir, Siv Friðleifs-
dóttir og Unnur Brá Konráðs-
dóttir.
Þetta eru mikil tíðindi því
lengst af hefur Alþingi verið
stjórnað af körlum. Frá end-
urreisn Alþingis árið 1845 allt
fram til 1961 voru karlar í for-
setastóli, en það ár var Ragn-
hildur Helgadóttir kjörin forseti
neðri deildar Alþingis. Guðrún
Helgadóttir var kjörin forseti
sameinaðs Alþingis fyrst
kvenna árið 1988. Alþingi hefur
starfað í einni deild frá árinu
1991 og hafa þrjár konur gegnt
embætti forseta Alþingis frá
þeim tíma, Salome Þorkels-
dóttir, Sólveig Pétursdóttir og
nú Ragnheiður Ásta Jóhann-
esdóttir.
Loks var kosið í fastanefndir
þingsins. Nefndir koma saman
á mánudag, þar sem kosnir
verða formenn og varafor-
menn.
Blað brotið á þingi