Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 60
Morgunblaðið/Þorkell
1993 Úr uppfærslu Þjóðleikhússins.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
LEIKRITIÐ Gauragangur eftir
Ólaf Hauk Símonarson verður sett
upp í Borgarleikhúsinu á næsta
leikári. Verkið sló í gegn þegar það
var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1993,
en síðan þá hefur það ekki verið
sett upp í stóru leikhúsunum.
„Leikritið er bráðskemmtilegt og
okkur fannst alveg kominn tími á
að það færi aftur á svið, en það
verða orðin 17 ár síðan það var
frumsýnt,“ segir Magnús Geir
Þórðarson, leikhússtjóri Borg-
arleikhússins, sem mun sjálfur leik-
stýra uppfærslunni. Gauragangur
segir frá unglingnum Ormi Óðins-
syni sem Ingvar E. Sigurðsson lék í
uppfærslu Þjóðleikhússins. | 52
Gauragangur í
Borgarleikhúsið
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 136. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
Það verður aldrei hægt að uppræta
skattsvik að fullu en til að lágmarka
áhuga skattborgaranna á að stunda
þau verða æðstu embættismenn þjóð-
arinnar að temja sér hófsemi og sýna í
verki að þeir fari sparlega með fjár-
muni þjóðarinnar. » 34
ÖRN GUNNLAUGSSON
Ég er formaður samtaka sem stofnuð
voru 20. apríl sl. og kallast Grasrótin.
Við erum félagsskapur fólks sem vill
breyttar áherslur í fíkniefnalöggjöfinni
hvað kannabis varðar. Við viljum aukn-
ar forvarnir og fræðslu því við trúum
því að fáfræði drepi. » 34
KLEÓPATRA MJÖLL GUÐMUNDSDÓTTIR
Aðgerða er þörf núna! Beinna og
skjótvirkra aðgerða sem stöðva
áhlaup vísitölu- og/eða gengis-
tryggðra lána á heimilin. » 35
PERCY B. STEFÁNSSON
Frá því breytingin var gerð hefur það
verið mörgum þyrnir í augum að sak-
felldir séu þeir sem ekki eru með fíkni-
efni í blóði heldur einungis í þvagi.
Rök þeirra eru þau að viðkomandi sé
ekki undir áhrifum fíkniefna. Lögin eru
alveg skýr um það að refsa skuli þeim
sem svo er komið fyrir » 36
ODDUR ÁRNASON
Það er því mjög mikilvægt fyrir þá
sem ætla að sinna viðhaldi í sumar og
fá til þess utanaðkomandi aðila, að
þeir athugi vel hvort þeir aðilar sem
þeir versla við séu þeir sem þeir segja,
þ.e. fagmenn með réttindi og þær
skyldur og ábyrgð sem þeim fylgja.
» 36
ÞORSTEINN V. SIGURÐSSON
Skoðanir
fólksins
SKOÐANIR»
Staksteinar: Veit um hvað hann er
að tala
Forystugreinar: Konur við stjórn
Konur og ofbeldi
Pistill: Holur hljómur í lýðræðis-
baráttu
Ljósvaki: Albanía er málið
Fanney og ísdrottningin
Amerískar pönnukökur
Ævintýrið í kringum
Söngvaseið
BÖRN»
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-+.
*/*-.*
*01-21
++-/34
*/-2/0
*,-043
**2-/0
*-2+3+
*/*-,2
*1*-*3
5 675 *4# 8 +00/
*+,-..
*/*-/3
*01-,3
+2-0.*
*/-441
*,-0/.
**4-++
*-22+*
*/+-+0
*1*-,,
+++-1+04
&9:
*+,-3.
*/+-4.
*01-//
+2-**3
*/-.04
*,-*4+
**4-.4
*-22,0
*/+-11
*1+-*4
Heitast 16 °C | Kaldast 8 °C
Austlæg eða breyti-
leg átt 5-10 m/s. Þoku-
loft við austurströnd-
ina, léttskýjað víðast
annars staðar. Hiti 8 til 16 stig »10
Ljósmyndarinn
Dagur Gunnarsson
hefur mest gaman af
að taka portrett og
mannamyndir, en
sýnir þó engar. »52
LJÓSMYNDUN»
Dagur kynn-
ir nýjan Dag
KVIKMYNDIR»
Hannibal Lecter snýr
aftur í nýrri mynd. »59
Sérstök sýning verð-
ur opnuð í Kling &
Bang í dag. Þar gef-
ur að líta eins konar
völundarhús, eða
draumaheim. »52
MYNDLIST»
Innan
seilingar
TÓNLIST»
Elton John hjálpar rapp-
aranum Eminem. »58
FÓLK»
Olivia Wilde er kyn-
þokkafyllst allra. »53
Menning
VEÐUR»
1. Evróvisjón-keppandi skelkaður
2. Forstjóri ... segir upp
3. Saxbygg í greiðslustöðvun
4. Svona fær maður bara einu sinni
Íslenska krónan styrktist um 0,98%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
GARÐYRKJUBÆNDUR á Flúðum hófu í gær að
planta út káli og allt fer á fulla ferð eftir helgi.
Starfsmenn Þorleifs Jóhannessonar á Hvera-
bakka fóru um garðana á útplöntunarvél. „Vorið
kom til okkar í dag,“ sagði Þorleifur en útplönt-
unin hefur dregist um fáeina daga vegna veðurs.
Plönturnar hafa verið forræktaðar í gróður-
húsum og þegar þær eru komnar í garðana er
akríldúkur breiddur yfir. Þorleifur er bjartsýnn
fyrir sumarið og segir að íslenskt grænmeti hafi
meðbyr hjá neytendum. Von er á fyrstu uppsker-
unni, kínakáli, í lok júní. helgi@mbl.is
Garðyrkjubændur á Flúðum eru byrjaðir að planta káli í garða
„Vorið kom til okkar í dag“
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„ÞETTA leggst vel í mig. Stífar æf-
ingar í vetur skila sér vonandi vel í
hlaupinu,“ segir Gunnlaugur Júl-
íusson hlaupari en hann mun taka
þátt í 48 klukkutíma hlaupi sem fram
fer 22.-24. maí í Borgundarhólmi í
Danmörku.
Hlaupið er á 1024 metra langri
braut sem er að hálfu malbikaður
stígur og að hálfu skógarstígur. Á
sex tíma fresti er skipt um hlaupaátt
og sigrar sá sem hleypur lengst á
uppgefnum tímamörkum.
Keppendur geta lagst til hvílu, ef
því er að skipta, meðan á hlaupinu
stendur.
Alls eru 28 hlauparar skráðir í
hlaupið. Þeir eru frá Norðurlöndun-
um.
Gunnlaugur segist búast við að
hlaupið verði mikil þolraun, en hann
hefur tvisvar áður tekið þátt í 24
tíma hlaupi á þessari sömu braut.
„Hlaup eins og þessi eru mikil þol-
raun, bæði fyrir líkama og sál. Þetta
er auðvitað svolítið erfitt, að vera að
þvælast sama hringinn í tvo sólar-
hringa,“ segir Gunnlaugur. Hann
varð í 4. sæti í fyrra í 24 tíma hlaup-
inu, sem jafnframt var opið danskt
meistaramót. Hann hljóp þá 217 km.
á þeim tíma, en það var jafnframt 3.
besti árangur 55 ára og eldri í heim-
inum, og sá 84. besti á heimsvísu.
„Ég er einu ári eldri nú en í fyrra en
vonandi næ ég betri árangri. Það er
vitaskuld stefnan. Veðrið getur skipt
miklu máli og það spáir vel. Þannig
að ég er bjartsýnni,“ sagði Gunn-
laugur, sem er 56 ára.
Hleypur í 48 tíma
Gunnlaugur Júlíusson hljóp í 24 tíma í fyrra en ætlar nú að
bæta einum sólarhring við Reynir ekki síður á hausinn
Morgunblaðið/Golli
Til í slaginn Gunnlaugur hefur æft
vel fyrir hlaupið að eigin sögn.
Í HNOTSKURN
» Hlaupið í Borgundar-hólmi, þar sem hlaupið er í
24 og 48 tíma, er árlegt.
» Íslendingur hefur aldreiáður tekið þátt í 48 tíma
hlaupinu.
» Gunnlaugur tók þátt í 24tíma hlaupinu árið 2007 og
hljóp þá 197,2 km. en bætti um
betur í fyrra og hljóp 217,7
km.
» Gunnlaugur fer einn íhlaupið en hefur þó æft
með góðum æfingafélögum í
vetur.