Morgunblaðið - 16.05.2009, Síða 26
26 FréttirVIÐSKIPTI|ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Þetta helst ...
● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á
Íslandi hækkaði um 0,9% í gær og er
lokagildi hennar 699 stig. Mest hækkun
varð á hlutabréfum Alfesca, eða 6,9%.
Bréf Bakkavarar lækkuðu hins vegar
mest, um 5,2%.
Heildarviðskipti með hlutabréf námu
202 milljónum. Viðskipti með skulda-
bréf námu hins vegar 5,9 milljörðum
króna. gretar@mbl.is
Hækkun í Kauphöllinni
● Gengisvísitala
íslensku krónunnar
lækkaði um 1,0% í
gær og styrktist
krónan því sem því
nemur. Vísitalan er
nú í 222,8 stigum.
Þetta er svipað og
var í lok síðustu
viku og hefur krón-
an því aftur náð þeirri stöðu sem hún
var í þá eftir að hafa veikst nokkuð
framan af þessari viku. Gengi Banda-
ríkjadollars er nú skráð 125,8 krónur,
evru 170,5 krónur og þá er danska
krónan skráð 22,9 krónur.
Í Morgunkorni Greiningar Íslands-
banka segir að gengi krónunnar hafi
undanfarna mánuði styrkst um 40%
gagnvart evru á svonefndum af-
landsmarkaði, þ.e. í viðskiptum er-
lendra banka. Kostar krónan nú um
200 krónur á þessum markaði. gret-
ar@mbl.is
Íslenska krónan styrkt-
ist um 1% í gær
● VERÐ á neysluvörum í Bandaríkj-
unum hefur lækkað á einu ári meira en
gerst hefur þar í landi í rúm 54 ár, eða
frá því í ágúst á árinu 1954. Meg-
inástæðan er talin mikil lækkun á orku-
verði, sem hefur lækkað um 25% á
einu ári, að því er fram kemur í frétt
CNN-fréttastofunnar.
Lækkunin á verði neysluvara í Banda-
ríkjunum var að jafnaði 0,7% í apr-
ílmánuði síðastliðnum frá sama mánuði
í fyrra. Í marsmánuði hafði verðið lækk-
að um 0,4% frá sama mánuði árið
2008. gretar@mbl.is
Mesta lækkun á verði
neysluvara í 54 ár
„ÞAÐ gefur auga leið að þetta hefur
verið erfitt út af ástandinu í efna-
hagslífinu,“ segir Björn Ingi Sveins-
son, framkvæmdastjóri Saxbygg.
Stjórnendur félagsins óskuðu í
gær eftir því að það yrði tekið til
gjaldþrotaskipta og skiptastjóri
skipaður yfir búinu.
Björn Ingi segist ekki vilja tjá sig
mikið um stöðu félagsins. Það fari í
hendur skiptastjóra, sem hann muni
aðstoða eftir fremsta megni.
„Þetta er ekki skemmtilegt og við
erum öll sorgmædd yfir því hvernig
komið er,“ segir Björn Ingi.
Hann segir alveg ljóst að þegar
verðmætasta eignin þeirra, 5,7%
hlutur í Glitni, varð verðlaus seig á
ógæfuhliðina. Saxbygg var líka um-
svifamikið í fasteignaviðskiptum og
átti meðal annars 52% í Smáralind í
gegnum EIK properties.
Saxbygg hefur verið í helmings-
eigu Saxhóls, sem kenndur er við
Nóatúnsfjölskylduna, og BYGG,
Byggingarfélags Gunnars og Gylfa.
Nafni félagsins hefur verið breytt í
eignarhaldsfélagið Icarus ehf.
Engar skuldir eru í Saxbygg aðrar
en við viðskiptabanka sagði í tilkynn-
ingu sem barst Morgunblaðinu í
gær. Það verður í höndum væntan-
legs skiptastjóra að ráðstafa þeim
eignum sem til staðar eru í félaginu í
þágu þessara kröfuhafa.
Björn Ingi segir að við núverandi
markaðsaðstæður sé erfitt að meta
verðmæti eignanna.
Íslandsbanki fer með 46% eignar-
hlut í Smáralind og því ljóst að rík-
isbankarnir muni eiga verslunarmið-
stöðina að fullu. bjorgvin@mbl.is
Fall Saxbygg fleytir
Smáralind í fang ríkisins
Sorgmædd yfir því hvernig fór segir framkvæmdastjórinn
opinbera gagnið sem hefur verið birt
um stöðu Sjóvár. Í honum kemur
fram að eignirnar voru orðnar 98,9
milljarðar, fjárfestingaeignirnar 49,3
milljarðar en bótasjóðurinn gildnaði
einungis um 600 milljónir króna á
árinu. Því var ljóst að stækkun efna-
hagsreiknings Sjóvár var ekki fjár-
mögnuð með iðgjöldum heldur lán-
um, enda jukust skuldir félagsins við
lánastofnanir um fimmtán milljarða
króna. Stór hluti þessara fjárfest-
ingaeigna var í stýringu hjá systur-
félaginu Askar Capital. Skilanefnd
Glitnis reynir nú að fjarlægja þær út
úr tryggingafélaginu.
Tryggingarisi varð
að fjárfestingafélagi
Fjárfestingaeignir Sjóvár jukust um 50 milljarða á 2 árum
Morgunblaðið/ÞÖK
Sjóvá Verið er að reyna að aðskilja fjárfestingareksturinn frá trygginga-
rekstrinum. Til þess vantar hið minnsta tíu milljarða króna.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ÞEGAR Milestone, fyrrum eigandi
Sjóvár, keypti sig inn í félagið árið
2005 var það hefðbundið vátrygg-
ingafélag. Heildareignir Sjóvár voru
um 36 milljarðar króna og var þar
fyrst og fremst um að ræða fjárfest-
ingar gegn vátryggingaskuld félags-
ins, svokölluðum bótasjóði, sem nam
þá um 20,7 milljörðum króna. Stærð
bótasjóðsins var því um 60 prósent af
eignum félagsins. Skuldir Sjóvár við
lánastofnanir námu um 150 milljón-
um króna á þessum tíma.
Á árinu 2006 eignaðist Milestone
Sjóvá að fullu. Samkvæmt efnahags-
reikningi félagsins varð mikil breyt-
ing á rekstrinum það árið. Eignir fé-
lagsins jukust til að mynda um
rúmlega helming og stóðu í 77,8 millj-
örðum króna í árslok. Nánast öll
aukningin átti sér stað í fjárfestinga-
hluta starfseminnar. Meðal annars
jukust svokallaðar fjárfestingaeignir
félagsins, sem voru fasteignir í notk-
un eða byggingu, um 30,6 milljarða
króna. Þessar fasteignir eru staðsett-
ar víðs vegar um heiminn. Bótasjóð-
urinn stækkaði hins vegar einungis
um tvo milljarða og því ljóst að ekki
var neinn stórkostlegur vöxtur í hefð-
bundinni vátryggingarstarfsemi. Á
sama tíma hækkuðu skuldir félagsins
við lánastofnanir úr 150 milljónum
króna í 24,8 milljarða króna. Flestar
skuldirnar eru í erlendum gjaldeyri.
Þróunin hélt áfram á árinu 2007, en
ársreikningur þess árs eru síðasta
Í lok árs 2005 átti Sjóvá engar
eignir sem flokkuðust sem fjár-
festingaeignir. Tveimur árum síð-
ar voru slíkar eignir metnar á 49
milljarða króna í bókum trygg-
ingafélagsins.
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
BAKKAVÖR Group getur ekki greitt skuldabréf
sem var á gjalddaga í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins nemur upphæðin um 20
milljörðum króna að meðtöldum höfuðstóli, vöxt-
um og verðbótum. Meðal kaupenda bréfanna voru
lífeyrissjóðir sem nú fá lán sín ekki endurgreidd.
Snorri Guðmundsson, fjárfestatengill Bakka-
varar, segir verið að semja við stærstu eigendur
skuldabréfanna um að framlengja gjalddagann. Í
tilkynningu til Kauphallarinnar í gær segir að við-
ræðurnar hafi staðið yfir frá því í desember síðast-
liðnum. Snorri segir þetta hafa tekið lengri tíma
en gert var ráð fyrir. Þau séu hins vegar vongóð
um að niðurstaðan verði góð fyrir alla.
Vilji eigendur skuldabréfanna ekki framlengja
gjalddagann geta þeir óskað eftir að fjárnám verði
gert í félaginu eftir fjórtán daga. Sé gert árang-
urslaust fjárnám geta þeir krafist þess að Bakka-
vör verði tekin til gjaldþrotaskipta.
Þetta er ekki borðleggjandi ákvörðun fyrir
þessa kröfuhafa. Bakkavör Group á engar eignir
sem hægt er að ganga að. Stórir lánveitendur eru
með veð í rekstrarfélögunum, sem eru undir
Bakkavör Group. Lífeyrissjóðir og aðrir sem
keyptu skuldabréfin halda því á bréfum án nokk-
urar trygginga eða veða.
Þegar Morgunblaðið spurði Ágúst Guðmunds-
son, forstjóra Bakkavarar, á uppgjörsfundi í apríl
sl. um stöðu skuldabréfaeigenda sagði hann að fé-
lagið myndi standa við allar sínar skuldbindingar
til lengri tíma.
Bakkavör í vanskil
Skuldabréfaeigendur geta farið fram á fjárnám og
krafist að Bakkavör fari í þrot sé það árangurslaust
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bræður Lýður og Ágúst Guðmundssynir standa í
ströngu við að rétta hag Bakkavarar við.
STRAUMUR
fjárfestinga-
banki tilkynnti
í gær að finnski
bankinn eQ
hefði verið
seldur til Nord-
net Group AB,
sem er sænskt
eignastýringar-
fyrirtæki. Sölu-
verðið er um
15% af upp-
haflegu kaupverði.
Straumur keypti eQ fyrir í júní
2007 fyrir 260 milljónir evra. Sölu-
verðið nú er 37 milljónir evra.
„Miðað við hvernig markaðir
hafa þróast síðustu tvö árin verð-
um við að vera sáttir. eQ var
keypt þegar menn sáu ekki fram í
tímann og verðið var hvað hæst,“
sagði Georg Andersen, for-
stöðumaður samskiptasviðs
Straums, í gær.
Samkvæmt upplýsingum
Straums eiga viðskiptin sér stað
að undangengnu ríflega tveggja
mánaða uppboðsferli sem hafði
það að markmiði að hámarka sölu-
andvirði eignarinnar. Lögð hafi
verið áhersla á að tryggja gagnsæi
og jafnfræði meðal bjóðenda og
var hæsta tilboði tekið.
Straumur fór í greiðslustöðvun í
byrjun mars. Ákveðið var að losa
Straum út úr erlendri starfsemi.
Enn á eftir að selja Stamford Part-
ners í Bretlandi. bjorgvin@mbl.is
Fá brot af
kaupverði
eQ til baka
Óttar Pálsson,
forstjóri Straums.
Verðum að vera sáttir
C$D&
C$D'
.
.
C$D(
)'D
.
.
A"E7"
/ F
.
.
=* 2
AD
.
.
C$D*
C$D+
.
.
● SAGA Capital Fjárfestingarbanki lauk
í gær við að selja skuldabréf E-Farice
ehf. fyrir alls fimm milljarða króna.
Peningana á að nota til að leggja DA-
NICE sæstrenginn milli Íslands og Dan-
merkur. Um er að ræða skuldabréf til
25 ára með einfaldri ábyrgð ríkissjóðs.
Fram kemur í tilkynningu að DANCIE
strengurinn sé ein meginforsenda
þess að hægt verði að byggja upp al-
þjóðleg gagnaver hér á landi. E-Farice
hefur nú þegar undirritað samninga við
Verne Holding, sem er að byggja
gagnaver á Keflavíkurflugvelli og á í við-
ræðum við fleiri aðila. bjorgvin@mbl.is
Fjármagna lagningu sæ-
strengs til Danmerkur
AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa
nam tæpum 16 milljörðum króna á
fyrstu tveimur mánuðum ársins
2009 samanborið við 12,1 milljarð á
sama tímabili 2008. Aflaverðmætið
jókst því um nærri þriðjung á milli
ára, eða um 31,5%. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Hagstofu Ís-
lands.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok
febrúar orðið 12,5 milljarðar og
jókst um tæp 27% frá sama tíma í
fyrra. Verðmæti þorskafla var um 7
milljarðar og jókst enn meira en
botnfisksins, eða um tæp 37%. Hins
vegar dróst aflaverðmæti ýsu sam-
an um 12% milli ára, en það nam
rúmum 2,3 milljörðum á fyrstu
tveimur mánuðum þessa árs.
Fram kemur í tilkynningu Hag-
stofunnar að verðmæti afla sem
seldur er í beinni sölu útgerða til
vinnslu innanlands nam 7,3 millj-
örðum króna á fyrstu tveimur mán-
uðum þessa árs og jókst um 65% frá
sama tímabili á árinu 2008.
gretar@mbl.is
Aflaverðmæti jókst um
nærri þriðjung milli ára
Morgunblaðið/RAX