Morgunblaðið - 16.05.2009, Síða 28
28 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Þ
etta eru bara uppskriftir úr mínu
heimilishaldi. Þetta er maturinn
sem ég gef fjölskyldunni,“ segir
matgæðingurinn Nanna Rögn-
valdsdóttir um nýju mat-
reiðslubókina sem hún sendi frá sér á dög-
unum. Hagsýni og hugmyndaauðgi var í
fyrirrúmi við skrifin. Þannig geymir bókin til-
brigði við allar uppskriftir, geymsluaðferðir,
útgáfu fyrir einn og svo hvað gera megi við
margvíslegt umframhráefni sem e.t.v. er ekki í
daglegri notkun, t.d. bygg, linsubaunir, pestó
og ostrusósu.
Nanna þekkir enda af langri reynslu hvaða
hráefni eiga vel saman og hvað má nota í stað-
inn sé eitthvað ekki til. „Ég er þannig að þegar
ég elda heima hjá mér nota ég það sem til er.“
Hún segir sína matseld vissulega hafa breyst
eftir að kreppan skall á. „Maður hugsar sig
meira um í búðunum en áður og þá er ég farin
að baka allt mitt brauð heima. Það hef ég hef
stundum gert áður, en ekki í þeim mæli sem ég
geri nú.“
Hún vildi þó ekki semja kreppu-
matreiðslubók. „Markmiðið var að þetta væri
bók sem ætti vel við á öllum tímum,“ segir
Nanna, sem nýtir við skrifin efni úr öðrum bók-
um sem hún var með í vinnslu – matreiðslubók
fyrir einn og nýtingu afanga. Hagsýni sé hins
vegar af hinu góða. „Ég horfði mjög á kostn-
aðinn þegar ég var að velja uppskriftirnar og
hráefnið sem í þær fer.“ Óþarfi sé hins vegar að
hverfa aftur til gamla tímans. „Mig langaði
þess í stað að benda fólki á möguleikana á að
halda áfram að elda allan þennan fjölbreytta,
góða og að sumu leyti framandlega mat sem að
við höfum verið að læra að elda undanfarin ár.“
Fiskibuff með stökkri skorpu
fyrir 4
500 g bökunarkartöflur
500 g ýsuflök eða annar fiskur
1 laukur, saxaður smátt
1 lárviðarlauf (má sleppa)
200 ml mjólk (eða vatn)
pipar og salt
2 msk. söxuð steinselja og/eða fínrifinn
börkur af ½ sítrónu, hveiti
1 egg
brauðmylsna, fersk eða þurrkuð
olía til steikingar
Flysjaðu kartöflurnar, skerðu þær bita og
sjóddu í léttsöltu vatni þar til þær eru rétt tæp-
lega meyrar. Settu fisk, lauk, lárviðarlauf og
mjólk í pott ásamt pipar og salti. Hitað að suðu
og stilltu á lægsta mögulega hita, leggðu lok yf-
ir og láttu standa í 5-8 mínútur eða þar til fisk-
urinn er rétt soðinn í gegn. Taktu hann upp og
láttu kólna. Helltu vatninu af kartöflunum þeg-
ar þær eru meyrar, láttu þær standa í opnum
potti í 1-2 mínútur svo að þær verði ögn þurrari
áður en þær eru stappaðar. Steinselju og sí-
trónuberki hrært saman við og bragðbætt með
salti og pipar eftir smekk. Losaðu fiskinn sund-
ur í flögur og blandaðu gætilega saman við með
sleif – ekki láta hann fara alveg í mauk. Mótaðu
8 buff sem eru um 1½-2 sm á þykkt, veltu þeim
upp úr svolitlu hveiti, síðan slegnu eggi og loks
brauðmylsnu. Raðað þeim á disk og kældu í
a.m.k. hálftíma áður en þau eru steikt við góð-
an hita í um 1-1½ sm djúpri olíu í 2-3 mínútur á
hvorri hlið.
Láttu renna af buffunum á eldhúspappír og
berðu þau fram t.d. með léttsoðnu grænmeti.
Mexíkógrýta með eggjum
fyrir 4
2 laukar
2-3 hvítlauksgeirar
1 msk. olía
400 g svínahakk
75 g pepperóní- eða chorizo-pylsa, skorin
í bita eða sneiðar
300-400 ml taco-sósa, sterk eða mild eftir
smekk
200 ml soð (eða vatn og kjöt- eða græn-
metiskraftur)
2 tsk. óreganó
pipar og salt
500 g kartöflur, soðnar, flysjaðar og skornar
í bita
4 egg
Saxaðu laukinn og fínsaxaðu eða pressaðu
hvítlaukinn. Hitaðu olíuna á stórri pönnu og
láttu lauk og hvítlauk krauma á henni í nokkrar
mínútur við meðalhita. Bættu þá hakki og
kryddpylsu á pönnuna, hækkaðu hitann dálítið
og steiktu þar til allt hefur tekið lit. Hrærðu oft
á meðan og gættu þess að losa sundur alla
kekki í hakkinu. Bættu svo taco-sósu, soði eða
vatni, óreganói, pipar og salti á pönnuna og
láttu malla við fremur hægan hita í um 10 mín-
útur. Settu kartöflubitana út í og hrærðu.
Kryddaðu með salt og pipar eftir smekk. Gerðu
svo 4 lautir í yfirborð hakkblöndunnar og
brjóttu eitt egg í hverja laut – best er að brjóta
eggið fyrst í bolla og hella því í lautina. Leggðu
lok lauslega yfir og láttu malla rólega án þess
að hræra í um 5 mínútur í viðbót eða þar til
eggjahvíturnar eru stífnaðar.
Berðu réttinn fram í pönnunni og hafðu með
t.d. hrísgrjón og gróft brauð eða grænt salat.
„Maturinn sem ég gef fjölskyldunni“
Morgunblaðið/Ómar
Meistarakokkur Nanna Rögnvaldsdóttir veit vel hvernig breyta má uppskriftum.
Fiskibuff með stökkri skorpu Góð tilbreyt-
ing frá hefðbundunum fiskibollum.
Mexíkógrýta með eggjum Skemmtilegt til-
brigði við danskan „bixemad“.
Hagsýni og hugmyndaauðgi var
í fyrirrúmi hjá matgæðingnum
Nönnu Rögnvaldsdóttur þegar
hún skrifaði matreiðslubók sem
hún sendi frá sér á dögunum.
Byggðavegur er að taka breytingum
þessa dagana. Verið er að leggja
göngustíga með Byggðavegi sem
liggur ofan við byggðina í Sandgerði.
Fjöldi fólks er nú þegar farinn að
ganga þessa stíga þó ekki sé búið að
malbika þá en þeir verða vænt-
anlega malbikaðir á næstunni.
Ungir menn á fjórhjólum og tor-
færuhjólum hafa sett svip á bæj-
arlífið, en þeir hafa ekki alltaf farið
eftir reglum. Lögreglan virðist hafa
náð að tala þessa ungu menn til, því
spól og akstur á viðkvæmum svæð-
um virðist vera hætt að sinni. Bæj-
aryfirvöld eru að skoða hvort hægt
er að koma upp aðstöðu í mal-
arnámum, ofan við bæinn.
Hafnarsvæðið hefur verið að taka
breytingum á síðustu mánuðum.
Unnið hefur verið að endurbótum í
umhverfismálum á hafnarsvæðinu
milli Norðurgarðs og Suðurgarðs.
Grjótgarður hefur verið endurhlað-
inn, lagðar gangstéttir, malbikuð sér
braut fyrir lyftara sem flytja afla frá
bátum að fiskmarkaði, ásamt nýjum
vegi milli hafnargarða. Fram-
kvæmdirnar kosta um 60 milljónir.
Þjónustuhús við tjaldsvæðið er í
byggingu. Ennfremur er verið að
koma upp aðstöðu fyrir húsbíla á
svæði þar sem gamli malarknatt-
spyrnuvöllurinn var. Húsið verður
væntanlega tilbúið í byrjun júní.
Nýja tjaldsvæðið er miðsvæðis í
Sandgerði og skjólgott
Knattspyrnuvöllurinn er að taka
breytingum því að unnið er við upp-
steypu á stúku við suðurenda knatt-
spyrnuvallarins við Stafnesveg.
Stúkan er jafnframt fyrsti áfangi í
fyrirhuguðu fjölnota íþróttahúsi sem
á að bygga á vallarsvæðinu. Áætlað
er að stúkan verði tilbúin í lok maí-
mánaðar en sjálft húsið er komið á
bið eins og svo margt í þessu ástandi
sem þjóðin er í.
Nemendur og kennarar 9. bekkjar í
grunnskólanum í Vogi í Færeyjum
hafa verið í heimsókn í Sandgerði
síðustu daga, en Vogur er vinabær
Sandgerðis og hafa heimsóknir fé-
laga og klúbba verið gagnkvæmar í
áratugi. Að þessu sinni var farið með
nemendurna í ferðalög, m.a. að Gull-
fossi og Geysi um Reykjanes.
Ósabotnavegur er farinn að sanna
gildi sitt. Aukning hefur orðið á
komu ferðamanna og hópa sem eru á
hringferð um Reykjanesskagann.
Vegurinn hefur verið lagður bundnu
slitlagi.
Útivistarsvæði ofan við byggðina í
Sandgerði, er að taka breytingum.
Svæðið samanstendur af miklum
grjótnámum sem voru notaðar við
byggingu grjótvarnagarða við höfn-
ina. Búið er að safna saman miklum
moldarjarðvegi í og við námurnar og
er hafið verkefnið Yndisgróður sem
er unnið í samráði við Landbún-
aðarháskólann á Hvanneyri, Félag
garðplöntuframleiðenda, Rannsókn-
arstöð Skógræktar við Mógilsá og
Grasagarð Reykjavíkur.
SANDGERÐI
Reynir Sveinsson fréttaritari
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Sandgerði Nemendur frá Vogi í Færeyjum komu við í Fræðasetrinu.
Eftir Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður | Nýting nátt-
úrgæða í náttúruvænu, umhverfis-
og barnvænu umhverfi þar sem
ferðamenn geta gengið að persónu-
legri og góðri þjónustu, eru meðal
meginstoða í niðurstöðu sem ráð-
gjafafyrirtækið Alta kemst að eftir
að hafa unnið að stefnumótun í
ferðaþjónustu fyrir bæjarstjórn
Grundarfjarðar um nokkurt skeið.
Þegar niðurskurður á aflaheimld-
um varð ljós haustið 2007 ákvað
bæjarstjórnin að fá Alta til að vinna
að tillögum um stefnumótun í
ferðaþjónustu og voru niðurstöður
kynntar íbúum og ferðaþjónustuað-
ilum í Sögumiðstöðinni Grund-
arfirði í síðustu viku. Tillögurnar
fara síðan innan skamms til af-
greiðslu hjá bæjarstjórn. Í máli
Bjargar Ágústsdóttur starfsmanns
Alta þykir margt benda til að ferða-
mannastraumur muni aukast til
verulega á Snæfellsnesi í nánustu
framtíð. Það væri því ákaflega mik-
ilvægt að allir þeir sem koma að
ferðaþjónustu í sveitarfélaginu tog-
uðu í sömu átt og að bæjaryfirvöld
gætu búið í haginn fyrir þessa þjón-
ustu eftir ákveðnum forgangs-
atriðum jafnt fyrir þessa atvinnu-
grein sem og aðrar. Í niðurstöðu til
stefnumótunar er lögð áhersla á
þjónustu og viðmót, að við-
skiptavininum sé gefinn tími og at-
hygli. Þá er lögð áhersla á að nýta
smábæjareinkennin, kyrrð og frið
þótt hér geti þrifist blómlegt mann-
líf með líf í tuskunum eins og segir í
stefnumótunarpunktunum frá Alta.
Stefnumótun í ferða-
þjónustu í Grundarfirði
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Ferðaþjónusta Á síðast sumri var sérstök dagskrá fyrir farþega á
skemmtiferðaskipum þar sem skírskotað er til menningar og sögu landsins.