Morgunblaðið - 16.05.2009, Síða 40

Morgunblaðið - 16.05.2009, Síða 40
✝ Ingibjörg Eiríks-dóttir fæddist í Fornahvammi í Norðurárdal í Mýra- sýslu 13. september árið 1921. Hún lést sunnudaginn 10. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Kristjana Björns- dóttir, f. 11. nóv- ember 1885, d. 8. mars 1954, og Eirík- ur Ólafsson, f. 28. apríl 1893, d. 23. ágúst 1982. Bræður Ingibjargar eru Ólafur, f. 13. sept- ember 1921, d. 21. ágúst 2005, og Gunnar f. 23. janúar 1924, nú til heimilis að dval- arheimili aldraðra í Borgarnesi. Ingibjörg ólst upp á Grjóti í Þverárhlíð og vann alla sína tíð við bústörf ásamt því að halda heimili þar. En haustið 1998 flutti hún á Dval- arheimili aldraðra í Borgarnesi. Útför Ingibjargar fer fram frá Borg- arneskirkju í dag, 16. maí, og hefst athöfn- in kl. 14. Jarðsett verður í Norð- tungukirkjugarði í Þverárhlíð. Þeim fer fækkandi, Þverhlíðingun- um, sem settu svip á umhverfi sitt upp úr miðri síðustu öld og fram á þessa daga. Meðan búskapur var með hefðbundnu sniði, hver bjó að sínu, en þurfti samt samvinnu við nágranna, þá urðu til einstaklingar sem eftir var tekið bæði innan héraðs og utan. Þeir Davíð á Arnbjargarlæk og Ásmundur á Högnastöðum urðu alþekktir meðal bænda um allt land, og Jón á Hamri og Guðjón á Hermundarstöðum vissu allir í héraðinu og nágrannasýslum hverjir voru. Ég nefni þessa af handa- hófi, en í raun voru menn á hverjum bæ, sem orð fór af fyrir hagleik, glöggskyggni á fénað og aðra kosti, sem prýða góða bændur. Einn af þessum mönnum var Ei- ríkur Ólafsson bóndi á Grjóti. Þegar sá sem þetta ritar kynntist Eiríki fyrst var hann orðinn ekkjumaður og bjó með börnum sínum þremur, Ólafi, Ingibjörgu og Gunnari. Eiríkur var þá kominn yfir miðjan aldur en börn hans á fertugsaldri. Eiríkur stjórnaði, þeir bræður sáu um verkin, en Imba stjórnaði innanhúss. Allt var í röð og reglu, öllum verkum var afmörkuð stund og engar óvæntar uppákomur. Ævinlega var passað upp á að hey væru næg, skepnur vel hirtar og af- urðasamar, enda afkoma búsins góð eftir því sem þá gerðist. Gunnar vann af bæ þegar svo stóð á, t.d. í slátur- húsi á haustin og gat sér orð sem af- burða fláningsmaður. Jafnframt unnu þeir bræður báðir nágrönnum sínum eftir því sem þeir máttu, við húsabyggingar, smalamennskur og járningar svo lítið eitt sé nefnt. En meðan þessu fór fram gætti Imba að húsverkum, tók á móti gest- um, eldaði, bakaði og þvoði þvott. Sérstaklega var gestkvæmt um leitir og réttir og skiptu tugum gestir í mat og drykk, og öllum veittur góður beini. Þau systkinin eignuðust ekki af- komendur, en þeim mun fleiri voru þau börn og unglingar, sem áttu sitt annað heimili á Grjóti. Sá sem þetta ritar þekkir það af eigin raun, því ég dvaldi tíðum á Grjóti, ýmist einn eða með fleirum af systkinum mínum og kynntist þá líka öðrum börnum sem dvöldust sumarlangt á Grjóti. Ég held, að ekki sé ofsagt að telja að Imba hafi hugsað um allan þennan skara eins og sinn eigin. Allir fengu gott atlæti, fengu að hjálpa til við bú- skapinn eftir föngum og höfðu yfir- leitt nóg að iðja allan daginn án þess að þeim væri ofgert. Svona mun þetta hafa gengið meðan þau Grjótssystk- ini bjuggu, og er mér ómögulegt að telja hve margir eiga góðar minning- ar frá sumardvöl sinn á Grjóti. Þau systkinin bjuggu saman á Grjóti meðan kraftar leyfðu, en Gunnar og Imba fluttu á Elliheimilið í Borgarnesi fyrir nokkrum árum, en Óli lifði allan sinn aldur á Grjóti. Fjölskylda mín átti löng og góð samskipti við þau öll og fyrir það skal þakkað nú. Gunnari flytjum við inni- legar samúðaróskir og biðjum honum velfarnaðar. Pétur Kjartansson. Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Hjartkær vinkona mín hún Imba á Grjóti er dáin og minningabrotin hrannast upp. Imba var góð kona, stórbrotin, einstaklega barngóð og hjartahlý. Kynni okkar hófust fyrir rúmum 30 árum og þetta hafa verið góð og skemmtileg kynni. Einhvern tímann reyndum við að muna hvar og hvenær við hittumst fyrst en mund- um það bara alls ekki enda fannst okkur eins og við hefðum alltaf þekkst. Við tengdumst strax órjúfan- legum böndum sem aldrei munu slitna því minning Imbu mun lifa á meðal okkar um ókomin ár. Imba var létt í lund og eins og hún orðaði það sjálf, þá þýddi ekkert annað en að vera mátulega kærulaus. Við hlógum oft dátt saman og mestmegnis að okkur sjálfum og sögðum þá stundum – heimskur hlær að sjálfs sín fyndni – og þá hlógum við enn meira. Mér er ofarlega í minni ein heimsókn mín til þeirra Imbu og Gunna á sl. vetri. Ég var í mjög litskrúðugri peysu sem Imba dáðist að og fannst falleg og þegar ég svaraði því til að þessi peysa væri nú orðin gömul sagði Imba, að hún væri nú samt falleg og að því gát- um við hlegið. Við vorum líka svo hjartanlega sammála um það að við værum jú fallegar þótt við værum orðnar þetta gamlar. Þegar vorið er komið og sumarið á næsta leiti kveð- ur þú, Imba mín, en við kristnir menn eigum fyrirheit um eilíft líf og eins og segir í „Sálmi 42“ eftir William Croft í þýðingu Friðriks Friðrikssonar „Ég lifi æ og þér munuð lifa og sá sem lifir og trúir mun dauðann ei sjá.“ Ég vil að endingu með þessu pári mínu tileinka þér, elsku Imba mín, ljóðið „Kveðja“ sem amma mín Stein- unn Þ. Guðmundsdóttir orti: Ó, himins blíða hjartans tár er hjúpar sorg, þótt blæði sár, þín miskunn blíð, hún mildar barm, hún mýkir tregans sára harm. Þú ert það ljós, það lífsins mál, er ljúfur drottinn gefur sál. Nú hljóð er stund, svo helg og fríð, að hjarta kemur minning blíð. Hún sendir huga bros þitt bjart, blessar, þakkar, þakkar allt. Hún minnir sál á sorgaryl, sendir huggun hjartans til. Vertu alltaf kært kvödd, elsku Imba mín, og Guð geymi þig og varð- veiti, þess óskar og biður þín vinkona Lulla og fjölskyldan Kvíum, Laufey Valsteinsdóttir. Elsku Imba, ég á margar góðar minningar um þig. Ég kynntist þér fyrst þegar Gutti bróðir var í sveit hjá ykkur systkinunum á Grjóti. Þegar hans vist lauk tók ég við og var hjá ykkur í fjögur sumur, frá 13 ára til 16 ára. Þetta voru sennilega bestu sum- ur æsku minnar. Þú gafst mér frjáls- ar hendur í eldhúsinu við að prófa mig áfram í bakstri, treystir mér fullkom- lega og varst óspör á hólið. Ég fór alltaf með þér í fjósið og í hænsnakof- ann, þar lærði ég umhirðu og um- gengni við dýrin. En þú talaðir nú stundum við kýrnar þínar. Þú hefur alltaf sagt að ég hafi fengið sveita- bakteríuna hjá ykkur, þar sem ég bý í sveit í dag. Eftir að þú komst á Dval- arheimilið í Borgarnesi hefur það verið fastur liður hjá okkur að koma við hjá Imbu ömmu, eins og strák- arnir mínir kalla þig. Þú ert eina amman sem þeir þekktu, þó að Vignir muni eftir mömmu minni, þá þekkir Gunnar bara þig sem ömmu. Þeir hafa búið vel að ullarsokkum og vett- lingum frá þér í gegnum tíðina. Þú leystir þá ævinlega út með gjöfum og gotti. Við eigum eftir að sakna þín þegar við verðum næst á ferðinni. Við mun- um eftir fallega brosinu þínu og mild- um hlátri sem hljómaði oft. Hafðu þökk fyrir allt, Imba mín. Guð geymi þig. Gunni minn, ég votta þér samúð mína. Kolbrún Elfarsdóttir, Skáldsstöðum. Þegar litið er yfir farinn veg er margs að minnast þegar við hugsum til Imbu á Grjóti, eins og hún var ávallt kölluð. Þær voru ófáar heimsóknirnar sem við systkinin á Hamri fórum að Grjóti og fengum við einatt höfðinglegar móttökur, en Imba var með eindæm- um gestrisin. Það var alltaf nóg til í búrinu, kökur, nammi og allskonar góðgæti og leið Imbu aldrei betur en þegar við vorum orðin pakksödd og sæl. Hún var afskaplega góð við okk- ur og brást ekki að við fengum suðu- súkkulaði í nesti eða hún rétti okkur smápening svo við gætum keypt okk- ur eitthvað fallegt, eins og hún orðaði það. Alltaf kvaddi hún okkur svo með virktum, og hennar síðustu orð áður en við fórum voru einatt „guð blessi þig,“ ásamt hlýju faðmlagi og kossi á kinn. Imba mundi alla afmælisdaga og þá ekki bara okkar systkinanna, held- ur allra í sveitinni og þó víðar væri leitað. Það brást aldrei að við fengum pakka á afmælinu okkar og eins hringdi hún í okkur til að óska okkur til hamingju með daginn. Allt til loka dags gaukaði hún að okkur og börn- unum okkar dýrmætum gjöfum sem við eigum nú og geymum til minn- ingar um einstaka konu. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynn- ast Imbu, hún gerði líf okkar litríkara en hún var einstakur persónuleiki sem fólk gleymir ekki svo auðveld- lega. Hún lifði í gamla tímanum og höfðum við systkinin á Hamri gott af að kynnast þessu mikla kynslóðabili sem á milli okkar var og okkur þótti stundum spaugilegt hvernig hún tók til orða. Oft talaði hún um hvernig hlutirnir hefðu nú verið í gamla daga, þá hefði nú lítið þýtt að kvarta. Imba bar þess merki að hafa unnið erfiðis- vinnu allt sitt líf, líkami hennar gaf sig langt fyrir aldur fram og síðustu ár- um sínum eyddi hún í hjólastól, þá komin á Dvalarheimilið í Borgarnesi. Börnunum okkar þótti gaman að koma til Imbu á Dvalarheimilið, hún ljómaði eins og sól við að sjá krakk- ana og hafði ánægju af þeim. Því meiri kjánalæti og kæti í börnunum því meira hló Imba. Heilsu Imbu hrakaði hratt undir það síðasta og trúlega er hún hvíldinni fegin. Elsku Imba, hvíl þú í friði og takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur í lífinu. Blessuð sé minning þín. Elsku Gunnar, við vottum þér okkar inni- legustu samúð. Trausti, María, Guðný og Þórey frá Hamri. Ingibjörg Eiríksdóttir 40 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009 Elsku Imba, nú þegar komið er að leiðarlokum vilj- um við þakka fyrir þitt frá- bæra trygglyndi og ræktar- semi við okkur og fjölskyldu okkar gegnum árin. Minn- ingin um góða og glaðværa frænku mun ávallt ylja okk- ur. Hvíl þú í friði, kæra vin- kona. Elsku Gunni, við vottum þér okkar innilegustu samúð. Karen og Þórarinn. Elsku Imba amma, takk fyrir að vera amma okkar, takk fyrir alla sokkana og vettlingana og Smartísið. Við eigum eftir að sakna þín, þú varst alltaf svo góð við okkur. Guð geymi þig. Vignir Logi og Gunnar Smári Ármannssynir, Skáldsstöðum. HINSTA KVEÐJA ✝ Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI H. ÁRNASON verkfræðingur, Laugarásvegi 63, sem lést fimmtudaginn 7. maí, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 18. maí. Athöfnin hefst kl. 15.00. Bryndís Þorsteinsdóttir, Dagný Helgadóttir, Gunnar H. Egilson, Árni Helgason, Rósa G. Jónsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Atli Rúnar Halldórsson, Þorsteinn Helgason, Jónína Á. Steingrímsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Frændi okkar og vinur, MARGEIR PÉTUR STEINGRÍMSSON, dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis Skarðshlíð 4g, Akureyri, lést laugardaginn 9. maí. Útför hans fer fram frá Höfðakapellu þriðjudaginn 19. maí kl. 13.30. Valborg Svavarsdóttir, Haukur Valtýsson, Agnes Tulinius Svavarsdóttir, Ottó Tulinius. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, MATTHILDUR JÓNSDÓTTIR, Granaskjóli 11, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 13. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingunn Ívarsdóttir, Valdís Ragnheiður Ívarsdóttir, Viðar Stefánsson, Herdís Ívarsdóttir, Ingi Þór Vigfússon, Ívar Ívarsson, Árný Sigríður Jakobsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Kærum ættingjum og vinum þökkum við samúð og hlýhug eftir að elskuð og dáð móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MARGRÉT HERDÍS THORODDSEN, lést fimmtudaginn 23. apríl. Við þökkum því góða fólki sem gerði kveðjuathöfn- ina í Langholtskirkju að einstakri stund sveipaðri hlýju og kærleika og öllum þeim sem heiðruðu minningu Margrétar með nærveru sinni. Starfsfólki hjartadeildar og gjörgæsludeildar (fyrr á árum) á Landspítalanum við Hringbraut þökkum við mikla umhyggju og hlýju á erfiðum stundum. Guð blessi ykkur öll. María Louisa Einarsdóttir, Hannes Sveinbjörnsson, Egill Þórir Einarsson, Hlaðgerður Bjartmarsdóttir, Þórunn Sigríður Einarsdóttir, Halldór Árnason, Sigurður Thoroddsen Einarsson, Jórunn Erla Sigurjónsdóttir, Margrét Herdís Einarsdóttir, barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR BACHMANN, Berugötu 9, Borgarnesi, andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi miðvikudaginn 13. maí. Jón Þór Karlsson, Helga Ólafsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Guðjón B. Karlsson, Bára Guðmundsdóttir, Ásgeir Karlsson, Hjördís E. Karlsdóttir, Sturla Karlsson, Birna Guðmundsdóttir, ömmu- og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.