Morgunblaðið - 16.05.2009, Qupperneq 48
48 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Alveg er það merkilegt hvað Ís-lendingar eiga stundum erfitt
með að fylgja einföldustu reglum sem
settar eru til þess að auðvelda sam-
neyti manna. Ef til vill má rekja
ástæðuna til fámennisins, því með allt
okkar olnbogarými höfum við víst
ekki þurft að tileinka okkur það eins
og margar aðrar þjóðir að taka tillit
hvert til annars.
Sjálfur er Víkverji mátulega kæru-
laus og upphefur ekki regluverkið, en
það er nú einu sinni þannig að með
hjálp sumra reglna gengur lífið mun
ljúflegar fyrir sig.
x x x
Ein einföld og góð regla sem Vík-verja finnst hann stundum vera
einn um að fara eftir er að vinstri ak-
reinin sé hröðust ef akreinar eru tvær
eða fleiri. Ártúnsbrekkan til dæmis.
Ef bílstjórar vilja endilega keyra
undir hámarkshraða mega þeir svo-
sem gera það, en er bráðnauðsynlegt
að gera það á vinstri akrein?
Víkverja dauðleiðist að þurfa að
taka fram úr fólki hægra megin (leið-
ist er reyndar úrdráttur, sannleik-
urinn er að það gerir Víkverja band-
sjóðandi illan) en þegar hann lendir
fyrir aftan enn ein 60 km bílinn á
vinstri akrein sem harðneitar að gefa
sig þá er fátt annað í boði.
Á stundum sem þessum, sem ger-
ast allt of oft, rifjar Víkverji andvarp-
andi upp reynslu sína af keyrslu á
evrópskum hraðbrautum, þar sem
bílstjórar þekkja af reynslunni að
umferðin er mun skemmtilegri ef all-
ir taka tillit hver til annars … og eng-
inn dólar sér á vinstri akrein.
x x x
Önnur algeng hunsun Íslendinga áeinföldum reglum sem hleypir
illu blóði í Víkverja á sér stað í sund-
laugunum. Þetta er ekkert flókið, á
sundbraut gildir hægri umferð, alveg
eins og í umferðinni. Hvers vegna
gerist það þá á hverjum degi að sund-
laugagestir eigna sér heila braut með
því að synda fram og til baka svo eng-
inn annar kemst að?
Stundum mætti halda að Íslend-
ingar taki ekki einu sinni eftir því að
þeir eru ekki einir í heiminum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Sudoku
Frumstig
9 1
4 3 6
1 5
8 6
2 5 4 3
3 9
1 5 3
7 5
2 6 9
5 8 7
3 2 8 1 7
1
4 9 2 3
9 3 6
6 2 4
7 1
7 2 8 1 9
8 3 2
7 5 1 9
6 7 4
4 2 7 5
8 5
2 8 4 5 1
3 2 5
4 5 1 8 9 3 6 2 7
6 2 9 7 5 4 1 3 8
8 3 7 1 2 6 9 5 4
3 9 6 5 1 7 4 8 2
5 8 4 2 6 9 7 1 3
1 7 2 3 4 8 5 6 9
2 4 8 6 7 1 3 9 5
9 1 3 4 8 5 2 7 6
7 6 5 9 3 2 8 4 1
6 5 7 3 8 9 2 4 1
4 9 2 5 1 7 8 3 6
8 1 3 2 4 6 7 5 9
7 2 8 4 6 5 9 1 3
1 6 4 8 9 3 5 2 7
9 3 5 1 7 2 6 8 4
3 8 9 6 2 4 1 7 5
5 7 1 9 3 8 4 6 2
2 4 6 7 5 1 3 9 8
4 5 9 2 6 8 1 3 7
1 8 2 7 3 5 6 4 9
7 6 3 9 4 1 5 2 8
5 3 1 6 7 4 8 9 2
6 2 4 5 8 9 7 1 3
8 9 7 1 2 3 4 6 5
3 7 8 4 1 2 9 5 6
2 4 5 8 9 6 3 7 1
9 1 6 3 5 7 2 8 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 16. maí,
136. dagur ársins 2009
Orð dagsins: En ég mun sakir
réttlætisins skoða auglit þitt, þá er ég
vakna, mun ég mettast af mynd þinni.
(Sálm. 17, 15.)
Krossgáta
Lárétt | 1 losti, 4 hnífar,
7 auðan, 8 úrkomu, 9
blett, 11 romsa, 13 fall,
14 giskaðu á,
15 gömul, 17 vaxa, 20
hryggur, 22 halda, 23
hæsi, 24 þekkja, 25 kaka.
Lóðrétt | 1 hljóðfæri, 2
rekkjurnar, 3 föndur, 4
trjámylsna, 5 tíu, 6 blóm-
ið, 10 vömb, 12 beita, 13
hyggju, 15 snauð, 16
væskillinn, 18 rödd, 19
spendýrin, 20 drepa, 21
eyja.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kjarngott, 8 sýpur, 9 rófur, 10 alt, 11 rónar, 13
apann, 15 svans, 18 slíta, 21 kát, 22 fimma, 23 opinn, 24
urðarmáni.
Lóðrétt: 2 Japan, 3 rýrar, 4 gorta, 5 tefja, 6 ásar, 7 grín,
12 agn, 14 pól, 15 saft, 16 aumar, 17 skata, 18 storm, 19
ísinn, 20 Anna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. O-O Be7 8.
Rc3 Rxc3 9. bxc3 Bg4 10. He1 O-O 11.
Bf4 Bd6 12. Bxd6 Bxf3 13. Dxf3 Dxd6
14. He3 Hae8 15. Hae1 Hxe3 16. Hxe3
g6 17. h4 Rb8 18. h5 Rd7 19. g4 Rf6 20.
h6 Kh8 21. He5 c6 22. c4 Rg8 23. De3
dxc4 24. Bxc4 g5 25. Hxg5 Rxh6 26.
De4 f6 27. Hh5 f5 28. gxf5 Rxf5 29. Be6
Dxd4
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í Nalc-
hik í Rússlandi. Peter Leko (2751) frá
Ungverjalandi hafði hvítt gegn Rus-
tam Kasimdzhanov (2695) frá Úsbek-
istan. 30. Hxh7+! og svartur gafst upp
enda drottningin að falla eftir
30…Kxh7 31. Bxf5+.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Saklaus ákvörðun.
Norður
♠64
♥D10862
♦753
♣Á87
Vestur Austur
♠ – ♠KG82
♥ÁKG9753 ♥4
♦D2 ♦Á1086
♣DG93 ♣10642
Suður
♠ÁD109753
♥ –
♦KG94
♣K5
(12 ) Sagnbaráttan.
Eigi hindranir að standa undir
nafni verða þær að vera tafarlausar –
koma strax, áður en mótherjarnir ná
að ramma sig inn. Spilið að ofan er úr
bók Robsons & Segals og kom upp í
sveitakeppni. Á öðru borðinu vakti
suður á 1♠, vestur kom mjúklega inn
á 2♥ og þegar sú sögn kom til suðurs
stökk hann í 4♠. Austur doblaði og
A-V uppskáru 500 fyrir tvo niður á
hættunni. Hinum megin valdi suður
að opna á 4♠. Og vestur átti leik.
Honum þótti klént að passa og skaut
á 5♥, sem norður merkti með rauða
dobl-miðanum: fjórir niður, utan
hættu og 800. Ákvörðun suðurs í
upphafi sagna veltir þarna 1.300 stig-
um.
Ber þá að álykta að rétt sé að opna
á 4♠ með slík spil?
Not so fast …
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú þarft að taka þig saman í
andlitinu og einbeita þér að því sem fyr-
ir liggur. Ekki taka hlutina of alvarlega.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert í félagslegri uppsveiflu.
Sambönd koma þér áleiðis núna, ekki
gleyma að þakka fyrir þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sterkir persónuleikar hafa
áhrif á þig. Minningar úr æsku þinni
munu hugsanlega koma upp í hugann.
Farðu varlega og reyndu að særa eng-
an.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér tekst ekki fremur en öðrum
að stöðva tímann. Þú ert viðkvæmur og
hugmyndaríkur en átt það til að vera
misskilinn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert ekki alveg eins og þú átt að
þér og skalt þess vegna ekki taka nein-
ar mjög stórar ákvarðanir. Þú skalt
skoða hvert mál vandlega áður en þú
tekur afstöðu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Flýttu þér hægt í að dæma fólk.
Mundu bara að þú varst ekki einn að
verki og fleiri mega njóta sviðsljóssins.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Endalok tímabila eru alltaf ljúfsár,
en þú getur verið alveg viss um að eftir
að málinu hefur verið lokað hefst nýtt
tímabil.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er svo auðvelt að taka
eigin skoðanir fram yfir annarra en
stundum hafa nú aðrir eitthvað til síns
máls ef vel er að gáð.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Passaðu þig á því sem þú
biður guðina um – þú verður áreið-
anlega bænheyrður. Líttu málin raun-
sönnum augum og þá sést að flest er í
lagi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að setjast niður og
fara í gegnum það hvernig þú verð tíma
þínum og með hverjum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft að huga að því
hvernig þið getið deilt einhverju með
öðrum. Að öðrum kosti færðu á þig leið-
indi sem þú losnar ekki við.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að hafa augun hjá þér
og vera á varðbergi gagnvart smáat-
riðum, sem geta komið fyrirvaralaust í
bakið á þér. Líttu á björtu hliðarnar.
Stjörnuspá
16. maí 1457
Björn ríki Þorleifsson, 49 ára
höfðingi á Skarði, var sleginn
til riddara og honum falin
hirðstjórn á Íslandi. Englend-
ingar tóku Björn af lífi tíu ár-
um síðar.
16. maí 1901
Tuttugu og sjö manns drukkn-
uðu þegar skip, sem var á leið
frá sandinum undan Eyjafjöll-
um til Vestmannaeyja, sökk
skammt austur af Heimaey.
Einum manni var bjargað.
16. maí 1952
Bandarísk flugvél fórst í norð-
anverðum Eyjafjallajökli og
með henni fimm menn. Eitt lík
fannst strax eftir slysið, annað
árið 1964 og þrjú í ágúst 1966.
16. maí 1966
Karnabær var opnaður á
horni Týsgötu og Skólavörðu-
stígs í Reykjavík. Verslunin
hafði mikil áhrif á tísku unga
fólksins.
16. maí 1983
Vikublaðið Andrés Önd kom
út á íslensku í fyrsta sinn, en
áður höfðu margir lesið það á
dönsku.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Anna M. Páls-
dóttir, Hraunbæ
103, Reykjavík,
verður áttræð á
morgun, 17. maí.
Hún verður með
heitt á könnunni
fyrir ættingja og
vini á afmælis-
daginn í félags-
miðstöðinni, Hraunbæ 105, Reykja-
vík, milli kl. 15 og 17.
80 ára
„ÉG ætla að eiga að góðan dag með fjölskyldunni, í
góðri kreppuveislu heima. Síðan verður eitthvað
aðeins öðruvísi, og kannski aðeins meira villt, fyrir
félagana n.k. föstudag,“ segir Valgeir Vilhjálmsson,
starfsmaður markaðsdeildar RÚV, en hann verður
fertugur í dag.
Valgeir segist lítið hafa hugsað út hvort 40 ára
afmælið eru merk tímamót eða ekki. „Það er nú
svolítið erfitt að segja. Ég held að fimmtugsafmælið
sé nú kannski meira tímamótaafmæli,“ segir Val-
geir.
Hann er búsettur á Álftanesi og segist hlakka til
dagsins, ekki síst að eyða honum með eiginkonunni, Ingunni Óladóttur,
ogbörnunum, Arnóri Inga þriggja ára, Elísabetu fimm ára og Birni
Leví tólf ára. „Ég reikna með því að það komi kannski svona 30 til 40
manns, hérna heima á Álftanesi. Það bendir nú allt til þess að þetta
verði fallegasti dagur ársins, hingað til, þannig að góða veðrið virðist
hafa boðað komu sína. Ætli fólkið endi ekki bara í garðveislu,“ segir
Valgeir en hann reiknar með því að fjölskyldur fimm systkina hans láti
sjá sig á afmælisdaginn. „Stórfjölskyldan verður eflaust áberandi hér
heima og ég hlakka til þess eyða deginum með henni.“ magnush@mbl.is
Valgeir Vilhjálmsson markaðsmaður hjá RÚV
„Góð kreppuveisla“ heima
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is