Morgunblaðið - 16.05.2009, Síða 51
Menning 51FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Tónleikasalur Listaháskóla
Íslands
Raftónleikar bbnnn
Stórleikar Raflostshátíðarinnar.
Laugardagur 9. maí
HÁTÍÐIN Raflost var nýverið hald-
in í þriðja sinn. Í þetta skipti var
lögð áhersla á gagnvirkni og skörun
ólíkra listgreina, og kannað hversu
langt væri mögulegt að fara með raf-
magnaða tónlist í bland við aðra
geira. Afraksturinn var kynntur í
tónleikasal Listaháskóla Íslands á
laugardagskvöldið, á svokölluðum
stórleikum, hvað sem það átti að
vera. Ég mætti ekkert alltof
snemma, u.þ.b. tíu mínútum fyrir
auglýstan tíma sem var klukkan
átta. Þegar ég kom var enn verið að
setja upp græjur og mér var sagt að
ekki væri búið að opna salinn fyrir
almenningi. Þetta skipulagsleysi
einkenndi að nokkru dagskrána, því
miður.
Fyrst skal telja einkennilega upp-
röðun á sviðinu. Í fyrsta atriðinu,
tónlist og myndbandi eftir Ásgeir
Aðalsteinsson stigu dans þær Kara
Hergils og Rósa Ómarsdóttir. Hann
líktist mest frumu að skipta sér, sem
var ákaflega fallega útfært. Eða svo
sýndist mér. Borð með tækjum voru
á milli helmings áhorfendabekkja og
sviðsins sem ekki var upphækkað.
Það var því ógerningur að njóta
dansins almennilega fyrir græjunum
sem voru síður en svo augnayndi.
Einkennilegt að bjóða upp á dans-
sýningu en skyggja svo á hana með
einhverju sem hefði átt að vera í
öðru hvoru horninu, helst ósýnilegt.
Ég hafði líka ákveðnar efasemdir
um verkið Sæborgu en þar var
myndum af bókarkápum um Ísland
varpað á skjá. Á meðan hélt Magnús
Jensson tölu sem ég held að hafi átt
að vera háðsádeila á sjálfsmynd Ís-
lendinga. Ég held það en veit það
ekki því raftónlistardrunur drekktu
máli hans. Nú er sjálfsmynd þjóð-
arinnar efni í allskonar pælingar og
auðvelt væri að gera grín að henni
endalaust, í máli, tónlist eða mynd-
um. Hugmyndin hjá höfundum
verksins, þeim Magnúsi, Þorkatli
Atlasyni og Áka Ásgeirssyni virtist
því góð (og nærtæk). Útfærslan
hefði hinsvegar mátt vera úthugs-
aðri og fágaðri.
Ég ætla ekki að telja upp hvert
einasta atriði dagskrárinnar, enda
oft um að ræða verk sem greinilega
voru ekki enn fullmótuð. Ég verð þó
að nefna go ixi-li eftir Thorhall
Magnússon en þar spann höfundur
tónavef á eigið hljóðfæri, lítinn tré-
kubb með allskonar nemum. Kubb-
urinn leyndi á sér því útkoman var
verulega áhrifamikil. Ég ætla ekki
að reyna að lýsa tónlistinni, nema að
segja að verkið bjó yfir sannfærandi
stígandi og það samsvaraði sér
prýðilega, auk þess sem það var
stutt og hnitmiðað. Spuni á það til að
dragast á langinn en ekki hér. Meira
svona hefði mátt vera á dagskránni
þetta kvöld.
JÓNAS SEN
TÓNLIST
Óskipulagt Raflost
SÍÐASTLIÐNA viku hefur verið
boðið til einnar fjölbreyttustu og
skemmtilegustu listadagskrár sem
verið hefur á kirkjulistahátíð Ak-
ureyrarkirkju nokkru sinni.
Tónleikar hafa að venju skipað
veglegan sess í þeirri dagskrá og
lauk hátíðinni á þeim stórglæsilegu
tónleikum sem hér eru til umfjöll-
unar. Það fór vel á því að tengja
lokadagskrá 250 ára ártíð Händels
og að á þessu ári séu 200 ár liðin frá
fæðingu Felix Mendelssohn.
Verkin sem þarna voru flutt voru
einnig verðugir áfangar á glæstri
tónsmíðavegferð þessara snillinga.
Verkin fyrir kvennakór og sér í lagi
fyrir tvöfaldan blandaðan kór a ca-
pella glitra í safni kórverkanna og
báðar aríurnar úr flokki 9 þýskra
aría ásamt lofsöngsmótettu Händels
eru einkar góðir fulltrúar þessa lofi
prýdda tónskálds. Kórinn stóð sig
mjög vel og sýndi mikið öryggi í
flutningi. Hann er vel skipaður rödd-
um og er mjög fjölmennur. Mér
fannst helst skorta á mýkt í sópr-
anröddinni, einnig kysi ég dekkri
blæ á altröddina. Einsöngvararnir
fóru á miklum kostum. Flutningur
Mörtu á aríum Händels var hrífandi,
bæði glæsilegur í raddmeðferð og
túlkun. Í þeim sömu aríum hljómaði
fiðluleikur Láru Sóleyjar fagurlega.
Í stærsta verki tónleikanna þ.e.
mótettunni HWW 254 náðist mjög
sterk heildarmótun frá fyrsta til síð-
asta takts. Bragi Bergþórsson hefur
allt sem tenór í slíku hlutverki þarf
að prýða. Djúp og mikil bassarödd
Benedikts og örugg túlkun féll vel að
verkinu. Á stundum hefði ég kosið
meiri mýkt.
Ekki brást Mörtu bogalistin í
Händel og hitti allavega vel í mitt
mark. Kórinn söng af innlifun, en í
fyrsta kórnum hefðu langtónalínur í
altrödd mátt greina sig betur frá,
þ.e. aðrar raddir sungið veikar.
Eyþór Ingi verðskuldar rós í
hnappagatið og hann og allir sam-
starfsmenn eiga miklar þakkir fyrir
heillandi tónleika og glæsilega
kirkjulistaviku.
Kirkjulistaviku lauk með glæsibrag
Akureyrarkirkja
Kórtónleikar
bbbbn
Á efnisskrá: Veni Domine og Laudate pu-
eri ásamt Kyrie eleison og Heilig eftir
Mendelssohn, 2 aríur úr flokki Níu
þýskra aría ásamt mótettunni Lofið Guð
einum rómi, HWW 254, eftir Händel.
Flytjendur: Kór Akureyrarkirkju og
kammersveit. Einsöngur: Marta Guðrún
Halldórsdóttir sópran, Bragi Bergþórs-
son tenór og Benedikt Ingólfsson bassi.
Einleikur á fiðlu í Händel-aríum: Lára Sól-
ey Jóhannsdóttir. Stjórnandi: Eyþór Ingi
Jónsson. Sunnudaginn 10. maí kl. 16.
JÓN HLÖÐVER
ÁSKELSSON
TÓNLIST
Ávextir
íslenskra auðlinda
Landbúnaðarháskóli Íslands er vísindastofnun á sviði
hagnýtrar náttúrufræði, umhverfismótunar og skipulagsfræða.
Meginviðfangsefni LbhÍ er nýting og verndun náttúruauðlinda.
LbhÍ býður háskólamenntun til BS- og MS-gráða.
Kynntu þér spennandi framtíðarnám
á heimasíðu skólans: www.lbhi.is
w
w
w
.l
b
h
i.
is
P
L
Á
N
E
T
A
N
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
15%
afsláttur
NICOTINELL
Munnsogstöflur
með bragði!
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni þegar reykingum er hætt. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið var reykt.
Munnsogstöflur: skammtar mega þó aldrei vera stærri en 30 stykki á dag af 1 mg og mest 15 stykki á dag af 2 mg. Leita skal til læknis eða
lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall
nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn
undir 18 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en
byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
®
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Inntökupróf - lau. 6 / 6 / 09 - umsóknarfrestur til 1.júní
Eins árs undirbúningur fyrir nám í
hönnun - myndlist eða arkitektúr.
Um 80% útskrifaðra nemenda fara
áfram til náms á háskólastigi.
www.myndlistaskolinn.is
Leir og
tengd efniMÓTUN
MYNDLISTA- OG
HÖNNUNARSVIÐ
Mótun A-hluti og C-hluti - umsóknarfrestur til 1.júní
Myndlista- og hönnunarsvið / 2009-2010
Mótun - leir og tengd efni / 2009-2010
Námið er tilraunastofa þar sem efni,
aðferðir og hugmyndir mætast.
Ný námsbraut - leið til BA gráðu.
www.myndlistaskolinn.is
www.myndlistaskolinn.is