Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
TAX FREE!TAX FREE!
TAX FREE!
ÖLL
BÚSÁHÖLD
TAX FREE!
ÖLL
REIÐHJÓL
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
og Rúnar Pálmason
SÖGULEG þingsályktunartillaga
ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna um aðildarumsókn
að Evrópusambandinu (ESB), sem
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra mælir fyrir, er mikið
hitamál á Alþingi eins og gefur að
skilja. Tillagan, sem jafnframt er sú
fyrsta sem ríkisstjórn Íslands hef-
ur flutt um aðildarumsókn að ESB,
er ekki síst umdeild fyrir þær sakir
að fyrir liggur að Vinstri græn eru
andvíg aðild að ESB samkvæmt
stefnu flokksins.
Ræður þingmanna á Alþingi í
gær tóku mið af þessum pólitísku
átakalínum og mátti Steingrímur J.
Sigfússon, fjármálaráðherra og for-
maður Vinstri grænna, fara ítrekað
upp í ræðustól til þess að svara því
hverju það sætti að ríkisstjórn sem
Vinstri græn ættu aðild að, væri að
beita sér fyrir þessu máli. Stein-
grímur, sem neitaði að gefa upp
hvort hann ætlaði að greiða at-
kvæði með eða á móti tillögunni,
sagði hana vera málamiðlun í ólíkri
stefnu flokkanna. Mikilvægast væri
fyrir hvern og einn þingmann að
kjósa eftir sinni sannfæringu og
treysta þjóðinni til þess að eiga
lokaorðið. Það væri þingsins að
tryggja faglega meðferð málsins.
Steingrímur sagði ennfremur að
ekki væri ólíklegt að tillagan tæki
breytingum og ekki síst þess vegna
vildi hann bíða með að mynda sér
skoðun á málinu.
Verður Samfylkingin undir?
Sjálfstæðis- og framsóknarmenn
freista þess að fá Vinstri græn til
þess að styðja frekar tillögu þeirra
en ríkisstjórnarinnar. Það mátti
heyra á ræðum þingmanna flokk-
anna í gær. Stjórnarþingmenn tóku
hins vegar ekki undir þetta, nema
að litlu leyti, og sögðu sumir þeirra
og hún væri „óþarft milliskref“. Ró-
bert Marshall, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, var einn þeirra og sagði
sjálfstæðis- og framsóknarmenn
vera að tefja málið með málaleng-
ingum.
Sameiginleg tillaga sjálfstæðis-
og framsóknarmanna, sem greint
var frá í Morgunblaðinu í gær, hef-
ur þó ekki verið formlega rædd
enn.
Í samtölum við Morgunblaðið í
gær sögðu þingmenn að áherslur
Steingríms J. og Árna Þórs í ræð-
um um tillöguna bentu til þess að
Vinsti græn ætluðu sér ekki að láta
tillöguna sem Össur mælir fyrir
fara óbreytta í gegn. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
það verið rætt innan þingflokks
Vinstri grænna. Utanrík-
ismálanefnd, undir stjórn Árna
Þórs, myndi sjá til þess að tillög-
unni yrði breytt á þann veg að
Vinstri græn gætu betur sætt sig
við hana. Árni Þór sagði meðal ann-
ars að hann „þyrfti ekkert að
spyrja Össur“ að því hvernig um-
fjöllun tillagan fengi í utanrík-
ismálanefnd.
Fari svo að tillögunni verði
breytt á þann veg að hún þrengi
samningsstöðu Íslands gagnvart
ESB, sérstaklega í landbúnaðar- og
sjávarútvegsmálum, þá er ekki
ólíklegt að samfylkingarfólk myndi
segja að það hefði orðið undir. Ef
marka má áhersluna sem þing-
menn flokksins hafa lagt á ESB-
málið, þá munu þeir vafalítið reyna
að forðast alla töf á málinu. Ræður
þeirra í þinginu voru flestar á þann
veg, að flýta þyrfti málinu sem allra
mest þar sem umsókn um aðild að
ESB væri hluti af lausn á efnhags-
legum bráðavanda sem bankahrun-
ið í október hefði skapað.
Tillögur sameinaðar
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa sumir hverjir talað fyrir því að
tillögu þeirra og framsóknarmanna
mætti slá saman við tillögu rík-
isstjórnarinnar. Sama má segja um
fleiri og sagðist Steingrímur J.
meðal annars ekki sjá neitt því til
fyrirstöðu að tillögurnar yrðu sett-
ar saman. Þannig mætti ná víðtæk-
ari sátt um málið innan og utan
þings.
Morgunblaðið/Ómar
Á móti aðild Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hefur til þessa verið yfirlýstur andstæðingur aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
VG vill ná sínu fram
Rætt hefur verið um það innan þingflokks VG að ná fram breytingum á
ESB-tillögu í utanríkismálanefnd Samfylkingin vill flýta málinu sem mest
HAGSMUNASAMTÖK námsmanna sem sitja í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) skoruðu í gær á
Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra að gefa skýr
svör um fjárveitingu ríkisins til LÍN fyrir næsta skólaár
og tryggja námsmönnum betri lánakjör. Í yfirlýsingu
sem afhent var ráðherra í gær var á það bent að und-
anfarna tvo mánuði hefðu úthlutunarreglur LÍN verið til
endurskoðunar innan stjórnar, en til þess að unnt væri
að klára þær viðræður, þyrftu skýr svör að berast um
fjárveitingu til sjóðsins.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Ingólfur Birgir Sig-
urgeirsson, fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands í
stjórn LÍN, ljóst að fjármagnsþörf sjóðsins myndi
aukast frá undangengnu skólaári þar sem fjölgun náms-
manna væri veruleg og viðbúið að námsmenn leituðu í
auknum mæli eftir aðstoð frá LÍN. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Ingólfi sagðist ráðherra vonast til þess að mál-
ið skýrðist sem fyrst og að ekki þyrfti að koma til skerð-
ingar á kjörum námsmanna. Að mati Ingólfs voru það
ekki ásættanleg svör þar sem ljóst sé að kjör náms-
manna hafi þegar skerst mikið vegna þróunar verðbólg-
unnar að undanförnu. „Við verðum að fá skýr svör og
skiljum ekki hvað er að tefja málið,“ segir Ingólfur.
silja@mbl.is
Skýr svör óskast
Krefja menntamálaráðherra svara um hver framtíðarsýn rík-
isstjórnar á LÍN sé og hver kjör nema verði á næsta skólaári
Morgunblaðið/Eggert
Móttekið Ráðherra tekur við áskorun námsmanna.
Sigmundur Davíð sagði að Samfylkingin mætti
velta því fyrir sér hvernig umsókn liti út í augum
umheimsins. Undanfarið hefði verið fjallað um það í
erlendum fjölmiðlum hversu illa væri komið fyrir
þjóðinni, alltaf um eitt atriði, um það að Ísland væri
á hausnum, hér væri skelfingarástand. „Svo kemur
frétt um það að Íslendingar hafi skilað inn umsókn
um aðild að Evrópusambandinu. Þeir hafi reyndar
ekkert verið búnir að finna út úr því hvernig þeir
ætluðu að leysa úr atvinnuleysisvandanum hjá sér,
þeir væru á hausnum og þar fram eftir götunum. En
þeir ætluðu að sækja um aðild að Evrópusamband-
inu og það væri gert vegna þess að flokkurinn sem færi með aðild-
arviðræðurnar, hann væri búinn að útskýra fyrir þjóðinni að þetta væri
okkar eina von. Evrópusambandið væri einhvers konar björgunarfélag
[...] Það er ekki mikil reisn yfir því að nálgast Evrópusambandið með
þessum hætti. Hvar er sjálfsvirðingin? Hvar er sæmdin?“
Evrópusambandið sem „björgunarfélag“?
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Orðrétt
um ESB
á Alþingi
’Ég vil segja það alveg skýrt að að-ild er engin töfralausn.ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
’Málið ber þess öll merki að þaðvar sviðið út úr Vinstri grænummeð heitum töngum og lagt fram ímiklum ágreiningi.
BJARNI BENEDIKTSSON
’Ég geri athugasemdir við að frúforseti skuli gera athugasemdirvið að við séum að gera athugasemdirvið fundarstjórn forseta. Er einhversem náði þessari setningu?
EYGLÓ HARÐARDÓTTIR
’Síðan vil ég spyrja hæstvirtanráðherra hvernig hann sér Evr-ópusambandið eftir 50 eða 100 ár. Núeru breytingar í gangi og það er veriðað tala um breytingar á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu. Og það minnir mig á það
að drottinn gaf og drottinn tók. Það
sem Evrópusambandið getur breytt í
eina átt, getur það breytt í aðra átt.
PÉTUR H. BLÖNDAL
’Ég er bara ráðherra á plani. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON ’Eru ráðherrar Vinstri hreyfing-arinnar græns framboðs ennþáófundnir? Eru þeir kannski með slökktá símanum í sumarbústað með dregiðfyrir gluggana?
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON
’Hvar er sannfæringin í þessumáli? Hvar er greinargerðin umþað, að nú stöndum við Íslendingar áþeim tímamótum að það sé skyn-samlegt fyrir okkur að dýpka sam-
starfið við Evrópusambandið? Að EES-
samningurinn standi svo höllum fæti
að það verði ekki búið við hann til
langrar framtíðar?
BJARNI BENEDIKTSSON
’Þessum ríkjum væntanlega tókstað semja við Evrópusambandiðvegna þess að þau höfðu ekki Samfylk-inguna.
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON
’Þannig að hann (Árni Þór Sigurðs-son) ætlar að veita utanrík-ismálanefnd allan þann tíma sem hanntelur og nefndarmenn telja að þurfi tilþess að undirbúningurinn verði með
þeim hætti að við getum verið stolt af
honum.
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
’Það er sorglegt að verða vitni aðþeirri gamaldags hjólfarapólitík,sem hér er stunduð í sölum Alþingis.Sjálfstæðismenn og framsóknarmenneru búnir að finna sér leið til að vera á
móti tillögu, sem þeir eru efnislega
sammála.
RÓBERT MARSHALL