Morgunblaðið - 29.05.2009, Side 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
STANGVEIÐI
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„ÞETTA hefur verið barátta í allan
vetur en við sjáum fram á að þetta
hafist. Hljóðið er orðið bjart í okk-
ur,“ segir Stefán Sigurðsson, sölu-
stjóri hjá Lax-á, einum stærsta sölu-
aðila veiðileyfa hér á landi, þegar
hann er spurður um stöðuna í lax-
veiðileyfum fyrir sumarið. Laxveiðin
hér á landi hefst eftir viku í Norðurá
og í Blöndu en Stefán verður sjálfur
við veiðar við opnun Blöndu þar sem
laxinn er mættur; tveir sáust í
Damminum í vikunni.
„Það er gríðarfín sala í ódýrari
veiðileyfum. Ár sem hafa ekki verið
mjög vinsælar síðustu tvö ár eru að
seljast upp, þar sem dagurinn kost-
ar 20 til 30 þúsund. Það hefur líka
gengið vel að selja fyrri og seinni
hlutann í flestum ánum. Svo er verið
að berjast í miðbikinu,“ segir Stefán.
„Þetta er ekki eins og síðustu tvö
ár. En ég hef verið lengur í sölu
veiðileyfa en það og man hvernig
þetta var áður. Stundum þarf bara
að hafa fyrir hlutunum.“
Hann segir markvissa sókn eftir
erlendum veiðimönnum hafa skilað
árangri. „Þetta eru bæði kúnnar
sem voru hættir að koma út af verð-
inu á Íslandi og svo einhverjir nýir.
Við höfum 20 ára gamlan viðskipta-
mannalista, það hafa svo margir
komið á okkar vegum í gegnum tíð-
ina og við höfum selt mörgum þeirra
leyfi aftur núna.“
Bleikjan mætt á Þingvöllum
Fregnir hafa borist af því að
bleikjan sé farin að gefa sig fyrir
landi þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Sumir veiðimenn fara heim fisk-
lausir en aðrir hafa fengið nokkra
fiska þegar lánið leikur við þá.
Fjölmenni hefur verið á svæðinu
síðustu vikur, þegar viðrað hefur,
enda dreymir marga um að veiða
stóra urriða. Talsvert mun hafa
veiðst af urriðanum, einkum á maðk
en líka á flugu. Einnig hefur heyrst
af veiðimönnum sem hafa beitt
makríl á næturveiðum þótt það agn
hafi verið bannað í vatninu. Hafa
þeir sem hafa orðið vitni að því
saknað þess að sjá ekki veiðiverði á
ferli.
Sumir veiðimenn sem hafa sótt
Hraunsfjörð á Snæfellsnesi heim,
hafa verið heppnir og fengið á annan
tug bleikja. Segja þeir silunginn vel
haldinn. Fleiri vötn eru gjöful, til að
mynda mun veiðin hafa verið góð í
Skorradalsvatni í vor og sögur hafa
heyrst af silungströllum um 20
pundin, þótt flestir láti sér fiska á
bilinu eitt til tvö pund nægja.
„Barátta í vetur“
„Gríðarfín sala“ sögð í ódýrari laxveiðileyfum „Svo er
verið að berjast í miðbikinu“ Vatnableikjan veiðist víða vel
Morgunblaðið/Golli
Bleikjuskot Dagur Jónsson búinn að landa nokkrum fallegum bleikjum í
Kaldós í Hlíðavatni. Vel hefur veiðst í mörgum vötnum í vor.
ICERRAY mælanetið í Hveragerði
sem styrkt var af Evrópusambandinu
hefur verið valið eitt af 75 verkefnum
sem talið er að hafi heppnast sérstak-
lega vel og sagt verður frá í fyrirhug-
aðri bók Marie Curie-nefndar sam-
bandsins. Sagt er frá íslenska
hröðunarmælinetinu á alþjóðlegri
ráðstefnu í Háskóla Íslands í dag þar
sem fjallað er um áhrif jarðskjálfta.
Þegar Benedikt Halldórsson jarð-
skjálftaverkfræðingur var í doktors-
námi í Bandaríkjunum á árinu 2004
sótti hann um svonefndan heimkomu-
styrk Evrópusambandsins, í sam-
vinnu við Ragnar Sigbjörnsson, pró-
fessor við Háskóla Íslands og
forstöðumann Rannsóknarstöðvar
Háskóla Íslands í jarðskjálftaverk-
fræði sem aðsetur hefur á Selfossi.
Styrkurinn er ætlaður til að fá evr-
ópska vísindamenn til baka og stuðla
að því að þeir ílendist í Evrópu.
Uppsetning jarðskjálftanetsins
tókst vel. Settir voru upp fjórtán
hröðunarmælar í Hveragerði og þeir
tengdir mælaneti Jarðskjálftamið-
stöðvarinnar. Suðurlandsskjálftarnir
2008 komu aðeins sjö mánuðum síðar
og kom það því fljótt að notum. „Við
vitum ekki til þess að svona stór jarð-
skjálfti hafi verið mældur jafn
skammt frá sprungu með svona
mælaneti. Þetta er því einstakt á
heimsmælikvarða,“ segir Benedikt.
Tækin hafa verið þróuð áfram og í
næsta skjálfta, hvenær sem hann
verður, fær Benedikt upplýsingar um
hreyfinguna og hversu lengi hún stóð
yfir á hverjum stað sem smáskilaboð í
símann sinn og tölvupóst, innan við
mínútu eftir að hann ríður yfir. Þeim
upplýsingum er hægt að koma til yf-
irvalda og geta þær nýst við björg-
unarstörf.
Ráðstefnan í dag er opin öllum. Í
fyrirlestrum verður ekki einungis
fjallað um eðli jarðskjálfta og áhrif
þeirra á byggingar, heldur einnig
efnahagsleg og félagsleg áhrif.
helgi@mbl.is
Velheppnuð
rannsókn
Fjallað um áhrif
jarðskjálfta á
ráðstefnu í HÍ
Morgunbalðaið/RAX
Sprunga Benedikt Halldórsson við
skjálftasprunguna í Hveragerði.
RÁÐHERRAFUNDUR Evrópuráðsins um fjölmiðla og
nýja miðla, sem hófst á hótel Nordica í gær, veitir von-
andi nýja sýn, nýja staðla og nýjar vaktleiðir. Þetta
kom fram í máli Philippe Boillat, stjórnanda Evr-
ópuráðsins á sviði mannréttinda og lögfræði á blaða-
mannafundi hans og Katrínar Jakobsdóttur mennta-
málaráðherra.
Á ráðherrafundinum er m.a. rætt hvernig fjölmiðlar
hafa breyst með tilkomu nýrra miðla – bloggs, leit-
arvéla, samskiptavefja og netveitna. Sérstaklega er svo
litið til áhrifa nýju miðlanna á tjáningarfrelsi og per-
sónuvernd.
Boillat ítrekaði einnig mikilvægi ráðherrafunda á
borð við þennan fyrir ráðið, enda er gert ráð fyrir að
þar verði teknar ákvarðanir um stefnu Evrópuráðsins í
málefnum fjölmiðla og nýmiðlunar til næstu fimm ára.
Þess má geta að slíkar ákvarðanir hafa jafnan verið
leiðbeinandi fyrir lagasetningu í Evrópuríkjum og víð-
ar. „Það er gott að hafa staðla, en það er betra að koma
þeim í framkvæmd,“ sagði Boillat.
Ráðherrar allra 47 ríkja Evrópuráðsins eða fulltrúar
þeirra sitja fundinn, sem og fulltrúar alþjóðlegra hags-
munasamtaka, en gert er ráð fyrir að um 300 erlendir
gestir séu hér á landi af þessu tilefni. annaei@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Í ráðherrahópi Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, ásamt ráðherrum ríkja Evrópuráðsins á ráðherrafund-
inum á Nordica, en öll 47 ríki ráðsins eiga fulltrúa á fundinum. Um 300 erlendir gestir eru hér af þessu tilefni.
Stefnan mótuð á Íslandi?
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?
Tilboð – Tilboð – Tilboð – Tilboð
6 og 7 parta flugustangir
frá March Brown