Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
RÁÐAMENN í Norður-Kóreu hóta
nú enn einu sinni að ógilda samning-
inn um vopnahlé frá 1953 og aftur er
komin upp geysileg spenna á landa-
mærum ríkjanna tveggja á Kór-
euskaga, spenna vegna þess að
hætta er á blóðugri átökum en menn
hafa séð um langt skeið í heiminum.
Nú ráða norðanmenn ekki aðeins yf-
ir fjölmennum og þrautþjálfuðum,
hefðbundnum herafla heldur einnig
kjarnorkuvopnum þótt þau séu fá og
vafalaust mjög ófullkomin. Einnig er
talið að ríkið eigi um 900 eldflaugar,
flestar að vísu skamm- eða með-
aldrægar en samt öflug vopn.
Hverju má búast við ef skærur,
sem búist er við að verði á hafinu,
þróast í eitthvað verra, hvað ef land-
hernaður hefst? Ekki var beitt
kjarnorkuvopnum í Kóreustríðinu
1950-1953 en þrátt fyrir það lágu
nær þrjár milljónir manna í valnum
áður en yfir lauk. Og N-Kóreumenn
eru gráir fyrir járnum, hafa alls um
1200 þúsund manns undir vopnum
og eiga um 2000 skriðdreka. Aðeins
þrjú ríki ráða yfir stærri herjum.
Tíu milljóna borg í skotlínunni
Rösklega helmingurinn af landher
norðanmanna, um 700.000 manns,
mun vera með bækistöðvar um 150
km norðan við hlutlausa beltið á
landamærunum. Beltið er um fjög-
urra km breið landræma sín hvorum
megin við 38. breiddarbaug. Höf-
uðborgin, Seúl, með um 10 milljónir
íbúa, er í aðeins nokkurra tuga km
fjarlægð frá landamærunum og því
nánast berskjölduð. Og eitt af því
sem veldur ugg er að n-kóreski her-
inn er talinn ráða yfir verulegu
magni af efnavopnum.
Alls er talið að um 20% allra karl-
manna í N-Kóreu á aldrinum 17-54
ára séu í her, flota eða flugher. Sér-
sveitir N-Kóreumanna eru taldar
betur þjálfaðar en flestar slíkar í
öðrum löndum og þeim er m.a. ætlað
að lama andstæðinginn með spell-
virkjum af margvíslegu tagi áður en
hinn eiginlegi her ræðst til atlögu.
Vopnasmiðjur Kim Jong-Ils eru
gamaldags og óljóst er hvort norð-
anmenn ráða yfir allri þeirri hátækni
sem nauðsynleg þykir í nútímaherj-
um, nætursjónaukum, háþróuðum
fjarskiptatækjum og öðru slíku.
En herinn ræður yfir svo miklu af
þungavopnum að hann gæti senni-
lega valtað yfir andstæðing sinn í
suðri. Þótt Suður-Kóreumenn séu
liðlega tvisvar sinnum stærri þjóð
eru þeir með aðeins um 680.000
manns undir vopnum.
Tifandi tímasprengja á Kóreuskaga
Kim Jong-Il, einræðisherra í Norður-Kóreu, ögrar áfram grönnum sínum og Bandaríkjamönnum
Ráðist herir hans á Seúl munu Bandaríkjamenn verða að svara og verja bandamenn sína
Reuters
Viðbúnir Suður-kóreskir hermenn í fallbyssuvagni sínum á leið til æfinga í
Paju, rétt við hlutlausa beltið og um 45 km norðan við Seúl, í gær.
Norður-Kóreumenn eru gráir fyr-
ir járnum, þótt þjóðin sé bláfá-
tæk. Ráðamenn hennar virðast
ætla að láta sverfa til stáls í deil-
unum við Suður-Kóreumenn og
Bandaríkjamenn.
ÁSTRALSKI vélhjólasnillingurinn Robbie Maddison sýndi listir sínar við
frægan búgarð, Bar U Ranch, í Kanada í gær. Hefur hann verið notaður í
frægum kvikmyndum, m.a. Unforgiven. Í fjarska sjást Klettafjöllin.
Hvað er upp og hvað niður?
Reuters
Þyngdaraflinu storkað
BARACK Obama, forseti Banda-
ríkjanna, ræddi í gærkvöldi við
Mahmoud Abbas, forseta Palestínu-
manna, sem fór til Washington í von
um að stjórn Obama legði fastar að
stjórnvöldum í Ísrael að samþykkja
stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis.
Fyrr um daginn hafnaði stjórn Ísr-
aels kröfu Bandaríkjastjórnar um að
stöðva algerlega stækkun landtöku-
byggða gyðinga á Vesturbakkanum.
Obama hefur lagt áherslu á nauð-
syn þess að knýja fram tveggja ríkja
lausn en Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra Ísraels, var ekki tilbú-
inn til að fallast á stofnun sjálfstæðs
Palestínuríkis þegar hann ræddi við
bandaríska forsetann í Hvíta húsinu
í vikunni sem leið. Netanyahu sagði
aðeins að Ísraelar væru tilbúnir til
að ganga þegar í stað til friðarvið-
ræðna og Palestínumenn ættu að
stjórna sér sjálfir fyrir utan ákveðin
völd sem gætu skaðað Ísraelsríki.
Abbas og heimastjórn Palestínu-
manna á Vesturbakkanum hafa sagt
að ekki komi til greina að hefja
friðarviðræður við Ísraela nema þeir
stöðvi stækkun landtökubyggðanna.
Stjórn Obama hefur tekið undir þá
kröfu en talsmaður stjórnar Net-
anyahus virti hana að vettugi í gær.
Hann sagði að deilan um byggðirnar
yrði leyst í friðarviðræðum en þang-
að til myndu Ísraelar heimila stækk-
un landtökubyggða í samræmi við
eðlilega fjölgun íbúanna.
Engar nýjar byggðir
Netanyahu sagði á ríkisstjórnar-
fundi að ekki yrðu reistar nýjar land-
tökubyggðir en heimilt yrði að reisa
ný hús í byggðum, sem fyrir eru, til
að gera íbúunum kleift að eignast
börn og ungu fólki að stofna heimili.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að Obama
hefði sagt við Netanyahu að Ísraelar
þyrftu að stöðva stækkun byggð-
anna, ekki væri nóg að reisa engar
nýjar landtökubyggðir. bogi@mbl.is
Ríkisstjórn
Ísraels hafnar
kröfu Obama
Netanyahu segir að ekki komi til greina
að stöðva stækkun landtökubyggða
Í HNOTSKURN
» Um 280.000 Ísraelar búa íum 120 landtökubyggðum,
sem Ísraelsstjórn hefur sam-
þykkt á Vesturbakkanum, og
um 190.000 í byggðum í Aust-
ur-Jerúsalem.
» Íbúum landtökubyggð-anna hefur fjölgað um
5-6% á ári frá 2001.
EFNT verður til hátíðarhalda í Frakklandi 6. júní til að
minnast þess að liðin verða 65 ár frá því að bandamenn
gerðu innrás í Normandie. Forsetarnir Nicolas Sarkozy
og Barack Obama verða viðstaddir athöfn í Ste. Mere-
Eglise, nálægt ströndinni þar sem Bandaríkjamenn lentu.
Elísabetu Bretadrottningu mun ekki hafa verið boðið;
Gordon Brown forsætisráðherra verður fulltrúi Breta við
athöfn í Arromanches. Elísabetu, sem er 83 ára, mun ekki
vera skemmt en þess má geta að hún var sjálfboðaliði í
breska hernum í seinni heimsstyrjöld, hlaut þjálfun sem
bílstjóri og bifvélavirki. Misvísandi svör fást hjá embætt-
ismönnum Breta og Frakka um ástæðuna fyrir klúðrinu.
Bretadrottning hundsuð á
hátíð vegna innrásardags?
Elísabet í stríðslok.
FRAM kemur í ársskýrslu mann-
réttindasamtakanna Amnesty Int-
ernational að traðkað hafi verið á
mannréttindum víða um heim í nafni
öryggis og baráttu gegn hryðjuverk-
um. Heimskreppan og áherslan á
endurreisn efnahagskerfa heimsins
hafi beint athygli manna frá mann-
réttindamálum.
Byggt er á gögnum frá 157 ríkj-
um. Hækkanir á matvælaverði eru
sagðar hafa gert milljónum manna
erfitt um vik að brauðfæða sig og
sína og mótmæli séu brotin á bak
aftur. Stefna sem byggð sé á mark-
aðshyggju hafi aukið gjána milli
ríkra og fátækra og víða gert hundr-
uð milljóna manna berskjölduð
gagnvart fátækt án þess að í sam-
félögum þeirra séu nokkur örygg-
isnet eins og í velferðarríkjum.
Þá segir að hækkanir á mat-
vælaverði hafi komið sérstaklega illa
niður á fólki í Austur-Kongó, Norð-
ur-Kóreu, á Gaza og í Darfur-héraði.
Einnig komi kreppan illa niður á far-
andverkafólki í Kína og indíánum í
Rómönsku Ameríku. kjon@mbl.is
Þrengt
að rétt-
indunum
Amnesty gagnrýnir
markaðshyggjulausnir
HLUTFALLS-
LEGA færri
Bandaríkja-
menn reyna nú
að temja sér
heilsusamlegan
lífsstíl en 1988,
segir í Americ-
an Journal of
Medicine. Hlut-
fall þeirra sem
þjást af offitu
hefur einnig
hækkað, úr 28% í 36%.
Árið 1988 stunduðu 53% fullorð-
inna Bandaríkjamanna líkamsrækt
þrisvar í viku eða oftar en nú aðeins
43%. Mun færri borða nú reglulega
mikið af ávöxtum og grænmeti. En
tíðni reykinga hefur staðið í stað og
hófdrykkja aukist aðeins lítillega.
kjon@mbl.is.
Heilsan ekki
í fyrirrúmi
Getur S-Kórea varið sig?
Varla án aðstoðar bandamanna
sinna en Bandaríkin hafa aðeins
um 29.000 manna herlið í land-
inu. Hlutverk þess er að minna
norðanmenn á að Bandaríkin hafa
heitið að verja Suður-Kóreu.
Hvað ef N-Kórea ræðst á Seúl?
Talið er líklegt að her landsins
gæti tekið borgina með skyndi-
árás. Ekki er gott að spá um við-
brögð Bandaríkjamanna. En hing-
að til hafa menn reiknað með að
óttinn við kjarnorkuárás af hálfu
þeirra héldi aftur af Kim.
S&S