Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 19
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Jón Ingvar Jónsson sendi BirniIngólfssyni kveðju á 65 ára
stórafmælinu sem var til umfjöll-
unar í Vísnahorninu í gær:
Árafjöldann illa ber,
aftur hratt í mörgu fer,
hversu lítið eftir er
ekki vil ég segja hér.
Jón Ingvar áttaði sig óðar á því,
að vísan hafði misritast smávægi-
lega, og bætti úr því:
Ens og hetja árin ber,
allt úr hendi stórvel fer,
framtíð glæst nú eftir er,
þótt engin leirskáld fylgi þér.
Það varð til þess að upp rifjaðist
vísa, sem Magnús heitinn á Vöglum
átti að hafa ort um Gísla son sinn og
Stínu tengdadóttur sína, sem þá
voru tekin við búi á Vöglum:
Lítill er Vaglaljósgeislinn,
líður að hörðum vetri.
Gísli er eins og andskotinn
og ekki er Stína betri.
Sagt er að Gísli hafi heyrt vísuna
og borið hana undir gamla mann-
inn, sem sagði hann hafa látið ljúga
að sér og rétt væri vísan svona:
Lýsir Vaglaljósgeislinn,
líður að hörðum vetri.
Góður ertu Gísli minn
og gullinu Stína betri.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af vísum og „misritun“
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
Þeir sem hafa hug á aðrækta eigin kryddjurtiren eru ekki vissir umhvernig skuli bera sig að
geta nú andað léttar, því sala á
sjálfvökvandi kryddjurtapottinum
GrowMe hefst nú í vikunni.
GrowMe er samstarfsverkefni
Listaháskóla Íslands og Háskólans
í Reykjavík, en hann hlaut fyrstu
verðlaun í námskeiði sem árlega er
kennt við báða skólana.
GrowMe ræktar ýmsar krydd-
tegundir, svo sem basiliku, timjan
og kóreander. Hann er fram-
leiddur í Bjarkarási, sem er hæf-
ingarstöð fyrir fólk með þroska-
hömlun.
„Í gegnum árin hefur verið nóg
af verkefnum í Bjarkarási, en strax
í fyrra fór að bera á verkefnaskorti
vegna efnahagsástandsins. Hug-
myndin var því að koma með nýja
vöru sem Bjarkarás gæti framleitt
og selt. Á Bjarkarási er gróðurhús
þar sem grænmeti er ræktað og
okkur fannst tilvalið að vinna út
frá því,“ segir Bylgja Rún Svans-
dóttir, nemi í vöruhönnun við LHÍ
og einn af hönnuðum GrowMe.
„Það hefur þegar myndast nokk-
uð mikil eftirspurn, sérstaklega frá
fólki í kringum okkur. Núna er líka
vinsælt að rækta eigin kryddjurtir
og grænmeti.“
„Ég er góð með pasta!“
GrowMe, sem er algjörlega
handgerður, er gerður úr leir og
hann samanstendur af tveimur
skálum sem mynda kúlu. Í efri
skálinni er moldin og það sem
heldur moldinni uppi er afskorin
blaðra. Fræin eru svo sett í mold-
ina. Frá blöðrunni liggur kveiki-
þráður upp í moldina og niður í
neðri skálina þar sem vatnið er.
Kveikiþráðurinn sér um að halda
réttum raka á moldinni, þannig fær
kryddjurtin alltaf rétta næringu.
„Við vildum hafa svolítinn leik í
þessu, þaðan kemur til dæmis hug-
myndin um blöðruna. Svo fylgir
með hverri plöntu bæklingur þar
sem plantan sjálf leiðbeinir manni
um hvernig eigi að hlúa að sér. Þar
eru líka uppskriftir og stungið upp
á réttum til að nota kryddjurtirnar
í,“ segir Bylgja.
GrowMe verður til sölu í Bjark-
arási, sem er til húsa við Stjörnu-
gróf 9 í Reykjavík og þar er opið
milli níu og fjögur.
Kryddjurtir sem
vökva sig sjálfar
Undratól GrowMe er sjálfvökvandi kryddjurtapottur og samstarfsverkefni
Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, framleitt af Bjarkarási.
Morgunblaðið/Golli
Hönnuður Bylgja Rún Svansdóttir,
nemi í vöruhönnun við LHÍ og einn
af hönnuðum GrowMe.
Grunnnám málmiðngreina er grunnur að bjartri
framtíð og faglegri undirstöðumenntun fyrir:
Blikksmíði•
Rennismíði•
Stálsmíði•
Vélvirkjun•
Véltækniskólinn býður nýtt og
áhugavert nám að loknum grunnskóla.
Grunnnám þar sem fléttast saman
vélstjórnarnám og málmiðnir.
Fagfólk
vantar
Atvinnulífið þarf vel
menntað starfsfólk.
Menntaðu þig til starfa
framtíðarinnar.
Skráning í grunndeild málmiðna stendur
til 11. júní.
Nánari upplýsingar á www.tskoli.is.
í málm- og véltækni
Skoðaðu gardplontur.is og nýttu þér dýrmæta þekkingu
og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR.
„Íslensk blóm
eru harðgerð,
kröftug og fersk.“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
Í áratugi hafa íslenskir garðyrkjubændur unnið að því að byggja upp
og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu. Nú hafa þeir
opnað vefinn gardplontur.is Þar má finna margvíslegan fróðleik.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
G
B
46
29
6
05
/0
9