Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 22

Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 ÞIÐ SEM eruð komin yfir miðjan aldur munið þið eftir verðlags- og gjald- eyriseftirlitinu? Mun- ið þið þegar einn rík- isbanki verslaði með gjaldeyri og hann var skammtaður úr hnefa? Munið þið eft- ir Skipaútgerð rík- isins, Lyfjaverslun ríkisins og Síldarverksmiðjum rík- isins? Munið þið þegar síldin hvarf á sjöunda áratugnum og þúsundir Íslendinga flúðu land, því hér var enga vinnu að fá? Munið þið eftir skyldusparnaðinum? Munið þið eft- ir eins- og tvíeyringunum? Munið þið þegar lítil kók í gleri kostaði fimm krónur og til var fimmkrónuseðill með mynd af Ingólfi Arn- arsyni? Munið þið þeg- ar efnahagsstefnan byggðist á því að reka sjávarútveginn á núlli? Munið þið þegar gengi íslensku krónunnar var fellt reglulega til að styrkja stöðu út- flutningsgreinanna sem endaði með því að krónan var orðin svo verðlítil að klippa þurfti tvö núll aftan af á átt- unda áratugnum? Munið þið eftir álkrónunni? Hún flaut! Munið þið þegar íslenska krónan var jafngild þeirri dönsku? Munið þið eftir verðtryggingunni sem var komið á í lok áttunda áratugarins? Munið þið að launin voru líka verðtryggð um tíma, en svo var verðtrygging launa afnumin? Munið þið eftir Steingrími Hermannssyni, seðla- bankastjóra, sem taldi setu sína á þingi og í ríkisstjórn jafnast á við doktorspróf í hagfræði? Munið þið eftir óðaverðbólgunni í byrjun ní- unda áratugarins þegar höfuðstóll lána hækkaði um tugi prósenta? Munið þið eftir Sigtúnshópnum og ötulum talsmanni hans, Ögmundi Jónassyni? Munið þið eftir efna- hagslægðinni í byrjun tíunda ára- tugarins og þjóðarsáttarsamning- unum? Munið þið eftir sk. hátekjuskatti? Munið þið þegar evran kostaði 88 krónur íslenskar? Það er af nógu af taka en stað- reyndin er sú að stjórn efnahags- mála á Íslandi er ein samfelld raunasaga. Því miður virðist skamm- tímaminni margra gloppótt og langtímaminnið lítið sem ekkert, en ég man og þess vegna er ég fylgjandi aðildarviðræðum við ES. En það kemur fleira til. Í sept- ember sl. eignuðumst við hjónin okkar fyrsta barnabarn. Þessi litli en duglegi og kraftmikli ein- staklingur er að hefja lífið með milljónaskuld á bakinu, skuld sem hann hefur ekki stofnað til. Sem betur fer er hann óviti og veit ekki enn hvað bíður hans. Foreldrar hans eru hins vegar bundin í viðjar verðtryggingar og okurvaxta og geta sig hvergi hrært. Þess vegna er ég fylgjandi aðildarviðræðum við ES. Ég vil að börnum mínum, tengda- og barnabörnum bjóðist sömu tækifæri og evrópskum jafn- ingjum þeirra. Ég óska þess að þau njóti góðra lífskjara og tæki- færa, en axli jafnframt þá ábyrgð og skyldur sem þeim eru búin sem evrópskir þegnar. Ég vil ekki að sú kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi þurfi að upplifa þann fárán- leika íslenskrar efnahagsstefnu sem fólk á mínum aldri hefur búið við og látið yfir sig ganga. Þess vegna er ég fylgjandi aðild- arviðræðum við ES. En fyrst og síðast er ég Íslendingur og ég full- yrði að ég er ekki síðri Íslendingur en Hjörleifur Guttormsson eða Agnes Bragadóttir, svo dæmi séu tekin. Eftir Ara Kr. Sæmundsen Ari Kr. Sæmundsson »Munið þið þegar lítil kók í gleri kostaði fimm krónur og til var fimmkrónu- seðill með mynd af Ingólfi Arnarsyni? Höfundur er framkvæmdastjóri. Munið þið? NÚ ERU um fjórir mánuðir liðnir síðan við framsóknarmenn lögðum fram efna- hagstillögur í 18 lið- um til þess að koma til móts við þann mikla vanda sem blasir við skuldugum heimilum og fyr- irtækjum. Vinstri græn og Samfylking hafa því miður ekki viljað fylgja þeim tillögum eftir – væntanlega vegna þess að þær koma ekki úr þeirra herbúðum. Við upphaf sumarþings er ekki heldur að sjá að ný ríkisstjórn ætli með neinum hætti að leita leiða til þess að forða þúsundum íslenskra fjölskyldna frá því að fá tilsjón- armann yfir heimili sín. Það á sem sagt að bregðast við eftir að við- komandi er kominn í þrot en ekki að grípa til fyrirbyggjandi að- gerða. Við framsóknarmenn telj- um með öllu óásættanlegt að horfa upp á þessa þróun. Í ljósi þess að ríkisstjórnin virð- ist vera gjörsamlega úrræðalaus er dapurlegt að samráð við stjórn- arandstöðuna skuli ekki vera meira en raun ber vitni. Í öllum stjórnmálaflokkum má finna fólk sem hefur hugmyndir og tillögur að lausnum en því miður telja for- svarsmenn ríkisstjórnarinnar greinilega að eingöngu þeirra ráð- gjafar hafi réttu lausnirnar og því er ekki einu sinni skotið á fundi með fulltrúum þeirra stjórn- málaflokka sem ekki eiga sæti í ríkisstjórn að þessu sinni. Er það í sam- ræmi við þá samstöðu og samvinnu sem for- ystumenn ríkisstjórn- arinnar hafa boðað? Nei, þessi vinnubrögð eru í algjörri mótsögn við yfirlýsingar for- sætis- og fjár- málaráðherra. Við framsókn- armenn viljum sjá rót- tækar aðgerðir til að hægt sé að byggja upp öflugt sam- félag til framtíðar. Við höfum í einlægni lagt fram tillögur að lausnum í samráði við færustu sér- fræðinga á sviði efnahagsmála í landinu. Aðgerðaáætlun sem ætti að minnsta kosti að vera einnar messu virði að fara yfir – þvert á línur stjórnmálanna. Framsókn mun eftir sem áður, í samráði við sérfræðinga á sviði efnahagsmála, halda áfram að koma fram með tillögur til að- gerða. Vonandi verður eitthvað hlustað þá. En miðað við allt, þá held ég að því miður verði raunin ekki sú. Um gildi samstöðu og samvinnu Eftir Birki Jón Jónsson Birkir Jón Jónsson »Framsókn mun eftir sem áður, í samráði við sérfræðinga á sviði efnahagsmála, halda áfram að koma fram með tillögur til aðgerða. Höfundur er þingmaður og vara- formaður Framsóknarflokksins. AÐALSTEINN Bald- ursson, verkalýðs- forkólfur á Húsavík, heldur því ranglega fram í viðtali í Morgunblaðinu hinn 25. maí sl. að „… staða fiskvinnslu- fólks [hafi] aldrei verið jafnslæm og nú tekju- lega, vegna þess að út- gerðir hafa þurft að kaupa kvóta og skuldsett sig, í nafni hagræð- ingar“. Aðalsteinn snýr þarna hlutunum á haus. Eins og meðfylgjandi línurit sýnir hafa laun fiskvinnslufólks fylgt al- mennri launaþróun und- anfarin 12 ár og gott bet- ur. Þróun launavísitölu fiskvinnslufólks sýnir að í lok síðasta árs hafði tímakaup þess hækkað meira en sem nam bæði hækkun á vísitölu á almennum vinnumarkaði svo og samanlagðri launaþróun al- menns og opinbers vinnumarkaðar samkvæmt upplýsingum frá Sam- tökum fiskvinnslustöðva. Skýringar með línuriti:  Græna línan sýnir þróun tíma- kaups í fiskvinnslu með álögum skv. kjararannsóknanefnd, Hagstofu Ís- lands og Samtökum fiskvinnslu- stöðva. Frá 2. ársfjórðungi 2005 er stuðst við vísitölu verkafólks.  Svarta línan sýnir samlagða launavísitölu almenns markaðar og hins opinbera.  Bláa línan sýnir launavísitölu á al- mennum markaði. SVEINN HJÖRTUR HJARTARSON, hagfræðingur LÍÚ. Frá Sveini Hirti Hjartarsyni Að snúa hlutunum á haus BRÉF TIL BLAÐSINS Skipholti 50b • 105 Reykjavík 15% afsláttur NICOTINELL Munnsogstöflur með bragði! Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni þegar reykingum er hætt. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið var reykt. Munnsogstöflur: skammtar mega þó aldrei vera stærri en 30 stykki á dag af 1 mg og mest 15 stykki á dag af 2 mg. Leita skal til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 18 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. ®

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.