Morgunblaðið - 29.05.2009, Síða 34
34 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
TILKYNNT hefur verið að kan-
adíski smásagnahöfundurinn Alice
Munro hljóti þriðju alþjóðlegu Man
Booker-bókmenntaverðlaunin. Man
Booker-verðlaunin eru veitt annað
hvert ár til rithöfundar sem dóm-
nefndin telur að hafi lagt ríkulegan
skerf til heimsbókmenntanna með
verkum sínum.
Verðlaunaféð nemur 60.000
pundum, um 12 milljónum króna.
Áður hafa Ismail Kadaré og Chinua
Achebe hlotið verðlaunin.
Munroe, sem er kunnust fyrir
smásagnaskrif, er einn þekktasti
rithöfundur Kanada. Þegar hún
frétti af niðurstöðu dómnefndar
sagðist hún vera afar undrandi en
jafnframt gríðarlega ánægð.
Í greinargerð dómnefndarinnar,
sem var skipuð rithöfundunum
Jane Smiley, Amit Chaudhuri og
Andrey Kurkov, segir að þrátt fyrir
að Munroe skrifi einkum smásögur
auðnist henni að gæða hverja sögu
„slíkri dýpt, visku og nákvæmni“ að
flestir rithöfundar mættu vera full-
sæmdir af í æviverki í bókum.
„Að lesa Alice Munro er að læra
eitthvað í sérhvert sinn sem þú hef-
ur aldrei hugsað um áður,“ segja
þremenningarnir.
Nýtt smásagnasafn Munroe, Too
Much Happiness, kemur út í októ-
ber. Hún er 77 ára gömul og sendi
fyrsta sagnasafnið, Happy Shades,
frá sér árið 1968. Hún hefur hlotið
fjölda viðurkenninga fyrir skrif sín.
Engar af bókum Munro hafa verið
þýddar á íslensku.
Alice Munro
hlýtur Man
Booker
Höfundinum hælt
fyrir dýpt og visku
Munro Kanadíski höfundurinn var
undrandi en ánægð með verðlaunin.
„SOPRANOS leggja allt í söl-
urnar til að koma áheyrendum
sínum í gott skap með fjörugri
söngleikjatónlist, ódauðlegum
gömlum dægurperlum og ófyr-
irgefanlega væmnum ást-
arsöngvum!!! Eitthvað sem
fólk í fýlu má ekki missa af!
Já og fólk í sumarskapi elsk-
ar!“ Svo segir í frétt söng-
kvennanna Harnar Hrafns-
dóttur, Svönu Berglindar
Karlsdóttur og Margrétar Grétarsdóttur, en þær
eru auðvitað hinar einu sönnu Sopranos, sem
halda tónleika með píanóleikaranum Antoniu He-
vesi í Hafnarborg kl. 20 í kvöld.
Tónlist
Fullar fagnaðar í
Hafnarborg í kvöld
Sopranos
HÓPUR myndlist-
armanna opnar sýn-
inguna Lýðveldið við
vatnið í Hlöðunni,
Reykjahlíð IV og í
forsal Reykjahlíð-
arkirkju við Mývatn,
á morgun kl. 15. Sýn-
ingin stendur til mánudagsins 1. júní og er opin
frá kl. 15-17 daglega. Hópinn skipa Anna Jóa,
Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir,
Hlíf Ásgrímsdóttir, Hildur Margrétardóttir,
Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munka-
þverá og Ólöf Oddgeirsdóttir, sem allar eru virkar
í myndsköpun og hafa hlotið bæði innlendar og er-
lendar viðurkenningar.
Myndlist
Lýðveldið við vatn-
ið er í Reykjahlíð
THEODÓRA Þorsteinsdóttir
sópransöngkona og Ingibjörg
Þorsteinsdóttir píanóleikari
halda tónleika á Vesturlandi
næstu daga; á mánudag kl. 17
verða þær í Stykkishólms-
kirkju og föstudaginn 5. júní kl.
20 í Borgarneskirkju. Á efnis-
skránni eru sönglög eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Grísk ljóð eftir franska tón-
skáldið Ravel, þá Sígaunaljóð
eftir Dvorák. Einnig verður lagst í flakk um söng-
leikja- og óperuheiminn. Theodóra starfar við
Tónlistarskóla Borgarfjarðar og sem einsöngvari.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Tónlist
Sígaunaljóð og arí-
ur á Vesturlandi
Theodóra
Þorsteinsdóttir
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞAÐ var mín fyrsta reynsla af Íslandi fyrir tveim-
ur árum, að fá sendan bunka af plötum og nótum
með íslenskri tónlist og bækur um Ísland og ís-
lenska menningu,“ segir bandaríski saxófónleik-
arinn Bob Minzer, en þessi ókrýndi kóngur stór-
sveitarheimsins verður gestur Stórsveitar
Reykjavíkur á tvennum tónleikum sveitarinnar á
Listahátíð, í Fríkirkjunni í Reykjavík annað kvöld
kl. 21 og í Ketilhúsinu á Akureyri á sunnudag kl. 17.
Hann hafði því engin kynni haft af Íslandi þegar
pakkinn barst, fyrir utan beiðnina um að stjórna
tónleikunum, og útsetja fyrir þá íslensk lög til
flutnings í stórsveitarbúningi, í bland við eigin tón-
list.
„Eftir að ég fékk pakkann ákvað ég að fara líka á
stúfana sjálfur til að finna út hvers ég yrði vísari
um íslenska tónlist og íslenska menningu. Mér
fannst tónlistin strax gríðarlega forvitnileg og
spennandi og hún blés mér andagift í brjóst,“ segir
Mintzer ákafur.
Heyrði lögin fyrir sér útsett
Íslensk þjóðlög eru ekki þess eðlis að manni detti
stórsveit í hug þegar á þau er hlustað; einkenni
margra þeirra er einfaldleikinn, þröngt tónsvið,
angurværð og þessi hálf-myrki og hægláti seimur –
Ljósið kemur langt og mjótt – það er ekki mikið
fjör í því þótt fallegt sé. Hvernig skyldi Bob Mint-
zer hafa farið að því að velja sér lög til að útsetja?
„Ég valdi lög sem ég gat heyrt fyrir mér í hefð-
bundnum stórsveitarútsetningum, með saxófónum,
tréblásurum, brassi og rytma. Lögin sem ég valdi
voru þau sem mér fannst vera teygjanleg og opin
fyrir þessum möguleika, en auk þess urðu þau líka
að bjóða upp á rúm fyrir spuna hljóðfæraleik-
aranna.“
Og hvað skyldi stórsveitakónginum hafa fundist
um lágstemmdu þjóðlögin okkar?
„Mér fannst þessar litlu laglínur hrífandi fallegar
á sinn sérstaka hátt. Og það sem ég uppgötvaði, að í
sumum þeirra má greina sterk áhrif frá eldgamalli
evrópskri tónlistarhefð. Það sem mér fannst sér-
staklega eftirtektarvert var það að þau bera með
sér hversu lífið á Íslandi á fyrri öldum var gríð-
arlega erfitt. Í sumum tilfellum fannst mér það í
sláandi andstæðu við fegurð laganna. Þetta segir
mér að Íslendingar á fyrri öldum hafi fundið sér at-
hvarf í tónlistinni, og ef til vill öðrum listum líka, til
að létta þungar byrðar hversdagslífsins.“
Laglínurnar fá að njóta sín
Bob Mintzer kveðst hafa viljað leyfa laglínum ís-
lensku laganna að njóta sín vel. „Ég nota þó auðvit-
að efnivið, áferð og grúvið úr nútímadjassi. Ég held
að fólk muni þekkja lögin sín vel, þótt samhengið sé
nýtt og öðru vísi miðað við það hvernig lögin voru
flutt upprunalega.“
En það eru ekki bara íslensku lögin sem tón-
leikagestir fá að heyra á tónleikum Stórsveit-
arinnar, því Bob Mintzer er líka með sín eigin verk
í farteskinu.
„Ég samdi tvö verk sérstaklega fyrir tónleikana,
en þau eru líka innblásin af þjóðlögunum, rann-
sóknum mínum á íslenskri tónlist, fyrstu heimsókn
minni til landsins og þeim frábæru tónlist-
armönnum sem spila í Stórsveit Reykjavíkur og ég
kynntist í þeirri ferð. Ég held ég geti sagt að á sinn
hátt beri þessi verk mín í sér sýn mína á Ísland eins
og ég hef kynnst því nú.“
Lögin bera lífið í sér
Bob Mintzer „Ég held ég geti sagt að á sinn hátt
beri þessi verk mín í sér sýn mína á Ísland eins og
ég hef kynnst því nú.“
New York djassarinn Bob Mintzer er gestur Stórsveitar Reykjavíkur á Listahátíð
Segir harðærið í þjóðvísunum í sláandi mótsögn við hrífandi fegurð þjóðlaganna
MARGRÉT H. Blöndal myndlist-
arkona hlaut í gær verðlaun úr sjóði
sem myndlistarmaðurinn Erró stofnaði
árið 1997. Sjóðurinn er til minningar
um frænku listamannsins, Guðmundu
S. Kristinsdóttur frá Miðengi, og er til-
gangur hans að efla og styrkja list-
sköpun kvenna með árlegu framlagi til
listakonu sem þykir skara fram úr.
Margrét hlaut hálfa milljón króna í
verðlaunafé og er jafnframt tíunda
listakonan sem er heiðruð með þessum
hætti. Sýning á verkum listakvennanna
tíu, Möguleikar, var opnuð í Hafn-
arhúsinu í gær.
„Vissulega kemur það sér vel. Fyrir
peninga kaupir maður sér tíma og hef-
ur möguleika á vinnufriði,“ svaraði
Margrét þegar blaðamaður spurði
hana að því hvort verðlaunaféð kæmi
sér ekki vel.
Fee Quay Yean, sýningarstjóri
Möguleika, líkir listsköpun Margrétar
við „það þegar tónlist er rituð, þar sem
hver einasta nóta ákvarðast af stað-
setningu hennar á nótnastrengnum,
og röð nótna og hvílda ákvarða hljóm
og þagnir, tón, takt og hljóðbyggingu
tónverksins“.
Einföld, fínleg og ljóðræn
Í tilkynningu vegna sýningarinnar
segir ennfremur að verk Margrétar
séu „einföld, fínleg og ljóðræn og eins
og mörg ljóð vísa þau til veruleika sem
við skynjum en skiljum kannski ekki
með hugvitinu“ og að hún noti „ákaf-
lega hversdagsleg efni sem hún finnur
í umhverfinu og hún kemur þeim, á
sinn hógværa hátt, fyrir í sýning-
arrýminu án þess að breyta þeim eða
upphefja“.
Margrét lauk námi frá fjöltæknideild
Myndlista- og handíðaskólans 1993 og
MFA-námi frá Rutgers University í
Bandaríkjunum 1997. Hún hefur sýnt
víða bæði hér heima og erlendis, hélt
m.a. einkasýningu í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi, í fyrra og tók þátt í
Manifesta-tvíæringnum, einnig í fyrra.
Verkið sem hún sýnir á Möguleikum
var eitt af mörgum á Manifesta. Mynd-
listarkonurnar tíu sem hafa fengið
styrk úr sjóðnum eru auk Margrétar
þær Ólöf Nordal, Finna Birna Steins-
son, Katrín Sigurðardóttir, Gabríela
Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Þóra
Þórisdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir,
Hekla Dögg Jónsdóttir og Hulda Stef-
ánsdóttir. helgisnaer@mbl.is
Möguleiki á vinnufriði
Morgunblaðið/Kristinn
Hógvær Margrét stillir sér upp ásamt Erró, stofnanda sjóðsins, og Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra eftir að hafa tekið við verðlaununum.
Margrét Blöndal er tíunda myndlistarkonan sem hlýtur
styrk úr Listasjóði Guðmundu Kristinsdóttur
www.margrethblondal.net
Að vísu komu tveir
bandarískir dýra-
verndunarsinnar, og þeir
vildu ekki þannig pizzu 35
»
Bob Mintzer hefur leitt eigin stórsveit í
New York í tæpa þrjá áratugi og gefið út 12
geisladiska með henni. Hann hefur einnig ver-
ið meðlimur í hinni þekktu „fusion“-
hljómsveit Yellowjackets undanfarin 15 ár og
leikið með henni um allan heim.
Mintzer lék með Stórsveit Buddy Rich um
langt árabil, auk þess að útsetja og semja fyr-
ir hann og ýmsa aðra, s.s. Thad Jones, Mel
Lewis, Art Blakey, Jaco Pastorius, Tito Pu-
ente, Eddie Palmieri o.fl. Bob Mintzer hefur
hlotið ein Grammy-verðlaun og verið til-
nefndur 14 sinnum.
Litríkur ferill