Morgunblaðið - 29.05.2009, Qupperneq 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Leiklistarsamband Íslands boðar
til fréttamannafundar í dag á stóra
sviði Borgarleikhússins þar sem
veittar verða tilnefningar til Grím-
unnar 2009. Verðlaunin sjálf verða
veitt við hátíðlega athöfn þriðju-
daginn 16. júní í Borgarleikhúsinu.
Þetta verður í sjöunda sinn sem
Grímuhátíðin er haldin, en Gríman
var fyrst veitt sumarið 2003. Kynn-
ar hátíðarinnar í ár eru Edda Björg
Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jó-
hannsson.
Alls komu 78 frumflutt verk til
álita til Grímunnar í ár, þar af níu
útvarpsverk, 43 almennar sýn-
ingar, 15 dansverk og 11 sýningar
ætlaðar börnum. Samtals störfuðu
yfir eitt þúsund listamenn við þessi
verk. Veitt verða verðlaun í sautján
flokkum auk þess sem heið-
ursverðlaun Leiklistarsambands Ís-
lands verða veitt þeim listamanni er
þykir hafa skilað framúrskarandi
ævistarfi í þágu sviðslista. Í ár
verða í fyrsta sinn veitt verðlaun í
flokknum hljóðmynd ársins.
Forsetinn veitir til-
nefningar til Grímunnar
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ erum hópur neðanjarðarraftónlistarmanna,
bæði menn sem eru að semja tónlist og plötusnúð-
ar,“ segir Sigurður Karl Guðgeirsson, einn að-
standenda Reyk Veek-hópsins sem stendur fyrir
tónleikum á Nasa annað kvöld. „Okkar markmið er
að halda kvöld þar sem einungis íslenskir raf-
tónlistarmenn koma fram, og reyna að draga þá
stráka út sem eru heima að semja tónlist. Við vilj-
um vera eins konar miðill fyrir þá, og koma þeim á
framfæri.“
Auk þess að standa fyrir tónleikum ætla þeir fé-
lagar að gefa út plötur, en sú fyrsta, Veek 001,
fylgir með miðum á tónleikana á Nasa annað kvöld.
Á plötunni má heyra brot af því besta sem íslenskir
raftónlistarmenn eru að fást við um þessar mundir.
En hvað á Sigurður við þegar hann talar um
„neðanjarðar“ raftónlist? „Raftónlist skiptist eig-
inlega í tvennt, það sem við erum að gera og svo
það sem mætti kalla „commercial“ raftónlist sem
er aðeins yfirborðskenndari og auðveldari í melt-
ingu,“ útskýrir hann, en síðarnefnda stefnan hefur
oft verið kennd við Ibiza. „Það sem við erum að
gera er ekki einhver söluvara, þetta er ekki tónlist
sem búin er til til þess að selja. Þessi tónlist er ekki
samin eftir klisjukenndri formúlu, ekki frekar en
t.d. indí-rokk.“
Tónleikarnir á Nasa hefjast á miðnætti annað
kvöld, en þar koma fram Karíus og Baktus, Orang
volante, Asli, Oculus og Siggi Kalli. Miðaverð er að-
eins 500 krónur. Allar nánari upplýsingar má finna
á Facebook.
Íslensk raftónlist í algleymingi á Nasa
Íslenskir Reyk Veek hópurinn hoppar hæð sína
undir dynjandi raftónlist.
Því var fagnað í Borgarleikhús-
inu á miðvikudagskvöld að tíuþús-
undasti gesturinn mætti þá á söng-
leikinn Söngvaseið. Einungis eru
tæpar þrjár vikur frá frumsýningu
sem gefur nokkra vísbendingu um
aðsóknina en söngleikurinn gengur
nú enn fyrir fullu húsi kvöld eftir
kvöld og sýnt er oft í viku og jafnan
tvisvar á dag um helgar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er löngu uppselt út leikárið og sala
á sýningar haustsins vel á veg kom-
in. Morgunblaðið sagði frá því í vor
að viðræður stæðu yfir um að
breska leikkonan Julie Andrews
kæmi hingað til lands í haust til að
vera viðstödd sýningu á söng-
leiknum en Andrews lék barnfóstr-
una söngelsku í kvikmyndinni
Sound of Music, eins og frægt er
orðið. Geta aðstandendur leiksýn-
ingarinnar í það minnsta reiknað
með fullum sal fari svo að Andrews
komi til landsins.
10.000 gestir
hafa séð Söngvaseið
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
MIKLU færri ungmenni fengu
vinnu í skapandi sumarstörfum á
vegum Hins Hússins í ár en fyrri ár.
Að sögn Ásu Hauksdóttur, deild-
arstjóra menningarmála hjá Hinu
Húsinu, voru aðeins tuttugu og fjög-
ur stöðugildi í boði í ár sem skiptast
niður í átta sumarhópa.
„Í fyrra fengu um fjörutíu ein-
staklingar vinnu við skapandi sum-
arstörf og mest hefur þetta farið upp
í rúmlega sjötíu manns árin 2004 og
2006. Þó svo þetta sé orðinn fastur
liður í starfi Hins Hússins hefur allt-
af verið tilviljunarkennt hvaða fjár-
upphæð Reykjavíkurborg setur í
þennan málaflokk en hann er háður
aukafjárveitingu frá borginni. Mér
finnst mikil afturför að draga úr
fjármagni til þessa verkefnis. Ég
taldi að aldrei væri meiri þörf á að
gæða borgina lífi en nú,“ segir Ása
og bætir við að þeim hafi borist sex-
tíu umsóknir frá yfir tvö hundruð
einstaklingum í ár.
Starfrækt í fjórtán ár
Skapandi sumarstörf eru fyrir
fólk á aldrinum 17 til 25 ára og býðst
hópum eða einstaklingum að starfa í
átta vikur á sumrin við framkvæmd
eigin verkefna á sviði lista í höf-
uðborginni. Markmiðið með verk-
efninu er að gefa ungu fólki með
áhuga á menningu og listum tæki-
færi til að sinna list sinni og lífga upp
á borgina í leiðinni yfir sumartím-
ann. Skapandi sumarstörf hófust ár-
ið 1995 en hafa verið starfrækt með
sama sniði síðan árið 2000.
„Það hefur verið sýnt og sannað
að þetta styrkir listalífið á landsvísu.
Það unga fólk sem hefur fengið
tækifæri til að vinna í skapandi sum-
arstarfi er um fimm hundruð talsins
og meirihlutinn af því er starfandi
listamenn í dag,“ segir Ása.
Fyrirmyndarverkefni
Verkefnið Skapandi sumarstörf
fékk nýlega stóra viðurkenningu
sem sýnir fram á mikilvægi þess og
frumleika að sögn Ásu.
„Evrópusambandið tileinkar árið í
ár frumkrafti og sköpun og var verk-
efnið Skapandi sumarstörf valið sem
fyrirmyndarverkefni af menningar-
og menntasviði Evrópuráðsins. Allar
upplýsingar um verkefnið munu
birtast á heimasíðu Evrópuráðsins
bráðlega fyrir aðrar þjóðir til að
taka sér til fyrirmyndar. Þetta er
mikill heiður fyrir okkur.“
Skapandi sumarhóparnir fara
brátt að gera vart við sig í Reykjavík
en starfið hefst á þriðjudaginn og
stendur fram til loka júlí. „Þótt hóp-
arnir verði færri en fyrri ár gefa þeir
ekkert eftir í að gæða götur og torg
borgarinnar lífi í sumar,“ segir Ása
að lokum.
Gæða götur og torg lífi
Fjármagn til skapandi sumarstarfs ungmenna skorið niður hjá Reykja-
víkurborg Starfið var nýlega valið fyrirmyndarverkefni af Evrópuráðinu
Morgunblaðið/Valdís Thor
Listræn atvinna Skapandi sumarstörf ungs fólks á vegum Hins Hússins eru
lífleg og skemmtileg viðbót í miðbæ Reykjavíkur yfir sumartímann.
Takk & Takk - Tveir grafískir
hönnuðir kæta vegfarendur með
litlum glaðningum sem skildir
verða eftir á víð og dreif.
Brasskarar - Málmblásturssveit
sem ætlar sér að vinna hjarta
hins almenna borgara með glæst-
um lúðrablæstri og rokna stuði.
Ramadansfjelagið - Þrír dansarar
ætla að kanna óhefðbundnar
staðsetningar og rými í borginni.
Reginfirra - Hljómsveit sem mun
leika rafmagnaða og orkuríka
tónlist.
Götusögur - Í hverri viku líta
fimm nýjar Götusögur dagsins
ljós í strætóskýlum víðs vegar um
borgina.
Agent Fresco - Hljómsveitin end-
urútsetur lögin sín og spilar fyrir
gesti og gangandi í sumarblíð-
unni.
Crymoguide - Býður fólki upp á
ferðalag í hjólreiðavagni um
söguslóðir miðbæjarins.
Gúmmískáldin - Tvær gúmmí-
hjúpaðar stúlkur takast á við
ljóðaslamm.
Þrjá föstudaga í sumar eru hóp-
arnir með sameiginlega uppá-
komu sem kallast Föstudagsfiðr-
ildi og fer fram frá kl. 12-14 í
miðbænum, 12. og 26. júní og 10.
júlí. Síðan verður svokallaður
Vængjasláttur í Ráðhúsi Reykja-
víkur 16. júlí.
Sumarhópar 2009
Án hvers geturðu ekki verið? Sím-
ans míns.
Hefur þú burstað tennur barnsins
þíns í dag? (Spyr síðasti að-
alsmaður, Hrafna Herbertsdóttir
Idol-sigurvegari) Ég á ekki barn.
Hvar læturðu helst til þín taka á
heimilinu? Ég er mjög dugleg að
taka til í eldhúsinu en ekki alveg
eins dugleg að elda, kann að baka
samt.
Telur þú þig vera fegursta kvenna á
Íslandi? Nei. Ég læt titilinn alls
ekki stíga mér til höfuðs. Ég var
bara kosin sem fulltrúi Íslands til
að fara út í heim og keppa í fegurð-
arsamkeppni þar en ég tel mig alls
ekki vera fegurstu konu á Íslandi.
Er hægt að keppa í fegurð? Fegurð
er afstæð. Það er hægt að keppa í
hver ber sig best, er með mestu út-
geislunina, sterkasta göngulagið og
svo framvegis og það er það sem feg-
urðarsamkeppnir snúast um tel ég.
Finnst þér sú gagnrýni sem fegurð-
arsamkeppnir fá vera óréttmæt?
Fólk hefur að sjálfsögðu rétt á sín-
um skoðunum en ég hef ekkert út á
þessa keppni að setja. Mér fannst
hún frábær í alla staði.
Ísland í dag eða Kastljósið? Hvort
tveggja gott.
Mun fegurðin fleyta þér áfram?
Kannski það að hafa titilinn opni ein-
hverjar dyr fyrir mér, maður veit
aldrei.
Hversu pólitísk ertu á skalanum frá
1-10? Ég fylgist með nýjustu frétt-
um en ég er ekki mikið inni í pólitík,
ætli ég sé ekki fimma.
Hver er tilgangur lífsins? Að láta sér
líða vel. Að vera hamingjusamur og
sáttur við sjálfan sig og aðra. Finna
hvað mann langar að gera og stunda
það eftir bestu getu.
Hverju myndirðu vilja breyta í eigin
fari? Vildi óska þess að ég hefði
meiri þolinmæði.
Ertu frægust á Akranesi? Ég er ekk-
ert fræg, það þekkjast allir á Akra-
nesi og það hefur alltaf verið þannig.
Fólkið heima styður við bakið á mér
og ég er mjög þakklát fyrir það.
Á Ísland að ganga í ESB? Nei. Ég sé
ekki fyrir mér að ESB verði endi-
lega eins og það er í dag eftir x
mörg ár, en ég geri mér grein fyrir
því að krónan er stórt vandamál.
Á að tvöfalda Hvalfjarðargöngin?
Finnst frekar að það eigi að vera
frítt í göngin en að eyða pening í að
tvöfalda þau.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda? Hvernig líður þér í dag?
„FEGURÐ ER AFSTÆГ
AÐALSKONA VIKUNNAR ER AKRANESMÆR SEM FÉKK FEGURÐARKÓRÓNUNA EFTIRSÓTTU UM SÍÐUSTU HELGI.
GUÐRÚN DÖGG RÚNARSDÓTTIR ER UNGFRÚ ÍSLAND 2009 OG LÆTUR TITILINN EKKI STÍGA SÉR TIL HÖFUÐS.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Ja
ko
b
F
an
na
r