Morgunblaðið - 29.05.2009, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
L
SÝND Í KRINGLUNNI
HANNAH MONTANA kl. 6
LET THE RIGHT ONE IN kl. 8 - 10
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8
STAR TREK XI kl. 10
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
L
16 L
SÝND Í ÁLFABAKKA
...ERTU NÓGU
MIKILL MAÐUR
TIL AÐ SEGJA ÞAÐ?
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA
KNOCKED UP OG
FORGETTING SARAH MARSHALL
SÝND Í ÁLFABAKKA
“FUNNY AS HELL…”
PETER TRAVERS / ROLLING STONE
HÚN ELSKAÐI ALLT
SEM MIAMI HAFÐI
UPPÁ AÐ BJÓÐA
EN NÚ VERÐUR HÚN AÐ
FLYTJA Í MESTA
KRUMMASKUÐ ÍHEIMI!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
Empire
Fbl
Mbl.
10
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG SELFOSSI
ath. STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
L
SÝND Í KRINGLUNNI
„AFHVERJU GETA BANDARÍKJAMENN EKKI
GERT SVONA MYNDIR LENGUR?“ CNN
16
10
14
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HHH HHH HHH
CHICAGO TRIBUNE PREMIERE NEW YORK POST
HHH HHH
T.V. - KVIKMYNDIR.IS S.V. - MORGUNBLAÐIÐ
Wes Craven er mættur aftur með einhvern
ROSALEGASTA THRILLER SÍÐARI ÁRA
SÝND ME
Ð
ÍSLENSK
U TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG SELFOSSI
FRÁBÆR
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
Frá Höfundi Lost og
Fringe, J.J.Abrams, kemur
STÓRMYND
sem gagnrýnendur
halda vart
vatni yfir!
100/100
The Hollywood Reporter
100/100
Variety
100/100
“In the pop high it delivers, this is the greatest prequel ever made.”
Boston Globe
HHHH
Empire
HHHH
“Gleymdu nafninu. Ef þú fílar hraðskreiðan og dúndurspennandi sumarhasar með
frábærum tæknibrellum og flottum leikurum þá er Star Trek mynd fyrir þig!”
Tommi - kvikmyndir.is
SÝND Í KRINGLUNNI
16
L
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:50 - 8
X-MEN ORIGINS kl. 5:50 - 10:10
NEW IN TOWN kl. 8
THE UNBORN kl. 10:10 16
L
HANNAH MONTANA kl. 6 - 8
CRANK 2 kl. 10:20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6
STAR TREK XI kl. 8
THE BOAT THAT ROCKED kl. 10:20 12
ÓVISSUSÝNING
Í KRINGLUNNI KL. 10:30
• TERMINATOR SALVATION
• BRUNO
• TRANSFORMERS 2
• THE HANGOVER
• G.I. JOE
• HARRY POTTER AND THE
HALF-BLOOD PRINCE
• PUBLIC ENEMIES
EIN AF ÞESSUM
STÓRMYNDUM
VERÐUR SÝND
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
LJÓSMYNDASAFN Reykjavíkur
tilnefnir Einar Fal Ingólfsson til
hinna virtu ljósmyndaverðlauna
Henri Cartier-
Bresson Award
sem veitt eru
annað hvert ár.
Verðlaunin eru
ætluð ljósmynd-
urum sem vinna
í anda heimild-
arljósmyndunar
en Henri Car-
tier-Bresson er
goðsögn í alþjóð-
legum ljósmyndaheimi. Hann er af
mörgum talinn merkasti og
fremsti ljósmyndari tuttugustu
aldar og sérstaða hans liggur ekki
síst í því hversu mikið af fram-
úrskarandi ljósmyndum liggur eft-
ir hann. Henri Cartier-Bresson-
verðlaunin voru sett á fót árið
1988 af Robert Delpire sem er
mikilsvirtur höfundur og útgefandi
ljósmyndabóka. Meðal þeirra sem
hlotið hafa verðlaunin eru Josef
Koudelka, Larry Towell og Fazal
Sheikh.
Einar Falur Ingólfsson er einn
þekktasti og virtasti ljósmyndari á
Íslandi um þessar mundir auk þess
sem hann hefur starfað sem mynd-
ritstjóri, menningarblaðamaður og
bókmenntarýnir á Morgunblaðinu
um langt skeið. Um árabil hefur
hann unnið að metnaðarfullu ljós-
myndaverkefni sem hann kallar
„Dagbók í myndum“ eða „Sjón-
ræna dagbók“ og má skilgreina
sem ferðalag hans um lífið. Árið
2008 var hann með einkasýningu í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem
nefndist „Staðir – úr dagbók“ og
voru myndirnar frá ýmsum stöðum
víðs vegar um heim.
Dagbók í myndum
Í allar áttir Ein ljósmynda Einars Fals sem finna mátti á sýningu hans Staðir.
Einar Falur
Ingólfsson
Ljósmyndasafn Reykjavíkur tilnefnir Einar Fal
Ingólfsson til Henri Cartier-Bresson-verðlaunanna JAY Bennett, fyrrum meðlimur
gæðasveitarinnar Wilco er látinn,
aðeins 45 ára að aldri. Bennett
myndaði lengi vel sköpunarlegt öx-
ulveldi sveitarinnar ásamt leiðtog-
anum, Jeff Tweedy, en gekk hins
vegar úr sveitinni eftir hina lofuðu
Yankee Hotel Foxtrot (2002). Hann
og Tweedy höfðu þá barist nokkuð
hatrammlega um hvert ætti að fara
með sveitina eins og sjá má í heim-
ildarmyndinni I Am Trying To
Break Your Heart. Aðeins er hálfur
mánuður síðan Bennett lagði fram
formlega kæru á hendur Tweedy
vegna samningsbrota og ógreiddra
stefgjalda. Það lítur óneitanlega
illa út að kæran var lögð fram á
sama tíma og Bennett var að reyna
að raka saman fé fyrir mjaðma-
skiptaaðgerð.
Jeff Tweedy hefur nú sent frá sér
formlega – kannski full formlega –
yfirlýsingu þar sem hann harmar
andlát þessa gamla félaga síns.
Fyrrverandi
meðlimur
Wilco allur
Búið Jay Bennett tapaði svo því
stríði sem hann gat aldrei unnið.
RAPPARINN Eminem skaut bandarískum kollegum
sínum ref fyrir rass í síðustu viku þegar ný plata hans,
Relapse, seldist betur en nokkur önnur plata á þessu
ári fyrstu útgáfuvikuna.
Rúmlega 600 þúsund eintök seldust, sem er þrisvar
sinnum meira en ný plata Green Day gerði vikuna sem
hún kom út. Relapse er fimmta breiðskífa Eminem
sem fer beint á topp bandaríska sölulistans.
Eminem hefur verið iðinn í hljóðverinu síðastliðið
ár, eftir að hann náði að slíta sig frá verkjalyfjunum.
Rapparinn hefur lofað því að gefa út aðra plötu áður en árið er úti sem kem-
ur líklegast til með að heita því frumlega nafni Relapse 2.
Eminem langsöluhæstur
Eminem Vinnur
betur edrú en dópaður.