Morgunblaðið - 29.05.2009, Síða 44
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 149. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
ÞETTA HELST»
Átta ár fyrir kynferðisbrot
Hæstiréttur staðfesti í gær átta
ára fangelsisdóm yfir manni sem
beitt hafði stjúpdóttur sína kyn-
ferðisofbeldi í níu ár. Þetta er
þyngsti dómur sem fallið hefur í
kynferðisbrotamáli hér á landi. »2
Tilboð hafa áhrif á bílaverð
Mikil verðlækkun bílaumboðanna
Ingvars Helgasonar og B&L á svo-
kölluðum eftirársbílum lækkar verð
á notuðum bílum, segir Úlfar
Steindórsson, forstjóri Toyota á
Íslandi. »4
Gagnrýnir ríkisstjórnina
Formaður Framsóknarflokksins
gagnrýnir þingsályktunartillögu
Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna um aðildarumsókn að Evr-
ópusambandinu. Sæmdina vanti. »6
SKOÐANIR»
Forystugreinar: Sátt um ESB-
umsókn? | Eiður Smári
í fremstu röð
Ljósvakinn: Nýtt og himinhátt útlit
Staksteinar: Leynd yfir
dagskrárliðnum
Pistill: Upp með hnífinn
UMRÆÐAN»
Munið þið?
Um gildi samstöðu og samvinnu
Aðildarviðræður við ESB mundu
rýra traust á Íslandi erlendis
Ódýr leið til að kynnast
brautarakstri
Ætla að keppa á rafbíl
í Le Mans 2011
BÍLAR»
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-./
+.*-++
**+-0,
+1-2./
*3-/0*
*,-+**
**2-41
*-+343
*31-/.
*0/-33
5 675 +4# 8 +..3
*+,-1/
+.*-0*
**1-.3
+1-201
*3-2+4
*,-+24
**,-*2
*-1.+0
*31-34
*02-/4
++,-312,
&9:
*+,-,/
+.+-+.
**1-/+
+1-,/+
*3-242
*,-1.2
**,-/0
*-1.,2
*3/-2,
*02-30
Heitast 16° C | Kaldast 8° C
Sunnan 10-18 m/s og
væta sunnan- og vest-
anlands en annars
bjart. Hlýjast norðan
lands. » 10
Thelma og Dúsa
hafa opnað búðina
Fabelhaft á Lauga-
veginum og blása á
allt hjal um kreppu
og aðra kröm. »39
TÍSKA»
Enginn
bilbugur
TÓNLIST»
Phil Spector er í mjög
vondum málum. »42
Einar Falur Ingólfs-
son ljósmyndari hef-
ur verið tilnefndur
til Henri Cartier-
Bresson verð-
launanna. »41
LJÓSMYNDUN»
Ein þau
virtustu
MYNDLIST»
Lundapizzurnar renna
ljúflega niður. »35
TÓNLIST»
Bob Mintzer er á kafi í
íslenskri tónlist. »34
Menning
VEÐUR»
1. Nauðganir myndaðar
2. Tóku á móti veiðimönnum
3. Leitað vegna nauðgunar
4. Hundastúlka finnst í Síberíu
Íslenska krónan styrktist um 0,88%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
„ÞETTA er
hugsað þannig
að við erum að
færa honum
þetta að gjöf,
þetta íslenska
efni. Okkur líður
afskaplega vel
með að hafa ver-
ið beðin að spila
fyrir hann,“ seg-
ir rímnaskáldið Steindór Andersen
sem kemur fram ásamt hljómsveit-
inni Sigur Rós og fleirum í Laug-
ardalshöll á þriðjudaginn. Tilefnið
er fyrirlestur Dalai Lama, verald-
legs leiðtoga Tíbeta, sem verður í
Höllinni þann dag. | 38
Sigur Rós spilar
fyrir Dalai Lama
í Laugardalshöll
Jónsi í Sigur Rós
SÍÐASTLIÐIN fjórtán ár hefur
Hitt húsið gert út hópa í svoköll-
uðu skapandi sumarstarfi. Hóp-
arnir starfa yfir sumarið í Reykja-
víkurborg við fjölbreytilegustu
störf á sviði lista og glæða með
því borgarlífið. En nú bregður svo
við að hóparnir í ár eru mun færri
en áður hefur verið. Ása Hauks-
dóttir, deildarstjóri menningar-
mála hjá Hinu húsinu segist
harma þessa þróun, hún sé ein-
kennileg í ljósi þess að starfsemin
hefur nú fengið viðurkenningu frá
Evrópusambandinu sem fyr-
irmyndarverkefni. | 36
Skapandi sumar-
störf skorin niður
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
FÆSTIR fá jafn höfðinglegar kveðjur er þeir láta af
störfum og Kristján Þ. Jónsson, skipherra hjá Land-
helgisgæslunni. Þremur fallbyssuskotum var skotið
honum til heiðurs er Ægir kom að bryggju í morgun
eftir síðustu ferð Kristjáns.
„Þetta kom verulega á óvart. Ég hélt að ég væri
bara að koma heim úr venjulegum túr og að frúin
myndi taka á móti mér á bryggjunni, en síðan var
bara þessi heljarinnar flotta móttaka og kveðjuat-
höfn,“ segir Kristján. „Brytinn vissi meira um þetta
en ég, því að hann var búinn að vera að pukrast niðri
í kjallara að búa til snittur.“
Kristján, sem er 61 árs, er búinn að vera á varð-
skipi frá því hann var 14 ára og var stór hluti starfs-
fólks Gæslunnar í landi mættur til að kveðja hann.
„Ég byrjaði sem nemi 1962 og varð síðan háseti
1965.“ Alltaf hafi legið beint við að fara á sjóinn.
„Þegar ég var í Lindargötuskóla var ég í sjó-
vinnubekk og við fengum 30 tonna próf, eða punga-
próf, jafnvel þó að okkur vantaði alla siglingatíma.“
Kristján kveðst alltaf hafa haft ágætis sjófætur þótt
vissulega gætti stundum nokkurrar velgju við upphaf
starfsferilsins. Starfið hafi líka verið fjölbreytt, enda
flakka stýrimenn milli skipa og loftfara í störfum sín-
um.
Margt hefur líka breyst frá því hann fyrst steig um
borð. „Þegar ég byrjaði vorum við fjórir saman í her-
bergi. Nú eru flestir með sinn klefa og hver með sína
sturtu.“ Símasamband við fjölskylduna hafi sömuleiðis
verið takmarkað – einu samtölin við hana hafi verið er
lagst var við bryggju í einhverri sjávarbyggðinni.
Kristján kunni vel að meta móttökurnar sem hans
biðu í gær. „Ég sagði forstjóranum að ég væri nú al-
veg til í að draga uppsögnina til baka til að fá þetta
aftur, þetta var svo mikið fjör.“ Hann hyggst þó halda
sig í landi á næstunni. „Ég er með húsbíl og við höf-
um verið að dunda okkur við að ferðast á honum um
landið. Nú munum við gera meira af því, enda ekki
lengur háð áætlun Landhelgisgæslunnar. Nú er það
áætlun frúarinnar sem tekur við og ég tel hana bæði
ítarlegri og betur útfærða en þá sem Gæslan býður
upp á.“
Gæslan kvaddi Kristján
með fallbyssuskotum
Byrjaði sem nemi hjá Landhelgisgæslunni 14 ára gamall
Segir ekkert annað starf hafa komið til greina hjá sér
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kvaddur með virktum Í kveðjuræðu sinni sagði Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar, að útskrift-
arferð Kristjáns úr Stýrimannaskólanum hefði verið farin með leigubíl úr skólanum og niður í varðskip.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góðar móttökur Eiginkona Kristjáns var mætt ásamt
fjölskyldu á bryggjuna til að taka á móti manni sínum.
Nýliðar Stjörnunnar komust aftur í
efsta sætið á Íslandsmóti karla í
knattspyrnu í gærkvöld þegar þeir
lögðu Fylkismenn að velli í Garða-
bænum, 2:1. Stjörnumenn voru
manni færri í 80 mínútur eftir að
þeir misstu markvörð sinn af velli
með rautt spjald, annan leikinn í
röð.
FH lagði KR í níunda skiptið í
röð, 2:1, í Vesturbænum og komst
með því upp fyrir KR-inga og í ann-
að sætið. Stjarnan og FH eru með
12 stig en Keflavík og Fylkir 10
stig. | Íþróttir
Ljósmynd/Steinn Vignir
FH lagði KR og
Stjarnan aftur efst