Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 1
7. J Ú N Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 152. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is GUÐRÚN OG MARGRÉT JÓNSDÆTUR ALLT GERIST ALLTAF HRATT ANDRÉS ÖND 75 ára afmæli NICOLE Hannar ÍSlendinga TENGSL: MANSTU EFTIR TÍVOLÍ Á ÍSLANDI? SUNNUDAGUR GRASIÐ GRÆNNA?»4 Á FÖLSKUM FORSENDUM»6 MARGT bendir til þess að efnahags- ástandið geti haft áhrif á val íslenskra námsmanna á háskólum. Danmörk hefur verið langvinsælasta landið hing- að til en nám þar er dýrt sem stendur, sérstaklega í höf- uðborginni Kaupmannahöfn þar sem húsaleiga er hærri en á landsbyggðinni. Munu Ís- lendingar þurfa að stunda nám í auknum mæli á jað- arsvæðum? Hjördís Jónsdóttir hjá SÍNE telur ekki ólíklegt að þróunin geti orðið sú. Dýrt nám á Norðurlöndum Morðið á Benno Ohnesorg í Vestur- Berlín 2. júní 1967 hleypti illu blóði í samskipti stúdenta og yfirvalda og var kveikjan að hryðjuverkahreyfingum átt- unda áratugarins. Karl-Heinz Kurras, lögreglumaðurinn sem skaut Ohnesorg, reyndist á mála hjá Stasi og margir sjá nú söguna í nýju ljósi, bæði hvað snertir hægri öflin, sem vörðu Kurras, og vinstri öflin, sem gerðu hann að birtingarmynd fasískra tilhneiginga vestur-þýska rík- isins. Stasi og morð- ið á Ohnesorg SJÓMANNADAGURINN er haldinn hátíðlegur um allt land í dag í 71. sinn. Á þessum árlega hátíðisdegi sjómanna liggja flestar fleytur bundnar við bryggju og sjómenn og fjölskyldur þeirra gera sér glaðan dag. Sjómannadagurinn er reyndar sannkölluð þjóðarhátíð, enda vandfundinn sá Íslendingur sem ekki tengist hetjum hafsins á einhvern hátt. Í sérhverju mannaeyja úr róðri í síðustu viku í blíðskaparveðri. Þá kættist fuglinn yfir slóginu sem kastað var yfir borðstokkinn og tróð í sinn gogg. Árni Sæberg ljósmyndari var um borð í varðskipinu Ægi, sem sinnti reglubundnu eftirliti á miðunum, og notaði tæki- færið til að mynda Aðalbjörgu og önnur fley. | 28 sjávarplássi klæðist fólk í sitt fínasta púss, tekur þátt í fjöl- breyttum hátíðahöldum og heiðrar aldnar kempur, sem nú eru komnar í land eftir ævistarf á sjó. Kríur, mávar og múkkar munu líklega hafa sig hæg í dag, enda lítil von um æti frá fiskiskipum á þessum degi. Það var hins vegar nóg að fá þegar Aðalbjörgin RE var á leið til Vest- Morgunblaðið/Árni Sæberg HÁTÍÐ SJÓMANNA UM ALLT LAND Hlé á veisluhöldum hjá sjófuglinum á meðan skipin liggja bundin við bryggju „FRAMTÍÐ norðurskautsins varðar allt mannkyn, enda er talið að 25-30% af gas- og olíuauðlindum heims- ins liggi undir ísnum,“ segir Michel Rocard, fyrrverandi forsætisráðherra Frakka, sem tekið hefur að sér að vera sendiherra Frakka gagnvart heimskautunum. „Ef þessar orkulindir yrðu nýttar, þá gæti það magn- að verulega gróðurhúsaáhrifin, og það er eitt af því sem margir vísindamenn óttast.“ Framundan eru erfiðar samningaviðræður um skipt- ingu hafsvæðanna, sem opnast vegna hlýnunar jarðar. „Það er mikið í húfi,“ segir Rocard. „Með hlýnun sjávar má gera ráð fyrir að ný fiskimið verði til og að fiskiskipaflotinn fylgi í kjölfarið. En þarna eru engir vit- ar, engir björgunarbátar, engin sjúkraþjónusta, engin landamæri og ekkert aflahámark.“ Rocard segir að samningarnir séu mun flóknari en þeir sem gerðir voru um suðurskautið, en hann átti stóran þátt í þeim í forsætisráðherratíð sinni. „Þar voru bara mörgæsir og engir kjósendur,“ segir hann brosandi. „Við stöndum hins vegar frammi fyrir því að það búa um fjórar milljónir manna norðan heim- skautsbaugs.“ | 14 „Það er mikið í húfi“ Framtíð norðurskautsins varðar allt mannkyn Ný fiskimið verða til og fiskiskipaflotinn fylgir í kjölfarið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.