Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 4

Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 eru komin Silkiblómin frá Soldis eru til í Blómavalsverslunum um land allt. 1990 Skútuvogur - Grafarholt - Akureyri Egilsstaðir- Selfoss - Reykjanesbær Kringlan - Smáralind kr Silkiblóm í pottum Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is Í slenskir námsmenn erlendis hafa ekki farið varhluta af efnahagsástandinu á Íslandi síðastliðna mánuði. Búast má við að nemar leiti í lakari háskóla á jað- arsvæðum til að vega upp á móti aukn- um rekstrarkostnaði ef fram heldur sem horfir. Þetta er óheillavænleg þróun þar sem menntun erlendis í góðum háskólum hefur löngum verið talin hafa mikið hagnýtt gildi fyrir þjóðina. Margt leiðir til þess að nemar þurfa að endur- skoða áform sín; peningafærslur á milli landa hafa farið aftur á síðustu öld í hraða, margir námsmenn sitja uppi með skuldbindingar á Ís- landi, sérstaklega þeir sem hyggjast bíða af sér kreppuna, og svo hefur gengið hrunið með til- heyrandi kostnaði fyrir þá sem lifa af íslenskum krónum í útlöndum. Námsmenn sem fluttu út til Danmerkur 2004 fengu um það bil 100 danskar krónur fyrir hverjar þúsund íslenskar, en um þessar mundir fást aðeins 42 danskar krónur. Námslánin eru tengd genginu en ekki dugar það til því til viðbótar hefur verðlag í Danmörku hækkað verulega og auk þess eru sveiflur ís- lensku krónunnar afar miklar á milli mánaða og því geta nemar sem best lent í því að millifæra mánaðarlega pening til Danmerkur á genginu 19-20 íslenskar krónur fyrir eina danska yfir önnina en svo þegar kemur að útborgun náms- lána getur gengið verið nær 24 krónum íslensk- um fyrir eina danska. Námsmenn þurfa því að reyna að segja fyrir um gengisbreytingar, hvers útkoma er líklega aðeins óáreiðanlegri en krist- allskúluspá, ef ekki á að verða af fleiri þús- undum danskra króna. Eftir erfitt haust með mjög veikri krónu vegna bankahruns lenda námsmenn mögulega í því að millifæra á sterk- ara gengi upp úr áramótum og þá getur munað fyrir fjögurra manna fjölskyldu rúmum 200 þús- und íslenskum krónum á því sem fæst úr náms- lánunum og því sem þegar hefur verið eytt á haustönninni. Það er því vandlifað fyrir náms- menn um þessar mundir sem líklegast er þó engin nýlunda. Dýrt, dýrara, dýrast Danmörk er með dýrustu löndum að búa í og ekki mikill eftirbátur Noregs, sem líklega trónir á toppnum eða nálægt honum. Sem dæmi má nefna að tíu ávextir í poka kosta 25 danskar krónur eða um 600 íslenskar, en kostuðu 2004 ekki nema 100-150 krónur íslenskar. Þá þurfti einungis að punga út tíu íslenskum krónum fyrir eina danska og tíu stykki af ávöxtum kostuðu þá iðulega 10-15 danskar krónur. Þetta er um það bil sexföldun á verði reiknað í íslenskum krónum og skiptir þá í heildina litlu þegar námslánin eru reiknuð í dönskum krónum því námslánaskuld- irnar verða bara hærri sem því nemur. Með sanni má segja að 2004 hafi ávextirnir verið ódýrir og íslenska krónan sterk en verðlagið í Danmörku var vissulega hluti af aðdráttaraflinu fyrir námsmenn þegar krónan var hvað sterk- ust. Daglegt líf Hingað til hefur verið auðveldast fyrir náms- menn að fara til Danmerkur eða annarra Norð- urlanda í nám. Húsaleiga og annar fastur rekstrarkostnaður er hins vegar orðinn svo gríð- arlega hár að líklegt má telja að fólk sjái sér hreinlega ekki fært að hefja nám í þeim skólum sem hingað til hafa verið taldir hvað álitlegastir. Húsaleiga fyrir fjögurra herbergja íbúð í Ála- borg eða Horsens er hæglega um sex þúsund danskar kr. á meðan sambærilegt hús í Árósum kostar nær tíu þúsundum. Kaupmannahöfn get- ur svo verið enn dýrari. Húsaleigubæturnar geta verið í kringum þrjú þúsund og það má vera ljóst að verðlagið hlýtur að ýta fólki frá helstu byggðakjörnum, og þar með kannski þekktustu háskólunum, yfir á jaðarsvæðin þar sem ódýrara er að lifa. Fram til þessa hafa flestir farið í nám til Norðurlandanna en líklegt er að fólk verði að skoða nám á svæðum þar sem rekstrarkostn- aðurinn er lægri, Suður-Ítalíu frekar en Norður- Ítalíu, í sveitahéruðum Þýskalands eða Frakk- lands frekar en stórborgum í sömu löndum. Meiri rekstrarkostnaður námsmanna þýðir lakari lífsgæði og meiri einangrun frá Íslandi og því má spyrja sig hvort grasið sé raunverulega grænast í Danmörku þegar háskólanám er skoð- að. Ítalía 60Spánn 49 ÍSLAND Kanada 40 Bandaríkin 356 Svíþjóð 171 Bretland 406 Holland 96 Vinsælustu löndin Þau lönd sem flestir Íslendinga hugðu á háskólanám í, samkvæmt talningu umsókna um námslán hjá Lín fyrir námsárið 2008-2009. Danmörk 1.234 Þýskaland 58 Noregur 56 Ungverjaland 68 Grasið grænna?  Margir hyggja á nám til þess að bíða af sér kreppuna, en valið flækist vegna ástandsins  Háskólar á Norðurlöndum hafa verið vinsælir en dvöl þar er dýr sem stendur Morgunblaðið/Golli Sparað Námsmenn geta sparað sér miklar upp- hæðir með því að hjóla allan ársins hring. Námsmenneru yfirleitt kaffiþyrstir með eindæmum og fyrir þá sem að- hyllast gæði um- fram magn er eftirsóknarvert að laga sér espresso- kaffibolla. Í kaffibúð í miðbæ Álaborgar kostar 250 g kaffipoki fyrir espresso hvorki meira né minna en 65 danskar krónur, eða ríf- lega 1.500 krónur íslenskar. Á kaffi- stað á Íslandi fyrir skömmu fengust 300 grömm fyrir um það bil 600 krónur. Ef keyptur er cappuccino á staðnum, í stað þess að laga bollann sjálfur heima, kostar lítill bolli 32 danskar krónur eða tæplega 800 ís- lenskar krónur. Venjuleg fjölskylduferð í bíó og ápítsustað er orðin dýr í Dan- mörku. Þrjár níu tommu pítsur, tvö lítil bjórglös og tvö lítil glös af gosi á pítsustað og 100 grömm af sæl- gæti í poka, barnatilboð á poppi og gosi fyrir tvo, ein vatnsflaska og ein millistærð af gosi í bíó kostar rúm- lega 16.500 íslenskar krónur. Var þó þriðjudagstilboð í bíó þar sem tveir miðar fást fyrir einn. Ef ekki væri fyrir tilboðið væri upphæðin yfir 20 þúsund. Upphæðin er ríflega eitt prósent af námslánum fjögurra manna fjölskyldu sem fer í það sem einhvern tímann hefði verið talin hófleg leið til að skemmta fjölskyld- unni. Námslánin fyrir Danmörku eruþau sömu, hvort sem búið er í miðborg Kaupmannahafnar eða úti á landi. Það getur hins vegar munað miklu á leiguverði og öðrum rekstr- arkostnaði eins og rafmagni og hita. Þannig kostar 50 fermetra íbúð mið- svæðis í Kaupmannahöfn um sex þúsund danskar krónur á mánuði í leigu með hita en án rafmagns. Fyrir sama verð fæst íbúð miðsvæðis í Ár- ósum í sömu stærð en þá í nýju húsi. Í Álaborg fæst hins vegar 120 fm íbúð miðsvæðis eða nálægt háskól- anum fyrir sama pening og það jafn- vel í nýju húsnæði. Fjölskyldufólk er því í raun tilneytt að skoða nám ann- ars staðar en í höfuðborgunum. Stiklur Í samtali við Hjördísi Jónsdóttur,framkvæmdastjóra Sambands íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE), kom fram að Íslendingar gætu neyðst til að sækja aðra skóla en þá sem hafa verið vinsælastir til þessa. „Við höfum enn sem komið er ekki fengið miklar upplýsingar um að fólk velji sér nýja staði til náms. Mér þykir samt sem áður ekki ólíklegt að þróunin verði sú, þegar litið verður á tölurnar eftir nokkrar vikur. Þótt þetta sé ekki komið fram núna gæti einmitt vel verið að þetta yrði niðurstaðan. Fólk er hins vegar þegar í virkileg- um vandræðum og það er það sem við heyrum mest um núna, t.d. að fólk sem er nú þegar í námi eigi erf- itt með að halda áfram og þá skipt- ir litlu máli hvort fólk er í námi í Horsens eða Kaupmannahöfn. Við erum mjög hrædd um að fólk fari að flosna upp úr námi við þessar aðstæður,“ segir Hjördís. Gjör- breyttar forsendur þýða því að nemar geta neyðst til að endur- skoða áform sín. „Norræna ráð- herranefndin hefur lagt til hliðar peninga til að styrkja íslenska námsmenn í þessari stöðu,“ segir Hjördís en í vikunni var tilkynnt að Íslendingar gætu sótt um fram- færslustyrk hjá nefndinni. „Það er ekki hægt að setja allt á ís vegna ástandsins. Margir skólar erlendis hafa komið til móts við námsmenn frá Íslandi, t.d. í Bretlandi, og styrk- ir Norrænu ráðherranefndarinnar skipta líka máli.“ Í dag fer tæplega helmingur íslenskra námsmanna hins vegar til Danmerkur í nám og verður forvitnilegt að sjá hvort ein- hver brögð verði að því að fólk velji t.d. Svíþjóð fremur en Danmörku vegna kostnaðar, eða aðra fjarlæg- ari staði. Erfiðleikar við breyttar aðstæður SKOÐUN Hjördís Jónsdóttir Viðmælandi er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE). Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.