Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 8
8 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Mama mia! Ítalir eru upp til hópa tilfinningaverur og Carlo Ancelotti lætur ekki sitt eftir liggja í tvísýnum kappleikjum. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig breska pressan kemur til með að með- höndla kappann. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is S eint verður sagt að starf knattspyrnustjóra enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea sé það örugg- asta í heimi. Frá því Dave Sexton hvarf á braut árið 1974 hefur enginn setið lengur í þessu funheita sæti en fjögur ár. Heldur hefur meðaltíminn líka verið að styttast eftir að Roman Arka- dyevich Abramovich festi kaup á fé- laginu fyrir sex árum enda er rúss- neski auðkýfingurinn þrútinn af metnaði. Eftir að „hinn útvaldi“, José Mourinho, lét óvænt af störf- um fyrir rúmum 20 mánuðum hafa eigi færri en þrír menn komið og farið. Avram Grant fékk það vanþakk- láta hlutverk að feta í fótspor Mo- urinhos og enda þótt hann skilaði liðinu alla leið í úrslitaleik Meistara- deildar Evrópu sá hann sæng sína uppreidda. Grant þótti ekki nógu svipmikill fyrir Chelsea. Það kom sér því öðrum þræði vel að víta- spyrna Johns Terrys skyldi skripla á skötunni í Moskvu. Það er alltaf auðveldara að segja upp manni sem hafnað hefur í öðru sæti. Hiddink lét ekki freistast Luiz Felipe Scolari kom inn með lúðrablæstri og söng en Gene Hack- man-glottið gufaði fljótt upp. Scol- ari var ekki vandanum vaxinn. Þá leitaði Chelsea á náðir Guus Hidd- inks, sem raunar náði fljótt prýði- legum tökum á liðinu og gerði það m.a. að bikarmeistara um liðna helgi. Margir eru líka á því að Chelsea hafi fallið óverðskuldað úr keppni í undanúrslitum Meist- aradeildarinnar gegn Barcelona. En engu tauti var við Hiddink komið, hann unir hag sínum best í faðmi rússneska bjarnarins austur í Moskvu. Þá er komið að Carlo Ancelotti að stinga höfðinu í gin ljónsins. Ítalinn, sem verður fimmtugur á miðviku- daginn, tekur við stjórnvelinum um næstu mánaðamót. „Carlo er rétti maðurinn í starfið,“ sagði í yfirlýs- ingu frá Chelsea þegar ráðningin var kunngerð. „Hann hefur marg- sannað að hann hefur burði til að byggja upp lið sem geta náð ár- angri í mótum heimafyrir og í Evr- ópu.“ Ljóst er að hvergi verður slegið af væntingum. Chelsea hefur ekki unnið ensku úrvalsdeildina í þrjú ár og á enn eftir að fara höndum um æðsta kaleikinn, sjálfan Evrópubik- arinn. Þar hefur Ancelotti raunar forskot á hina nýju húsbændur sína. Hann lyfti honum tvívegis sem leik- maður og það sem meira er, einnig í tvígang sem knattspyrnustjóri AC Milan. Við erum að tala um mann sem er skraufþurr bakvið eyrun. Ancelotti var lykilmaður í af- burðaliði Milan fyrir um tveimur áratugum og lék 26 landsleiki fyrir Ítalíu. Hann tók við starfi knatt- spyrnustjóra hjá Mílanó-liðinu árið 2001 og stýrði því einu sinni til meistaratignar heimafyrir, 2003-04. Þá eru ítalski bikarinn (2002-03) og heimsbikar félagsliða (2007) einnig á afrekaskránni, auk Evróputitl- anna tveggja. Ancelotti ætti því ekki að fara á límingunum and- spænis viðfangsefni sínu nú. Mikilvægast að vinna sigra Mál hans í vikunni hefur líka örugglega hljómað eins og hugljúf kadensa eftir Rachmaninoff í eyrum Abramovich. „Hér er ég kominn með reynslu mína og kosti og það sem er mikilvægast er að vinna sigra.“ Og áfram hélt Ancelotti: „Ég gjörþekki ensku knattspyrnuna og Chelsea er frábært félag með stór- kostlega leikmenn innanborðs. Minn siður er að mynda tengsl við leikmennina og félagið. Ég hef yndi af samræðum og trúi á samvinnu.“ Spurður um Meistaradeildina sagði Ancelotti að hún væri sterk- asta keppni í heimi og öll félög dreymdi um Evrópubikarinn. „Það er frábær árangur hjá Chelsea að hafa komist fimm sinnum í undan- úrslit á sex árum. En nú er kominn tími til að vinna mótið!“ Enskir fjölmiðlar hafa verið að máta Ancelotti við tvo af risunum á Ítalíu, Arrigo Sacchi og Fabio Ca- pello, sem nú stýrir sem kunnugt er enska landsliðinu. Í samtali við dag- blaðið The Sun kvaðst Ancelotti upp með sér vegna þess sam- anburðar en hann gagnrýndi Ca- pello sem frægt er í endurminn- ingum sínum fyrir skort á samskiptahæfileikum. „Við eigum vissulega eitt sameiginlegt – góðan árangur,“ sagði Ancelotti. „Að mínu viti er nálgun okkar Capellos samt ólík og lið okkar leika mismunandi bolta. Öðru máli gegnir um Sacchi. Ég vann lengi með honum og lærði margt bæði sem leikmaður og þjálf- ari. Sacchi kom fótunum undir mig og gott betur.“ Nú reynir á kunnáttuna! Höfði stungið í gin ljónsins Carlo Ancelotti fær það erfiða verkefni að stýra enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea á næstu leiktíð en húsbændur á Stamford Bridge þykja kröfuharðari en gengur og gerist í sparkinu Reuters Carlo Ancelotti er margt til lista lagt. Það er ekki á allra vitorði að hann hefur leikið í þremur kvik- myndum um dagana. Þeirra fræg- ust er Don Camillo frá árinu 1983, þar sem enginn annar en gamla hasarmyndahetjan Terence Hill fór með aðalhlutverkið. Í myndinni er Ancelotti í hlut- verki knattspyrnumanns sem leik- ur fyrir lið erkióvinar Dons Camil- los, Peppones bæjarstjóra. Hann er ekkert lamb að leika sér við, skellir andstæðingum sínum flöt- um hverjum af öðrum uns aum- ingja Don Camillo er kominn í þrot með leikmenn. „Þetta er kappleikur milli engla og djöfla og það var mér sönn ánægja að leika í myndinni þar sem Don Camillo fæddist stein- snar frá mínum æskustöðvum. Ég þekki söguna því vel. Þetta var skemmtileg upplifun enda þótt ég hitti Terence Hill ekki nema í fimm mínútur,“ sagði Ancelotti við breska blaðið The Sun í vik- unni. Hinar myndirnar sem Ancelotti hefur leikið í eru líka sparktengd- ar. Mezzo destro, mezzo sinistro og L’Allenatore heita þær fyrir þá sem hafa hug á að skella sér út á næstu leigu. Ancelotti upplýsir að hann sé mikill kvikmyndaaðdáandi en ætti hann að velja milli kvikmyndar og knattspyrnuleiks færi það bara á einn veg. „Ég veldi leikinn án þess að hika. Engir tveir leikir eru eins. Maður getur aftur á móti horft tíu sinnum á sömu myndina og það breytist aldrei neitt.“ Lék leggjabrjót í Terence Hill-mynd Svalur Gamla brýnið Terence Hill. Carlo Ancelotti er einn sex mannasem orðið hafa Evrópumeist- arar bæði sem leikmenn og knatt- spyrnustjórar. Hann var leikmaður AC Milan 1989 og 1990 og stjóri sama félags 2003 og 2007. Hinir fimm eru Miguel Muñoz (leikmaður Real Madrid 1956 og 1957 og stjóri sama félags 1960 og 1966); Giovanni Trapattoni (leik- maður AC Milan 1963 og 1969 og stjóri Juventus 1985); Johan Cruyff (leikmaður Ajax 1971, 1972 og 1973 og stjóri Barcelona 1992); Frank Rijkaard (leikmaður AC Milan 1989 og 1990 og stjóri Barcelona 2006) og Josep Guardiola (leikmaður Barcelona 1992 og stjóri sama fé- lags 2009). Sigursæll í Evrópu Carlo Ancelotti er þriðji Ítalinnsem sest í stól knattspyrnu- stjóra á Stamford Bridge. Fyrstur til að spreyta sig var Gianluca Vialli sem lék ennþá með liðinu þegar hann var ráðinn til starfans í febrúar 1998. Hann þótti ná góðum árangri með Chelsea, vann deildarbikarinn og Evrópukeppni bikarhafa 1998 og enska bikarinn vorið 2000. Besti ár- angur hans í deildinni var 3. sæti 1998-99. Eigi að síður var Vialli lát- inn taka pokann sinn haustið 2000. Við af honum tók Claudio Ranieri sem stýrði liðinu í tæp fjögur ár. Vék fyrir José Mourinho sumarið 2004. Ranieri vann ekki til metorða á Brúnni en síðasta veturinn sem hann var með liðið, 2003-04, hafn- aði það í 2. sæti úrvalsdeildarinnar. Einstaklega áhugaverð ferð með skírskotun til sögunnar, með fararstjóra sem bjó í Austur- Þýskalandi áður en múrinn féll. Flogið til Berlínar og ekið til borgarinnar Leipzig sem Goethe kallaði „sína litlu París“. Gist í hjarta Leipzig í 4 nætur og farið í skoðunarferð um borgina. Frá Leipzig er farið í skoðunarferð í þjóðgarðinn Sächsische Schweiz eða „demantinn við Saxelfi“. Þjóðgarðurinn hefur í gegnum aldirnar verið vinsæll viðkomustaður landslagsmálara, sem segir kannski það sem segja þarf. Förum einnig til Dresden sem er þekkt fyrir listasöfn, hallir og Semper-óperuna. Eftir ánægjulega daga í Leipzig er haldið til Berlínar og farið í skoðunarferð um Potsdam, einn vinsælasta ferðamannastað Þýskalands. Gist í 3 nætur í Berlín og höfuðborgin skoðuð ásamt því að eiga frjálsan dag áður en flogið er heim á leið. Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir Verð: 149.880 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu, hálft fæði og íslensk fararstjórn. SUMAR 9 13. - 20. ágúst Sp ör eh f. s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar Leyndar perlur Austur - Þýskalands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.