Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 10

Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 10
fram breytingar í stjórnum lífeyrissjóðanna og manna þær með eigin fulltrúum? Hvað segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, við því? Eða er launþegaelítan kannski áfram um að vera áfram í elítuklúbbi með atvinnurekendaelít- unni? Vilhjálmur nefnir ekki einu orði að atvinnurek- endur eru í stjórnum lífeyrissjóða að ráðskast með fjármuni sem þeir eiga ekki krónu í. Kannski var það einhvern tíma gild röksemd, þótt ég dragi það stórlega í efa, að atvinnurekendur hefðu svo miklu meira vit á fjárfestingum en fulltrúar laun- þega, að launþegar þyrftu á atvinnurekendum að halda sér til halds og trausts, í stjórnum lífeyr- issjóðanna, svo þeir tækju nú ekki bara eintómar vitlausar ákvarðanir. Varla átti það við þegar lífeyrissjóðir ákváðu miklar fjárfestingar í hlutabréfum gömlu við- skiptabankanna, þ.e. Landsbanka, Kaupþings og Íslandsbanka (Glitnis), og fjárfestingarbankanum Straumi. Fjárfestingar sem á einni nóttu urðu að engu. Varla átti það við þegar lífeyrissjóðir voru að kaupa stóra hluti í fyrrverandi almennings- hlutafélögum, sem eru ýmist komin lóðbeint á hausinn, eru í greiðslustöðvun eða í gjörgæslu- rekstri ríkisins. Fjárfestingar sem í dag eru lítils eða einskis virði. Nei, Vilhjálmur og aðrir fulltrúar atvinnurek- enda mættu líta sér nær, í staðinn fyrir að hrökkva af hjörunum af vandlætingu og bræði, við það eitt að fá smá gagnrýni á sig, gagnrýni sem ég og raunar mjög margir aðrir teljum fullkomlega réttmæta og tímabæra. Varðandi þátttöku stjórnarmanna í boðsferðum fyrirtækja og banka á tímum uppgangs og útrásar ætla ég Vilhjálmi ekki þá fávísi sem hann reynir að skýla sér á bak við í „svargrein“ sinni. Það hljóta nú að vera hæg heimatökin hjá fram- kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins að ræða við félaga sína og fyrrverandi félaga í SA um að fá að kíkja aðeins á þátttakendalista í boðsferðunum rómuðu frá uppgangsárunum. Eða hvað?! Í fræðum um mannauðsstjórnun, sem er mikið tískufyrirbæri á stjórnunarsviðinu um þessar mundir, er það rækilega undirstrikað, að fyr- irtæki er ekkert annað en fólkið í fyrirtækinu. Þeim mun betra starfsfólki sem fyrirtækið hefur yfir að ráða, þeim mun öflugra og dýrmætara hljóti fyrirtækið að teljast. Launþegar eru oftast stoltir af því að starfa hjá fyrirtæki sem þykir búa Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sá ástæðu til þess að svara pistli mínum frá því síðasta sunnudag í löngu máli sl. miðvikudag. Það kom ekki á óvart. Það kom held- ur ekki á óvart að Vilhjálmur kaus að svara ekki þeirri gagnrýni sem ég setti fram, í þá veru að at- vinnurekendur eiga ekkert í lífeyrissjóðum okkar launþeganna og eiga þess vegna ekki að fá að ráðskast með fjármuni okkar. Við eigum þá, við sömdum við atvinnurekendur um að ákveðinn hluti launa okkar væri greiddur í lífeyrissjóð, sem væri okkar eign, ekki sameign okkar og atvinnu- rekenda. Þannig ættum við lífeyri til þess að fleyta okkur í gegnum efri árin. Því setti ég fram þá skoðun að það væri tíma- skekkja að atvinnurekendur ættu fulltrúa í stjórn- um lífeyrissjóða og þá tímaskekkju bæri að leið- rétta. Þótt ég hafi tilgreint nöfn Vilhjálms og Helga Magnússonar, formanns Samtaka iðnaðar- ins í stjórnum lífeyrissjóða, þá tók ég það sér- staklega fram að ég vildi alla fulltrúa atvinnurek- enda úr stjórnum lífeyrissjóða landsmanna. Þannig að það er voðalegt væl í Vilhjálmi að ég hafi sér í lagi talið það tímaskekkju að hann og Helgi sætu í stjórnum lífeyrissjóða. Er ekki lag nú fyrir laun- þegahreyfinguna á Ís- landi, að ná völdum í eig- in sjóðum og knýja yfir miklum mannauði og í slíkum fyrirtækjum skapast oftar en ekki mikil hollusta í garð fyr- irtækisins (e. Loyality – To Be Company Minded). Launþeginn á þó sjaldnast nokkurn hlut í fyrir- tækinu, en vinnur því samt sem áður heilt, því hagur fyrirtækisins er um leið hagur hans. Laun- þeginn hugsar kannski með stolti til þess, að vegna þess að hann og starfsfélagar hans vinna gott starf gengur fyrirtækinu vel, en það er ekki þar með sagt að launþeginn geri kröfu um að fá að sitja í stjórn fyrirtækisins, taka þátt í því að ákveða fjárfestingarstefnu þess eða stefnu yfir- leitt. Launþeginn veit sem er, að þeir sem eiga fyrirtækið vilja ráða sínu fyrirtæki, stefnu og ákvörðunum, þótt vitrir vinnuveitendur séu vissu- lega jákvæðir gagnvart uppbyggilegum ábend- ingum og hugmyndum, án þess þó að vera skuld- bundnir á nokkurn hátt til þess að fara eftir þeim. Þar sem Vilhjálmur virðist alfarið vera þeirrar skoðunar að hann og aðrir fulltrúar atvinnurek- enda eigi að fá að ráðskast með fjármuni sem við launþegar eigum væri fróðlegt að forvitnast um hvert hans viðhorf væri til þess hvort ekki væri bara réttast að launþegar ættu fulltrúa í stjórnum fyrirtækja, a.m.k. á meðan ekki verður hróflað við fulltrúum atvinnu- rekenda í líf- eyrissjóðum okkar laun- þeganna. Hvernig líst Vilhjálmi á þá hug- mynd? agnes@mbl.is Agnes segir … Voðalegt væl í Vilhjálmi Atvinnurekendur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA vill ekki missa tökin í lífeyrissjóðum launþega. 10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 HÆTTUM AÐ SELJA DÝNUR Allar dýnur –40% Opið virka daga kl. 11-18 Ármúla 44 • Sími 553 2035 Steingrímur J. Sigfússon fjár-málaráðherra sagði í Zetunni, umræðuþætti á mbl.is, hinn 23. mars sl. þegar lýst var efasemd- um við hann um að Svavar Gests- son væri heppi- legasti maðurinn til þess að leiða samninga- viðræður við Breta vegna Ice- save-deilunnar: „Ég treysti Svav- ari Gestssyni. Ég veit að hann er að gera góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjón- máli að hann landi – og hans fólk – glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.“     Nokkrum dögum síðar dró ráð-herrann að vísu aðeins í land um glæsileika niðurstöðunnar, en nú liggur hún fyrir.     Íslenska ríkið hefur skuldbundiðsig til þess að greiða 630 millj- arða króna vegna Icesave. Vextir verða 5,5% og ekki þarf að greiða af höfuðstól lánsins fyrr en að sjö árum liðnum, en þannig hækkar höfuðstóllinn frá ári til árs og verður að sjö árum liðnum kominn vel yfir 900 milljarða króna, verði ekkert greitt niður af láninu fyrr en að þeim tíma loknum.     Er það eitthvað til þess að hrópahúrra fyrir?     Með öllu er óljóst nú hversu há-ar fjárhæðir munu fást fyrir eignir Landsbankans, sem til stendur að reyna að selja á næstu sjö árum og láta andvirði þeirra ganga upp í skuldbindingarnar vegna Icesave, og það liggur sömu- leiðis ekkert fyrir um það hversu miklum tekjum „heilbrigð lána- söfn“ Landsbankans í Bretlandi munu skila. Því fer víðs fjarri að niðurstaðan sem nú liggur fyrir geti talist „glæsileg“. Er fjármálaráðherra kannski á annarri skoðun? Steingrímur J. Sigfússon Er einhver ástæða til að fagna? Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 9.00 í gærmorgun að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 9 alskýjað Lúxemborg 8 skúrir Algarve 18 léttskýjað Bolungarvík 7 alskýjað Brussel 8 léttskýjað Madríd 11 skýjað Akureyri 6 súld Dublin 7 léttskýjað Barcelona 16 léttskýjað Egilsstaðir 6 rigning Glasgow 8 léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 10 alskýjað London 11 súld Róm 21 skúrir Nuuk 3 alskýjað París 10 skúrir Aþena 24 heiðskírt Þórshöfn 4 skýjað Amsterdam 11 heiðskírt Winnipeg -1 heiðskírt Ósló 7 heiðskírt Hamborg 11 heiðskírt Montreal 15 heiðskírt Kaupmannahöfn 11 léttskýjað Berlín 12 heiðskírt New York 14 alskýjað Stokkhólmur 7 alskýjað Vín 13 skýjað Chicago 18 heiðskírt Helsinki 6 skýjað Moskva 9 þoka Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 7. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 0.05 0,7 6.05 3,4 12.10 0,7 18.28 3,8 3:08 23:46 ÍSAFJÖRÐUR 2.14 0,5 7.56 1,8 14.09 0,5 20.24 2,1 2:09 24:55 SIGLUFJÖRÐUR 4.08 0,2 10.42 1,1 16.23 0,4 22.29 1,2 1:47 24:43 DJÚPIVOGUR 3.07 1,8 9.13 0,5 15.41 2,2 21.56 0,6 2:26 23:27 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag Hæglætisveður, skýjað að mestu og dálítil úrkoma með köflum í flestum landshlutum. Hiti yfirleitt á bilinu 7 til 15 stig. Á fimmtudag og föstudag Útlit fyrir austlæga átt með vætu sunnan- og austanlands, annars yfirleitt þurrt. Áfram milt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg, suðlæg eða breytileg átt, léttir til um norðaustanvert landið, annars skýjað og lítils- háttar væta með köflum. Hlýj- ast suðvestantil í dag. Verkalýðsforystan Vill Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ ná völdum í sjóðum launþega?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.